Morgunblaðið - 13.07.2020, Síða 4

Morgunblaðið - 13.07.2020, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Meiriháttar ehf. er vel tækjum búið alhliða jarðverktakafyrirtæki Allar nánari upplýsingar eru á, meiriháttar.is í síma S:821 3200 eða með tölvupósti í info@meirihattar.is Við höfum mikla reynslu og erum lausnamiðaðir þegar kemur að húsgrunnum sama hvort sem er í auðveldu moldarlagið eða klöpp sem þarf að fleyga. Við útvegum einnig allskyns jarðvegsefni. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvær af þeim fjórum brúm sem Ís- tak er að byggja fyrir Vegagerðina við hringveginn á Suðurlandi eru á áætlun. Þær leysa af hólmi ein- breiðar brýr. Tafir hafa hins vegar orðið á hinum tveimur, af mismun- andi ástæðum. Vinna við brýrnar yfir Steina- vötn í Suðursveit og Kvíá í Öræfum gengur samkvæmt áætlun, að sögn Arons Bjarnasonar, verkefnastjóra hjá Vegagerðinni. Verða þær tekn- ar í notkun í haust. Fækkar um þrjár í ár Tafir hafa orðið við gerð brúar yfir Fellsá í Suðursveit vegna samninga við landeigendur og verður hún ekki tekin í notkun fyrr en á næsta ári. Vonast Aron til að það takist að ljúka nýrri brú á Brunná í Fljótshverfi á þessu ári en vatnavextir hafa tafið brúargerð þar. Á næsta ári var fyrirhugað að byggja nýja brú á Jökulsá á Sól- heimasandi og Hverfisfljót í Skaftárhreppi. Hvorug þeirra hef- ur verið boðin út. Jökulsá er mikil framkvæmd og dýr og hefur staðið á fjármögnun. Hún er umferðar- mesta einbreiða brúin á Hringveg- inum enda liggur hún að nokkrum vinsælustu ferðamannastöðum Suður- og Suðausturlands. Verið er að hanna brúna á Hverfisfljót. Gangi þessar áætlanir eftir fækkar einbreiðum brúm á Hring- veginum um þrjár á þessu ári og verða þá eftir 33, og hugsanlega um þrjár til viðbótar á næsta ári. Enginn bauð í Botnsá Vegagerðin bauð nýlega út gerð tveggja nýrra brúa á Vestfjörðum sem leysa eiga af hólmi einbreiðar brýr. Til þeirra fékkst flýtifé í efna- hagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. Kubbur ehf. bauðst til að byggja brúna á Bjarnardalsá í Önundar- firði fyrir um 288 milljónir kr. sem er 9% yfir áætluðum verktaka- kostnaði. Samningum er ekki lokið. Hins vegar kom ekkert tilboð í gerð brúar á Botnsá í Tálknafirði. Ekki hefur verið ákveðið hvernig brugðist verður við þeirri stöðu. Morgunblaðið/GSH Steinavötn Brúin er um 100 m löng og kemur í stað bráðabirgðabrúar eftir að gamla brúin skemmdist í flóðum. Tvær einbreiðar brýr aflagðar í haust  Unnið við fjórar brýr við hringveginn á Suðurlandi Pétur Magnússon Alexander Kristjánsson Guðrún Hálfdánardóttir Hægt verður að fjölga herbergjum í sóttvarnahúsinu ef þau 50 sem þegar eru til staðar fyllast. Þetta sagði Gylfi Þór Þorsteinsson, umsjónarmaður Sóttvarnarhússins á Rauðarárstíg, í samtali við mbl.is um helgina. Þá er einnig til skoðunar að taka til leigu annað hús til viðbótar við starfsem- ina. Um helgina greindi mbl.is frá því að um 45 manns hefðu verið í sóttkví í Sóttvarnahúsinu á Rauðarárstíg, og voru þeir allir umsækjendur um al- þjóðlega vernd. Að sögn Gylfa þurfa umsækjendur um alþjóðlega vernd að fara í skimun á Keflavíkurflugvelli og þurfa að svo búnu að dvelja í fimm daga í sótt- varnahúsinu áður en þeir fara í aðra skimun. Reynist það aftur neikvætt í seinni skimuninni er fólkið útskrifað. Vegna skorts á upplýsingum um það á hvaða stöðum umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa dvalið er annar háttur hafður á skimunarferl- inu hjá þeim en erlendum ferðamönn- um, sem þurfa aðeins einu sinni að fara í skimun við komuna til landsins. Nýjar reglur taka gildi Í dag taka nýjar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landa- mæri Íslands vegna kórónuveirunnar gildi. Íslenskir ríkisborgarar, auk ein- staklinga sem eru búsettir á Íslandi og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins, þurfa frá með deginum í dag að viðhafa svokallaða heimkomusmitgát í fjóra til fimm daga, og fara þá í aðra sýnatöku. Reglur þessar eru í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis og eru þær settar til að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landamær- um geti leitt til hópsmita á Íslandi. Í minnisblaði sóttvarnalæknis um reglurnar kemur fram að einstakling- ar sem þurfa að viðhafa heimkomu- smitgát skuli ekki fara á mannamót þar sem fleiri en tíu eru saman kom- in, ekki vera í samneyti við viðkvæma hópa, ekki heilsa með handabandi, forðast faðmlög og gæta að tveggja metra reglunni í samskiptum við aðra. Þar að auki skulu þeir huga vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum. Noti almenningssamgöngur Aftur á móti er einstaklingum sem þurfa að viðhafa heimasmitgát heim- ilt að nota almenningssamgöngur, fara í búðir og hitta kunningja og vini með ofangreindum takmörkunum. Að loknum fjórum til fimm dögum þurfa einstaklingar að fara í aðra sýnatöku, þeim að kostnaðarlausu. Fái þeir neikvæða niðurstöðu úr síð- ari sýnatöku ber þeim ekki lengur að viðhafa heimkomusmitgát. Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur einnig fram að stefnt sé að óbreyttu fyrirkomulagi á skimun á landamærum út júlí. Þá er einnig lagt til að opnunartími vínveitingastaða verði óbreyttur út júlí og að fjölda- takmarkanir verði óbreyttar út ágúst. Hægt að fjölga herbergjum í sóttvarnahúsi  Nýjar reglur um sóttkví, einangrun og sýnatöku við landamæri taka gildi Ljósmynd/Íslandshótel Rauðarárstígur Sóttvarnahúsið hefur verið vel nýtt að undanförnu. Fyrstu farþegaskip sumarsins komu til Reykjavíkur um helgina. Það fyrsta var franskt, Le Boreal, sem er tæplega 11 þúsund brúttó- tonn. Skipið lagðist að Miðbakka á laugardagsmorgun og komu far- þegarnir, sem voru um 200, með leiguflugvél frá París sem lenti á Keflavíkurflugvelli. Þeir fóru í skimun á flugvelli og voru síðan fluttir í 10-15 manna hópum um borð í skipið þegar niðurstaða skimana lá fyrir. Skipið Le Bellot kom svo hingað í gær. Farþegar skipsins koma til Ís- lands í dag og skipið leggur í haf undir kvöld. „Allir farþegar þurfa sjálfir að passa upp á fjarlægðartakmörk og hafa andlitsgrímu. Þegar neikvæð niðurstaða er komin má fólk fara um borð í skipið, þ.e. þurfa að sýna sms því til staðfestingar,“ segir í frétt á vef Faxaflóahafna. Skipafélagið Ponant áætlar sex skipakomur til Reykjavíkur í júlí, en félagið gerir út bæði Le Boreal og Le Bellot. Fara þau héðan í lysti- reisur að Grænlandi. Upphaflega áttu skipin að fara til Hafnar- fjarðar, en þar er ekki sóttvarna- höfn. Því varð Reykjavíkurhöfn fyrir valinu. sbs@mbl.is/sisi@mbl.is Frönsku skipin komu fyrst Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Le Bellot Liggur við Miðbakkann og leggur í haf nú með kvöldinu. Morgunblaðið/Björn Jóhann Le Boreal Fyrsta skemmtiferðaskipið sem kom til Reykjavíkur síðan í mars.  Sigla að Græn- landi  Reykjavík er sóttvarnahöfn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.