Morgunblaðið - 13.07.2020, Side 6

Morgunblaðið - 13.07.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Verkfræðistofan Vatnaskil hefur kortlagt fyrir Orkustofnun væntan- lega smávirkjanakosti í sveitarfélög- um á Austurlandi. Lagt var upp með að finna virkjanakosti á stærðar- bilinu 100 kWe upp í 10 MWe. Í skýrslu sem verkfræðistofan vann fyrir Orkustofnun kemur fram að kortlagðir hafi verið 883 smá- virkjunarkostir í sveitarfélögum á Austurlandi og heildarafl þeirra sé 1.603 MWe. Þó er munur á raunhæfum fjölda virkjunarkosta og þeim sem kort- lagðir eru í skýrslunni. Mögulegur fjöldi virkjunarkosta og þar af leiðandi heildarafl þeirra er töluvert lægri, þar sem nokkur fjöldi kosta sem dregnir hafa verið fram hefur áhrif á virkjunarkosti í sama vatnsfalli. Fram kemur í skýrslunni að sumir þeirra kosta sem dregnir hafi verið fram geti verið erfiðir í framkvæmd eða ógerlegir af öðrum ástæðum. Tölum um orkugetu ber einnig að taka með fyrirvara, þar sem um frumathugun er að ræða sem hefur það að leiðarljósi að draga fram sem flesta kosti sem vert gæti verið að kanna nánar. Meðalrennsli í vatnsföllum er ákvarðað út frá hæðarlíkani, meðal- úrkomukorti og meðaluppgufunar- korti, en náttúruleg orkugeta er síð- an ákvörðuð í farvegum vatnsfalla sem margfeldi hæðar og rennslis. Í kjölfarið eru vænlegustu inn- takspunktar fyrir virkjun fundnir í hverju vatnsfalli, sem staðbundin há- mörk í náttúrulegri orkugetu. Flestir möguleikarnir voru dregn- ir upp á Fljótsdalshéraði, Djúpa- vogshreppi og Fjarðabyggð. 883 smávirkjanakostir kortlagðir á Austurlandi Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Hálslón Kárahnjúkavirkjun er stærsta virkjun á Austurlandi.  Orkustofnun skoðar möguleikana Dan V. S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali. s. 896 4013 Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali s. 897 8061 Þórarinn Friðriksson lögg. fasteignasali s. 844 6353 Jón Bergsson lögmaður og lg.fs. s. 777 1215 Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is NÓNHÆÐ Arnarsmári 36-40 OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 14. JÚLÍ FRÁ KL. 12:00-13:00 Glæsilegar nýjar íbúðir með stæði í bílageymslu. 3ja, 4ra og 5 herbergja. Vandaðar íbúðir. Útsýni. VIÐTAL Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is „Það er komin mikil tilhlökkun í mannskapinn að hitta fjölskyldurn- ar, því er ekki að neita. Þetta er orðið ansi langt og strangt úthald,“ segir Bragi Björgvinsson, skipstjóri á Dettifossi, nýjasta og stærsta skipi Íslendinga. Dettifoss er væntanlegur til Reykjavíkur í dag eftir 68 daga siglingu frá Kína. Dettifoss sigldi 7. maí frá Guang- zhou, þar sem hann var smíðaður, til Taicang, þar sem farmur (tómir gámar) var lestaður til Evrópu. Síðan var siglt frá Kína með við- komu í Singapúr, Srí Lanka og gegnum Súesskurðinn inn á Mið- jarðarhafið. Hluta leiðarinnar komu þrír atvinnuhermenn um borð til að verjast árás sjóræningja ef til kæmi en þeir létu sem betur fer ekki sjá sig. Áfram var haldið til Rússlands með farm. Þaðan lá leiðin til Dan- merkur en þar fór skipið inn í sigl- ingaáætlun Eimskips, eiganda skipsins. Lagt var af stað til Ís- lands frá Árósum í hádeginu á föstudaginn. Bragi segir að heimferðin hafi að öllu leyti gengið vel og tíminn hafi verið ótrúlega fljótur að líða. Í áhöfninni eru sextán manns og hef- ur verið brjálað að gera allan tímann. „Enda hafa allir þurft að læra á nýja hluti, í brúnni, á dekki og ekki síst í vélarrúminu. En þetta er úrvals mannskapur hér um borð og því hefur allt gengið eins og best verður á kosið,“ segir Bragi. Halda nánast strax til Nuuk Þegar skipið kemur til Reykja- víkur í dag stoppar það ekki nema í fáeina klukkutíma en heldur síðan til Nuuk á Grænlandi. Bragi verður áfram um borð ásamt fimm öðrum úr áhöfninni, en hinir fara í land. Þeir skipverjar sem halda áfram för fá ekki að hitta neina í landi af sóttvarnaástæðum. Tæknimenn frá MAN-verksmiðjunum komu um borð í Danmörku til að fylgjast með vélum skipsins og sigldu með til Íslands. Þeir höfðu ekki verið í einangrun og því verður engin áhætta tekin. Ríkharður Sverris- son, sem verður skipstjóri á Detti- fossi á móti Braga, kemur nú um borð til að læra handtökin á sigl- ingunni til Grænlands. Hann mun svo taka við skipinu þegar það kemur frá Grænlandi og þá fá Bragi og hans menn langþráð frí. Bragi og fjórir aðrir úr áhöfninni fóru utan til Kína 18. mars og er því úthaldið orðið ansi langt hjá þeim. Þegar til Kína kom þurfti hópurinn að fara í 14 daga ein- angrun á hóteli. Þeir urðu að dvelja allan tímann innilokaðir á hótelher- bergi og máttu engan hitta. Matinn fengu þeir sendan upp á herbergi. Ekkert var við að vera, aðeins kín- versk sjónvarpsstöð í boði á her- berginu. Hópurinn var ansi feginn þegar einangruninni lauk loksins. Fjölskyldum áhafnarinnar og starfsmönnum Eimskips verður í dag boðið í stuttan viðburð á hafnarbakkanum til að taka á móti skipinu og áhöfninni. Áætlað er að Dettifoss komi í Sundahöfn um klukkan 17. Það kann að breytast og geta þeir sem vilja fylgjast með heimkomu skipsins séð staðfestan tíma á heimasíðu Faxaflóahafna. Síðar verður skipinu formlega gefið nafn við hátíðlega athöfn. Dettifoss og systurskip hans, Brúarfoss, verða stærstu gámaskip í sögu íslensks kaupskipaflota, 180 metra löng, 31 metra breið og geta borið 2.150 gámaeiningar. Skipin mælast 26.500 brúttótonn. Gang- hraði er mestur 20,5 sjómílur á klukkustund. Mikil tilhlökkun  Dettifoss, stærsta skip Íslendinga, er væntanlegur til Reykjavíkur í dag  Bragi skipstjóri segir að heimferðin hafi að öllu leyti gengið vel  Brjálað að gera allan tímann Dettifoss Nýjasta skip Eimskips er væntanlegt til Reykjavíkur síðdegis í dag. Það mælist 26.500 brúttótonn og getur tekið 2.150 gámaeiningar. Ljósmyndir/Eimskip Skipstjórinn Bragi Björgvinsson í fullum skrúða um borð í skipi sínu, Detti- fossi. Bragi og fjórir aðrir úr áhöfninni héldu af stað til Kína 18. mars. Tjaldsvæði á Suðurlandi voru vinsæl um helgina, enda veður gott og margir komnir í sumarleyfi. Á Laugalandi í Holtum í Rangárþingi ytra var fólk í á annað hundrað far- hýsum og tjöldum og gestir vel á fimmta hundrað. „Íslendingar eru duglegir að ferðast. Fólk lætur ekki slá sig út af laginu, margir hefðu væntanlega verið í útlöndum á þess- um tíma en nú þegar hindranir eru uppi er landinn á landinu,“ segir Engilbert Olgeirsson, sem ásamt Rán Jósepsdóttur konu sinni rekur tjaldsvæðið að Laugalandi. Vinsælt er meðal fjölskyldufólks að dveljast að Laugalandi og um helgina var þar hópur vinnufélaga í sumarferð, stórfjölskylda hélt lítið ættarmót. Á tjaldsvæðinu voru einn- ig nýbökuð brúðhjón sem efndu til veislu fyrir vini og vandamenn í íþróttahúsi á staðnum. Þá segir Engilbert að fólk sé sér vel meðvitað um fjarlægðarmörk og sóttvarnir og sýni skynsemi í því sambandi. Rafmagn og þægindi „Margir spyrja hvaða afþreying sé í boði og vissulega er heilmargt hér í kring, en svo velja margir líka bara að vera á tjaldsvæðunum í sól- inni og leikaðstaðan hér fyrir krakk- ana er mjög fín,“ segir Engilbert og enn fremur: „Margir velta fyrir sér hversu margir megi vera í hverjum reit á tjaldsvæðunum með tilliti til sótt- varna. Að fólk hafa slíkt í huga er mjög gott. Svo spyr fólk líka hvort nægt rafmagn sé fyrir ferðavagna, sem oftast er. Fólk vill þægindi og góða aðstöðu í útilegunni.“ Fljótshlíðin var fjölsótt um helgina og í flugferð blaðamanns sást að margir dvöldust á tjaldsvæð- unum þar í sveit. Svipaða sögu má segja frá öðrum ferðamannastöðum á Suðurlandi, Varúð á Flúðum „Yfir sumarið vilja Íslendingar fara í útilegur og gista á tjald- svæðum. Því finnst mér skjóta svo- lítið skökku við að ferðagjöf stjórn- valda gildi ekki á stöðum eins og hér,“ segir Birgir Guðjónsson, sem rekur tjaldsvæðið á Flúðum. Því hef- ur verið skipt upp í nokkra reiti með tilliti til gestafjölda og varúðar vegna kórónuveirunnar. Sá viðbún- aður hefur virkað vel og allt gengið eins og í sögu. Ljóst er þó að tak- marka þarf fjölda gesta á tjaldsvæð- unum um verslunarmannahelgina og hátíðahöld á Flúðum þar og þá verða með öðru og lágstemmdara móti en undanfarin ár. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fljótshlíð Þétt raðað á tjaldsvæði á Hellishólum í Fljótshlíð á laugardag. Fjölmenni á tjaldsvæðum  Sumarblíða á Suðurlandi um helgina Laugaland Engilbert Olgeirsson og dóttirin Eldey Eva á tjaldsvæðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.