Morgunblaðið - 13.07.2020, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 13.07.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Aðalhagfræðingur Samtaka iðn-aðarins lýsti áhyggjum af at- vinnuástandinu í haust í samtali við Morgunblaðið um helgina. Hann bætti því við að hann reiknaði með að „tölur haustsins verði ljótar. En hversu ljótar þær verða fer m.a. eft- ir hagstjórnar- aðgerðunum og virkni þeirra. Þetta fer eftir því hversu mikið við náum að koma hagkerfinu af stað“.    Í núverandi efnahagsástandiskiptir miklu að hið opinbera grípi til aðgerða sem geta orðið til þess að örva vöxt atvinnulífsins og fjölga störfum, en þetta tvennt helst almennt í hendur.    Ríkið hefur gripið til margvís-legra neyðaraðgerða til að reyna að forðast fjöldagjaldþrot fyrirtækja og takmarka atvinnu- leysi eftir því sem unnt er. Ekki þarf að efast um að þessar aðgerð- ir hafa hingað til skilað árangri, en nú er brýnt að horfa lengra fram á veginn og skapa betri skilyrði fyrir atvinnulífið til að vaxa og dafna.    Til þess þarf rekstrarumhverfifyrirtækja að vera stöðugt en það þarf líka að létta byrðunum af fyrirtækjum og ekki aðeins til skamms tíma heldur til lengri tíma.    Fjárfestar og fyrirtæki þurfa aðgeta skipulagt sig og fjárfest í nýjum tækifærum og til að svo megi verða í auknum mæli þarf að minnka regluverk og lækka skatta. Augljóst er að lækkun og helst niðurfelling tryggingagjalds mundi skipta miklu í baráttunni við at- vinnuleysið, enda er trygginga- gjaldið skattur á störf. Ingólfur Bender Nú er ekki tíminn fyrir skatta á störf STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Tímabundin vinnustöðvun skipverja á Herjólfi mun hefjast á miðnætti í kvöld, en að sögn beggja aðila deil- unnar eru engar aðgerðir fyrirhug- aðar til að stöðva verkfallið. Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, segir í samtali við Morgun- blaðið að félagið hafi boðið Herjólfi ohf. málamiðlun til að fresta verk- fallinu en að henni hafi verið hafnað. Málamiðlunin fólst í því að Herj- ólfur myndi bæta einni þernu við áhöfn skipsins til að létta undir með áhöfninni. Ef Herjólfur hefði fallist á það hefði verkfallinu verið frestað. Jónas segist hissa á að Herjólfur ohf. hafi ekki fallist á málamiðl- unina. „Frestun ein og sér er ekki að gera neitt fyrir okkur,“ segir Guð- bjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs ohf., í sam- tali við Morgunblaðið. „Afstaða okkar er skýr. Það er ekkert fyrirtæki á Íslandi í dag sem getur farið í 25-30% launahækkun ofan á lífskjarasamninga sem hefur verið samið um á almennum vinnu- markaði.“ Þá segir hann að önnur viðbrögð þurfi að koma frá Sjó- mannafélagi Íslands við því sem Herjólfur ohf. hefur lagt fram ef funda eigi á ný. petur@mbl.is Segir að frestun verkfalls áorki engu  Engar aðgerðir eru í gangi til að stöðva verkfall skipverja á Herjólfi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Herjólfur Ef samningar nást ekki verður önnur vinnustöðvun 28. júlí. Andrés Indriðason, frumkvöðull á sviði ís- lenskrar dagskrár- gerðar í sjónvarpi, er látinn, 78 ára að aldri. Andrés fæddist í Reykjavík 7. ágúst 1941. Hann starfaði sem blaðamaður, kennari, dagskrár- gerðarmaður í útvarpi og sjónvarpi, við kvik- myndagerð og rit- störf. Hann þýddi einnig fjölda bóka og þátta fyrir Sjónvarpið. Andrés varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1963 og stund- aði enskunám við Háskóla Íslands 1963-64. Hann nam kvikmyndagerð og dagskrárgerð fyrir sjónvarp í Ár- ósum og Kaupmannahöfn 1965 og 1966. Hann vann sem dagskrár- gerðarmaður hjá Sjónvarpinu frá stofnun þess árin 1966-85. Frá 1985 starfaði hann sem rithöfundur og vann samhliða sjálfstætt að dag- skrárgerð í Sjónvarpinu. Einnig vann hann að kvikmyndagerð sem leikstjóri og handritshöfundur. Hann var m.a. upptökustjóri og um- sjónarmaður Gettu betur í 25 ár og hlaut fyrir það Edduverðlaunin. Andrés skrifaði meira en 30 skáld- sögur og tugi leikverka fyrir útvarp, sjónvarp og leiksvið, t.d. Þjóðleik- húsið og Kópavogsleikhúsið. Fyrsta bók hans, Lyklabarn, hlaut fyrstu verðlaun í barnabókasamkeppni Máls og menningar árið 1979. Önnur bók hans, Polli er ekkert blávatn, hlaut verðlaun Fræðsluráðs Reykja- víkur sem besta frum- samda bókin árið 1981. Fyrir bókina Það var skræpa hlaut Andrés verðlaun Námsgagna- stofnunar í samkeppni um létt lesefni fyrir börn árið 1984. Bækur hans hafa verið gefnar út í Þýska- landi, Sviss, Austurríki og Dan- mörku. Útvarpsleikrit Andrésar hafa ver- ið flutt alls staðar á Norðurlönd- unum og í Bretlandi og leiknar sjón- varpsmyndir hans fyrir börn hafa verið sýndar víða um heim. Andrés skapaði brúðupersón- urnar ástsælu Glám og Skrám sem birtust í leikþáttum í Stundinni okkar. Andrés skrifaði og leikstýrði fjöl- skyldumyndinni Veiðiferðinni sem frumsýnd var árið 1980 og er enn í dag ein mest sótta kvikmynd sem gerð hefur verið hérlendis. Andrés lætur eftir sig eiginkonu, Valgerði Ingimarsdóttur. Dætur þeirra eru Ester, f. 1973, og Ásta, f. 1976. Barnabörnin eru þrjú. Andlát Andrés Indriðason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.