Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
Margir sóttu hátíðina Allt sem
flýgur sem haldin var á Hellu um
helgina, þangað sem fjöldi flug-
manna á ýmsum gerðum minni
flugvéla var saman kominn. Al-
menningur gat þar fylgst með list-
flugi og séð ýmsar gerðir óvenju-
legra og sjaldséðra flugvéla. Sumar
hverjar eru heimasmíðaðar eða
endurgerðar og vöktu þær ekki síst
athygli.
„Að geta flogið eru forréttindi,
sem gerir sportið bæði spennandi
og skemmtilegt. Æ fleiri heillast af
þeim töfrum sem fluginu fylgja,
sem við sáum best á þeim áhuga
sem sviffluginu var sýndur. Þar
bauðst fólki að komast í kynning-
arflug og fór á sjötta tugmanns í
slíka reisu meðan á hátíðinni stóð.
Þá sló karamelluflugið í gegn með-
al krakkanna,“ segir Matthías
Sveinbjörnsson, forseti Flugmála-
félags Íslands, við Morgunblaðið.
Hátíðin stóð í tæpa viku og á
fyrstu dögum hennar var efnt til
Íslandsmeistaramóts í ýmsum
greinum, svo sem drónaflugi og því
að lenda flugvél á braut á punkt-
inum. Til slíks þarf bæði list og
leikni. Hið sama gildir í listfluginu,
en þar sýndu liðsmenn Flugsveitar-
innar ýmsa góða takta. Renndu
þeir sér yfir Helluflugvöll svo
strókurinn stóð aftan úr flugvélum
þeirra, sem eru af gerðinni Pitts
Special. Sveitina skipa Guðjón Jó-
hannsson, Kristján Þór Krist-
jánsson og Sigurður Ásgeirsson, en
sá síðastnefndi er flugstjóri á þyrl-
um Landhelgisgæslunnar.
sbs@mbl.is
Áhugi Flugið heillar marga og svo mætir fólk til að sýna sig og sjá aðra.
Sportið er spennandi og skemmtilegt
Allt flaug á Hellu um helgina Heimasmíðaðar vélar og listflug í hæsta gæðaflokki Töfrar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hátíð Vélum af ýmsum gerðum var flogið yfir svæðið og fágætir gripir voru til sýnis. Karamelluflug fyrir krakkana sló í gegn og flug rauða gírókoptans var sem rúsínan í pylsuendanum.
Listflug Flugsveitin sýndi mikil tilþrif í háloftunum á vélum af gerðinni
Pitts Special. Reykurinn stóð aftur úr þeim svo úr varð mikið sjónarspil.
Tveir voru fluttir á slysadeild Land-
spítalans eftir að bíll valt á mis-
lægum gatnamótum Miklubrautar
og Sæbrautar í Reykjavík skömmu
fyrir klukkan fjögur í gær.
Mikill viðbúnaður var á svæðinu
og komu tveir sjúkrabílar, slökkvi-
liðsbíll og lögreglubíll á vettvang.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu missti ökumaður stjórn á bíln-
um og keyrði utan í vegrið með fyrr-
greindum afleiðingum.
Tveir voru í bílnum og eru þeir
lítillega slasaðir, að sögn lögreglu,
en voru þó fluttir á sjúkrahús til að-
hlynningar.
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Bílvelta Nokkrar umferðartafir urðu vegna bílveltunnar síðdegis í gær,
einkum á aðreininni af Sæbraut á Miklubraut til vesturs.
Tveir fluttir á slysa-
deild eftir bílveltu
Fasteignir