Morgunblaðið - 13.07.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18
– 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum
– Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími
– Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna
Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu
Frægasta kennileiti Parísar, Eiffel-
turninn, hristir afleiðingar kórónu-
veirufaraldursins af sér daginn eft-
ir þjóðhátíðardag Frakka og
verður opnaður fyrir gesti upp á
efsta gólf á miðvikudag.
Fyrsta og önnur hæð turnsins
voru opnaðar táknrænt 26. júní, eft-
ir 104 daga lokun, þá lengstu eftir
seinni heimsstyrjöld. Er tekjutap af
völdum hennar sagt nema 27 millj-
ónum evra.
„Hvern hefur ekki dreymt um
París undir fótum sér úr 276 metra
hæð?“ sagði í tilkynningu Turn-
félagsins, Societe d’Exploitation de
la Tour Eiffel. „Það mun rætast frá
og með 15. júlí er efsta hæðin verð-
ur opnuð.“
Gestum turnsins verður skylt að
bera andlitsgrímu og halda
öryggisbili sín á milli. agas@mbl.is
Eiffelturninn opn-
aður allt upp í topp
Sól Blíðunnar notið undir Eiffelturni.
FRAKKLAND
Donald Trump Bandaríkjaforseti
segist aldrei hafa verið andvígur því
að bera andlitsgrímu. Það var þó ekki
fyrr en í gær að hann brá slíkri fyrir
vit sér. Hafði hann mánuðum saman
verið gagnrýndur fyrir að ganga ekki
á undan með góðu fordæmi í vörnum
gegn kórónuveirunni. Smit af hennar
völdum hafa aldrei verið fleiri en í
gær, þegar 66.528 tilfelli greindust.
Staðfest hefur verið smit hjá rúm-
lega 3,2 milljónum Bandaríkjamanna
en tæplega 135 þúsund þeirra eru
látin. Hafa nýsmit mælst fleiri en
60.000 á dag nokkra daga í röð.
Trump var með svarta grímu með
áprentuðu innsigli embættisins er
hann gekk um ganga Walter Reed-
hersjúkrahússins í Bethesda í Mary-
land-ríki og heilsaði upp á hermenn
sem þar lágu.
„Ég hef aldrei verið mótfallinn
grímunni og ég held að tími hennar
og staður sé kominn,“ sagði forsetinn
við upphaf ferðar sinnar til Bethesda.
Aðstoðarmenn hans eru sagðir
hafa vikum saman lagt að forsetan-
um að bregða upp grímu opinberlega
til að sýna að honum sé alvara í að
ráða niðurlögum veirunnar. Hefur
hún verið að sækja í sig veðrið í
Bandaríkjunum síðustu daga og
vikur, en á sama tíma hefur fylgi við
forsetann dalað og stendur hann nú
langt að baki Joe Biden, forsetaefni
Demókrataflokksins, í fylgiskönnun-
um.
Vegna skorts á skýrri og sam-
hangandi stefnu Hvíta hússins hefur
einstökum ríkjum Bandaríkjanna
verið falið að ákveða upp á eigin spýt-
ur hvort og hvernig aflétt verður að-
gerðum sem gripið hefur verið til
gegn kórónuveirunni.
Að vera með grímu eður ei hefur
orðið að veltuási í djúpt klofinni
bandarískri þjóð. Íhaldsmenn sem
styðja Trump neita að brúka andlits-
grímu á þeirri forsendu að þeir séu
þá sviptir frelsi. Frjálslyndari öfl
styðja burð grímunnar því hún sé
tákn samábyrgðar á tímum kreppu
sem snýst um líf eða dauða. Yfirvöld
sóttvarna í Bandaríkjunum mæla
með grímunni, á almannafæri hið
minnsta. agas@mbl.is
Trump setur upp grímu
Bandaríkjaforseti varð loks við ítrekuðum óskum ráðgjafa sinna og greip til
varna gegn kórónuveirunni Smit hjá 3,2 milljónum Bandaríkjamanna
AFP
Forseti Trump mætir grímuklæddur á hersjúkrahúsið í Bethesda.
Frans páfi sagðist í gær „mæddur
mjög“ yfir ákvörðun Tyrkja að
breyta Soffíukirkjunni (Ægisif),
minnisvarðanum frá tímum Býsans,
aftur úr safni í bænahús múslima.
„Hugsanir mínar reika til Istanbúl,
ég velti Ægisif fyrir mér, armæddur
mjög,“ segir í fyrstu viðbrögðum
páfastólsins, en ákvörðun Tyrkja um
breytt hlutverk bænahússins hefur
verið gagnrýnd um jarðir allar.
Dagblað Vatíkansins, Osservatore
Romano, sagði frá alþjóðlegri gagn-
rýni í fyrradag án eigin umsagnar um
ákvörðun Tyrkja frá því á föstudag.
Ægisif hefur verið helsta að-
dráttaraflið fyrir ferðamenn sem
leggja leið sína til Istanbúl. Hún var
reist sem dómkirkja keisaradæmis-
ins Býsans en breytt í mosku við til-
urð Tyrkjaveldis í Konstantínópel
árið 1453. Hún er á skrá UNESCO
yfir verndaðar minjar.
Recep Tayyip Erdogan, forseti
Tyrklands, tilkynnti fyrir helgi að
bænir hæfust í moskunni 24. júlí.
Hann hefur á undanförnum árum
margsinnis haft á orði að breyta
þyrfti nafni Soffíukirkju og breyta í
bænahús múslima. Árið 2018 las
hann ritningargreinar úr Kóraninum
í kirkjunni.
Ákvörðun Erdogans á sér stað
skömmu eftir að tyrkneskur dóm-
stóll ógilti ákvörðun ríkisstjórnar
Mustafa Kemal Ataturk frá 1934 um
að breyta bænahúsinu í safn.
agas@mbl.is
AFP
Vatíkanið Frans páfi flytur erindi sitt frá Péturskirkjunni í Róm í gær.
Tyrkir mæða páfa
Tveir aserskir hermenn eru sagðir
fallnir og fimm aðrir særðir eftir
hörð og umfangsmikil átök í gær-
morgun á landamærum Armeníu
og Aserbaídsjan.
Shushan Stepanian, talsmaður
Armeníuhers, sagði sveitir Aser-
baídsjan hafa skotið af fallbyssum á
skotmörk í héraðinu Tavush í mis-
heppnaðri hertöku. Manntjón hefði
orðið hjá sveitum Aserbaídsjan
þegar armenskir hermenn kæfðu
sókn þeirra asersku.
Varnarmálaráðuneyti Aserbaíd-
sjan sagði aðra sögu af atvikinu.
Armenskar sveitir hefðu ráðist á
landamærastöðvar í héraðinu To-
vus sem deilir landamærum með
Tavush.
Tveir féllu í skærum
á landamærunum
ARMENÍA OG ASERBAÍDSJAN
Samkvæmt útgönguspám sem birtar
voru við lok forsetakjörsins í Póllandi í
gærkvöldi vinnur sitjandi forseti,
Andrzej Duda, mjög nauman sigur.
Mældu spárnar fylgi hans 50,8% en
fylgi Rafals Trzaskowski, borgar-
stjóra Varsjár, 49,2%
Sérfræðingar sögðust reikna með
því að skekkjumörk spánna gætu ver-
ið allt að 2,0%. Ekki var búist við
niðurstöðu úr sjálfri atkvæðatalning-
unni fyrr en í dag. „Ég vil þakka öllum
þeim sem kusu mig fyrir stuðning-
inn,“ sagði Duda á fundi með stuðn-
ingsmönnum er spárnar voru birtar.
Sigri Duda verður það fyrirboði
umdeildrar uppstokkunar á réttar-
farskerfinu og áframhaldandi and-
stöðu við fóstureyðingar og réttindi
samkynhneigðra. Trzaskowski hefur
talað fyrir mun framsæknari stefnu-
málum og virkri þátttöku í ESB.
Í fyrri umferðinni hlaut Duda flest
atkvæði en vantaði ögn upp á að
hljóta hreinan meirihluta. Því þurfti
aðra umferð til að knýja fram niður-
stöðu. Þótti stefna í tvísýnt kjör því
Trzaskowski kvaðst eiga von á að
stuðningsmenn annarra frambjóð-
enda styddu hann í seinni umferðinni.
Verði Duda forseti undir í kosning-
unum verður stjórnarandstaðan í að-
stöðu til að grípa til meiriháttar
breytinga í pólskri pólitík, að sögn
BBC. Forsetinn hefur hins vegar
neitunarvald gegn lagafrumvörpum.
Duda með nauma forystu
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Ísland Pólverjar á Íslandi gátu kosið á skrifstofu ræðismanns Póllands á Ís-
landi í gær. Aldrei hafa fleiri Pólverjar hér verið á kjörskrá, eða um 4.500.
Útgönguspár í Póllandi í gærkvöldi
bentu til sigurs sitjandi forseta