Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 18

Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), alþingismaður og for- maður Miðflokksins, skrifar athyglisverða grein í Morgunblaðið 6. júlí sl. Þar kemur fram að Alþingi sam- þykkir ríkisstuðning við Borgarlínuna án þess að nokkur hald- bær áætlun um stofn- kostnað eða reksturs- kostnað liggi fyrir. Svo dæmi sé tekið er þetta veruleg afturför frá afgreiðslu þingsins á Vaðlaheiðar- göngunum, formlega séð, en hún var ekki góð heldur. En frá sjónarmiði góðra stjórnar- hátta er þetta miklu verra. Þarna er verið að binda ríkinu mikinn fjár- hagslegan bagga án þess að nokk- urt gagn sé í fyrir samfélagið. Auk þess er verið að stífla mikilvægustu samgönguæðar landsins, þjóðveg- ina á höfuðborgarsvæðinu. Svona lagað gerist ekki nema í krafti pólitísks rétttrúnaðar, en hann hefur töluvert fylgi meðal fólks sem trúir á þann misskilning að mestöll mengun og loftslags- vandræði séu einkabílnum að kenna. Í mörg ár er búið að reka trúboðsstöð í Borgartúninu sem predikar að öll slík vandræði leysist með Borgarlínu, en engan óraði fyr- ir að áróður hennar hefði náð þetta langt. Spyrja má hvaða trú er þetta og hvað gúrú er þarna á bak við? Seinni spurningin er ekki erfið. Gúrúinn á bak við er amerískur prófessor að nafni Scott Ruther- ford. Ágætur fræðimaður sem lést 2018. Fyrir um 15 árum hélt hann fyrirlestur við Verkfræðideild HÍ um hvernig ætti að tvöfalda afköst strætókerfa. Í þessum fyrirlestri birtist nákvæm uppskrift að strætókerfi Borgarlínunnar. Auð- vitað grunaði manninn ekki að hann væri að stofna trúarbrögð, enda passa núverandi trúboðar sig á að nefna Scott Rutherford aldrei á nafn, enda voru sporvagnar þeirra upphaflega hugmynd. En trúin er þarna, í áróðrinum heitir Borgarlína bættar almanna- samgöngur. Auðvitað þarf að bæta þær, t.d. með því að nota heppilegri aðferð til þeirra fólksflutninga en að senda út um allt galtóma yfir- byggða vörubíla sem heita strætó og eyða 45 l/100 km. Flutningsgeta þeirra er allt of mikil miðað við þörf. En Borgarlínan tvöfaldar þá flutningsgetu með enn fleiri, stærri og eyðslufrekari vögnum, slíkt bæt- ir ekki almannasamgöngur og er ekki hægt að rökstyðja. Það er þarna sem trúin byrjar, á nákvæm- lega sama stað og önnur trúar- brögð. Trúin byrjar þar sem rökin enda, á þeim stað sem engin rök finnast, þar byrjar trúin. Auðvitað fer það ekki algerlega framhjá mönnum að Borgarlínan er gagnslaus framkvæmd. En það er skiljanlegt að hinn menningarlega sinnaði og umhverfisvæni borgar- stjórnarmeirihluti í Reykjavík sé orðinn uggandi um sinn hag og leiti að nýrri ímynd. Staða hans í fjár- málum, samgöngu- og skipulagsmálum er af- leit og kosningar í nánd. Gæluverkefni sem áttu að hressa upp á ímyndina hafa mörg hver misheppn- ast hrapallega. Spor- vagnarnir byrjuðu sem eitt slíkt, en svo komu danskir ráð- gjafar og breyttu þeim í strætó Scotts Rutherford. En hvað kemur til að ríkis- stjórnin tekur svona umskipting að sér? Slíkt gerist ekki nema með samþykki bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra eins og stjórnin er saman sett. Hvaða pólitíska áætlun er hér á bak við? Það kemur ekki fram í grein SDG. Umræddir ráðherrar eru ekki í sömu stöðu og borgarstjórnin. Ríkisstjórnin vinnur ekki kosningar á Borgarlínu í Reykjavík. Þar að auki eru bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra í ágætri pólitískri stöðu, þeir njóta trausts og virð- ingar fyrir sanngirni og heiðarleika. Samt ana þeir út í gagnslaust mont- verkefni sem á eftir að kosta eitt- hvað um 200–600 milljarða ef að lík- um lætur. Hvað er í gangi? Þetta er mjög erfið spurning, pólitískir hagsmunir forsætisráð- herra og fjármálaráðherra fara alls ekki saman í málinu. Forsætisráð- herra gæti verið með í huga nýja sameiningu á vinstrivæng, meiri áhrif Vinstri grænna í borgar- stjórninni og hugsanlega nýja vinstriríkisstjórn með Borgarlínu sem sameiginlega regnhlíf. En fjár- málaráherra hefur tæplega mikinn áhuga á neinu af þessu. Og alls ekki fyrir þennan pening. Til þess að láta ráðherrana njóta vafans verður að gera ráð fyrir að þeir viti ekkert um hvað verið er að leggja út í. Hvar sem kostnaðurinn lendir, á 200 eða 600 milljörðum eða einhvers staðar þar á milli, er verið að setja hliðstæða upphæð og sam- anlagt verðmæti allra fólksbíla á landinu í almannasamgöngur sem eru ekki notaðar af nema af einum af hverjum 25. Fólksbílar sjá ágætlega fyrir al- mannasamgöngum þeirra 90% sem nota þá. Þeir sem eiga bíl hvort eð er keyra í vinnuna fyrir 200 kall á dag. Það kostar ekki nema brota- brot af Borgarlínu að greiða götu þeirra svo þeir þjóni betur fólkinu og atvinnulífinu og mengi minna en þeir gera í endalausum biðröðum. Pólitíkin verður að finna einhverja leið til að komast út úr þessu öng- stræti Borgarlínunnar. Eftir Jónas Elíasson »Ekkert gagn er að Borgarlínu, hún er pólitísk trúarbrögð sem engin rök eru fyrir. Innibera óheyrilegan kostnað svo út úr þessu verður að komast. Jónas Elíasson Höfundur er prófessor. jonaseliassonhi@gmail.com Borgarlínutrúin Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið um aðkomu Storytel á íslenskan bókamarkað. Að ákveðnu leyti hefur sú umræða verið nei- kvæð af hálfu rithöf- unda og nú síðast gaf stjórn rithöfunda- sambandsins það út að rithöfundar vantreystu Storytel. Sjálfur hef ég verið félagi í Rithöf- undasambandinu í 13 ár og á þessum tíma gefið út fimm bækur og sú sjötta er væntanleg á næstu vikum. Ég hef átt í samskiptum við Storytel í nokkurn tíma, bækurnar mínar hafa allar verið framleiddar af Storytel sem hljóðbækur og ég geri fastlega ráð fyrir að svo verði einnig með nýju bókina mína. Ég er afar ánægður með samstarfið og fagna aðkomu Storytel að íslenskum bóka- markaði. Rithöfundar og bókaútgefendur standa á þröskuldi byltingar. Bækur eru gefnar út á prenti, sem raf- bækur og sem hljóð- bækur. Höfundar fá þar með möguleika á að selja fleirum sín höf- undarverk, fólk sem til dæmis getur ekki lesið vegna lesblindu eða annarra takmarkana á lestrargetu getur nú notið þess að hlusta. Þeir sem ferðast mikið geta tekið með sér bækur í símunum sín- um og lesið þær hvar og hvenær sem er, án þess að þurfa að burðast með þunga bókapinkla í far- teskinu. Og þeir sem elska prent- aðar bækur geta notið þess að finna lyktina af pappír og prentsvertu og þess að handleika þær og lesa. Og svo eru sumir, eins og ég sjálfur, sem nota öll þessi form eftir því í hvaða aðstæðum ég er í og jafnvel eftir því hvað það er sem ég er að lesa hverju sinni. Á dögunum kom það upp að bóka- búðir Eymundsson, sem eru með markaðsráðandi stöðu í bóksölu á Ís- landi, skiluðu öllum nýlegum bókum frá bókaforlaginu Uglu. Ástæðan var sú að bækurnar höfðu einnig verið framleiddar sem hljóðbækur hjá Storytel. Það væri nær fyrir rit- höfundasambandið að beina sjónum sínum að þessu ráðslagi Eymunds- son, frekar en því að Storytel kaupi íslenskt bókaforlag, jafnframt því að auka útgáfumöguleika íslenskra höf- unda til mikilla muna. Ég fagna fjölbreytninni, fagna auknum möguleikum, fagna því að sjá bókina eignast nýtt líf í rafrænni veröld. Ég hlakka til að sjá hvernig bókin mun þróast á komandi árum og hlakka til að sjá hvernig mark- aðurinn mun breytast og þróast í takt við tímann en tel mig líka vita að gamla góða bókin, rétt eins og gamla góða vínylplatan, muni lifa áfram um ókomna tíð. Fjölbreytileiki í bókaútgáfu Eftir Fritz Má Berndsen Jörgensson »Ég fagna fjölbreytn- inni, fagna auknum möguleikum, fagna því að sjá bókina eignast nýtt líf í rafrænni veröld. Fritz Már Berndsen Jörgensson Höfundur er prestur og rithöfundur. fritzmarj@gmail.com Greint hefur verið frá því að Akranes- kaupstaður og Brim hf. hafi sett á stofn þróun- arfélag um atvinnu- uppbyggingu og ný- sköpun á Breið á Akranesi. Sem fyrrver- andi íbúi Akraness og áhugamaður um sjávarútveg finnst mér þetta sérlega ánægju- leg tíðindi. Að mínum dómi getur staðsetning fyrir þetta framtak varla verið betri. Mikil breyting hefur orð- ið á atvinnufyrirtækjum á Akranesi. Veiðiheimildir voru þangað sóttar af Suðurnesjum á sínum tíma og stór- iðja var byggð upp í nágrenninu. Núna verða veiðar og vinnsla aftur fluttar af Skaganum í aðra stærri og tæknilegri vinnslu í Reykjavík. Hús- in sem dugðu vel fyrir 40 árum eru nú orðin of lítil eða henta ekki þeirri tækni sem unnið er með í dag. Fyrir- tæki sem þjónusta stóriðjuna og stóriðjufyrirtækin sjálf hafa tekið til sín vinnuafl sem fiskvinnslan hefur átt erfitt með að keppa við. Allt er breytingum undirorpið og Sunda- braut mun einnig breyta miklu þeg- ar hún þá kemur. Unnið hefur verið að þróunar- félaginu frá síðasta hausti með þátttöku íbúa og ýmissa hag- aðila. Ætlunin er að fé- lagið efli atvinnutæki- færi, nýsköpun og skapandi greinar á svæðinu, auk þess sem gert er ráð fyrir nýrri íbúðarbyggð á Breið þar sem áður var fisk- vinnsla. Komið hefur fram í fréttum að fjöldi fyrirtækja, háskólar og opinberir aðilar hafa lýst yfir vilja til að eiga samstarf um að upp byggist á Akranesi nýsköp- unar- og rannsóknarsetur, auk sam- vinnurýmis. Sem gamall sjávar- útvegsbær sem er nú í miðju helsta iðnaðarsvæði landsins hefur Akra- nes mikil tækifæri, sé rétt að verki staðið. Hafa má væntingar um að með verkefninu geti skapast fjöldi starfa. Í það heila ætla 17 aðilar að stuðla að uppbyggingu uppi á Akranesi, en ætlunin er að hún fari meðal annars fram í hinu mikla húsi sem HB Grandi hefur áður nýtt undir starf- semi sína. Þarna verður ólíkum að- ilum gefinn kostur á að koma að rannsóknum og nýsköpun. Upplýst hefur verið að byggt verði upp rann- sóknar- og nýsköpunarsetur, að- staða sem muni standa frumkvöðlum til boða að nýta. Þá verður sömuleið- is komið upp samvinnurými. Nokkur fjöldi stofnana og fyrirtækja kemur að verkefninu, þar á meðal Álklas- inn, Skaginn 3X og Háskóli Íslands. Þarna eru fyrirtæki og stofnanir að taka sig saman og vinna að rann- sóknum á grunnþáttum vistkerfa hafsins, sem er umgjörð tilveru okk- ar. Eins og oft áður eru það fyrir- tæki í sjávarútvegi sem draga þenn- an vagn og kalla eftir breytingum og rannsóknum í þeim breytta heimi sem þau vinna við. Ómögulegt er að segja hversu hratt þetta gerist eða hversu mörg störf skapast í kringum framtakið en það má hafa miklar væntingar. Hér sjáum við nýja hugs- un og nýja nálgun sem vonandi vek- ur þá sem eru fastir í fortíðarþrá og óttast nýja hluti. Akranes, miðstöð þróunar og nýsköpunar Eftir Svan Guðmundsson »Eins og oft áður eru það fyrirtæki í sjávarútvegi sem draga vagninn og kalla eftir breytingum og rannsóknum. Svanur Guðmundsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og framkvæmdastjóri Bláa hagkerfisins. svanur@arcticeconomy.com Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Eins og nærri má geta er mikilvægt fyrir hverja þjóð að búa að atvinnuvegum sem stuðla í senn að góðri afkomu og falla ekki um koll við minnsta goluþyt. Lengi vorum við með búskaparhokur, en bleyttum líka öngul í sjó, þótt margur tautaði að svikull væri sjávarafli. Svo kom traffík og konkúrensi, og þjóðin á framfarabraut. Ferðaþjónusta er það nýjasta og hefur gengið nokkuð vel, svo vel reyndar að margir hafa viljað dansa með og gera eins og granninn. En það er hættulegt með grein sem er orðin svona aðal, þegar undirstaðan, flugreksturinn í heiminum, er svo veik- burða sem dæmin sýna, og þurfti ekki veiru til. Stóru flugfélögin eru upp á náð ríkisstjórna komin, sem setja þeim skilyrði, og lággjaldafélögin virðast ekki mikið betur komin. Það er ekki nóg með að ferðaþjónustan þurfi að reiða sig á innflutt vinnuafl heldur þurfa starfsmenn flugfélaga helst að sæta lægstu kjörum heimsins til að dæmið gangi upp. Eigum við ekki að snúa okkur aftur að lambakjötinu?Afrétt- irnar bíða. Sunnlendingur. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Vængir Íkaríusar Ferðamenn Ferðaþjónusta hefur vaxið sem at- vinnugrein hérlendis síðustu ár. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.