Morgunblaðið - 13.07.2020, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
60 ára Hafsteinn er
fæddur og uppalinn í
Keflavík en býr í
Kópavogi. Hann er
með próf í rekstrar-
fræði frá London og
er verktaki á sviði
rekstrar og hús-
félagaþjónustu.
Maki: Halla Benediktsdóttir, f. 1963,
bókari hjá Íslandshótelum.
Dætur: Heiðrún, f. 1988, og Rannveig,
f. 1992.
Foreldrar: Kristín Rut Jóhannsdóttir,
f. 1940, húsmóðir í Keflavík, og Lárus
Arnar Kristinsson, f. 1937, d. 2008,
sjúkrabílstjóri í Keflavík.
Hafsteinn Lárusson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Allir þurfa að eiga sér undan-
komuleið, hvernig sem viðrar í mannlífinu.
Brostu bara við heiminum og þá mun
heimurinn reynast þér vel.
20. apríl - 20. maí
Naut Ef verkefni reynist manni of auðvelt
þá lærir maður ekkert af því. Sýndu mildi
og gakktu úr skugga um hvað aðrir vilja.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er nauðsynlegt að gera verk-
efnalista og halda þig sem mest við hann.
Hvort sem um er að ræða andlega ráðgjöf
eða píanóflutning.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér finnst eitthvað togast á um þig
og átt í efiðleikum með að gera upp hug
þinn. Skipuleggðu vinnutímann betur og
leitaðu aðstoðar með það sem þarf.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þig vantar félaga til þess að fram-
kvæma það sem þig dreymir um. Mundu
að þótt auðvelt sé að taka lán þá er erfiði
að standa í skilum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þér finnst þú svolítið einmana
þessa dagana, en þá kanntu líka að meta
þann góða félagsskap sem bíður þín. Láttu
gylliboð lönd og leið og leggðu til hliðar allt
sem þú mátt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert sérstaklega hrífandi og háttvís
sem vekur áhuga hjá öðrum. Til dæmis átt-
ar þú þig á því hverjir veikleikar þínir eru.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lykillinn að því að uppfylla
þarfir sínar er að tala um þær. Ekki leyfa
þér að fara í fýlu, þá verðurðu ánægðari og
umburðarlyndari gagnvart fólkinu í kring-
um þig.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu ekki telja þig á að gera
eitthvað sem þú villt ekki gera. Vertu
óhræddur við að segja hug þinn og fara
eftir sannfæringu þinni.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Grunnurinn þarf að vera góður
til þess að það sem á honum rís sé til
frambúðar. Enginn hefur öll svörin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur heyrt að það sem þú
gefur frá þér, færðu aftur til baka. Ekki
eyða tímanum í samviskubit yfir því að
hafa ekki lagt nóg af mörkum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú og ástvinir þínir eru ekki endi-
lega sammála um hvað geri lífið spenn-
andi. Ljúfur söngtexti eða fallegt ljóð er
dásamleg gjöf handa þeim sem þú elskar.
Ökrum í Blönduhlíð, hinum megin í
Skagafirðinum. Hann tók við búinu
1990 og er með blandaðan búskap.
70-80 mjólkandi kýr og 450 kindur.
ásamt því að sinna fjölskyldunni og
öðrum áhugamálum.“
Félagsmál
Svanhildur hefur alltaf verið mjög
virk í félagsmálum. Hún starfaði
með ungmennafélaginu í grunnskóla
og tók þátt í félagsmálanámskeiðum
og starfaði með leikfélagi MA á
menntaskólaárunum. Þegar Svan-
hildur átti Hótel Varmahlíð stofnaði
hún Félag ferðaþjónustunnar í
Skagafirði og var formaður þess í
mörg ár. Hún var einnig í stjórn
Ferðamálasamtaka Íslands og
Markaðsstofu Norðurlands þar sem
hún var formaður stjórnar í fjögur
ár. Árið 2018 fékk Svanhildur við-
urkenningu Markaðsstofunnar fyrir
framlag sitt til ferðaþjónustu á
Norðurlandi.
„Áhugamálin eru mörg og þar er
fjölskyldan mín og samverustundir
með henni efst á blaði,“ en Svanhild-
ur giftist bóndasyni frá Stóru-
S
vanhildur Pálsdóttir er
fædd 13. júlí 1970 á Sauð-
árkróki en bjó fjögur
fyrstu æviárin í Reykja-
vík. Haustið 1974 flutti
fjölskyldan norður og settist að í
Varmahlíð í Skagafirði, þar sem fað-
ir hennar tók við skólastjórastöðu í
Varmahlíðarskóla. „Það var gott að
alast upp í Varmahlíð, nóg af leik-
félögum, sundlaug og bókasafn. Það
nægði mér.“
Svanhildur gekk í Varmahlíðar-
skóla, varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1990 og út-
skrifaðist sem textílkennari frá
Kennaraháskóla Íslands árið 1996
eftir fjögurra ára fjarnám. „Við vor-
um fyrsti fjarnámshópurinn sem út-
skrifaðist á háskólastigi á Íslandi.“
Auk þessa tók Svanhildur nám-
skeiðin Hagvöxtur á Heimaslóð I &
II, Spegillinn hjá Íslandsstofu,
VOGL verkefnisstjórnun og leið-
togaþjálfun ásamt fjölda annarra
námskeiða sem hafa tengst atvinnu
og áhugamálum hverju sinni.
Starfsferillinn
Sumarstörf Svanhildar á ung-
lingsárum voru hjá Skógrækt ríkis-
ins, Shellskálanum, í sundlauginni
og á Hótel Varmahlíð. Hún var
framkvæmdastjóri Ungmenna-
sambands Skagafjarðar 1990-1992,
grunnskólakennari í Varmahlíðar-
skóla 1996-2006, hótelstjóri á Hótel
Varmahlíð 2006-2017 og verkefn-
isstjóri hjá Sýndarveruleika ehf.
2018-2020.
„Eftir að hafa kennt nokkur ár við
Varmahlíðarskóla snéri ég alveg við
blaðinu þegar ég keypti Hótel
Varmahlíð í byrjun árs 2006. Hótelið
rak ég í tæp 12 ár eða þar til sumarið
2017 þegar ég seldi það. Enn sneri
ég við blaðinu og fór í jógakennara-
nám veturinn 2017/2018. Haustið
2018 hóf ég störf hjá Sýndarveru-
leika ehf. sem verkefnisstjóri við
markaðssetningu og undirbúning
opnun sýningarinnar 1238 Baráttan
um Ísland og Gránu Bistró. Það var
gríðarlega spennandi verkefni og
gaman að taka þátt í uppbyggingu
þess. Ég hætti þar í mars 2020 og
huga nú að eigin heilsu og vellíðan
„Garðyrkja, prjónaskapur og matar-
gerð skipa líka stóran sess í lífi
mínuum þessar mundir og nýjasta
áhugamálið mitt er að ganga um Ís-
Svanhildur Pálsdóttir ráðskona – 50 ára
Fjölskyldan Samankomin fyrir framan Menntaskólann á Akureyri þaðan sem Berglind varð stúdent 17. júní.
Alltaf reynt að fylgja hjartanu
Hjónin Svanhildur og Gunnar á ferðalagi í Færeyjum 2019.
40 ára Gísli er Reyk-
víkingur. Hann er með
sveinspróf í bílamálun,
tók þátt í nýsköpun
sprotafyrirtækja og er
framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs
hjá Advania Data Cent-
ers.
Maki: Bryndís Gyða Michelsen, f. 1991,
lögfræðingur hjá Sjúkratryggingum Ís-
lands.
Synir: Aron Rafn, f. 2005, og Frosti Þeyr,
f. 2013.
Foreldrar: Katrín Jónína Björgvinsdóttir, f.
1954, starfar í Norska sendiráðinu, búsett
í Reykjavík, og Kristján Karl Torfason, f.
1944, fv. bílstjóri, búsettur í Mosfellsbæ.
Gísli Kr. Katrínarson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is