Morgunblaðið - 13.07.2020, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020
„HANN SELST Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM HANN ER
Í – ÞAÐ VÆRI BETRA AÐ GETA SELT HANN
Í ÞVÍ ÁSTANDI SEM HANN GÆTI VERIÐ Í,
EN ÞAÐ ER FULLMIKIL BJARTSÝNI.”
„ÉG ÆTLA AÐ FÁ FJÓRTÁN PYLSUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sjá fyrstu skrefin
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GLEÐILEG
JÓL, JÓN!
ÞAKKA ÞÉR FYRIR ,
GRETTIR!
KATTA-
NAMMI? ÆTLARÐU AÐ BORÐA ÞAÐ
ALLT?
HANN SEGIR AÐ HERTOGAYNJUNNI HAFI LOKSINS TEKIST AÐ SVÆFA ORGANDI BARNIÐ OG SPYR
HVORT VIÐ GETUM KOMIÐ AFTUR EFTIR NOKKRA KLUKKUTÍMA?
KOKKAR Í VERK-FALLI
land, bæði á fjöllum og jafnsléttu.
Um þessar mundir er ég að taka
sólarhæðina í lífinu, reyna að nota
tíma minn í það sem skiptir mig
mestu máli. Ég hef alltaf reynt að
fylgja hjartanu, stoppað öðru hverju
og hugsað hvort ég sé sátt við þá
stefnu sem ég er að taka og hef þá
ekki hikað við að skipta um stefnu.
Lífið er dýrmætt, góð heilsa og al-
menn lífsgæði eins og við köllum þau
eru ekki sjálfsagðir hlutir.
Fjölskylda
Eiginmaður Svanhildar er Gunn-
ar Sigurðsson, f. 6.3. 1963, bóndi á
Stóru-Ökrum. Foreldrar hans:
Hjónin Sigurður Björnsson, f. 14.8.
1927, d. 21.3. 2015, bóndi á Stóru-
Ökrum og María Helgadóttir, f. 7.4.
1933 húsfreyja og býr Stóru-Ökrum.
Börn Svanhildar og Gunnars eru
1) Sindri Gunnarsson, f. 22.10. 1992,
verkamaður, búsettur á Stóru
Ökrum; 2) Hrafnhildur Gunnars-
dóttir, f. 4.8. 1998, nemi í Listahá-
skóla Íslands, búsett í Reykjavík.
Maki hennar er Bernódus Óli Ein-
arsson, vaktstjóri hjá AVIS; 3)
Berglind Gunnarsdóttir, f. 22.2.
2001, nemi í Háskólanum á Hólum,
búsett á Stóru Ökrum.
Systkini Svanhildar: Lárus Dagur
Pálsson, f. 6.9. 1973, d. 19.10. 2019,
forstjóri BM Vallár og bjó í Kópa-
vogi; Kolbrún Pálsdóttir, f. 26.6.
1977, læknir í Stokkhólmi, og Helga
María Pálsdóttir, f. 25.2. 1982,
bæjarritari á Selfossi.
Foreldrar Svanhildar eru Helga
Friðbjörnsdóttir, f. 25.5. 1947,
grunnskólakennari og kenndi í
Varmahlíðarskóla, og Páll Dag-
bjartsson f. 31.8. 1948, fyrrverandi
skólastjóri í Varmahlíð. Þau eru bú-
sett í Varmahlíð.
Svanhildur
Pálsdóttir
Ingibjörg Sveinsdóttir
húsfreyja á Nýlendi
Guðjón Jóhannsson
bóndi á Nýlendi við Hofsós
Svanhildur Guðjónsdóttir
saumakona á Hofsósi
Friðbjörn Þórhallsson
verkamaður á Hofsósi
Helga Friðbjörnsdóttir
grunnskólakennari í Varmahlíð
Helga Friðbjarnardóttir
húsfreyja í Litlu-Brekku
Þórhallur Ástvaldsson
bóndi í Litlu-Brekku við Hofsós
Fanney Friðbjörnsdóttir
hjúkrunarfræðingur í Rvík
Björg
Dagbjartsd.
grunnskólak.
áAkureyri
Halla Kristjana
Halldórsdóttir
hjúkrunarfr. í
Stavanger
Kári Arnórsson
landsliðsm. í fótbolta
BirkirBjarnason
landsliðsmaður
í fótbolta
Ástríður Kristjana Sveinsdóttir
húsfreyja á Guðmundarstöðum
Ásbjörn Stefánsson
bóndi á Guðmundar-
stöðum í Vopnafirði
Kristjana Ásbjarnardóttir
húsfreyja í Álftagerði
Dagbjartur Sigurðsson
bóndi í Álftagerði í Mývatnssveit
Björg Jónína
Þorsteinsdóttir
húsfreyja í Sandvík
Sigurður Friðriksson
bóndi í Sandvík í Bárðardal
Úr frændgarði Svanhildar Pálsdóttur
Páll Dagbjartsson
fv. skólastjóri í Varmahlíð
Hagyrðingum finnst það óbæri-leg tilhugsun að kveðjustund
Leirsins renni upp 1. september.
Fía á Sandi yrkir:
Kvöldið er fagurt og ljúfur er landinn
leirinn er huganum kær.
Áfram hver limur mun yrkja í sandinn
aldan burt stafina þvær.
Ólafur Stefánsson svarar:
Um blásinn melinn blærinn þýtur,
og breytir honum í sanda,
og líkt sem fyrrum Fía þess nýtur,
að fá sér – og bergja landa.
Ingólfur Ómar segir, að við verð-
um að taka höndum saman og lífga
leirinn við:
Efla skulum andans svið
enn með dáð og þori,
til að leirinn lifni við
líkt og blóm að vori.
Jón Helgi Arnljótsson svarar:
Alveg sama hæst hver hlær,
hurðum dauðinn lykur.
Leirinn ekki lifað fær
lengur en 8 vikur.
Fía á Sandi er brött:
Látum aldrei sorg og sút
setjast að í geði.
Drekkum út úr einum kút
og yrkjum svo um gleði.
Sigrún Ásta Haraldsdóttir svar-
aði að bragði: „Fer að þínum ráð-
um, Fía“:
Bölsýni og biturð leið;
burtu frá mér víkið,
Benzanum ég „skelli á skeið“,
skutlast hratt í ríkið.
Og bætti við neðanmáls: „Fer á
bílnum, það er fljótlega en að fara
ríðandi.“
Ólafur Stefánsson er með á nót-
unum:
Áður tók hún Gamm og Glað
og gamla Sokka.
Á Benz nú leggur létt af stað
og lætur brokka.
„Rétt hjá þér“, svaraði Fía:
Því ævin líði alltof fljótt
það er á hreinu
Best að drekka dag og nótt
dálítið í einu.
Þegar hér var komið sagði Ing-
ólfur Ómar: „Það ágætt að fá sér í
tána annað slagið“:
Linar sút og sára kvöl,
sálartetri hlýnar,
þegar rennur áfengt öl
oní kverkar mínar.
Fía lét ekki eiga inni hjá sér:
Af því gleðin alltaf vex
í ölvímu, ég þori.
að yrkja um vín og öl og sex
eins og fugl að vori.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það er líflegt á Leir