Morgunblaðið - 13.07.2020, Síða 28

Morgunblaðið - 13.07.2020, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2020 Nýja í Suðurgarði – ógleymanleg kona Nýja í Suðurgarði var mjög sér- stök kona. Mjög smávaxin, með staurfót frá veikindum í æsku, og alveg óhemju dugleg til allra verka. Ekki mjög orðheppin og átti til að tala áður en hún hugsaði. Einhverju sinni hafði hún verið í heimsókn hjá kunningjafólki sínu í bænum og höfðu þau hjón verið að breyta ýmsu á heimili sínu. Mikið gekk á hjá Nýju þegar hún kom heim og fór að lýsa þeim breyt- ingum. Meðal annars sagði hún svo frá: „Það er veggur þar sem var ekki. Það er búið að færa hann.“ Í annað sinn kom hún heim að Þorlaugargerði og var mikið niðri fyrir. Hafði þá verið hjá Einari Guttormssyni lækni sem hafði gefið henni hormónasprautu. Og þegar Nýja sagði frá þeirri læknis- heimsókn hljóðaði hún þannig: „Ekki veit ég hverjum fjáranum hann Einar læknir var að sprauta í mig. Ég held að það hafi verið mor- móni.“ Barnmargt var jafnan í Suður- garði á dögum afa míns og ömmu. Einhverju sinni höfðu krakkarnir verið að atast í heimilishundinum sem kúrt hafði í makindum hjá afa mínum í eldhúsinu og varð til þess að hundurinn rauk upp geltandi. Og þá varð Nýju að orði: „Hvern fjandann voruð þið að djöflast í hundinum eins og hann var góður hjá honum afa sínum.“ Þótt Nýja í Suðurgarði væri ekki há í loftinu, var hún einstaklega frá á fæti og það þótt hún væri með staurfót. Oftast fóru Ofanbyggjarar ferða sinna í bæinn fótgangandi þar sem ekki var margt um bíla í þá daga. Okkur ungum mönnum fyrir ofan hraun hraus ekkert hugur við því að rölta í bæinn og heim aftur, nema helst eftir að skyggja tók, og vildum þá helst ekki vera einir á ferð. Á miðri leið voru nefnilega bækistöðv- ar Olnbogadraugsins sem gert hafði Ofanbyggjurum marga skráveifuna gegnum tíðina. Kennarinn minn í Barnaskólanum, Vigfús Ólafsson frá Gíslholti, hafði líka gert sitt með sögum sínum af honum og fleiri draugum til að auka heldur á myrk- fælnina. Því var reynt eins og kost- ur var að fá samfylgd á leiðinni. En versti kosturinn var að fá Nýju í Suðurgarði til þeirrar samfylgdar. Hún var svo hraðgeng að við lá að maður þyrfti að hlaupa við fót til að hafa við henni. Og auðvitað datt henni ekki í hug að stoppa til að bíða eftir þeim sem dróst aftur úr. Því var það oftar en ekki að maður kom móður og másandi úr slíkum gönguferðum. Gönguferð frá Suður- garði niður í miðbæ tekur um hálf- tíma á eðlilegum gönguhraða. En ég er þess næsta fullviss að sú leið hefur aldrei tekið Nýju meira en fimmtán til tuttugu mínútur. Þessi gönguhraði er þeim mun athygl- isverðari þegar tekið er tillit til þess að Nýja var með staurfót og þar að auki ekki nema 160 cm að hæð. Það var með ólíkindum hve þessi smá- vaxna, bæklaða kona gat farið hratt yfir. Hún hefði sómt sér vel í kapp- göngu á Ólympíuleikum þótt stíllinn hafi verið nokkuð annar en þar má sjá. Þannig háttar til í Suðurgarði að eldhúsglugginn snýr móti norðri og sér vel úr honum til mannaferða á Höfðaveginum sem tengir byggðina fyrir ofan hraun við bæinn. Þá voru einnig aðaldyrnar í Suðurgarði lengst af móti norðri. Nýja var ákaflega forvitin og sæi hún til mannaferða uppi á leitinu neðan við Ofanleiti, fýsti hana að vita hverjir þar væru á ferð. Ekki sást alltaf nógu vel gegnum rúðu- glerið þannig að hún varð að gera sér upp ferð út á hlað til að kanna þetta nánar og notaði þá jafnan ferðina til að skvetta úr vaskafatinu í leiðinni. Á þessum árum var nefni- lega ekki sá munaður á bæjum að hafa vask í eldhúsinu, heldur var þvegið upp í stóru vaskafati og vatninu síðan skvett út á hlaðið. Og Nýja var búin að koma sér upp ákveðnu verkferli við að fara með fatið og skvetta úr því. Hún tók fat- ið báðum höndum, stikaði með það úr eldhúsinu, fram í forstofuna, opnaði útihurðina með hægri oln- boganum, á fullri ferð, steig yfir þröskuldinn og skvetti úr fatinu út á hlað í sama skrefi og hún tók yfir þröskuldinn. Þetta var svipuð tækni og handboltamenn nota þegar þeir skjóta í skrefinu sem kallað er. Og Nýja var orðin svo þrautþjálfuð í þessari tækni að hún þurfti aldrei að stoppa í þessu ferli, fyrr en kom- ið var út á hlað og búið að tæma vaskafatið. Þá gafst líka tóm til að horfa norður á veg og kanna hverjir væru þar á ferð. En eitt sinn fór heldur illa og ég varð fórnarlambið í það skiptið. Ég var sem oftar á leið að Suðurgarði, stytti mér leið yfir túnið og framhjá ljósastaurnum eins og venjulega og var kominn heim á hlaðið þegar ósköpin dundu yfir. Líklega hafa á sama tíma verið mannaferðir á veg- inum fyrir neðan Ofanleiti því að í þann mund sem ég var að stíga upp á stéttina, þeyttust útidyrnar upp, Nýja birtist með fatið í fanginu og skvetti innihaldi þess beint yfir mig. Mér brá að sjálfsögðu illa við þetta og stóð þarna eins og illa gerður hlutur, rennvotur og hálf- kjökrandi. En Nýju datt ekki í hug að biðjast afsökunar enda taldi hún sig ekki hafa gert neitt rangt. „Hvern fjandann þurftir þú að vera að þvælast þarna,“ sagði hún. Fór síðan aftur inn og skellti á eftir sér. Sögur af Bjarnhéðni Elíassyni Einn af litríkari persónuleikum bæjarfélagsins í Vestmannaeyjum var Bjarnhéðinn heitinn Elíasson. Bjarnhéðinn var bóndasonur af Rangárvöllum, fæddur árið 1921 að bænum Oddhóli á Rangárvöllum og voru foreldrar hans Elías Steinsson og Sveinbjörg Bjarnadóttir sem bjuggu þar og var Sighvatur Bjarnason í Ási móðurbróðir hans. Hingað til Eyja kom Bjarnhéðinn ungur maður og byrjaði sjóróðra, bæði á bátum og togurum auk þess sem hann festi hér ráð sitt, gekk inn í eina af helstu familíum bæjar- ins og kvæntist Ingibjörgu frænku minni Johnsen. Sjálfur lýsti hann brúðkaupi þeirra og aðdraganda þess á eftir- farandi hátt: „Hún Ingibjörg tilkynnti mér það á sunnudegi að nú værum við að fara að gifta okkur. Mér var sagt að fara í sparigallann, síðan drifinn út og hent upp á vörubílspall í rign- ingarhraglanda og keyrt upp að Ofanleiti þar sem séra Kolbeins gaf okkur saman. Og síðan hef ég verið hér.“ Mikill keppnismaður Ég kynntist Bjarnhéðni ungur að aldri og kunni vel við hann þótt talsverður aldursmunur væri á okk- ur eða rúmir tveir áratugir. Tildrög þessa kunningsskapar voru þau að ég kom stöku sinnum heim að Ás- nesi, Skólavegi 7, til að leika mér við stjúpson Bjarnhéðins og frænda minn, Árna Johnsen. Svo æxlaðist það einhvern veginn þannig að ég hætti að leika mér við Árna en fór að leika mér við Bjarnhéðin í stað- inn. Þessi kunningsskapur okkar hélst í yfir 30 ár, allt til dauðadags Bjarn- héðins, og bar sjaldan skugga á þó svo að orðbragðið hafi stundum gef- ið mönnum tilefni til að ætla að ekki væri allt með felldu um samskipti okkar tveggja. Flaggað 1. maí Þau Bjarnhéðinn og Ingibjörg, frænka mín, drógu yfirleitt fána að húni lögskipaða fánadaga og sömu- leiðis í hálfa stöng ef dauðsföll voru í bænum eða jarðarfarir. Flestir vita að þau hjón voru einhverjir dyggustu stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins hér í bæ og þótt víð- ar væri leitað. Af þeim sökum má líka nokkuð augljóst vera að einn hinna lögskip- uðu fánadaga fékk alveg að eiga frí á flaggstönginni að Skólavegi 7. Það var 1. maí. „Mér dettur ekki í hug að fara að flagga á einhverjum helvítis komm- únistadegi,“ sagði Bjarnhéðinn þeg- ar ég færði það eitt sinn í tal við hann af hverju fáninn væri ekki við hún, jafnvel þingmaðurinn í Geysi flaggaði. „Djöfulsins kommúnistadagur og ekkert annað,“ var sama svarið, margtuggið upp með enn fleiri óprenthæfum orðum. Ekkert stoðaði þótt ég reyndi að rekja sögu þessa dags fyrir honum og meðal annars að benda á að fyrstir til að halda þennan dag há- tíðlegan hefðu verið Bandaríkja- menn. „Það er helvítis haugalygi í þér, þetta kemur beint frá Rússunum,“ sagði Bjarnhéðinn og sat sem fast- ast við sinn keip. Því fór svo að fáni var ekki dreg- inn að húni á þessum degi eins og þó tíðkaðist á því heimili um aðra merkisdaga í almanakinu. Nú gerðist það eitt sinn þann 1. maí, að ég var á rölti í bænum, var reyndar að koma úr verkalýðskaffi í Alþýðuhúsinu, því húsi sem Bjarn- héðinn Elíasson steig ekki fæti sín- um inn í til annars en að spila brids. Þegar ég kem að Skólavegi 7 veiti ég því strax eftirtekt að ekki er flaggað þar og kom það ekki sér- lega á óvart en dettur í hug að líta þar við, ekki þó til að ræða fánamál. Nú vill svo til þegar ég geng í bæinn að engan mann er þar að finna á hæðinni. Grunaði mig að húsbóndinn hefði fengið sér hádeg- islúr en dettur í hug hvort ekki muni rétt að bæta úr þeirri gleymsku og vanrækslu heimilis- fólks að flagga ekki á lögskipuðum fánadegi. Svo ég fer í forstofuna og finn þar fánann góða, fer með hann rakleiðis út að stöng og flagga og fer síðan aftur inn. Það var sem mig grunaði að Bjarnhéðinn hafði fengið sér mið- degislúr en var nú afhvíldur og vildi tefla. Var taflið tekið fram og teflt um hríð. Þá birtist í eldhúsdyrum Árni Óli í Suðurgarði og kastar kveðju á okkur. Hann hefur á orði að ekki sé það oft sem flaggað sé á þessum degi að Skólavegi 7. „Það hefur ekki verið flaggað hér á þessum degi og verður ekki flagg- að hér á þessum degi,“ segir Bjarn- héðinn með alvöruþunga. „Nú, annað sýnist mér,“ segir Árni Óli. „Ég fæ ekki betur séð en hér sé flagg við hún.“ „Helvítis kjaftæði er þetta,“ segir Bjarnhéðinn. „Ég veit ekki hverjum ætti að detta það í hug á þessu heimili.“ Svona til vonar og vara gengur hann fram að glugga og sér þá sem er að fáni blaktir við hún í norðan andvara. „Hver bara djöfullinn er þetta,“ segir hann. „Er hún Ingibjörg orðin snarhringlandi vitlaus!“ „Heyrðu!“ segir hann svo allt í einu og augnaráðið og málrómurinn benda til þess að hann hafi allt í einu uppgötvað einn mikinn stóra- sannleik. „Já, já, ég held að ég viti hver hér hefur verið að verki. Ég held ég viti hver sökudólgurinn er.“ Og í þeim töluðum orðum snarast hann út á skyrtunni, út að flagg- stöng og dregur fánann niður. Á Skólavegi 7 er nefnilega ekki flagg- að þann 1. maí. Endurminning- ar ofanbyggjara Bókarkafli | Í bókinni Vestmannaeyja fjallar Sigurgeir Jónsson um æskuslóðir sínar í byggðinni fyrir ofan hraun, búskaparhætti og fólkið sem þar bjó og rifjar upp kynni af sérstæðum persónum. Bridsmakkerar Bjarnhéðinn Elíasson og Sigurgeir Jónsson. Ógleymanleg Árný Sigurðardóttir, Nýja í Suðurgarði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.