Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 32

Morgunblaðið - 13.07.2020, Page 32
Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar fer fram í vikunni og hefst í Bæjarbíói annað kvöld, þriðjudag, þegar hin þjóðþekkta hljómsveit Mannakorn kemur fram, en hún hefur í fjóra áratugi glatt fólk með hverri dægurperl- unni á fætur annarri. Á tóneikunum, sem hefjast klukk- an 20, koma Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson og Ellen Kristjánsdóttir fram með hljómsveit og munu flytja sívinsæl lög á borð við „Reyndu aftur“, „Ein- hversstaðar einhverntíma aftur“, „Braggablús“, „Gamli góði vinur“, „Sölvi Helgason“, „Samferða“ og „Garún“. Mannakorn skemmta í Bæjarbíói annað kvöld á Hjarta Hafnarfjarðar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Golfíþróttin er í miklum vexti og á völlunum tveimur í höfuðborginni sem eru í Grafarholti og við Korpúlfsstaði eru í sumar leiknir 30-40% fleiri hringir en í fyrra. „Fjöldi iðkenda og mætingar á vellina í sumar hefur sleg- ið öll met. Að hluta helgast þessi aukn- ing af því að kórónuveiran tók fyrir ut- anlandsferðir, en meðal golfara hefur verið vinsælt að fara utan til dæmis á vorin og komast þannig í gírinn fyrir sumarið. Fólk hefur því haldið sig inn- anlands og spilað golfið sitt hér,“ segir Björn Víglundsson, formaður Golf- klúbbs Reykjavíkur. Paradís á tveimur stöðum „Stóra málið er samt að golfíþróttin er skemmtileg og fjölbreytt. Á einum hring eru ögranir og spennandi við- fangsefni sem taka allan tilfinninga- skalann. Mikilvægt er samt að halda í gleðina, hrista af sér leiða sem fylgir misheppnuðum höggum og halda áfram,“ segir Björn enn fremur. Átján holur eru á golfvellinum í Grafarholti og 27 á Korpunni. Báðir vellirnir eru nánast inni í miðri borg, en samt úti í náttúrunni og falla inn í landslag þar. „Að eiga svona paradís á tveimur stöðum í borginni er dýr- mætt. Grafarholtsvöllurinn var tek- inn í notkun árið 1963 og útbúinn af litlum efnum. Þótt margt hafi verið gert síðan þá er kominn tími á fram- kvæmdir, svo sem að endurnýja brautir og flatir. Þá er í undirbúningi stækkun á æfingaaðstöðunni í Básum svo þar megi æfa árið um kring á upphituðu innisvæði. Korpan er hins vegar á góðum stað og engar stórar framkvæmdir þar fyrirhugaðar.“ Þörf á fleiri golfvöllum Áætlað er að þeir 3.000 félagsmenn sem eru í Golfklúbbi Reykjavíkur leiki þar um 160 þúsund hringi á ári á öllum völlum félagsins. Yfir sumarið eru félagsmenn að spila nánast allan sólarhringinn og flestir rástímar bók- aðir. Þetta segir Björn sýna að þörf sé á fleiri golfvöllum á höfuðborgar- svæðinu, þótt ekki sé ætlun GR að færa út kvíarnar. En hugmyndir hafi verið um golfvöll í Keldnaholti eða Viðey og hljóti það að koma til skoð- unar á næstu árum. „Það er gaman að sjá unga fólkið koma af miklum krafti inn í golfið núna. Þetta eru krakkar um tvítugt sem hafa heillast af árangri sem Birg- ir Leifur Hafþórsson, Ólafía Þórunn Kristjánsdóttir og fleiri hafa náð. Í huga margra er golfið íþrótt efnafólks, sem er alls ekki raunin á Íslandi. Golf- arar á Íslandi eru þverskurður þjóð- félagsins,“ segir Björn, sem í sl. viku tók þátt í Meistaramóti GR. Kylfusveinn sonarins „Á meistaramótinu var ég kylfu- sveinn sonar míns en blandaði mér auðvitað líka í leikinn sjálfur. Er með sjö í forgjöf, sem er ágætt, en ég hef engar væntingar um að ná neðar. Ég er í golfinu fyrir gleðina og spila ekk- ert endilega mikið. Hef með hópi fé- laga minna spilað á þriðjudags- kvöldum í meira en tuttugu ár. Þetta er dýrmætur félagsskapur og enginn ætti að vanmeta þann þátt golfsins,“ segir Björn, sem ætlar að nota sumar- fríið í að kanna golfvelli úti á landi og spila þar. Alls eru á landinu 53 vellir, einn sá nýjasti á Siglufirði, og þangað sem og á fleiri velli setur formaður GR stefnuna nú. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Formaður Björn Víglundsson er hér með kylfuna á lofti á Grafarholtsvelli og tilbúinn í næsta hring á brautunum. Gleðin ráðandi í golfinu  Metaðsókn er á golfvellina í Reykjavík  Ögrun og allur tilfinningaskalinn  Félagsskapur og er með sjö í forgjöf MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 195. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. ÍA er komið í annað sæti úrvalsdeildar karla í knatt- spyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, eftir 4:0-stórsigur gegn Gróttu í sjöttu umferð deildarinnar á Vivaldi- vellinum á Seltjarnarnesi í gær. Öll mörk Skagamanna komu í fyrri hálfleik, en ÍA er með 10 stig í öðru sæti deildarinnar, einu stigi minna en Breiðablik, sem á leik til góða á ÍA. Þá sóttu Víkingar þrjú stig í Kórinn þegar liðið heimsótti HK í Kópavoginn. Þetta var annar sigur Víkinga í deildinni í sumar en HK var að tapa þriðja heimaleik sínum á tímabilinu. »27 Skagamenn skoruðu fjögur mörk í fyrri hálfleik á Seltjarnarnesinu ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.