Morgunblaðið - 04.08.2020, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 181. tölublað 108. árgangur
BRÝTUR UPP
FORM ÓPERU-
SÖNGLISTAR ENGINN HEIMSENDIR
SÆKJAST EFTIR
GRÍMUM MEÐ
FALLEGU MYNSTRI
ÚTLENDINGAR ÓHRÆDDARI 6 BJÓ TIL GRÍMUR 11MALARADRENGURINN 29
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Allt er háð hlutafjárútboðinu
Stefna að því að klára samkomulag við ríki , banka og kröfuhafa í þessari viku Allir þræðir málsins
hafa áhrif á hver annan Enn óljóst hve háa fjármögnun þarf að tryggja fyrir lánveitingu frá bönkum
Engar formlegar viðræður eru hafn-
ar. Þær munu hefjast í ágústmánuði,
þegar skráningarlýsing liggur fyrir.“
Eins og fram kom í tilkynningu
Icelandair á föstudagskvöld hefur
fyrirtækið samið við flesta kröfuhafa
og viðræður við Íslandsbanka,
Landsbanka og ríkið um lánveitingu
með ríkisábyrgð eru langt á veg
komnar. Spurður hvort skilyrði hafi
verið sett um það hve háa fjármögnun
þurfi að tryggja fyrir lánveitingu seg-
ir Bogi að það liggi ekki fyrir á þessu
stigi. „Verið er að vinna í því,“ segir
hann.
Spurður hvort aðkoma ríkisins hafi
haft áhrif á það að samkomulag hafi
tekist við kröfuhafa, segir Bogi að all-
ir þræðir málsins tengist og hafi áhrif
hver á annan.
Hann segir að stefnt sé að því að
klára viðræður um fjárhæðir og
ganga frá lokasamkomulagi við ís-
lensku bankana í vikunni. „Nú förum
við í að klára formlega samninga við
þá lánardrottna sem eftir eru og ís-
lensku bankana,“ segir Bogi. „Allt er
þó háð því að útboðið gangi upp,
þ.e.a.s. lánalínan sem ríkið er að
ábyrgjast,“ segir Bogi. Hann segir
einnig stefnt að því í vikunni að klára
samkomulag við Boeing um bætur
vegna kyrrsetningar Max-vélanna.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís-
landsbanka, vildi ekki tjá sig um mál-
ið að öðru leyti en því að viðræður
væru í gangi við Icelandair.
Hvorki náðist í Bjarna Benedikts-
son fjármálaráðherra, Katrínu
Jakobsdóttur forsætisráðherra né
Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa-
dóttur, ráðherra ferðamála, iðnaðar
og nýsköpunar, við vinnslu fréttar-
innar.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice-
landair, segir að allir angar fjárhags-
legrar endurskipulagningar félagsins
séu háðir því að hlutafjárútboð gangi
vel. Stefnt er að því að það fari fram í
ágúst. „Allt er háð því að hlutafjár-
útboðið gangi vel,“ segir Bogi. „Við
höfum verið að undirbúa útboðið.
Ekkert hefur spurst til Konráðs
Hrafnkelssonar síðan hann yfirgaf
heimili sitt í Belgíu á fimmtudag.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi
eystra lýsti eftir Konráði um
helgina, en í tilkynningu frá emb-
ættinu segir að síðast hafi sést til
Konráðs í miðborg Brussel um
klukkan 09.00 á fimmtudaginn.
Aðstandendur hans eru komnir
til borgarinnar og hafa um tuttugu
vinir og aðstandendur leitað Kon-
ráðs í Brussel án árangurs.
Móðir Konráðs, Hlín Ástþórs-
dóttir, segir að skilyrði til leitar
séu erfið vegna kórónuveirufarald-
ursins. Öllum sé til að mynda skylt
að vera með grímu og því erfiðara
að þekkja fólk á myndum eða á
förnum vegi.
Þeim sem kunna að hafa upplýs-
ingar um ferðir Konráðs er bent á
að hringja í lögregluna á Norður-
landi eystra í síma 444-2800, eða
hafa samband við aðstandendur í
gegnum netfangið
info.konni92@gmail.com.
Konráðs
enn saknað
Sást í miðborg
Brussel á fimmtudag
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Yfir 2.000 sýni hafa verið tekin dag-
lega á landamærum Íslands síðustu
tvo daga, eða umfram það viðmið
sem lagt var upp með að heilbrigðis-
kerfið gæti annað þegar skimun
hófst. Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir segir í samtali við Morgun-
blaðið að það sé áhyggjuefni. „Þetta
[2.000 sýna viðmið] er ekki alveg
heilög tala, eins og Landspítalinn
hefur sjálfur bent á. Undanfarna
daga hefur verið farið yfir þessa
tölu sem er ákveðið áhyggjuefni, en
ég hef ekki heyrt neinar kvartanir
frá Landspítalan-
um enn sem kom-
ið er,“ segir Þór-
ólfur. Farþegar
frá svokölluðum
„lágáhættusvæð-
um“, þ.e. Þýska-
landi og öllum
Norðurlöndum,
utan Svíþjóðar,
eru undanskildir
skimun við kom-
una til landsins, en þaðan kemur
einmitt hátt hlutfall farþega um
þessar mundir. Þannig komu 3.400
ferðamenn til landsins í fyrradag, en
aðeins 2.035 þurftu í sýnatöku.
Ljóst er því að lítið sem ekkert svig-
rúm er til að færa lönd aftur á lista
yfir áhættusvæði, fari svo að kór-
ónuveiran nái aukinni útbreiðslu
þar. Það hefur raunar þegar gerst í
Danmörku, þar sem nýgengi smita
– fjöldi nýrra smita síðustu 14 daga
á hverja 100.000 íbúa – er nú 10,6
sem er umfram viðmið sóttvarna-
yfirvalda, sem er 10. Þá eru virk
smit í Færeyjum 37, sem gefur ný-
gengi upp á um 74. „Það er ljóst að
við getum ekki bætt mikið í skim-
anir eins og staðan er núna nema að
taka einhver lönd út [af áhættulist-
anum] á móti,“ segir Þórólfur. Hann
segir það stjórnvalda að ákveða
endanlega um listann en honum
þyki þó óvarlegt út frá sóttvarna-
sjónarmiði að hleypa fleiri einstak-
lingum inn í landið án skimunar,
nema þeir komi frá löndum sem
teljist örugg.
Alls hafa 105 þúsund manns kom-
ið til landsins frá því landamæra-
skimun hófst 15. júní, en sýni verið
tekin úr tæplega 70 þúsund þeirra.
27 manns hafa greinst með virkt
smit á landamærunum. Flestir
hinna smituðu eru búsettir á Íslandi
eða 11, en næst á eftir eru íbúar
Danmerkur og Þýskalands.
Landamærin við þolmörk
Ekki svigrúm til að skima frá fleiri löndum eins og staðan er nú, segir sóttvarna-
læknir Gæti valdið vanda ef smitum fjölgar á skilgreindum lágáhættusvæðum
Þórólfur
Guðnason
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn mynda Strokk Alls hafa 105.000 komið til landsins frá því skimun hófst á landamærum 15. júní. Þar af hafa tæplega 70.000 farið í skimun.
MSamfélagssmit geti verið ... »4