Morgunblaðið - 04.08.2020, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
Opnunartími
mán.-fös. 11-18
laugardaga 12-16
Lokadagar
útsölunnar
50-60%
afsláttur
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Átta ný kórónuveirusmit greindust innanlands í
fyrradag. Öll greindust þau á sýkla- og veiru-
fræðideild Landspítalans þar sem tekið var 291
sýni. Þá voru smitin öll úr sama stofni og undan-
farna daga, þ.e. annarri hópsýkingunni sem upp
kom í síðustu viku. Meirihluti þeirra smituðu,
fimm af átta, voru í sóttkví við greiningu.
Hjá Íslenskri erfðagreiningu greindist ekkert
smit en 914 sýni voru tekin, þar á meðal í um-
fangsmikilli skimun á Akranesi þar sem tíundi
hver Akurnesingur var skimaður. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir sagði á blaðamanna-
fundi almannavarna í gær að ánægjulegt væri hve
fáir greindust hjá Íslenskri erfðagreiningu og að
það renndi frekari stoðum undir að samfélagslegt
smit sé ekki mjög útbreitt. Honum hugnast að
gripið verði til frekari fjöldaskimana í tengslum
við smit sem greinst hafa og ekki hefur tekist að
rekja. Hvort einblínt verði á einstaka bæjarfélög
eða vinnustaði sé útfærsluatriði sem ræða þurfi
við Íslenska erfðagreingu á næstu dögum.
Nýgengi heldur áfram að hækka
Áttatíu virk smit eru nú á landinu og einn á
sjúkrahúsi, en 670 í sóttkví. Flest eru virku smitin
á höfuðborgarsvæðinu, eða 57. Níu eru á Vestur-
landi, fjórir á Suðurnesjum og einn í hverjum
landshluta á Norðurlandi vestra, Norðurlandi
eystra, Suðurlandi og Vestfjörðum.
Nýgengi veirunnar, þ.e. smit sem greinst hafa
á landinu síðustu 14 daga sem hlutfall af 100.000
íbúum, heldur áfram að aukast og mælist nú 19,9
(17,7 innanlands og 2,2 úr landamæraskimun). Til
samanburðar er hlutfallið 30,7 í Svíþjóð en það er
eina Norðurlandið þar sem hlutfallið er hærra en
á Íslandi.
„Ég held að við munum þurfa að búast við fleiri
tilfellum daglega á næstu dögum þar til við von-
andi förum að sjá árangur af þeim aðgerðum sem
gripið var til á föstudaginn,“ sagði Þórólfur á
fundinum, og vísaði til hertra sóttvarnareglna
sem þá tóku gildi. Takist það ekki sé mögulegt að
tilfellum geti fjölgað mjög.
Rannsaki hvort veiran er vægari
Aðeins hefur einn þurft að leggjast inn á
sjúkrahús vegna veirunnar frá því hún fór að láta
aftur á sér kræla. Þórólfur segir að tilefni sé til að
ráðast í slíkar rannsóknir hér á landi. „Það liggur
fyrir núna að það þarf að fara að rannsaka hvort
veiran sé eitthvað vægari núna en í vetur. Það er
engar upplýsingar um það að fá erlendis frá,“
segir Þórólfur. Hægt sé að komast nálægt því
með rannsóknum á þeim tilfellum sem hafa
greinst hér á landi bæði í vetur og nú. Vonandi
megi birta upplýsingar um slíkt sem fyrst.
Verslunarmannahelgin gekk vel
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá al-
mannavörnum, sagði á fundinum að lögreglan
hefði ekki þurft að leysa upp eða hafa afskipti af
neinum samkomum þar sem sóttvarnareglur voru
brotnar, eftir því sem hann best vissi. Lögreglan
hafi haft nóg að gera um helgina, eins og jafnan
um stórar „djammhelgar“ en flest útköll hafi ver-
ið vegna hávaða í minni samkvæmum.
Óvíst um íþróttir og fundað með KSÍ
Þegar samkomubann var hert, var jafnframt
lagt til að öllum íþróttakeppnum fullorðinna yrði
frestað til 10. ágúst. Tilkynnti Knattspyrnusam-
band Íslands (KSÍ) í kjölfarið að öllum leikjum í
meistaraflokki og 2. flokki yrði frestað til mið-
vikudagsins 5. ágúst fyrst um sinn. KSÍ hefur
sent almannavörnum ítarlegan spurningalista um
hvaða aðgerðir sambandið gæti ráðist í til að
hægt sé að hefja keppni og æfingar að nýju. Víðir
sagði á fundinum í gær að verið væri að vinna í
svörum en staðan væri mjög óljós og vildi hann
ekki segja til um hvort hægt yrði að hefja keppni
á ný á miðvikudag. „Við munum hitta forsvars-
menn KSÍ á morgun [í dag]. Þar getum við von-
andi veitt þeim svör við einhverjum af þeim
spurningum sem komu fram, en það er ekki víst
að þau verði öll á þá lund sem þau langar,“ sagði
Víðir.
Ljósmynd/Lögreglan
Undirbúningur Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggja á ráðin fyrir blaðamannafund almannavarna í gær.
Samfélagssmit geti verið lítið
Átta innanlandssmit greind Enginn smitaður í umfangsmikilli sýnatöku ÍE
Frekari fjöldaskimanir í bígerð Verslunarmannahelgin sögð hafa gengið vel
Ljósmynd/Lögreglan
Landlæknir Alma Möller sagði aðgerðir almannavarna í megindráttum þær sömu og í síðustu bylgju.
Til greina kemur
að grípa til harð-
ari sótt-
varnaaðgerða en
hefur verið grip-
ið til til þessa,
bendi spár vænt-
anlegs spálíkans
vísindamanna við
Háskólann til
þess að kór-
ónuveirufarald-
urinn sé í miklum vexti. Þetta kom
fram á blaðamannafundi almanna-
varna í gær.
Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir hefur boðað Thor
Aspelund, prófessor í líftölfræði við
Háskóla Íslands, og teymi hans til
fundar á morgun til að ræða spálík-
anið sem teymið bjó til í fyrstu
bylgju faraldursins en vonast er til
að nýtt líkan verði birtingarhæft
eftir fimm daga.
Thor hefur borið saman tölur um
nýgreind smit frá tveimur tímabil-
um. Annars vegar frá því í byrjun
mars er faraldurinn braust út og
síðan á tímabilinu frá 23. júlí er
önnur bylgja fór að láta á sér
kræla. Í samtali við Morgunblaðið
segir Thor að óvíst sé hvort seinni
bylgjan verði jafnumfangsmikil og
sú fyrri. „Það er enn vika eða tvær
vikur í að hægt verði að úrskurða
um það í hvað stefnir. En myndin
lítur ekki vel út.“
Talsverður fjöldi nýrra smita
„Við erum á miklum óvissutím-
um. Þetta lítur verr út en ég átti
von á. Ég hélt að við myndum ná
að halda þessu mallandi á vægari
hátt. Það var vitað að veiran myndi
aldrei fara því þá hefðum við þurft
að loka landinu sem aldrei hefur
verið stefnan hér. Það getur vissu-
lega komið eitt og eitt smit upp
fjóra til fimm daga í röð, en núna
er allt í einu komin vika af ný-
greindum smitum með talsverðum
fjölda. Þá finnst manni vera komin
ný staða sem mér hugnast ekki
vel,“ segir Thor.
Aðspurður segir Thor að hóp-
smitin, m.a. á Akranesi, skekki ekki
myndina heldur séu þau einmitt
hluti hennar og að hliðstæð hóp-
smit hafi einnig komið upp í fyrri
bylgjunni.
„Stóra myndin er sú að smitum
fer fjölgandi í þjóðfélaginu og ég
hef áhyggjur af því. Það koma allt-
af upp hópsmit og þau verða barin
niður en þetta er alltaf svona og ég
er ekki viss um að það sé hægt að
segja að þau skekki myndina.“
Spálíkanið
skiptir
sköpum
Von á nýju spálík-
ani eftir fimm daga
Thor
Aspelund
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Skimun Íslenskr-
ar erfðagreining-
ar vegna kórón-
uveirunnar
verður enn mark-
vissari en áður.
Hætt verður að
taka slembiúrtök
og þess í stað
verða skimaðir
hópar fólks sem
tengjast þeim
sem hafa smitast í annarri hópsýk-
ingunni sem er í gangi í samfélaginu.
Þetta segir Kári Stefánsson, for-
stjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
spurður út í niðurstöðu fundarins
sem hann átti í gær með þríeyki al-
mannavarna, smitrakningarteymi
almannavarna og Thor Aspelund,
prófessor í líftölfræði.
Skimun hópanna verður sam-
vinnuverkefni á milli Íslenskrar
erfðagreiningar og smitrakningar-
teymisins, samvinna sem Kári segir
að hafi gengið mjög vel.
Landamæraskimun að virka
Kári segir að fundurinn hafi verið
haldinn vegna þess að hópurinn hafi
áhyggjur af smitinu af völdum veir-
unnar, sem sé „nokkuð víða en þó
ekki úti um allt“. Eitt mynstur af
stökkbreytingum er í gangi sem þýð-
ir að skimunin á landamærunum er
að virka nokkuð vel, að sögn Kára.
Það séu góðar fréttir.
„Slæmu fréttirnar eru að þetta
eru allt saman samfélagssmit sem
við erum að takast á við núna. Þetta
er að berast frá manni til manns inn-
an íslensks samfélags og það sem
meira er, er að það eru sautján aðilar
sem hafa sýkst af þessari veiru, veiru
með þetta stökkbreytingamynstur,“
segir Kári og nefnir að þetta séu
sjálfstæðir aðilar sem ekki hefur tek-
ist að tengja saman með rakningu.
Það bendi til þess að sýktir einstak-
lingar séu úti í samfélaginu sem hafi
tengt á milli þeirra. „Hvort þeir eru
einn eða hundrað vitum við ekki.“
Hvort núverandi ráðstafanir dugi
til að ná utan um smitið eigi eftir að
koma í ljós, en Kári reiknar með að
fáist úr því skorið á næstu viku til tíu
dögum.
Tengdir hópar skimaðir
ÍE beitir markvissari skimun en áður Ræðst á næstu sjö
til tíu dögum hvort núgildandi aðgerðir skila árangri
Kári
Stefánsson
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI