Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Klippt og beygt
fyrirminni og
stærri verk
ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Þetta er frekar svekkjandi að þurfa að
bakka aftur í tveggja metra regluna. Maður
var farinn að vona að hægt væri að hafa þetta
á svipuðum dampi og verið hefur, eða því sem
nemur svona þriðjungi af þeim gestum sem
þetta voru í fyrra,“ segir Þorsteinn S. Guð-
mundsson, eigandi og veitingamaður á veit-
ingastaðnum Old Iceland á Laugavegi. Hann
hefur eins og margir úr sömu starfsstétt
þurft að taka upp ráðstafanir til þess að
tryggja að tveggja metra reglan sé virt á
veitingastaðnum.
„Við lokuðum öllu í vor en svo vorum við
með opið þrjá daga í viku á kvöldin og svo
vorum við komin í hvert kvöld þegar útlend-
ingarnir komu aftur. Þetta er því nokkuð
högg fyrir okkur að þurfa að taka upp ráð-
stafanir aftur, þótt þetta sé enginn heimsend-
ir,“ segir Þorsteinn.
Hann segir að hann hafi neyðst til þess
að segja upp starfsfólki og nýta hlutabótaleið
þegar staðnum var lokað í fyrri bylgju farald-
ursins í vor. Færri komist að á staðnum eftir
að tveggja metra reglan tók gildi og allt verði
þyngra í vöfum.
Útlendingarnir taka hlutunum léttar
„Við höfum ekki þurft að hafa afskipti af
fólki og þetta hefur gengið mjög vel. Helst
sér maður að útlendingarnir eru minna
hræddir við þetta og taka hlutunum frekar
létt. Enda eru þeir búnir að fara í skimun og
vita að þeir eru ekki smitaðir.“
Tveggja metra reglan tekin upp að nýju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Svekkjandi að þurfa að bakka aftur“
Sala nýrra fólksbíla jókst um 44,4%
í júlímánuði, samanborið við júlí í
fyrra. Engu að síður nemur sam-
dráttur það sem af er ári í sölu
nýrra bíla tæpum 32%. Þetta kem-
ur fram í fréttatilkynningu frá Bíl-
greinasambandinu.
Þar kemur jafnframt fram að
samdrátturinn helgist fyrst og
fremst af færri nýjum bílaleigubíl-
um, en þeim hefur fækkað um
59,2% á milli ára á meðan bílum til
einstaklinga og almennra fyrir-
tækja hefur aðeins fækkað um
6,1%. Þá vekur jafnframt athygli að
svokallaðir nýorkubílar eru 52,4%
allra seldra bíla það sem af er ári.
Eru það bílar sem ganga fyrir öðr-
um orkugjöfum en bensíni og dísil.
Þá segir í tilkynningunni að sam-
dráttur sé á milli ára sem rekja
megi til kórónuveirunnar.
Fyrst og fremst eru áhrifin á
ferðaþjónustuna en mun færri bíla-
leigubílar hafa verið nýskráðir á
fyrri helmingi ársins í ár miðað við
sama tímabil síðasta árs. Hafa 1.634
nýir bílaleigubílar verið skráðir
núna á fyrstu 7 mánuðum þessa árs
en voru 3.993 á sama tíma í fyrra.
Rúmlega helm-
ingur nýorkubílar
Bílasala jókst í júlímánuði á milli ára
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bílasala Nýorkubílar voru rúmur helmingur seldra bíla í júlímánuði.
Hópur á vegum
Frjálshyggju-
félagsins undir-
býr nú mótmæli
gegn sótt-
varnaaðgerðum
stjórnvalda. Jó-
hannes Loftsson,
formaður Frjáls-
hyggjufélagsins
og einn skipu-
leggjenda mót-
mælanna, segir að kveikjan að þeim
sé óánægja með íþyngjandi inngrip
ríkisvaldsins til að stemma stigu við
útbreiðslu veirunnar. Stjórnvöld hafi
ekki tekið nægilegt tillit til hagkerf-
isins og þegar upp er staðið verði það
þjóðinni dýrkeyptara en að fara í hóf-
stilltari aðgerðir.
Jóhannes segist horfa til Svíþjóðar
sem fyrirmyndar í þeim efnum. Þar
hafi fólk sjálft þurft að taka ábyrgð á
eigin sóttvörnum og sú aðferð hafi
virkað. „Það sem ruglar allan saman-
burð við Svía er að þeir klikkuðu á að
stöðva útbreiðslu á spítölum og heil-
brigðisstarfsfólk fékk ekki nægan út-
búnað,“ segir Jóhannes, en hann sé
ekki að leggja það til.
Skaðinn verði meiri til lengdar
„Mér hefur fundist of hart gengið
fram í sóttkvíarmálum hér á landi
þar sem menn eru settir í sóttkví við
minnsta tilefni. Ef þú tekur refsi-
stefnu gegn því að veikjast verður
það til þess að fólk er latara við að
leita sér lækninga,“ segir Jóhannes.
Þá segist hann andsnúinn öllu
samkomubanni. „Það má ekki
gleyma því að núverandi leið, að
stoppa og loka næstu árin án þess að
meta skaðann, hefur áhrif á hag-
kerfið allt og þar með heilbrigðis-
þjónustuna næstu árin.“ Síðasta
efnahagshrun hafi kostað niðurskurð
upp á á þriðja hundrað milljarða
króna í heilbrigðiskerfinu.
Mótmælin eru enn á skipulagsstigi
og segir Jóhannes að ekki liggi enn
fyrir hvar eða hvenær þau verða
haldin. „Við erum bara að byrja að
undirbúa, en það er ekki langt í
þetta.“
Undirbúa
mótmæli
Segja of hart
gengið fram
Jóhannes
Loftsson