Morgunblaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Innsetningarathöfn forseta Íslands
var haldin á laugardag, en vegna
kórónuveirufaraldursins var athöfn-
in í þinghúsinu minni í sniðum en
venjan er.
Alls var 29 manns boðið til athafn-
arinnar; meðal þeirra voru Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra,
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra og Sigurður Ingi Jóhannes-
son, samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra. Þá var formönnum
annarra flokka á Alþingi, eða stað-
genglum þeirra, boðið.
Fyrrverandi forsetar, Ólafur
Ragnar Grímsson og Vigdís Finn-
bogadóttir, voru viðstödd athöfnina,
sem og Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands, Steingrímur J. Sig-
fússon forseti Alþingis og Þorgeir
Örlygsson forseti Hæstaréttar.
Þegar Guðni var settur í embætti
hið fyrra sinn, 1. ágúst 2016, var 231
viðstaddur. Lengi stóð til að 80 gest-
ir yrðu viðstaddir nú, til að gæta bet-
ur sóttvarna, en vegna hertra að-
gerða á föstudag var gestum fækkað
töluvert. Tveir metrar voru á milli
stóla í þingsal og ýtrustu sóttvarna
var gætt. Engin handabönd voru á
meðal viðstaddra, eins og hefur tíðk-
ast í fyrri athöfnum, en í stað þess
lögðu viðstaddir hönd á brjóst og
hneigðu sig lítillega, eins og sjá má á
mynd hér að ofan. petur@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Heilsa Í stað handabanda lögðu viðstaddir hönd á brjóst og hneigðu sig lítillega, en ýtrustu sóttvarna var gætt.
Morgunblaðið/Freyja Gylfa
Margmenni Þegar Guðni var settur í embætti árið 2016 var 231 viðstaddur.
Tvö hundruð færri vegna veiru
Innsetningarathöfn forseta Íslands fór fram um helgina
29 voru viðstaddir og ýtrustu sóttvarna var gætt í þingsal
Pétur Magnússon
petur@mbl.is
„Þetta var það versta sem ég hef
lent í, í rekstri tjaldsvæðis í tuttugu
ár,“ segir Tryggvi Marinósson,
framkvæmdastjóri Hamra,
rekstraraðila tjaldsvæðanna á Akur-
eyri, í samtali við Morgunblaðið.
Þegar hertar aðgerðir gegn kór-
ónuveirunni voru tilkynntar fyrir
helgi voru um þúsund manns á tjald-
svæðum á Akureyri. Nýjar reglur
um samkomumörk tóku gildi tæp-
lega sólarhring síðar, og til að mæta
þeim þurfti að vísa um 400 gestum í
burtu.
Flestir hafi verið skilningsríkir
„Það er merkileg reynsla að vera
búinn að reyna að fjölga fólki á
tjaldsvæðum og lenda svo í því að
þurfa að reka fólk í burtu,“ segir
Tryggvi. Þegar umsjónarmenn
tjaldsvæða áttuðu sig á því að fækka
þyrfti gestum tóku þeir til þess ráðs
að hætta að selja meira en eina nótt.
Svo þeir sem voru þegar á tjald-
svæði en höfðu ekki greitt fyrir
áframhaldandi dvöl fengu ekki að
borga fyrir næstu nótt og var vísað í
burtu.
Hann segir að flestir hafi sýnt því
skilning, en aðrir hafi orðið reiðir.
„Það leit ekki vel út á tímabili því
fólk vildi ekki fara, en við vorum í
samvinnu við lögregluna og þetta
gekk án þess að það færi út í læti,“
segir Tryggvi. „Samt sem áður tók
þetta ansi mikið á.“
Eftir að gestum hafði verið fækk-
að gekk helgin afar vel að sögn
Tryggva. Þó hefði verið betra að fá
meiri fyrirvara til að aðlagast nýjum
reglum. Hann segir að verslunar-
mannahelgin byrji á miðvikudegi
hjá tjaldsvæðum, og þess vegna hafi
mörg svæði verið full þegar aðgerð-
irnar voru tilkynntar. „Þetta var
seint í rassinn gripið.“
Enginn pirraður, allir sáttir
„Það var svolítið kapphlaup á
fimmtudaginn að koma sér inn á
tjaldsvæði yfir helgina,“ segir
Steinunn Bjarnadóttir, umsjónar-
maður tjaldsvæðisins í Reykholti.
„Mörgum var vísað frá. Síminn
hringdi stanslaust. Að öllu venju-
legu hefðu líklega verið samtals
fimm til sex hundruð manns á
svæðinu.“
Hún segir að allt hafi engu að
síður farið vel fram og allir hafi virt
fjarlægðartakmarkanir. „Þetta
tókst mjög vel. Enginn pirraður.
Allir sáttir,“ segir Steinunn.
Fyrir helgi greindi mbl.is frá því
að nýjar reglur um samkomumörk
og sóttvarnir sem tóku gildi á föstu-
dag myndu hafa veruleg áhrif á
rekstur tjaldsvæða, enda sé versl-
unarmannahelgin ein stærsta
ferðahelgi sumarsins.
Mörg tjaldsvæði voru sögð svo
gott sem lokuð, þar sem ekki væri
hægt að taka á móti nýjum gestum
um helgina vegna samkomumarka.
Á blaðamannafundi á fimmtu-
daginn biðlaði Víðir Reynisson til
fólks að fresta útilegum og halda
sig heima um helgina, en engu að
síður þurftu tjaldsvæði víða um
land að vísa frá gestum vegna
fjöldatakmarkana.
Gestum tjaldsvæða vísað í burtu
Verslunarmannahelgin var krefjandi fyrir umsjónarmenn tjaldsvæða Á Akureyri þurfti að reka
gesti í burtu vegna hertra aðgerða gegn kórónuveirunni Talsvert færri gestir komust að en vildu
Morgunblaðið/Eggert
Vonbrigði Fjölmargir gestir voru mættir á tjaldsvæði þegar hertar aðgerðir gegn kórónuveirunni voru tilkynntar.