Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 11

Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Stærðir: 18–24 Verð: 10.995 Margir litir Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. í fyrstu skónum frá Biomecanics SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ SMÁRALIND www.skornir.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga Sími 588 8000 slippfelagid.is MÁLA Í SUMAR? VITRETEX á steininn. HJÖRVI á járn og klæðningar. Fjöldi fólks hafði samband við Ölbu Indíönu Ásgeirsdóttur þegar hún setti inn færslu á Facebook og aug- lýsti handsaumaðar andlitsgrímur. Eftirspurnin lét ekki á sér standa þar sem hertar sóttvarnareglur áskilja grímunotkun hvar sem ekki er hægt að framfylgja tveggja metra reglunni. „Ég hafði bara saumað grímur handa mér og systur minni og átti afgang af efni til að sauma meira. Mamma mín stakk síðan upp á að byrja að selja þær,“ segir Alba. Hún gaf lít- ið fyrir hugmynd- ina í byrjun en ákvað síðan að setja inn færslu á Facebook og fyrr en varði höfðu 30 manns sett sig í samband við Ölbu eða skrifað athugasemdir við færsl- una í von um eintak, á tveimur dög- um. „Ég var mjög hissa yfir þessu,“ segir Alba. Að lokum ákvað hún að taka ekki við fleiri fyrirspurnum: „Ég þurfti að loka á fyrirspurnir eftir að um það bil tíu manns höfðu haft samband, því ég hafði ekki nóg efni í fleiri. Ég er enn þá að fá fullt af skilaboðum og athugasemdum þar sem fólk er að biðja um grímur, þótt ég sé búin að loka á þetta,“ seg- ir Alba. Því lét hún tengil fylgja með Facebook-færslunni, þar sem er að finna leiðbeiningar fyrir þá sem vilja læra að sauma grímur, ásamt leið- beiningum um hvernig skuli þvo þær. „Ég held ég ætli ekki að sauma meira eða bara sjá til. Ég er búin að sitja sveitt við þetta yfir helgina. Þetta er frekar mikil vinna og ég er að hætta í sumarfríi núna. Þannig að ég hef ekki beint tíma til að vera að sinna þessu mikið,“ segir Alba. Þegar Alba byrjaði á saumnum las hún sér til um hvaða efni hentaði svo grímurnar gætu nýst sem best. Niðurstaðan var poplin-bómull í ytra lag grímunnar og tvöfalt síffon í innra lag, vasi fyrir aukalegan „fil- ter“ og teygja yfir eyru sem væri hnýtt eftir stærð, í svörtu eða hvítu, með eða án blúndu. Grímur sem Alba birti á Face- book eru með rósamynstri, blóma- mynstri og kisumynstri. „Það er minn stíll,“ segir Alba og hugnaðist mörgum hinn djarfi stíl ef marka má eftirspurnina. Alba segir að undir hverjum og einum sé komið að meta öryggi taugríma. „Það er ekki hægt að segja að neinar grímur sem eru saumaðar í heimahúsi séu öruggar. Þetta er bara fyrir fólk til að verja sjálft sig aðeins betur, og aðra í kringum sig.“ Grímur Hægt er að lífga upp á grímuútlitið, ef vilji er fyrir hendi. Seljast eins og heitar lummur  Margir vilja kaupa fjölnota grímur Alba Indíana Ásgeirsdóttir Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson Með grímu Grímur Ölbu koma í ýmsum litum og mynstrum. Stór hópur fólks myndaðist í brott- fararsal á Keflavíkurflugvelli á sunnudag þar sem ómögulegt virtist vera að virða tveggja metra regluna. Flugfarþegar gátu lítið við aðstæð- urnar ráðið enda höfðu þeir allir fengið hin vanabundnu „go to gate“- tilmæli frá skjáum flugvallarins. Þrjú flug Icelandair fóru í loftið á aðeins tveimur mínútum. Flug Ice- landair til Brussel fór klukkan 7:37, flug Icelandair til Frankfurt fór kl. 7:38 og mínútu síðar fór flug Ice- landair til Amsterdam. „Leiðarkerfið okkar er byggt upp á ákveðnum lendingartímum á er- lendum flugvöllum, sem gerir okkur erfitt um vik að breyta brottfarar- tímum í Keflavík. Við verðum því að vinna eins vel og mögulegt er úr þeim aðstæðum sem við stöndum frammi fyrir,“ sagði Bogi Nils Bogason í samtali við mbl.is. Bogi segir Icelandair vinna náið með Isavia og sóttvarnayfirvöldum til að tryggja heilsu og öruggi far- þega og starfsfólks. „Keflavíkurflugvöllur vinnur langt undir álagsmörkum en óhjákvæmi- lega safnast fólk saman á komu- og brottfarartímum. Þess vegna hefur almenn grímuskylda meðal annars verið innleidd á flugvellinum og í flugvélum þar sem tveggja metra reglunni verður ekki alltaf komið við.“ Erfitt að breyta brottfarartímum  Stór hópur myndaðist í brottfararsal  Óhjákvæmilegt að fólk hópist saman Mannþröng í Leifsstöð Flugfarþegar gátu lítið við aðstæðurnar ráðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.