Morgunblaðið - 04.08.2020, Page 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Hver maður á rétt á
að láta í ljós hugsanir
sínar, en ábyrgjast
verður hann þær fyrir
dómi. Ritskoðun og
aðrar sambærilegar
tálmanir á tjáningar-
frelsi má aldrei í lög
leiða. Öllum er frjálst
að stunda þá atvinnu
sem þeir kjósa.
Þessi orð standa í
stjórnarskrá íslenska lýðveldisins
og svipuð orð má finna í flestum
stjórnarskrám frjálslyndra
lýðræðisríkja. Þegar orðin eru lesin
ein og sér þá eru þau ávísun á
frjálst samfélag óhefts tjáningar-
frelsis (nema einhver nenni að
draga þig fyrir dómstóla). Leigu-
bílaakstur er frjáls. Matvöruversl-
anir selja áfengi. Auglýsendur lofa
varning sinn og nota efsta stig lýs-
ingarorða til að lýsa honum.
Áfengisauglýsingar finnast víðar en
undir rós eða í erlendum tímaritum
og útsendingum frá fótboltaleikjum
í ensku deildinni.
En stjórnarskráin er með var-
nagla. Tjáningar- og atvinnufrelsi
má „setja skorður með lögum“ enda
„krefjist almannahagsmunir þess“.
Leigubílaakstur er því
á höndum einok-
unarhrings, ríkið eitt
selur áfengi og fer ekki
leynt með það, auglýs-
ingafé innlendra áfeng-
isframleiðenda rennur
úr landi og öllum er
gert að nota í mesta
lagi miðstig lýsing-
arorða í auglýsingum.
Þar fauk frelsið út
um gluggann. Al-
mannahagsmunir enda
kröfðust þess.
En hvað með skatta? Má ríkið fé-
fletta þig af handahófi? Nei. Stjórn-
arskráin er skýr: Enginn skattur
verður lagður á nema heimild hafi
verið fyrir honum í lögum þegar
þau atvik urðu sem ráða skatt-
skyldu.
Á þessu eru nú samt nokkrir
brestir. Hvað gerist þegar þú
hækkar í tekjum? Jú, skattheimtan
eykst og hafir þú þegið einhverja
aura í vaxtabætur, húsaleigubætur,
barnabætur eða ellilífeyri þá er
slíkt umsvifalaust skert. Tvöföld
skattheimta! Ef húsnæði þitt hækk-
ar í verði þá er hlutfallsútreikn-
ingur fasteignagjaldanna fljótur að
breytast í aukna skattheimtu.
Svona mætti lengi telja. Stjórn-
arskráin dugir hér jafnvel sem vörn
gegn yfirgengilegri skattheimtu og
fiskinet á lúsmý.
Ekki er svo að sjá að stjórn-
málamenn séu að halda aftur af sér
þegar ýmsar glufur stjórnarskrár
og annarrar löggjafar eru misnot-
aðar til að auka völd hins opinbera.
Götum er lokað með tilskipunum,
fjölmiðlum er mútað með skattfé til
að hlífa stjórnmálamönnum við
óþægilegri gagnrýni, og þeir rit-
skoðaðir í nafni upplýsingaóreiðu
þegar þeir reyna að bera á borð
annað en hina einu sönnu skoðun.
Bílar og bensín er skattlagt í him-
inhæðir til að fjármagna eitthvað
allt annað en greiðfæra og holu-
lausa vegi. Gæluverkefnin rúlla af
færibandi þinghúss og ráðhúsa á
meðan foreldrum með ungbörn er
haldið í gíslingu svo mánuðum
skiptir, aldraðir sitja fastir á göng-
um sjúkrahúsa og ónýtir liðir bíða
hálfu og heilu árin eftir aðgerð sem
tekur enga stund, eða eru sendir á
einkasjúkrahús í Svíþjóð með til-
heyrandi umstangi og óþægindum,
og auðvitað kostnaði.
Tálmanir á atvinnu- og tjáningar-
frelsi og yfirgengileg skattheimta í
skiptum fyrir hvað? Velferðar-
kerfið? Heilbrigðisþjónustu?
Menntakerfi? Vegi? Aldeilis ekki.
Miklu frekar virðist öll hringekjan
snúast um að blása í segl stjórn-
málamanna sem gera góðverk sín á
kostnað almennings og hljóta fyrir
það endurkjör.
Stjórnarskráin var ekki skrifuð
til að gefa hinu opinbera óendanleg
völd, jafnvel ekki í þágu allsherjar-
reglu. Hún var skrifuð til að halda
aftur af ríkisvaldinu, á tímabili í
sögu okkar þar sem menn mundu
vel eftir einveldiskonungum mið-
alda og óttuðust völd ríkisvaldsins.
En hvað er til ráða? Ekki dugir
að kjósa. Það virðist engu máli
skipta hvað nýkjörinn stjórn-
málamaður fer ákveðinn inn í þing-
hús Alþingis eða ráðhús sveitarfé-
laganna: Þegar þangað er komið
mætir honum einfaldlega embættis-
mannakerfið, andspyrna, íhaldssemi
kerfis sem ver sjálft sig og í mörg-
um tilvikum persónuárásir.
Kannski fyrsta ráðið sé að hætta
að hlusta á stjórnmálamenn sem
einoka umræðu- og fréttatíma og
krefja stjórnmálamennina þess í
stað um að halda kjafti og byrja að
hlusta. Um leið má láta fréttir eiga
sig. Þar bjóða stjórnlyndir blaða-
menn stjórnlyndum einstaklingum í
viðtal eftir viðtal og boða þannig
heimsmynd sína undir fána fag-
mennsku og fréttaflutnings.
Í kjölfarið má svo biðja stjórn-
málamenn um raunverulega rétt-
lætingu á öllum þessum ríkisaf-
skiptum: Hvað eru menn að fá fyrir
skattheimtu á öllu sem hreyfist, eða
er kyrrstætt? Þarf virkilega að
halda úti skattheimtu þar sem
jaðarskatturinn er miklu nær 100%
en 40% til að styðja við fátæka,
reka svolítið heilbrigðiskerfi og
bjóða ungu fólki upp á einhverja
menntun? Þarf í raun að takmarka
atvinnu- og tjáningarfrelsi okkar í
miðaldastíl til að tryggja allsherj-
arreglu? Þarf fullfrískt fólk á öllum
þessum bótum – og sköttum – að
halda til að samfélagið grotni ekki
niður í hreysabyggðir og glæpa-
öldu? Er stjórnmálamaður svona
miklu hæfari til að ráðskast með líf
þitt en þú að stjórna því nokkurn
veginn á eigin spýtur?
Fyrsta skrefið er hjá okkur sjálf-
um. Ríkið er ekki mamma okkar.
Það á að þjóna okkur ef það á að
geta réttlæt tilvist sína. Það gerir
það ekki í meiri mæli en svo að á
eftir klappi kemur krepptur hnefi.
Nú er mál að linni.
Eftir Geir
Ágústsson
Geir Ágústsson
» Af hverju er stjórn-
málamanninum
treyst betur fyrir þinni
velferð en þér sjálfum?
Höfundur er verkfræðingur.
Hugleiðingar hægrimanns
Kostnaður við lagn-
ingu 1. áfanga borg-
arlínu til ársins 2033
er áætlaður 50 millj-
arðar eins og fram
kemur í Samgöngu-
sáttmála ríkisstjórnar
og sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu, sem
undirritaður var 26.
september 2019.
Greinilega er lagt af
stað með allt of lágar
kostnaðartölur líkt og gerðist í
Stavanger í Noregi þar sem borg-
arlínuframkvæmdir standa yfir.
Sérfræðingar sem til þekkja full-
yrða að 50 milljarðar sé allt of lág
tala fyrir framkvæmdir við 1.
áfanga borgarlínu. 80-100 millj-
arðar séu nær lagi, ef vagnakaup
og tilheyrandi er reiknað með.
Í Samgöngusáttmála ríkis-
stjórnarinnar og sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu er einnig gert
ráð fyrir byggingu mislægra gatna-
móta á Bústv./Reykjanesbraut
(2021). Auk þess hefur samgöngu-
ráðherra lýst yfir vilja til þess að
ljúka við lagningu Sundabrautar
fyrir 2030. Ljóst er að borgar-
línuframkvæmdir
munu fresta hluta af
vegaframkvæmdum
sem Samgöngusátt-
málinn gerir ráð fyrir
og líklega fram-
kvæmdum við Sunda-
braut, sem er ekki inn
í Samgöngusáttmál-
anum.
Í lok apríl sl. sagði
Sigurður Ingi Jó-
hannsson samgöngu-
ráðherra: „Sunda-
brautarmálið þokast
áfram. Í lok sumars
fæ ég tillögu að framtíðarlausn sem
fest yrði í skipulagi.“ Vonandi ger-
ist það.
Hækkaði um nær 200%
Kostnaðaráætlun fyrir svipað
verkefni og borgarlínan – Buss-
veien í Stavanger í Noregi – hefur
hækkað um hátt í 200%, eða hefur
nálægt þrefaldast miðað við upp-
haflega kostnaðaráætlun. Hækk-
unin hefði orðið enn meiri ef
samgönguyfirvöld á Stavanger-
svæðinu hefðu ekki gripið til þess
ráðs að endurskoða allar áætlanir
varðandi verkefnið.
Í dag virðist stuðningur íbúa
Reykjavíkur við borgarlínu fara að
mestu eftir stuðningi við einstaka
stjórnmálaflokka. Það er ekki sér-
staklega góður grunnur til að
byggja á afstöðu sína til þessarar
risaframkvæmdar, sem borgarlínan
er.
Framkvæmdaaðilar verða að
svara því við upphaf framkvæmda
við borgarlínu, hver muni borga
kostnað við borgarlínu umfram þær
kostnaðartölur sem birtast í Sam-
göngusáttmálanum. Mun ríkið taka
á sig þann kostnað að hluta ? Svo-
kallaðar Borgarlínuframkvæmdir á
nokkrum stöðum erlendis eins og
t.d. í Stavanger, hafa víðast hvar
farið töluvert fram úr áætlun.
Stórt áhættuverkefni
Nú þegar eru upphaflegar fram-
kvæmdaáætlanir komnar á eftir
áætlun. Borgarlínuverkefnið er
stórt áhættuverkefni, sem mun
laska stöðu borgarsjóðs til langs
tíma. Einnig liggja fyrir ótrúverð-
ugar spár um það hve margir muni
nýta sér þennan ferðamáta. Þessar
spár eru ekki í samræmi við
reynslutölur frá bílaborgum í
Bandaríkjunum, Kanada og Ástr-
alíu.
Málflutningur þeirra sveitar-
stjórnarmanna, sem bera ábyrgð á
framkvæmd borgarlínu, hefur ekki
verið sannfærandi. Aðallega byggð-
ur á hástemmdum yfirlýsingum um
mikilvægi og ágæti borgarlínu, án
þess að slík ummæli séu rökstudd
með fullnægjandi hætti.
Augljóst er að langvarandi mjög
kostnaðarsamar framkvæmdir við
borgarlínu tefja enn frekar afar
mikilvæg verkefni við nauðsynlegar
samgöngubætur í vegakerfi borg-
arinnar. Sú þróun sem blasir við
mun breyta viðhorfum margra íbúa
til risavaxinna og rándýrra sam-
gönguframkvæmda, eins og stefnir
í með borgarlínuframkvæmdir. Auk
þess er augljóst að framkvæmdir
við borgarlínuverkefnið á næstu ár-
um eiga eftir að auka þann
umferðarvanda sem við blasir á
höfuðborgarsvæðinu í dag, ekki síst
í Reykjavík.
Eftir Vilhjálm Þ.
Vilhjálmsson » Afar líklegt er að á
framkvæmdatíma
borgarlínu muni draga
verulega úr nauðsyn-
legum samgöngubótum
í Reykjavík.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Höfundur er fv. borgarstjóri.
Borgarlína – óvissuferð inn í framtíðinaMóttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda. Morg-
unblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar
smellt er á lógóið birtist felli-
gluggi þar sem liðurinn „Senda
inn grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerfið.
Ítarlegar leiðbeiningar fylgja
hverju þrepi í skráningarferlinu.
Eftir að viðkomandi hefur skráð
sig sem notanda í kerfið er nóg
að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá
kl. 8-18.