Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 20

Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Maður velur sér ekki samferðafólk sitt í lífinu sjálfur, það er happdrætti, en stundum fær maður vinninginn. Komið er að kveðjustund eftir langa og góða samfylgd í meira en 60 ár. Magnea Kolbrún, ævinlega kölluð Maddí, og Bjarni bróðir minn gengu í hjónaband 9. nóv- ember 1961, sem var brúð- kaupsdagur foreldra Bjarna. Hún ólst upp í barnmargri og samheldinni fjölskyldu í Vesturbænum. Það var ekki mulið undir þau systkinin, þau urðu að standa sig. Maður skynjaði að þau voru náin. Þetta var stór og glaðlyndur hópur. Hún hélt stór fjöl- skylduboð á heimili þeirra Bjarna. Sterkar taugar hafði hún alltaf til Bjarnarness í Hornafirði, þar sem hún var í sveit í æsku. Heimili hennar og Bjarna stóð ævinlega opið ætt- ingjum og vinum. Bjarni og Maddí tóku tvo menn, einstæðinga, undir sinn verndarvæng. Annar var fyrr- verandi vinnumaður á Grund, sem átti fáa að í ellinni. Hinn hafði veikst á ungum aldri og varð aldrei samur. Maddí tók þeim jafn opnum örmum og öll- um öðrum og stóð heilshugar með manni sínum í þessum verkum. Þau lögðu fram það sem þá skorti, vináttu og hjartahlýju, sem rauf einstæð- ingsskap þeirra. Nú á dögum ætlast fólk til að ríkið skjóti skjólshúsi yfir slíkt fólk, svo við getum haft það afsíðis og helst gleymt því. Þessi verk þeirra hjóna má muna og við hin getum spurt okkur hvort við höfum lagt fram eitthvað álíka. Væri lífið ekki betra ef fleiri gerðu þetta? Maddí fékk það hlutskipti í lífinu að verða samferða nokkr- um einstaklingum með ríkulegt keppnisskap. Þá kom sér vel að vera jafnlynd og yfirveguð. Sagt hefur verið í gamni að karlmenn segi það sem þeim Magnea Kolbrún Sigurðardóttir ✝ Magnea Kol-brún, Maddí, fæddist 8. apríl 1939. Hún lést 22. júlí 2020. Útförin fór fram 30. júlí 2020. sýnist við konur, en konur geri það sem þeim sýnist með karlmenn. Lagni og innsæi í mannlegum sam- skiptum var henni í blóð borin. Hún stóð ekki höllum fæti, hún færði allt til betri vegar. Hún var skemmti- leg, jákvæð og brosmild. Tók gestum glaðlega og kvaddi hlýlega. Samgladdist alltaf þeim sem vel gekk. Hún gaf sér tíma til að spjalla, fylgj- ast með og alltaf spurði hún frétta af mínu fólki. Hún var harðdugleg, jákvæð og tilbúin að taka áskorunum, fara út fyr- ir þægindarammann, eins og það er kallað. Hún var hjálp- söm og tók til hendinni. Ég átti margar skemmtilegar stundir með henni á mínu æskuheimili við tiltektir, sláturgerð, hey- skap og margt annað. Sem unglingur í skóla dvaldi ég tvo vetur á heimili þeirra Bjarna í Ljósheimunum. Þá var gott að fá aðstoð við heimanám og út- skýringar á prjónauppskriftum. Ég held reyndar að henni hafi þótt það skemmtilegt, því hún var lagin við það eins og annað. Maddí hefur nú kvatt eftir löng og erfið veikindi, sem hún tók af miklu æðruleysi. Hennar nánustu munu geyma minning- ar um góða konu sem gerði gott úr öllu. Hún tók afstöðu með lífinu, þótt dauðinn hafi nú orðið hlutskipti hennar eins og við hin eigum öll vísa von. Blessuð sé minning hennar. Áslaug Þorgeirsdóttir. Í dag kveðjum við yndislegu móðursystur okkar Magneu Kolbrúnu Sigurðardóttur, eða Maddí eins og hún var ávallt kölluð. Maddí ólst upp í stórum systkinahópi á Brávallagötunni. Elstar voru systurnar Katla, Hanna og Maddí sem voru mjög samrýndar og gerðu margt saman. Við erum viss um að móðir okkar, Hanna, sem lést fyrir 5 árum tekur vel á móti systur sinni. Við eigum margar góðar minningar frá æskuárum okk- ar, þá var mikið farið í heim- sóknir og jafnvel gist. Það voru margar veislurnar sem systurn- ar útbjuggu saman og hjálpuðu hver annarri. Hvort sem var fermingarveisla, afmæli eða brúðkaupsveislur systkina þeirra, þá voru þær systur góð- ar saman í eldhúsinu að undir- búa. Alltaf vorum við systkin með í för og skemmtum okkur vel. Það var gaman að fá að hjálpa þeim, allir fengu hlut- verk eða lágu á hleri og þá var oft mikið hlegið. Maddí tók háskólapróf í ís- lensku og nutum við góðs af þegar við vorum að ljúka okkar háskólanámi. Þá bauðst Maddí til að lesa yfir lokaverkefnin okkar. Við verðum alltaf þakk- lát fyrir þá aðstoð. Maddí var fróð og víðsýn. Henni þótti ofurvænt um öll börn og fylgdist vel með allri fjölskyldunni hvort sem var með sínum börnum, barnabörn- um og einnig okkar börnum. Maddí hafði mikinn áhuga á bókalestri, fór oft á leiksýning- ar og tónleika. Það var gaman að spjalla við hana um síðustu leiksýningar eða tónleika og nýjustu bækurnar sem hún hafði lesið. Síðustu árin voru Maddí erf- ið þar sem sjúkdómurinn herj- aði á, en hún var baráttukona mikil og það, sem hún ætlaði sér að ná, tókst henni. Hún var yndisleg kona með stórt hjarta, alltaf hjálpsöm og tilbúin að að- stoða þegar þörf var á. Um- hyggjusöm og svo blíð og góð við alla. Með sorg í hjarta munum við ylja okkur um hjartarætur með allar góðu stundirnar sem við áttum með Maddí frænku. Elsku Bjarni, Guðrún, Pétur og Siggi og fjölskyldur, við biðjum algóðan guð að styrkja ykkur í sorginni. Blessuð sé minning elskulegu Maddíar frænku. Gegnum tárin geisli skín, gleði og huggun vekur. Göfug andans áhrif þín engan frá mér tekur. Þegar upp á ljóssins land lífs mér fleytir kraftur, traustar slakna tryggðaband tengja vinir aftur. (Erla) Sigurður, Guðrún og Björk. Með þessum fáu línum lang- ar okkur að minnast Magneu K. Sigurðardóttur (Maddýjar) sem tók alltaf svo vel á móti okkur félögum þegar við heimsóttum vin okkar, Sigga B., í Holtsbúð- ina. Hún var ávallt brosmild, gaf sér tíma til að ræða við okkur og vildi ávallt vita hvern- ig fjölskyldur okkar hefðu það enda voru samskiptin góð á milli fjölskyldna þar sem við fé- lagarnir erum jafnaldrar Sigga og höfum fylgst að frá því við kynntumst fyrst, 5 ára gamlir. Við stunduðum íþróttir af kappi á okkar yngri árum og Maddý fylgdist vel með, hún var kannski ekki alltaf á hlíðarlín- unni en vissi alltaf hvernig leik- irnir fóru hjá okkur. Maddý stóð að sjálfsögðu alltaf með okkur og sínum manni, Sigga, og það er enn minnisstætt þeg- ar við lékum á móti ÍR í 5. flokki í knattspyrnu. Þetta var hörkuleikur og kveikiþráðurinn í Sigga var oft mjög stuttur. Þegar líða fór á leikinn var Siggi orðinn mjög ósáttur við dómara leiksins, sem og fleiri Stjörnumenn, enda hallaði mjög á okkur hvað dómgæsluna varð- ar. Siggi fékk loks nóg, sagði nokkur vel valin orð við dóm- arann, sem ekki er hægt að hafa eftir og fékk beint rautt spjald frá honum. Sigga fannst þetta mjög ósanngjarnt og neit- aði að fara út af. Dómarinn reyndi þá að koma honum út af en Siggi hljóp á undan honum um völlinn og dómarinn náði honum ekki. Það var ekki fyrr en nokkrir foreldrar báðu hann að koma út af að hann gaf sig. Þá heyrðist í Maddý frá hliðar- línunni: „Já, hann Siggi minn, hann hefur svo sterka réttlæt- iskennd.“ Og þar með var málið útrætt. Maddý var einstaklega já- kvæð, hlý og einlæg, mjög vel lesin, fróðleiksfús og gáfuð enda bera börnin hennar, Siggi, Pétur og Guðrún, þess glöggt merki. Hún var dugleg að hjálpa þeim í náminu. Þá var hún stoð og stytta fyrir barna- börnin, sem leituðu mikið til hennar. Við minnumst Maddýjar með miklum hlýhug. Elsku Bjarni, Siggi, Pétur, Guðrún og fjöl- skylda, við vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Sigurður Guðmunds- son, Valdimar Kristófersson. Enn fækkar þeim bekkjar- systkinum sem útskrifuðust frá Samvinnuskólanum í Bifröst ár- ið 1957. Við kveðjum í dag elskulega bekkjarsystur okkar, Magneu eða Maddí eins og hún var ætíð kölluð. Fyrstu nemendurnir sem hófu nám í Bifröst haustið 1955 komu víðs vegar að af landinu og var eftirvæntingin mikil í hópnum að hefja nám á þessum fallega stað sem hafði verið val- inn fyrir skólann. Maddí og Auður vinkona hennar voru þar á meðal og vöktu þær fljótlega athygli fyrir glaðværð og fé- lagslyndi. Hópurinn hristist vel saman og margs er að minnast frá þeim árum. Maddí var ein af þeim sem komu frá Reykjavík og hafði hún alist upp í stórum systk- inahópi. Hún varð fljótt vinsæl enda kát, skemmtileg og já- kvæð. Maddí gekk mjög vel í námi og jafnframt tók hún mik- inn þátt í félagslífinu í skól- anum og var þar mikil drif- fjöður. Að loknu námi í Bifröst lá leiðin til Bretlands, þar sem hún dvaldi um hríð. Stuttu eftir heimkomu kynntist hún mannsefni sínu, Bjarna Péturssyni frá Grund í Skorradal, og stofnuðu þau heimili í Reykjavík. Við tóku annasöm ár við heimilisstörf og uppeldi barna. Hún lét ekki þar við sitja, hún settist aftur á skólabekk, fór í öldungadeild MH og lauk þaðan stúdents- prófi. Hóf síðan nám í íslensk- um fræðum við Háskóla Íslands og lauk prófi þaðan með glæsi- brag. Auk þess að sinna heimili og börnum starfaði hún alla tíð utan heimilis og tók að sér margvísleg ábyrgðarstörf, m.a. var hún um tíma einkaritari forstjóra SÍS. Síðast á starfs- ferlinum var hún fjármálastjóri við Fjölbrautaskólann í Breið- holti. Við bekkjarsystkinin dáð- umst að starfsorku og dugnaði hennar í hvívetna. Við höfum alltaf haldið vel hópinn og alltaf átti Maddí frumkvæði að því að við hittumst reglulega og oftar en ekki á glæsilegu og hlýlegu heimili hennar og Bjarna. Við getum seint gleymt þeim tíma sem Maddí var í forystusveit okkar og minnumst með þakk- læti þess félagslega þáttar sem hún átti í hópi okkar, jafnt í leik og samstarfi þegar við mörgum stundum nutum gest- risni þeirra hjóna. Fyrir nokkrum árum greind- ist Maddí með illvígan sjúkdóm sem smám saman dró úr þreki hennar. Þrátt fyrir veikindin mætti hún á mánaðarlegum fundum okkar bekkjar- systkinanna og var sem áður hrókur alls fagnaðar. Við minnumst Maddíar með miklu þakklæti fyrir allar liðnar samverustundir og vottum Bjarna, börnum og öllum ást- vinum innilega samúð. Fyrir hönd bekkjarsystkin- anna, Margrét Helga. Okkar dásamlegi ÚLFAR DANÍELSSON, kennari og víkingur, Skógarhlíð 7, Hafnarfirði, Verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 11. Í ljósi aðstæðna verður einnig hægt að koma saman og horfa á streymi á eftirtöldum stöðum: Víðistaðaskóli, Bæjarbíó, Áslandsskóli og Samfylkingarsalurinn, Strandgötu 43. Frekari breytingar, ef þarf, verða birtar á samfélagsmiðlum fjölskyldunnar. Adda María Jóhannsdóttir Hildur Jónsdóttir Silja Úlfarsdóttir Sara Úlfarsdóttir Sindri Dan Vignisson Melkorka Rán Hafliðadóttir Snævar Dan Vignisson Kormákur Ari Hafliðason Þorkell Magnússon og aðrir aðstandendur Fallegi drengurinn okkar, GYLFI MAGNÚS THORLACIUS, Auðarstræti 17, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans laugardaginn 25. júlí. Þeim sem vildu minnast hans er bent á að styrkja Landspítalann, t.a.m. gjörgæsludeildina við Hringbraut. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Magnús Lyngdal Magnússon Ragnhildur Thorlacius Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA ÁRNADÓTTIR kennari, frá Höskuldsstöðum, Eyjafjarðarsveit, lést á sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 31. júlí. Snjólaug Sigurðardóttir Benedikt Smári Ólafsson Snæbjörn Sigurðsson Elva Sigurðardóttir Árni Sigurðsson Hrefna Laufey Ingólfsdóttir Ingólfur Sigurðsson Bryndís Lúðvíksdóttir Elín Kristbjörg Sigurðard. Hafþór Hreiðarsson Margrét Sigurðardóttir Helgi Þór Ingason Pálína Stefanía Sigurðard. Freyr Aðalgeirsson barna- og barnabarnabörn Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI PÁLL JÓHANNSSON listamaður, Hólmatjörn í Holtum, lést á Landspítalanum 23. júlí, útför verður 5. ágúst. Í ljósi aðstæðna verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir athöfnina. Sólveig Benjamínsdóttir Skrímir Árnason Halldóra Jónsdóttir Þorkell Ó. Árnason Yabei Hu Benjamín N. Árnason barnabörn Elskuð móðir okkar RAGNHEIÐUR HARALDSDÓTTIR Stóru-Mástungu lést á Dvalarheimilinu Grund þann 27. júlí. Jarðsett verður frá Stóra-Núpskirkju föstudaginn 7. ágúst kl. 14. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir allra nánustu en athöfninni verður streymt á Facebook-síðu Stóra-Núpskirkju. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dvalarheimilið Grund. Börn hinnar látnu og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT S. EINARSDÓTTIR, fv. sjúkraliði og forstöðumaður, Norðurbrú 1, Garðabæ, sem lést 16. júlí, verður jarðsungin frá Vídalínskirkju í Garðabæ föstudaginn 7. ágúst klukkan 13. Vegna aðstæðna í samfélaginu er athöfnin einungis fyrir allra nánustu en verður einnig streymt á slóðinni: www.utformse.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Atli Pálsson Hallgrímur Atlason Guðbjörg Jónsdóttir Guðjón Atlason Ana Isorena Atlason Atli Atlason Elin Svarrer Wang barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, SIGÞÓRS SIGURÐSSONAR netagerðarmanns. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki lungnadeildar Landspítalans í Fossvogi og hjartadeildar Landspítalans við Hringbraut. Ingigerður Anna Guðmundsdóttir Ragnheiður G. Sigþórsdóttir Bjarki Sigþórsson Björk Valdimarsdóttir Sigríður Sigþórsdóttir Hilmar K. Lyngmo barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.