Morgunblaðið - 04.08.2020, Qupperneq 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
Elsku amma.
Takk fyrir að gefa
okkur kvöldið um
daginn til að kveðja
þig, það var eitthvað
svo ekta þú. Fara nákvæmlega
eins og þú vildir fara, með því að
sofna inni í rúmi en gefa okkur
öllum smá tíma til að kveðja þig.
Samt ekki of langan þannig að
kveðjustundin drægist ekki á
langinn, heldur bara þann tíma
sem við þurftum til að fá að
skríða aðeins upp í til þín, spjalla
smá við þig og kyssa þig bless.
Takk fyrir alla yndislegu
Harðbaksdagana. Við erum
heppnustu krakkar í heimi að
hafa fengið að alast upp við að
fara norður og læra á lífið þar.
Harðbakur og dagarnir með þér
þar voru algjörlega æsku minnar
draumalönd. Það eru ekki margir
krakkar sem fengu að flækjast
um á hjara veraldar og læra allt
um fuglana, ungana þeirra, rek-
ann, veiðar, vötn, fjörur, blóm,
plöntur og náttúruna yfirleitt. Og
allt þetta kenndirðu okkur án
þess að við yrðum þess vör að það
væri einhver kennsla í gangi.
Þetta síaðist einhvern veginn allt
frá þér yfir til okkar. Takk fyrir
að tala alltaf við okkur eins og við
værum fullorðið fólk og kenna
okkur sjálfstæði, ábyrgðarkennd
og útsjónarsemi. Takk fyrir alla
þolinmæðina, skilninginn og yfir-
vegunina.
Takk fyrir að hafa alltaf leyft
okkur að prófa okkur áfram í
sveitinni og efast aldrei um getu
okkar til að standa okkur. Þú
veist ekki hvað það hefur skilað
okkur miklu í lífinu að kunna að
bjarga okkur og finnast við geta
fundið út úr öllu. Takk fyrir að
kenna okkur hvernig maður sér
um veika æðarunga, fyrir að
Aðalbjörg
Guðmundsdóttir
✝ Aðalbjörg Guð-mundsdóttir
fæddist 15. mars
1920. Hún lést 10.
júlí 2020.
Útförin fór fram
27. júlí 2020.
leyfa okkur að prófa
björgunarvestin í
vatninu og fyrir alla
morgnana sem ég
vaknaði við brauðið
að ristast á viðar-
eldavélinni. Mér
fannst það besta
lykt í heimi og ég
get alltaf framkallað
hana í huganum, vit-
andi að ég muni
aldrei finna hana
aftur.
Takk fyrir að vera sallaróleg
þegar við Jói týndumst í snjó-
komunni úti á vatni í árabátnum,
bara við tvö tíu og ellefu ára göm-
ul. Þú vissir að við myndum ráða
við þetta enda vorum við búin að
elta þig út um allt, læra af þér og
fundum út úr þessu þótt við sæj-
um hvergi til lands. Takk fyrir að
bíða eftir okkur heima í Ellubæn-
um með heitt kakó og lummur því
að þú vissir að við værum köld og
þyrftum hita í kroppinn. Takk
fyrir að treysta og trúa á okkur.
Takk fyrir allar spilastundirn-
ar, þvottaleikina og prjónastund-
irnar. Takk fyrir að hafa rifið upp
saumavélina og saumað með mér
ballkjóla þegar mér datt í hug að
sauma mér flíkur rétt fyrir ball.
Takk fyrir að hafa „æðarkollað“
mig í svefn óteljandi sinnum.
Takk fyrir sundferðirnar, bíla-
brjóstsykurinn, pönnukökurnar,
kertagerðina, laufabrauðsgerð-
ina og langömmuboðin.
Takk fyrir að vera stórkostleg
fyrirmynd í lífinu fyrir mig og
strákana mína. Þú varst mjög
greind, sterk, sjálfstæð og yfir-
veguð. Það eru algjör forréttindi
að hafa fengið að alast upp með
þig sem fyrirmynd.
Takk fyrir allt elsku amma
mín.
Þín
Þorbjörg.
Þegar Aðalbjörg Guðmunds-
dóttir, Lolla, er kvödd hinstu
kveðju flýgur hugurinn óðar
norður að ystu strönd, þar sem
hún fæddist og ólst upp, þriðja í
röð sex samheldinna systra sem
ásamt einum fósturbróður uxu úr
grasi á Harðbak á Melrakka-
sléttu. Hún dvaldi talsvert í
Grjótnesi í sömu sveit hjá ömmu-
systur sinni og nöfnu, Aðalbjörgu
Pálsdóttur, sem var ljósmóðir
auk þess að stýra stóru heimili.
Án þess að hafa um það nákvæma
vitneskju hef ég lengi haft það á
tilfinningunni að Lolla hafi sótt
mótandi veganesti til þessarar
öflugu fagmanneskju sem
löngum þurfti að setja hagsmuni
annarra ofar sínum eigin. Ræt-
urnar voru samt á Harðbak og
þar var heldur ekki í kot vísað.
Ættboginn þaðan hefur fengið í
arf skýra mynd af lífinu þar forð-
um, e.t.v. með nokkuð ríkulegu
rómantísku ívafi. Jörðin er fyrst
og fremst gjöful hlunnindajörð
sem krafðist mikils dugnaðar, út-
sjónarsemi og þekkingar til að
afla fjölskyldunni lífsviðurværis.
Lolla gekk á hólm við þær áskor-
anir strax í æsku en síðan nánast
alla ævi, ekki bara af samvisku-
semi og dugnaði heldur einlæg-
um áhuga og sannfæringu fyrir
heilsubætandi og mannbætandi
áhrifum Harðbakslífsins fyrir
fólk á öllum aldri. Hún og Rögn-
valdur sköpuðu sér aðstöðu til að
dvelja langdvölum á Harðbak
hvernig sem búsetu á bænum leið
að öðru leyti, og sáu til þess að
allir afkomendur þeirra, börn,
barnabörn og barnabarnabörn,
ættu kost á sumardvöl á Harðbak
og þeim ómetanlegu þroskatæki-
færum sem fylgdu. Í minni æsku
var það hluti sumarkomunnar á
Harðbak að Lolla mætti norður
með fjölskylduna. Strax færðist
fjör í leikinn en einnig ákveðin
festa og ný umræðuefni komust á
dagskrá. Persónulega stend ég í
mikilli þakkarskuld við Lollu,
ekki bara fyrir langa og góða
samfylgd heldur einnig fyrir holl
áhrif sumrin sem við stóðum í
fjölbreyttum bústörfum á Harð-
bak og oft síðan.
Þrátt fyrir djúpar rætur í
heimahögum stefndi Lolla út í
heim til mennta. Fyrir valinu
varð Kennaraskóli Íslands þar
sem hún kynntist mannsefni
sínu, Rögnvaldi Sæmundssyni
frá Ólafsfirði, síðar skólastjóra.
Barnakennsla varð síðan hennar
ævistarf en einnig köllun og lífs-
stíll. Að sumu leyti var hún kenn-
ari af gamla skólanum í besta
skilningi þess hugtaks þar sem
lífsgildin voru tjáð og útskýrð
með eigin breytni og framgöngu.
„Kurteisin kom að innan/sú kurt-
eisin sanna/ siðdekri öllu æðri/ af
öðrum sem lærist“ (Bjarni Thor-
arensen). En hún var ekki síður
kennari nýrra tíma og nýrra við-
horfa því hún hafði lifandi áhuga
á hverri nýrri kynslóð sem mætti
í skólann og var vakandi yfir nýj-
ungum í kennslu og kennara-
starfi allt til starfsloka.
Lolla kvaddi með þeirri lát-
lausu reisn og reglufestu sem
henni var í blóð borin. Hún hafði
lifað í nákvæmlega heila öld, skil-
að merkilegu lífsstarfi og
ómetanlegri arfleifð til afkom-
enda sinna og ættingja. Og rétt
áður en hún dó lifði hún enn eina
sumarkomu á Harðbak og varð í
síðasta sinn vitni að þúsundradda
söng lífríkis sem lofsyngur á
hverju vori þá staðreynd að lífið
heldur áfram.
Blessuð sé minning Aðalbjarg-
ar Guðmundsdóttur.
Guðmundur Þorgeirsson.
Systur í Soroptimistaklúbbi
Reykjavíkur kveðja í dag kæra
systur, Aðalbjörgu Guðmunds-
dóttur. Aðalbjörg náði hundrað
ára aldri 15. mars síðastliðinn og
tíu dögum fyrir afmælið sótti hún
góðgerðarfund hjá Reykjavíkur-
klúbbi, hress og glöð að vanda.
Aðalbjörg var mjög ern til hinsta
dags og það var yndislegt að fá
fréttir af því að hún hefði náð að
heimsækja ættaróðalið sitt kæra,
Harðbak á Melrakkasléttu, núna
í sumar. Í tilefni 100 ára afmæl-
isins birtist viðtal við Aðalbjörgu
í Morgunblaðinu og þar sagði hún
að ekkert hefði skort á Harðbak
þegar hún var að alast þar upp.
Þar var silungsveiði, æðarvarp
og dúntekja og sinnti Aðalbjörg
dúnhreinsuninni fram undir það
síðasta.
Aðalbjörg útskrifaðist með
kennarapróf tvítug að aldri árið
1940 og starfaði sem kennari á
Raufarhöfn, í Hafnarfirði, við
Austurbæjarskólann í Reykjavík
og við Barnaskólann í Keflavík í
yfir tuttugu ár, þar af yfirkennari
í fjögur ár. Síðustu áratugina
sinnti hún kennslu yngri barna
með afar góðum árangri. Í Kefla-
vík sat Aðalbjörg í ýmsum nefnd-
um á vegum bæjarins, m.a. í
fræðsluráði. Frá 1977 til 1988
kenndi hún við Ölduselsskóla í
Reykjavík og lauk þar hátt í 50
ára starfsævi sem kennari.
Aðalbjörg var fyrsti formað-
urinn í Soroptimistaklúbbi Kefla-
víkur sem var stofnaður 1975. Í
afmælisriti Soroptimistaklúbbs
Reykjavíkur frá 2009 birtist við-
tal við Aðalbjörgu þar sem hún
segir frá því hvað hafi orðið til
þess að hún gekk til liðs við Sor-
optimistahreyfinguna. Henni
leist vel á að ganga í starfsgreina-
klúbb sem hefði það markmið að
styrkja menningar- og velferðar-
mál og hún beitti sér fyrir því frá
upphafi að klúbburinn styrkti
sjúkrahúsið í Keflavík. Aðalbjörg
gekk síðar til liðs við Reykjavík-
urklúbbinn á árinu 1979, tók allt-
af virkan þátt í starfi klúbbsins
og gegndi mörgum embættum
fyrir hann í gegnum tíðina. Aðal-
björg starfaði sem ritari, gjald-
keri og fulltrúi á landssambands-
þingum, auk margháttaðra
nefndarstarfa. Aðalbjörg var
gerð að heiðursfélaga í Soroptim-
istaklúbbi Reykjavíkur árið 2006.
Þá var Aðalbjörg einnig virk á
vettvangi Soroptimistasambands
Íslands, tók þátt í stofnfundi þess
og gegndi embætti varaforseta.
Dóttir Aðalbjargar, Margrét
Rögnvaldsdóttir, fetaði í fótspor
móður sinnar og gekk til liðs við
Soroptimistahreyfinguna. Mar-
grét skipulagði fyrir tveimur ár-
um glæsilega systraferð um Mel-
rakkasléttu og þá fengu systur úr
Reykjavíkurklúbbi höfðinglegar
móttökur hjá Aðalbjörgu á
ættaróðalinu á Harðbak.
Systur í Reykjavíkurklúbbi
minnast Aðalbjargar með mikilli
virðingu og þakklæti og votta
Margréti, Elínu og Sæmundi og
fjölskyldum þeirra innilega sam-
úð.
Sigrún Þorgeirsdóttir,
formaður Soroptim-
istaklúbbs Reykjavíkur.
Okkur langar til að minnast
okkar kæru vinkonu og fyrrver-
andi samstarfskonu í Öldusels-
skóla. Aðalbjörg var dásamleg
manneskja og vissulega kennari
af guðs náð. Við vorum svo lán-
samar að vinna náið með henni
síðustu ár hennar í skólanum.
Ávallt var unnt að sækja í visku-
brunn hjá henni og hafði hún
óþrjótandi hugmyndir í kennslu
og námi barnanna okkar. Yfir-
vegun í kennslu var hennar að-
alsmerki. Við fundum aldrei fyrir
því að nokkur aldursmunur væri
á henni og okkur, nema síður
væri, svo frjó var hún í hugsun og
starfi. Þótt liðin séu rúm þrjátíu
ár síðan hún lét af störfum þróað-
ist vinátta okkar áfram og nutum
við ótal samverustunda með
henni hvort heldur var í Reykja-
vík eða í heimsóknum okkar á
æskuheimili hennar á Harðbak,
Melrakkasléttu. Skemmtilegt og
fróðlegt var að kynnast heim-
kynnum hennar á Sléttunni sem
og lífsháttum liðinna tíma. Ávallt
miðlaði hún okkur af reynslu
sinni og uppvexti á heimaslóðum.
Ógleymanlegar eru stundir okk-
ar með henni í litla húsinu við
fjöruborðið þar sem við nutum
þess m.a. að gæða okkur á
Harðbakskökunni góðu sem aldr-
ei mátti missa sín þar. Mjög
minnisstætt er okkur að ganga á
eftir Aðalbjörgu hoppandi á milli
þúfna með prik í höndunum til að
finna og merkja hreiður æðar-
fuglsins og máttum við hafa okk-
ur allar við þótt yngri værum. Í
raun er það henni að þakka að við
kynntumst landinu okkar nánar í
þessum ferðum til hennar.
Þau hjón, Aðalbjörg og Rögn-
valdur, nutu þeirrar gæfi að búa
seinni árin hjá dóttur sinni og
tengdasyni, Elínu og Björgvini, í
Seljahverfinu þar sem þau voru
umvafin kærleika allrar fjöl-
skyldunnar.
Yndislegar stundir í vöfflukaffi
hjá henni og Rögnvaldi og síðar
henni eftir að hann féll frá voru
okkur mikils virði sem og smá-
bíltúrarnir inn á milli ásamt
stoppi á kaffihúsi þar sem Aðal-
björg okkar ávallt fékk sér
súkkulaðiköku með rjóma.
Þakklæti er okkur efst í huga
að hafa verið svo lánsamar að
kynnast okkar góðu vinkonu og
fá að njóta vináttu hennar öll
þessi ár.
Okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til fjölskyldunnar og
megi minning hennar ylja okkur
öllum um ókomna tíð.
Hildigunnur og Sigurborg.
Kæri bróðir. þegar ég sit
hér og set niður þessi orð veit
ég ekki hvar á að byrja. Þú
varst tekinn svo snöggt frá
okkur, góðar minningar
steyma fram um æskuárin á
Framnesveginum, heimsókn-
um til ykkar Gerðar vestur,
sólarferðir og margt fleira,
minningar um góðan bróður
munu fylgja mér um ókomin
ár.
Takk fyrir allt gott og
skemmtilegt elsku Sigþór og
megi góður guð styrkja elsku
Gerði, börnin ykkar og fjöl-
skyldur. Að lokum set ég hér
bænina sem mamma fór með,
með okkur, fyrir svefninn.
Sigþór Sigurðsson
✝ Sigþór fæddist 15. mars1949. Hann lést 20. júlí
2020.
Útförin fór fram 30. júlí 2020.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson frá Presthólum)
Þótt ég kveðji þig með sorg í
hjarta, lít ég á tímann okkar
saman með hlýju og brosi.
Þín systir,
Sigríður Rebekka
(Beggý) og fjölskylda.
✝ Anna SólbjörgJónasdóttir
fæddist í Eiríks-
búð á Arnarstapa
5. maí 1933. Hún
lést á dvalarheim-
ilinu Jaðri, Ólafs-
vík, 23. júlí 2020.
Foreldrar henn-
ar voru Lydía
Kristófersdóttir í
Skjaldatröð, f. 19.
júní 1913, d. 13.
október 1997, og Jónas Péturs-
son í Eiríksbúð, f. 20. maí
1905, d. 2. apríl 1993. Systkini
hennar eru Kristófer, f. 12.
apríl 1935 og Arndís, f. 8. júlí
1938.
Anna giftist 24. september
1961 Rafni Þórðarsyni skip-
Anna, eða Lilla, eins og
hún var alltaf kölluð, ólst upp
á Arnarstapa og gekk þar í
farskóla sem starfræktur var
á Arnarfelli. Lilla kom fyrst
til Ólafsvíkur sem húshjálp
hjá frú Soffíu og Markúsi for-
stjóra Hraðfrystihúss Ólafs-
víkur. Þar kynntist hún Rafni
og hófu þau búskap á Fagra-
bakka hjá foreldrum hans.
Þau fluttu fljótlega upp í
Sandholt 2, en 1967 fluttu
þau upp í nýbyggt hús sitt að
Skipholti 4. Þar bjuggu þau
þar til Rafn lést 1996. Lilla
fluttist upp í Hjallabrekku og
2012 flutti hún á dvalarheim-
ilið Jaðar.
Fyrstu árin var hún heima-
vinnandi en fór fljótlega að
vinna við fiskvinnslu og staf-
aði lengi í Hróa, síðan hjá
Fiskkaupum, Hraðfrystihús-
inu og síðast hjá KG Rifi.
Útförin fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 4.
ágúst 2020, klukkan 14.
stjóra frá Ólafsvík,
f. 4. desember
1927, d. 13. júlí
1996. Börn þeirra
eru: 1) Garðar, f.
12. desember 1953,
giftur Guðrúnu
Pétursdóttir, f. 31.
maí 1951, dætur
þeirra eru Telma,
Sif og Rut. 2)
Lydia, f. 29. nóv-
ember 1960, gift
Hjálmari Kristjánssyni, f. 2. júlí
1958, synir þeirra eru Fannar
og Daði. 3) Svanur, f. 5. apríl
1962, giftur Gabrielu Morales,
f. 4. apríl 1965, börn Svans frá
fyrra sambandi eru Viðar,
Anna Lóa, Sóley og Rafn.
Langömmubörnin eru orðin 19.
Það er með miklum söknuði
sem ég kveð tengdamóður mína,
hana Lillu eins og hún var alltaf
kölluð. Hún var traustur vinur og
alltaf hægt að leita til hennar og
langar mig að þakka henni fyrir
allt. Ég hefði ekki getað átt betri
tengdamömmu og var hún mér
og dætrum okkar Garðars alltaf
mjög góð, alltaf tilbúin að passa
fyrir okkur ef okkur vantaði
pössun. Lilla var létt í lund og
gaman að vera með henni og átti
hún fullt af góðum vinum. Alltaf
mundi hún eftir afmælis-
dögunum okkar og barna og
barnabarnanna okkar og hringdi.
Það er svo margs að minnast.
Hversvegna er leiknum lokið?
Ég leita en finn ekki svar.
Ég finn hjá mér þörf til að þakka
þetta sem eitt sinn var.
(Starri í Garði)
Ég þakka samfylgdina, elsku
Lilla, hvíldu í friði.
Guðrún Pétursdóttir.
Í dag kveðjum við ömmu,
langömmu og sannarlega góðan
vin því elsku amma Lilla er nú
farin. Amma var einstök og segja
má að hún hafi verið örlagavald-
ur í okkar fjölskyldu því nærvera
hennar, samkennd og hjálpsemi
var ávallt til staðar sem gerði líf
okkar betra og skemmtilegra.
Við munum svo sannarlega
sakna nærveru hennar og allra
símtalanna en það er komið að
leiðarlokum.
Lilla, eins og hún amma var
jafnan kölluð, var gleðigjafi
hvort sem það var í leik eða
starfi. Alls staðar þar sem hún
tyllti niður fæti var hún hress og
kát. Hún vildi hafa gaman og
þoldi einfaldlega ekki vesæld eða
leiðindi. Hún vildi öllum vel. Vildi
leggja lóð á vogarskálarnar um
að dagurinn væri góður og
skemmtilegur. Frábær eiginleiki
í fari manneskju að geta dregið
það besta fram í fari fólks hvern-
ig svo sem aðstæður væru. Ef
henni mislíkaði eitthvað eða hún
sá að samræður væru að fara
eitthvað þá átti hún það til að
segja: „Jæja góða mín, ræðum
eitthvað annað.“
Í gegnum árin og í heimsókn-
um okkar vestur í Ólafsvík var
alltaf tekið vel á móti okkur
hvort sem það var í Skipholtið
eða Hjallabrekkuna og eins um
tíma út í Rif. Það sem eftir lifir í
minningunni úr þeim heimsókn-
um var ekki bara gnægð veislu-
fanga og gestrisni heldur sam-
verustundirnar og spjallið langt
fram undir morgun um heima og
geima. Innsýn ömmu í liðna tíma
og samferðafólk hennar úr Ólafs-
vík og eins frá Arnastapa var
einstakt. Hún gat tengt okkur
saman við fólk sem við höfðum
heyrt af, þekktum kannski til,
stundum ekki og komið á teng-
ingum sem gerðu sögurnar
kræsnari, skiljanlegri og umfram
allt skemmtilegri.
Við kveðjum því glaðværa,
einstaklega hjartahlýja og
merkilega konu sem okkur þótti
ekki aðeins vænt um sem ömmu
og langömmu, heldur líka vin-
konu sem gerði líf okkar betra,
alltaf. Ömmu Lillu er því sárt
saknað og munum við minnast
hennar daglega um ókomna tíð
með því að láta minningu hennar
verða okkur leiðarljós um það
hvernig við getum gert veröldina
betri, miklu betri um alla fram-
tíð.
Telma og fjölskylda.
Anna Sólbjörg
Jónasdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi lið-
ur, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá
inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Minningargreinar