Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Hringdu í síma 580 7000 eða farðu á heimavorn.is HVARSEMÞÚERT SAMSTARFSAÐILI Öryggiskerfi 15:04 100% 50 ára Ólafía er Reyk- víkingur en býr í Kópa- vogi. Hún er viðskipta- fræðingur, löggiltur leigumiðlari og löggilt- ur prentsmiður og er eigandi fasteignamiðl- unarinnar Atvinnueign ásamt eiginmanni. Maki: Halldór Már Sverrisson, f. 1972, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræð- ingur. Börn: Auður Hrönn, f. 1998, Halldór Pálmi, f. 2003, og Ragnar Már, f. 2005. Foreldrar: Guðmundur Pálmi Krist- insson, f. 1947, verkfræðingur og fv. for- stöðumaður byggingadeildar hjá Reykja- víkurborg, og Ragnheiður Karlsdóttir, f. 1951, fv. leiðbeinandi á leikskóla. Þau eru búsett í Reykjavík. Ólafía Pálmadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Kipptu þér ekki upp við það þótt einhver spyrji þig spjörunum út úr því þú hefur hreina samvisku. Líttu á minn- ingar sem munað – smakkaðu á nokkr- um en ekki missa damp. 20. apríl - 20. maí  Naut Það sem maður laðast að og það sem er manni gott er ekki endilega alltaf það sama. Hafðu þetta í huga. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hver athöfn hefur afleiðingar. Gríptu tækifærið. Sinntu því vinum þín- um og gefðu þér tíma til að hlusta á þá. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Straumarnir milli þín og ákveð- innar manneskju eru nánast áþreif- anlegir. Rétta manneskjan er sú sem lagði allt í sölurnar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er gott að þekkja sín eigin tak- mörk og þá ekki síður að virða þau þeg- ar á það reynir. Einfaldast væri bara að ræða við alla þá er málið varðar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú hefur um skeið unnið að ákveðnu máli bak við tjöldin. Vinsemd er smitandi og bros eru fljót að breiðast út. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gættu tungu þinnar því aðrir kunna að vera mjög auðsærðir. Meginmark- miðið er gagnkvæmur stuðningur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það kallar á heilmikið skipulag þegar margt liggur fyrir bæði í starfi og utan þess. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þetta er góður dagur til að njóta samvista við vini þína og ættingja. Ef til vill eru ekki allar staðreyndir máls- ins komnar upp á yfirborðið. 22. des. - 19. janúar Steingeit Njóttu þess að vera sam- vistum við vini og stunda félagsstarf. Samskiptin innan fjölskyldunnar eiga eftir að batna. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að hafa stjórn á þínu liði, sérstaklega fá samstarfsmenn þína til að vinna að einu og sama markmið- inu. En varastu að láta ljós þitt skína á kostnað traustsins, sem til þín er borið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver gömul mál eru að angra þig. Notaðu tækifærið og hrintu ein- hverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd. Samfylkingunni frá stofnun flokks- ins. Hann hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, var m.a. formaður fulltrúaráðs Sam- fylkingarinnar í Reykjavík. Hann hefur einnig setið í yfirkjörstjórn mikið á og var maður oft í tvöfaldri eða þrefaldri vinnu.“ Páll var félagi í Æskulýðsfylk- ingunni, síðar Fylkingunni, frá 14 ára aldri. Hann var síðar í Alþýðu- bandalaginu, Þjóðvaka og loks P áll Halldórsson er fædd- ur 4. ágúst 1950 í Reykjavík og ólst upp í Smáíbúðahverfinu. „Ég var til 14 ára aldurs mörg sumur í sveit í Brimnesi í Viðvíkursveit í Skagafirði. Ég stundaði síðan með hléi mennta- skólanám og verkamannavinnu, að- allega við Reykjavíkurhöfn.“ Páll gekk í Breiðagerðiskóla og Réttarholtsskóla og tók stúdents- próf frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1972. „Ég fór ásamt konu minni til Þýskalands, þar sem við stunduðum nám við háskólann í Göttingen. Lauk þar prófi í eðlis- fræði 1979. Páll var starfsmaður Veðurstofu Íslands frá 1979 til 2008, fyrst sem sérfræðingur á jarðeðlisfræðideild en í lokin sviðsstjóri eðlisfræði- sviðs. „Auk almennra starfa og stjórnunarstarfa voru meginvið- fangsefnin þar áhættumat, bæði vegna byggingastaðals og einstakra stórframkvæmda og jarð- skjálftasaga.“ Páll hefur birt grein- ar í bókum og tímaritum um þau efni. Páll var formaður Félags ís- lenskra náttúrufræðinga frá 2008 til 2016 ásamt því að vera varafor- maður BHM og formaður banda- lagsins í nokkra mánuði veturinn 2014 til 2015. „Ég lét af launavinnu í árslok 2017 og hef frá haustinu 2017 stundað nám í sagnfræði við Háskóla Íslands.“ Páll hefur gegnt trúnaðarstörfum fyrir Félag íslenskra náttúrufræð- inga frá 1985. Hann var kjörinn formaður BHMR 1988 og gegndi því starfi til 1996 en þá hafði nafni bandalagsins verið breytt í BHM. Hann sat í launamálaráði BHMR og miðstjórn BHM nær samfellt frá 1986 til 2016. Hann var fulltrúi bandalagsins í fjölmörgum nefnd- um og stjórnum, þar á meðal stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og stjórn Atvinnuleysissjóðs. „Ég var alla tíð í tveimur störf- um, annars vegar á Veðurstofunni sem var bæði skemmtilegt og gef- andi í alla staði og svo virkur í stéttarfélögum. Það starf gat tekið Páll Halldórsson, jarðeðlisfræðingur og fv. stéttarfélagsstarfsmaður – 70 ára Ásamt dóttur og dótturdóttur Páll, Hallgerður og Dagmar Sól sumarið 2018. Var alla tíð í tveimur störfum Morgunblaðið/Árni Sæberg Bókamaður Páll hefur áhuga á bóklestri, einkum um söguleg efni og stund- ar nú nám í sagnfræði við Háskóla Íslands. Í kjarabaráttu Páll ásamt Birgi Birni Sigurjónssyni hagfræðingi og samstarfsmanni sínum til margra ára hjá BHMR. 30 ára Agnes er Reykvíkingur, ólst upp í Skjólunum í Vesturbænum en býr úti á Granda. Hún er með BBA- gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Parsons-háskóla í New York. Agnes er markaðs- og innkaupastjóri Icelandic Asia og formaður Félags kvenna í sjáv- arútvegi. Maki: Lárus Kazmi, f. 1989, vinnur hjá ríkislögreglustjóra. Dóttir: Aþena, f. 2018. Foreldrar: Guðmundur Kristjánsson, f. 1960, útgerðarmaður, búsettur á Sel- tjarnarnesi, og Rakel Steinarsdóttir, f. 1965, listamaður, búsett á Ökrum á Mýrum. Agnes Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.