Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 04.08.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 „ÉG ENDURSTILLTI LÍKA KLUKKUNA. ÞÚ VARST MEÐ STILLT Á SUMARTÍMA.” „ÓKEI, ÞÚ ERT RÁÐINN! VIÐBÚINN, TILBÚINN …” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hugsa um hann. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann LEYFÐU MÉR AÐ GISKA … ÞÚ ÁST OF HRATT OG GLEYPTIR DALLINN ÞINN HVERNIG VILTU LÁTA MINNAST ÞÍN? SEM HAMHLEYPU! Reykjavíkurkjördæmis norður og Landskjörstjórn. Helstu áhugamál Páls eru ferða- lög utan lands og innan og bóklest- ur, einkum um söguleg efni. „Á seinni árum hafa ferðir til Kaup- mannahafnar, þar sem afkomendur mínir búa, en einnig sumarbú- staður og trjárækt orðið sífellt fyrirferðarmeiri.“ Fjölskylda Eiginkona Páls er Sólveig Hall- dóra Ásgrímsdóttir, f. 30.1. 1947, sálfræðingur. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Ásgrímur Albertsson, f. 9.8. 1914, d. 22.10. 1996, bankamaður og gullsmiður, og Anna Sigríður Jóhannsdóttir, f. 24.7. 1919, d. 9.2. 2008, húsmóðir. Þau bjuggu síðast í Kópavogi. Dóttir Páls og Sólveigar er Hall- gerður Pálsdóttir, f. 29.8. 1974, býr í Kaupmannahöfn. Börn hennar eru Páll Skírnir Magnússon, f. 14.12. 1993, tölvunarfræðingur, búsettur í Kaupmannahöfn, og Dagmar Sól Jespersdóttir, f. 5.11. 2005, nemi, búsett í Kaupmannahöfn. Alsystur Páls eru Ásta Halldórs- dóttir, f. 6.3. 1955, fatahönnuður, búsett í Reykjavík; Elín Ýrr Hall- dórsdóttir, f. 22.6. 1958, skurðhjúkrunarfræðingur, búsett í Kópavogi; Ólöf Eir Halldórsdóttir, f. 4.9. 1969, sérhæfður starfsmaður á Landspítalanum, búsett í Reykja- vík. Bróðir samfeðra er Ólafur Halldórsson, f.27.11.1947, líffræð- ingur og kennari, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Páls voru hjónin Hall- dór Brynjólfur Stefánsson, f. 3.3. 1927, d. 25.2. 2009, verslunarmaður og Hallgerður Pálsdóttir, f. 5.10. 1927, d. 24.5. 2017, verslunarmaður. Þau voru búsett í Reykjavík. Páll Halldórsson Halldóra Magnúsdóttir húsfreyja á Narfastöðum og víðar Björn Gunnlaugsson bóndi og trésmiður á Narfastöðum í Viðvíkursveit og víðar Elín Björnsdóttir húsfreyja í Reykjavík Páll Þóroddsson verkamaður í Reykjavík Hallgerður Pálsdóttir verslunarmaður í Reykjavík Hallgerður Pálsdóttir húsfreyja á Sjávarbakka og víðar Þóroddur Símonarson sjóm. og bóndi á Sjávarbakka á Galmaströnd og víðar Una Jónsdóttir skáld og verkakona í Vestmannaeyjum Þorgeir Eiríksson sjómaður í Vestmannaeyjum Ástríður Þorgeirsdóttir húsfreyja í Vestmannaeyjum Stefán Halldórsson sjómaður og vitavörður í Stykkishólmi Elísabet Brynjólfsdóttir húsfreyja í Hafnarnesi, síðast í Reykjavík Halldór Halldórsson útvegsbóndi og skáld í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð Úr frændgarði Páls Halldórssonar Halldór Brynjólfur Stefánsson verslunarmaður í Reykjavík Áfimmtudag minnti SigurlínHermannsdóttir á, að yfirvöld hvetja almenning til að nota rakningarappið: Sigfinnur hrósaði happi er hann týndi frúnni á vappi upp rifjaði í skyndi að Ráðhildi fyndi með rakningar frábæru appi. Guðrún Bjarnadóttir svaraði: En Ráðhildur veit, þá uppvakin, að Víðir (en alls ekki makinn) og hans verðir sjá allar ferðir og annan samfund, vel rakinn. Þann hinn sama dag gaf Þórir Jónsson þetta heilræði á leirnum: Töltand’ um landið túrhross sveima, troðfylla víni belgina. Held að sé vísast að vera heima um vitlausramannahelgina. Og Ólafur Stefánsson skrifaði „in memoriam“ með þessari at- hugasemd: „Ég hef heyrt að það eigi að endurreisa Leirinn eins og fallinn drykkjumann núna í haust. Þá verða notuð nýjustu tæknibrögð og vísindi, en vonandi ekki haft gal- opið af götunni“: Þótt leirinn sé líkast til búinn laminn sundur og snúinn, þá er saga hans til svona hérumbil og víðfrægur vísnagrúinn. Síðan reikaði hugur Ólafs til „stóru helgarinnar“: Langt inn með Lambahlíðum var legið um þriðju eykt. Þá var í súldinni sungið svolgrað, öskrað og reykt. Og Sigmundur Benediktsson sagði: „Heil öll í aðdraganda versl- unarmannahelgar!“ Hlý nú dokum inni öll, enginn sleiki veirukinn. Inn í þoku fjötrast fjöll falinn reikar himinninn. Helgi R. Einarsson kíkti í Vísna- hornið og þessi varð til: Frá Pétri verpist vísnaflóð, í Vísnahornið setur það. Ekkert mál að yrkja ljóð, ef þú kannt og getur það. Séra Ögmundur Sigurðsson orti: Það er nú það, sem að mér er, ég óspart skilding farga, en herrann vissi hentast mér að hafa þá ekki of marga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rakningarapp og endurreisn Leirsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.