Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 27
í Meistaradeildinni á næstu leik-
tíð. Roma, AC Milan og Napoli
komu þar á eftir og leika í Evr-
ópudeildinni næsta vetur.
Eftirminnilegt ár Andra
Tveir Íslendingar spila í ítölsku
A-deildinni. Andri Fannar Bald-
ursson átti eftirminnilegt tímabil
með Bologna, sem hafnaði í 12.
sæti. Andri kom til félagsins frá
Breiðabliki fyrir tveimur árum en
lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í
febrúar. Alls kom hann inn á í
deildinni sjö sinnum og er í við-
ræðum við félagið um nýjan fimm
ára samning.
Verr gekk hjá landsliðsmann-
inum Birki Bjarnasyni og félögum
í Brescia sem féllu úr deildinni,
enduðu í 19. sæti, 14 stigum frá
því að bjarga sér. Birkir kom ekk-
ert við sögu í síðustu þremur
leikjum liðsins en hann spilaði alls
13 leiki fyrir liðið eftir að hafa
gengið til liðs við Brescia í janúar.
Ásamt Brescia féllu Lecce og
SPAL.
Ciro Immobile, framherji La-
zio, varð markakóngur deild-
arinnar og fékk evrópska gullskó-
inn í þokkabót. Hann skoraði 36
deildarmörk og var fimm á undan
Cristiano Ronaldo hjá Juventus.
Gullskór Evrópu er veittur
þeim leikmanni sem skorar flest
mörk í allri álfunni en þar hafa
mörk mismunandi vægi eftir því
hvar deildirnar sitja á styrk-
leikalista UEFA. Immobile end-
aði tveimur mörkum fyrir ofan
Robert Lewandowski sem skoraði
34 mörk í þýsku deildinni fyrir
Bayern München en Ronaldo var
þriðji.
Þetta er í fyrsta sinn síðan
2007, þegar Francesco Totti hjá
Roma var markahæstur, að hand-
hafi gullskósins er ekki leikmaður
í efstu deild á Spáni. Lionel Messi
hjá Barcelona hafði unnið verð-
launin undanfarin þrjú ár.
AFP
Lukkulegir Gianluigi Buffon og Ronaldo bættu við verðlaunum í safnið.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020
NBA-deildin
Brooklyn – Orlando...........................118:128
Portland – Memphis......................... 140:135
Washington – Phoenix ..................... 112:125
Milwaukee – Boston ......................... 119:112
San Antonio – Sacramento ...............129:120
Dallas – Houston ...............................149:153
Denver – Miami ................................ 105:125
Oklahoma – Utah................................ 110:94
LA Clippers – New Orleans ............ 126:103
Indiana – Philadelphia ..................... 127:121
Toronto – LA Lakers ......................... 107:92
Brooklyn – Washington ................... 118:110
Boston – Portland............................. 128:124
Memphis – San Antonio................... 106:108
Orlando – Sacramento ..................... 132:116
Houston – Milwaukee ...................... 120:116
Phoenix – Dallas ............................... 117:115
Ítalía
Brescia – Sampdoria ............................... 1:1
Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Sampdoria.
Bologna – Tórínó ..................................... 1:1
Andri Fannar Baldursson kom inn á hjá
Bologna á 72. mínútu.
Staðan:
Juventus 38 26 5 7 76:43 83
Inter Mílanó 38 24 10 4 81:36 82
Atalanta 38 23 9 6 98:48 78
Lazio 38 24 6 8 79:42 78
Roma 38 21 7 10 77:51 70
AC Milan 38 19 9 10 63:46 66
Napoli 38 18 8 12 61:50 62
Sassuolo 38 14 9 15 69:63 51
Fiorentina 38 12 13 13 51:48 49
Parma 38 14 7 17 56:57 49
Hellas Verona 38 12 13 13 47:51 49
Bologna 38 12 11 15 52:65 47
Cagliari 38 11 12 15 52:56 45
Udinese 38 12 9 17 37:51 45
Sampdoria 38 12 6 20 48:65 42
Torino 38 11 7 20 46:68 40
Genoa 38 10 9 19 47:73 39
Lecce 38 9 8 21 52:85 35
Brescia 38 6 7 25 35:79 25
SPAL 38 5 5 28 27:77 20
Frakkland
Guingamp – Lyon .................................... 0:1
Deildarbikarinn, undanúrslit:
Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn á hjá
Lyon á 70. mínútu.
Katar
Al Rayyan – Al-Arabi .............................. 0:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Hvíta-Rússland
Zhodino – BATE Borisov........................ 3:2
Willum Þór Willumsson lék ekki með
BATE vegna meiðsla.
Bandaríkin
New York City – Portland Timbers...... 1:3
Guðmundur Þórarinsson var á vara-
mannabekk New York.
ENGLAND
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Verðmætasti knattspyrnuleikur ársins á Eng-
landi verður spilaður á Wembley-leikvanginum í
London klukkan 18:45 í kvöld er Lundúnaliðin
Brentford og Fulham leiða saman hesta sína í úr-
slitaleik í umspili B-deildarinnar. Verðlaunin fyrir
sigurliðið er lykill að draumalandinu, ensku úr-
valsdeildinni. Er úrslitaleikur umspilsins oft kall-
aður verðmætasti staki knattspyrnuleikur í heimi.
Sjónvarpstekjurnar í ensku úrvalsdeildinni eru
gríðarlegar bornar saman við B-deildina. Fari
Brentford upp fær félagið strax um 160 milljónir
punda. Takist liðinu að halda sér í deildinni í
meira en eitt tímabil verða þær 265 milljónir
punda. Fulham fær um 135 milljónir punda fari
liðið upp, en félagið fékk yfir 100 milljónir punda
frá deildinni er það féll á síðasta tímabili. Væru
slíkar tekjur venjulega afar mikilvægar fyrir félög
sem hafa leikið í ensku B-deildinni og aldrei eins
mikilvægar og nú vegna áhrifa kórónuveirunnar á
fjárhag knattspyrnufélaga á Englandi.
Liðin áttu bæði möguleika á að tryggja sér ann-
að sæti í lokaumferðinni en Brentford tapaði
óvænt fyrir Barnsley, 1:2, á meðan Fulham gerði
jafntefli við Wigan, 1:1. West Bromwich Albion
dugði því 2:2-jafntefli við QPR til að tryggja sér
annað sæti og farseðilinn upp í úrvalsdeildina með
Leeds sem vann að lokum öruggan sigur í deild-
inni. Brentford og Fulham fóru því í umspilið þar
sem Brentford sló Swansea úr leik í undan-
úrslitum og Fulham hafði betur gegn Cardiff.
Saga félaganna í efstu deild er ólík. Brentford
lék síðast í efstu deild árið 1947 og hefur aðeins
verið á meðal þeirra bestu í samanlagt fimm tíma-
bil. Hefur Brentford verið í B-deildinni frá árinu
2014 en aðeins er rúmur áratugur síðan félagið
var í D-deildinni. Hefur liðið leikið á Griffin Park
frá árinu 1904, en liðið flytur á hinn glænýja
Brentford Community-völl á næstu leiktíð.
Fulham lék í efstu deild frá 2001 til 2014 og svo
aftur tímabilið 2018/19. Hefur liðið alls leikið í
efstu deild í 26 tímabil en aldrei orðið enskur
meistari. Fulham fór hins vegar alla leið í úrslit
Evrópudeildarinnar árið 2010 og vann lið eins og
Juventus á leiðinni, en tapaði að lokum fyrir Atlé-
tico Madrid.
Sagan er ekki með Brentford því félagið hefur
átta sinnum leikið til úrslita í umspili í ensku neðri
deildunum og aldrei haft betur, sem er met.
Stuðningsmenn geta hins vegar huggað sig við
það að Brentford hefur haft yfirhöndina í
innbyrðisviðureignum gegn Fulham síðustu ár. Í
síðustu tíu deildarleikjum liðanna hefur Brentford
unnið sex sinnum, þrisvar hafa þau gert jafntefli
og aðeins einu sinni hefur Fulham fagnað sigri.
Íslendingatengsl báðum megin
Hermann Hreiðarsson lék með Brentford tíma-
bilið 1998/99 í D-deildinni. Hermann skoraði sex
deildarmörk á tímabilinu og hjálpaði Brentford
upp um deild. Hann var svo keyptur til Wimble-
don í kjölfarið á 2,5 milljónir punda, sem var met
hjá Brentford allt til ársins 2014.
Ívar Ingimarsson lék með liðinu frá 1999 til
2002, alls þrjú tímabil. Lék hann 129 leiki með lið-
inu í öllum keppnum og skoraði tíu mörk. Var
hann afar vinsæll hjá félaginu og var m.a. gefið út
lag um hetjudáðir Ívars hjá félaginu. Síðari tvö
tímabilin varði Ólafur Gottskálksson mark Brent-
ford og lék 73 deildarleiki með liðinu. Ekki var
gefið út lag um Ólaf þrátt fyrir fína spilamennsku.
Miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason lék með
Brentford frá 2005 til 2007 og skoraði eitt mark í
sextán deildarleikjum. Hann kom til Brentford
frá Arsenal. Varnarmaðurinn Gunnar Einarsson
lék svo tvo leiki með Brentford árið 2000 í C-
deildinni.
Hinn 19 ára gamli Patrik Sigurður Gunnarsson
er sem stendur leikmaður Brentford en hefur
leikið með varaliðinu. Hann á kortér að baki í B-
deildinni eftir að hann kom inn á sem varamaður á
síðustu leiktíð vegna meiðsla tveggja markvarða.
Þá var Kolbeinn Birgir Finnsson á mála hjá
Brentford en lék aldrei með aðalliðinu.
Framherjinn Heiðar Helguson lék með Fulham
frá 2005 til 2007, tvö tímabil í ensku úrvalsdeild-
inni. Skoraði hann ellefu mörk í 57 leikjum í deild-
inni. Þá lék Eiður Smári Guðjohnsen tíu deild-
arleiki með Fulham árið 2011 á lánssamningi frá
Stoke. Jón Dagur Þorsteinsson var á mála hjá
Fulham frá 2018 til 2019 en lék aldrei með aðallið-
inu, þrátt fyrir fína takta með varaliðinu. Ragnar
Sigurðsson lék hins vegar 17 leiki með liðinu tíma-
bilið 2016/17, en hann heillaði forráðamenn félags-
ins með magnaðri frammistöðu á EM í Frakk-
landi sumarið 2016.
Verðmætasti leikur heims
Lundúnaliðin Brentford og Fulham bítast um sæti í ensku úrvalsdeildinni
Ljósmynd/Brentford FC
Mikilvægur Leikur Fulham og Brentford á Wembley í London í kvöld er afar mikilvægur.
Úrvalsdeilarlið Njarðvíkur hefur
samið við norska leikmanninn Jo-
hannes Dolmen um að leika með lið-
inu í körfuknattleiknum. Hann lék
með Barry í bandaríska há-
skólaboltanum og var þar samherji
Elvars Más Friðrikssonar um tíma.
Á síðasta tímabili sínu í NCAA
skoraði Dolven 9 stig að meðaltali
og tók að jafnaði 7 fráköst.
Dolmen verður ef fram heldur
sem horfir fyrsti norski leikmað-
urinn í efstu deildinni á Íslandi frá
því erlendir leikmenn voru leyfðir
árið 1989. sport@mbl.is
Nýtt þjóðerni
bætist á listann
Morgunblaðið/Hari
Þjálfarinn Einar Árni Jóhannsson
er við stjórnvölinn í Njarðvík.
Ármenningurinn Ásdís Hjálms-
dóttir Annerud hafnaði í þriðja sæti
á frjálsíþróttamóti í Finnlandi um
helgina, Kuortane Games.
Ásdís kastaði spjóti lengst 58,68
metra í þremur köstum en hún hef-
ur verið að kasta yfir 60 metra
undanfarið í sumar. Nikola
Ogrodnikova frá Tékklandi varð í
öðru sæti, kastaði 60,61 metra, og
Lina Muze frá Lettlandi í fyrsta
sæti, kastaði 62,75 metra.
Lengsta kast Ásdísar í sumar
kom í Svíþjóð í júní þar sem hún
kastaði 62,66 metra.
Ásdís þriðja í
Finnlandi
Skapti Hallgrímsson
Finnland Ásdís hefur verið stöðug í
mótum sumarsins sem af er.
Sigursælasta liðið í sögu ensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu, Ars-
enal, sigraði í keppninni í fjórtánda
skipti á laugardag. Arsenal lagði
annað Lundúnalið, Chelsea, að velli,
2:1, í úrslitaleik á tómum Wembley-
leikvanginum. Þessi lið mættust
einnig í úrslitum árið 2017 og þá
vann Arsenal einnig 2:1.
Fyrir utan þá gleði sem felst í því
að vinna keppnina hefur sigurinn
meira vægi en vanalega því sigur í
keppninni var síðasti möguleiki Ars-
enal til að tryggja sér keppnisrétt í
Evrópukeppni á næsta tímabili. Ars-
enal fær fyrir vikið sæti í Evr-
ópudeildinni.
Christian Pulisic kom Chelsea yfir
en Pierre-Emerick Aubameyang
svaraði tvívegis fyrir Arsenal.
AFP
Áfangi Aubameyang og stjórinn
Mikel Arteta með bikarinn.
Enn einn
bikarsigur
Arsenal