Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 29

Morgunblaðið - 04.08.2020, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. ÁGÚST 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Sýnd með íslensku tali HEIMSFRUMSÝNING! Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki. Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is „Við erum komin svo langt með þetta að við ætlum að halda frumsýninguna en það verða mjög fáir miðar í boði, fólk verður hvatt til þess að koma með grímur og fara beint til sætis. Tveggja metra reglan verður að sjálf- sögðu í fullu gildi,“ segir Sveinn Dúa Hjörleifsson tenórsöngvari sem frumsýnir í Tjarnarbíói á miðviku- dag, 5. ágúst, sýninguna Die Schöne Müllerin - Not a word about my sad face, en þar verður flutt Malara- stúlkan fagra (Die schöne Müllerin) eftir Franz Schubert við ljóð Wilhelm Müller, í drag-útgáfu. Píanisti er Tómas Guðni Eggertsson, performer Kristrún Hrafnsdóttir, myndbands- verk eftir Önnu Fríðu Jónsdóttur og leikstjórn í höndum Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Sveinn Dúa syngur ljóðaflokkinn á þýsku en hann bendir á að í sýning- unni verði íslenskum texta varpað aftast á sviðinu. „Það er heilmikil famvinda í þessum 20 ljóðum sem innihalda fullt af erindum þannig að það er mikilvægt að allir geti fylgst vel með.“ Hann er hún Sveinn Dúa, sem býr í Þýskalandi þar sem hann starfar sem óperu- söngvari, leggur áherslu á að ljóða- flokkurinn verði fluttur í heild sinni. „Við erum að vinna með ljóðaformið og skellum því saman við poppmenn- inguna sem er fólgin í draginu. Á síð- ustu árum hefur drag orðið sífellt stærri hluti af meginstraumi menn- ingarinnar og tilheyrir því ekki leng- ur alfarið jaðrinum og þess vegna nálgumst við þetta með því að brjóta aðeins upp tónleikaform óperusöng- listarinnar eins og fólk þekkir það alla jafna. Við byrjum með hefðbundnum hætti en eftir því sem á líður fer mal- aradrengurinn að uppgötva sjálfan sig og í okkar meðförum er þetta saga um það að koma út úr skápnum. Þannig að malaradrengurinn er að uppgötva hana innan með sér.“ Sveinn Dúa segir að það blasi við þegar ljóðaflokkurinn er lesinn að malaradrengnum líki ekki vel við sjálfan sig. „Hann elskar ekki sjálfan sig og þar af leiðandi er ekkert skrýt- ið að malarastúlkan skuli ekki elska hann. Þess vegna völdum við að vinna með það að læra að elska sjálfan sig og flytjum það inn í sýninguna. Með sama hætti flytjum við náttúruna og öll þau hugtök sem eru til staðar í ljóðaflokknum inn í sjálfið, inn í manneskjuna, inn í drenginn. Píanist- inn og flettarinn eru þarna til staðar fyrir hann og hvetja hann áfram í þessu ferðalagi sjálfsuppgötvunar og sjálfsskilnings. Fyrst lætur hann sig hafa þetta vegna þess að hann er að vinna vinnuna sína en eftir því sem á líður skilst honum betur að hann er hún. Og endar svo sem fullskapaða dragdrottningin Herðubreið,“ segir Sveinn. Aðspurður um hvað hafi leitt hann að þessum ljóðaflokki og þessari nálgun segist Sveinn Dúa vera búinn að syngja þetta margoft úti í Þýska- landi. „Ég hef hins vegar aldrei sung- ið ljóðaflokkinn í heild hérna heima, þótt ég hafi sungið margt úr honum, en ég er búinn að ganga með þessa nálgun í maganum í mörg ár. Ég bar þetta undir Grétu Kristínu og í fram- haldinu tók Tjarnarbíó okkur inn á sitt leikár og Hinsegin dagar inn í sína dagskrá, þó svo þeir séu því mið- ur orðnir smáir í sniðum í ljósi ástandsins. En við höldum þó okkar striki. Hvað varðar þetta konsept sem slíkt þá er ég búinn að vinna heil- mikið með það og þegar maður fer að skoða þýska textann er þetta mjög rökrétt nálgun. Þetta passar allt sam- an sem er mjög skemmtilegt. Í raun- inni er allt sem er ytra í kringum okk- ur, líka innra með okkur, en núna er ég kannski orðinn aðeins of heim- spekilegur en það er nú samt þann- ig.“ Á enn erindi Tónlist Schuberts og ljóð Wilhelm Müllers eru komin til ára sinna en Sveinn Dúa segir að verkið eigi ekki síður brýnt erindi til fólks í samtím- anum. „Manneskjan var ekkert öðru- vísi fyrir 200 árum en hún er í dag. Textinn er gullfallegur og tónlistin auðvitað líka og mannskepnan verður ástfangin í dag sem þá. Þarna erum við bara að fara ákveðna leið að því að opna þetta fallega listaverk fyrir fleirum, vegna þess að ég held að það tengi fleiri við þessa sýningu en ef ég væri bara að syngja þetta uppi á sviði sem er frábært líka, ég hef gert það mjög oft og á örugglega eftir að gera það aftur. Þetta er ákveðin leið að því að opna formið, útvíkka það frá því að fara á þessu hefðbundu ljóðatónleika, og það er eitthvað sem brennur á mér og mig hefur lengi langað til þess að láta verða af. Við eigum svo eftir að sýna þetta talsvert utan landstein- anna, það eru auðvitað ekki komnar neinar dagsetningar vegna ástands- ins en við erum ekkert að láta hugfall- ast.“ Ljósmynd/Andrés Schlanbusch Herðubreið Sveinn Dúa segir dragdrottninguna Herðubreið sprottna úr sjálfsuppgötvun malaradrengsins. „Með sama hætti flytjum við náttúruna og öll þau hugtök sem eru til staðar í ljóðaflokknum inn í sjálfið,“ bætir hann við. Malaradrengur og dragdrottning  Tenórinn Sveinn Dúa Hjörleifsson hefur lengi gengið með í maganum sérstaka nálgun á malara- dreng Schuberts sem hann frumsýnir í Tjarnarbíói annað kvöld fyrir takmarkaðan fjölda áhorfenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.