Morgunblaðið - 08.08.2020, Síða 26

Morgunblaðið - 08.08.2020, Síða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Sími 420 6070 • eignasala@eignasala.is Fjöldi eigna á Suðurnesjum á söluskrá Sjónvarpið sýnir nú þáttaröðina Svona fólk eftir HrafnhildiGunnarsdóttur, um baráttusögu samkynhneigðra hér álandi. Það er erfitt fyrir ungt fólk að skilja viðtekna for-dóma samfélagsins eins og þeir birtust í tungumálinu fyrir nokkrum áratugum. Hikstalaust var talað um kynvillinga en orðin hommi og lesbía þóttu „með öllu ótæk, þar eð þau hefðu á sér niðr- andi blæ“ svo vitnað sé í frásögn Helga Hálfdanar- sonar hér í blaðinu árið 1983 af tilraun orðanefndar Kennaraháskólans til að fá fólk til að nota orðin kyn- hvarfi og hómi og lespa sem áttu að vera íslensku- legri en hommi og lesbía og ekki bera með sér for- dómasögu þeirra orða. Eins og fram kom í greinum Böðvars Björns- sonar hér í blaðinu í maí 1985, „Sögu orðanna“ og „Kynhvarfi kveðinn niður: Málrósir vinsamlega af- þakkaðar“, var þessi orða- notkun tilefni átaka sem birtust skýrt þegar út- varpsstjóri gekk svo langt að banna Samtökunum 78 að auglýsa fundi fyrir homma og lesbíur með þeim orðum. Þrátt fyrir meinta gildishlaðna merk- ingu þeirra orða var það hluti af baráttu samtakanna fyrir hugar- farsbreytingu að kalla hlutina sínum réttu nöfnum. Málið fór svo langt að gengið var fyrir forsætisráðherra, forseta Íslands og for- seta alþingis! „Baráttan um orðin“ getur tekið á sig ýmsar myndir. Þóra Björk Hjartardóttir skrifaði í Íslenskt mál og almenna málfræði (2004) og nefndi þann þátt í baráttunni að breyta hugarfarinu að baki. Hlið- armerking orðanna væri ekki fólgin í þeim sjálfum heldur í hug- myndum okkar. Þannig stoðar lítt að hætta að tala um fávita ef af- staðan til þroskahamlaðra breytist ekki neitt. Þóra rekur einnig að í fyrstu útgáfu Vefarans mikla frá Kasmír (1927) hafi Halldór Kiljan Laxness notað hið umdeilda orð: „Bambara Salvatore [„vís- indamaður og verslunareigandi“] hafði dvalið í Róm meðal preláta, […] í Berlín meðal kynhverfínga, í New York meðal auðmærínga“ (262). Í síðari útgáfum Vefarans breytti Halldór þessu (eins og mörgu öðru sem átti hlut í harkalegum viðbrögðum við frumútgáf- unni) og sagði þá Signor Bambara Salvatore hafa dvalið meðal „kyn- villínga“. Í greinum sínum hafnaði Böðvar orðinu kynhvarfur (sem orða- nefndin hugsaði sem andheiti við kynvís) og benti á að grunnhugs- unin að baki væri sama villukenningin og í orðinu kynvilla; þ. e. að í kynhverfu væri snúið við því rétta og kynvísa. Þarna er því við sama draug að etja og þegar talað er um að fólk sé litað – og þar með gengið út frá að sá húðlitur sem vísað er til sé afbrigði frá hinu venjulega og ólitaða. Við erum alltaf að glíma við hugmyndadraug- inn með skilgreiningarvaldið á því hvað sé viðtekið og þar með „eðli- legt“. Stundum gengur okkur mannfólkinu erfiðlega að höndla þá hugsun að fjölbreytileikinn sé eðlilegur. Það afskræmir fjölbreyttan veruleikann að nota tungumálið til að skilgreina sinn litla speglasal sem hinn eina rétta og eðlilega. „Hvað veldur gagnkynhneigð?“ Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is LitagleðiFjölbreytt mannlíf á Péturstorginu í Róm. Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Það hefur lengi legið það orð á að eitt af ein-kennum íslenzks samfélags hafi verið og sésundurlyndi. Það er of mikið til í því. Þegarvart verður sundurlyndis í fámennum byggðum á landinu sést vel hve miklum skaða það veldur. Við sjáum það ekki jafn vel þegar það snert- ir samfélag okkar í heild en skaðinn er ekki minni. Kannski er sundurlyndi einkenni fámennra sam- félaga yfirleitt og hefur eitthvað með eðli mannfólks- ins að gera. Það er hins vegar alvarlegt umhugsunarefni á þeim erfiðu tímum, sem við upplifum nú og ganga má út frá sem vísu að fylgi okkur með einhverjum hætti á næstu árum og jafnvel lengur, hvort á sama tíma sé ekki ástæða til að takast á við þau sundr- ungarmál, sem við sjálf getum ráðið við. Ef okkur tækist að leysa þau eða einhver þeirra mundi það auðvelda okkur að fást við hin vandamálin, sem við höfum sjálf enga stjórn á, þ.e. veiruna illskeyttu og efnahagslegar afleiðingar hennar. Hver eru þessi mál? Við sem samfélag höfum rætt meðferð sameig- inlegra auðlinda í þrjá áratugi án þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Þó hefur okkur þokað eitt- hvað áfram. Það er ekki ágrein- ingur um, að tilteknar auðlindir teljast sameign þjóðarinnar og eru það í sumum tilvikum sam- kvæmt lögum, sem sett hafa verið á Alþingi. Það á við um fiskimiðin innan 200 mílna efnahags- lögsögu okkar. Það á við um auðlindir í jarðhita og það á við um orku fallvatnanna. Það á líka við um náttúru Íslands, hvort sem er á miðhálendinu, Horn- ströndum eða öðrum sambærilegum svæðum og er gefið heitið umhverfisgæði í áliti auðlindanefndar dr. Jóhannesar Nordals frá síðustu aldamótum. Það á líka við um auðlindir á eða undir hafsbotni og það á reyndar líka við um rafsegulbylgjur til fjarskipta. Það er tæpast hægt að tala um ágreining um gjaldtöku vegna nýtingar á auðlindum í sameign þjóðarinnar. Slík gjaldtaka var m.a. samþykkt á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í byrjun nýrrar aldar sem þáttur í meginstefnu flokksins. Hins vegar er enn ágreiningur um, hvernig standa eigi að þeirri gjaldtöku og nánast ekki hægt að tala um að hún hafi verið tekin upp í tengslum við aðrar auðlindir, sem teljast til sameignar þjóðarinnar. En þar sem samkomulag hefur náðst um sameign þjóðarinnar á tilteknum auðlindum og að taka beri gjald vegna nýtingar þeirra er tímabært að ljúka þeirri sáttargerð með því að ná fram sameiginlegri niðurstöðu um hvernig að því verki skuli staðið. Það mundi draga úr margvíslegri óánægju, sem til hefur orðið vegna þess að því verki hefur ekki verið að fullu lokið. Enn er til staðar ágreiningur um afstöðuna til Evrópusambandsins. Þó verður að telja ljóst að meirihluti þjóðarinnar er mótfallinn aðild og ým- islegt bendir til að þeir flokkar, sem barizt hafa fyr- ir aðild, sem eru aðallega Samfylkingin og Viðreisn, hafi áttað sig á það er ekki vænlegur kostur fyrir þá að setja aðildarmálin á oddinn í þingkosningum að ári. Þó ekki væri nema vegna þess, að innan ESB er mjög sýnilegur ágreiningur um hvert skuli stefna. Meðal elztu kynslóða núlifandi Íslendinga er djúp- stæð óánægja sem snýr að þeim reglum, sem settar hafa verið um skerðingar á greiðslum almannatrygg- inga til þeirra, hafi þeir aðrar tekjur. Þessi óánægja er orðin svo mikil að verði engar breytingar gerðar á þeim reglum á Alþingi fyrir lok þessa árs með gildistöku frá og með næstu áramótum er líklegra en hitt að það hafi veruleg áhrif á það hvernig hin aldna sveit ver atkvæði sínu í þingkosningum á næsta ári. Það mátti finna magnaða óánægju vegna þessara mála á aðalfundi Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni fyrir nokkru, þar sem mæting var svo mik- il að Súlnasalur Hótel Sögu var troðfullur. Og loks má nefna, að eitt af því, sem veldur sundurlyndi í okkar fámenna samfélagi er misskipting. Þá er ekki átt við að dugnaðarfólk nái fram, hvort sem er í atvinnulífi eða á öðrum sviðum og njóti þess árangurs í kjörum. Heldur hitt að misskipting verði til af manna völd- um, ef svo má segja, þ.e. með ákvörðunum og laga- setningum, sem umbuna sumum umfram aðra. Á síðustu áratugum hefur þess gætt meira en áð- ur, að þeir sem eru í aðstöðu til, hvort sem er á Al- þingi eða í stjórnkerfinu að öðru leyti, nýti sér þá aðstöðu sjálfum sér í hag. Til þess að draga úr þeirri óánægju, sem til staðar er í samfélaginu vegna þeirra mála, sem hér hafa verið nefnd þarf að takast á við þau og reyna að leiða þau til lykta með sáttargerð, sem allir geti við unað. Að til verði eins konar nýr samfélagssáttmáli. Fram undan eru erfið ár og þau verða ekki sízt erfið fyrir yngri kynslóðir Íslendinga. Þær kynslóðir geta með réttu gert kröfu til þess að eldri kynslóðir skilji ekki eftir sig óleyst vandamál af þessu tagi heldur geri átak í því að leiða þessi ágreiningsmál til lykta og farsællar niðurstöðu fyrir land og þjóð. Við viljum að hér verði til sanngjarnt samfélag og að fólki líði vel að búa hér en ekki samfélag, þar sem allt logar í illdeilum. Og hver er kjarni þess að svo megi verða? Því má lýsa með orðum, sem þáverandi forsætis- ráðherra og nú ritstjóri þessa blaðs, Davíð Oddsson, lét falla í samtali við RÚV hinn 7. ágúst 1999: „Íslenzka þjóðríkið er þannig vaxið að það er ekki hollt fyrir það að vera í höndunum á mjög fáum aðilum.“ Sundurlyndi skaðar lítið samfélag Krafan sem yngri kynslóðir geta gert til hinna eldri. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Eitt af því, sem menn læra ígrúski um söguna, er, að fleiri hliðar eru á henni en okkur voru kenndar í skólum. Enginn sagði okk- ur til dæmis frá því, að í lok seinna stríðs voru á milli tíu og fjórtán milljónir manna af þýskum ættum reknar til Þýskalands frá heimkynn- um sínum í Austur-Prússlandi, Pól- landi og Tékkóslóvakíu, þar sem fólkið hafði búið mann fram af manni. Talið er, að hátt í milljón manns hafi látist í þessum flutn- ingum. Miskunnarleysi þýskra nasista í Mið- og Austur-Evrópu í stríðinu af- sakar ekki miskunnarleysi sigurveg- aranna í seinna stríði gagnvart fólki af þýsku bergi brotnu, að minnsta kosti ekki að dómi þeirra okkar, sem hafna hugmyndinni um samsekt þjóða, en trúa á ábyrgð einstaklinga á eigin gerðum og ekki neina sök þeirra á fæðingarstað sínum. Það var eitt af kyrrlátum afrekum Þjóðverja eftir stríð, að þeir gátu tekið við öllu þessu fólki, án þess að allt færi úr skorðum. Þetta voru mestu fólksflutningar mannkyns- sögunnar. Skýringin á því, hversu ótrúlega vel tókst til, var tvíþætt: Þeir Konrad Adenauer og Ludwig Erhard höfðu komið á atvinnufrelsi í Vestur-Þýskalandi, svo að atvinnu- lífið óx hratt og örugglega og allt þetta aðkomufólk fékk störf. Og í öðru lagi var tiltölulega auðvelt fyrir hina nauðugu innflytjendur að laga sig að aðstæðum, því að þeir deildu tungu og menningu með þeim, sem fyrir voru. Öðrum þræði gátu þeir verið fegnir að lenda ekki undir oki kommúnista. Adenauer var líka kænn stjórn- málamaður. Þótt hann væri viss um, að Þjóðverjar myndu aldrei end- urheimta þau svæði, sem af þeim höfðu verið tekin, datt honum ekki í hug að segja það opinberlega. Hann leysti brýnan vanda fljótt og vel, en leyfði tímanum og þögninni að græða sár sögunnar. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Hin hliðin á sigrinum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.