Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 42
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónatal, fyrsta alhliða upplýsinga-
veita tónlistariðnaðarins á Íslandi,
verður aðgengileg á slóðinni tona-
tal.is frá og með 11. ágúst og er
markmiðið með henni að auka
þekkingu tónlistarfólks, sem og
annara sem starfa við tónlist, á
stuðningsumhverfi sínu og tækifær-
um. Tónatal er samvinnuverkefni
Útflutningsskrifstofa íslenskrar
tónlistar, ÚTÓN, Tónlistar-
borgarinnar Reykjavíkur, STEFs
(Sambands tónskálda og eigenda
flutningsréttar), SFH (Sambands
flytjenda og hljómplötuframleið-
enda) og Íslandsstofu.
Jákvætt og uppbyggjandi
Sigtryggur Baldursson, fram-
kvæmdastjóri ÚTÓN, segir að
þrátt fyrir kófið hafi verið mikið að
gera hjá útflutningsskrifstofunni.
„Við ákváðum að gera eitthvað já-
kvætt og uppbyggjandi í þessu kófi
öllu og fórum í ákveðna vinnu sem
var búin að vera í deiglunni hjá
okkur, að taka saman fullt af gagn-
legum upplýsingum fyrir tónlista-
rfólk og gera þær aðgengilegar,“
segir hann um Tónatal.
Sigtryggur er beðinn að nefna
dæmi um hvaða upplýsingar megi
þar finna. „Þetta er allt frá grunn-
atriðum eins og hvernig ber að skrá
tónlistina sína til að geta fengið
borgað almennilega fyrir útvarps-
spilun eða hvaða spilun sem er á
tónlist – þetta er spurning um að
skrá rétt hjá STEFi sem heldur ut-
an um höfundarréttinn og SFH
sem heldur utan um flytjendarétt-
inn – yfir í hvernig er hægt að
markaðssetja músíkina sína á net-
inu. Hvernig á að bera sig að til að
koma þessu inn á streymisveitur,
hvernig er best að gera samninga
við útgefendur, þetta eru alls konar
hlutir. Við fórum í smávinnu við að
kanna grasrótina hérna heima til að
sjá hvað fólk vildi vita. Við gerðum
könnun á því hvaða upplýsingum
ungt tónlistarfólk hefði áhuga á og
svo byrjuðum við að vinna í því.
Sex stutt vídeó eru áberandi á
þessari síðu þar sem GDRN og
Logi Pedro eru að tala saman um
„basic“ hluti. Síðan er farið dýpra í
þetta, bæði með hlaðvörpum þar
sem við fengum ungt tónlistarfólk
til að tala við reynslubolta í
ákveðnum efnum og stuttum
fræðslumyndböndum. Þetta er mik-
ið til byggt á myndböndum og hlað-
vörpum en það er líka fullt af öðr-
um upplýsingum þarna inni,
skilgreiningaupplýsinum um hugtök
í tónlistargeiranum til dæmis,
innanlands sem utan. Þetta verður
strax aðeins flóknara hugtaka-
mynstur þegar komið er út fyrir
landsteinana. Þetta er einfaldara
og minna mengi hérna og umboðs-
menn á Íslandi sjá iðulega um að
bóka tónleika fyrir listafólk en
bókunarskrifstofur sjá yfirleitt um
það erlendis,“ segir Sigtryggur.
Hvað er tónlistarbransinn?
– Þetta er öllu flóknari heimur
erlendis fyrir ungt og óreynt fólk?
„Já og margir sögðu bara ,,hvað
í fokkinu er tónlistarbransinn?“,“
svarar Sigtryggur kíminn og bend-
ir á hlaðvarpið Bransakjaftæði þar
sem leitast verður við að svara
ýmsum spurningum hvað við-
kemur tónlistarbransanum.
Sigtryggur segir hugmyndina að
baki Tónatali þá að reyna að gera
þetta fræðsluefni aðgengilegt.
„GDRN hringdi í mig í febrúar og
sagðist vita af ungu fólki sem væri
að skrifa undir alls konar pappíra
sem það vissi í raun ekki hvað
þýddu. Einhver fyrirtæki bjóðast
til að dreifa tónlistinni þinni fyrir
þig í útlöndum og koma henni á
spilunarlista og guð má vita hvað
ef þú borgar þeim hundrað þúsund
kall o.s.frv. og fullt af fólki er að
stökkva á alls konar svona díla
sem það veit ekkert hvað ganga út
á,“ segir hann.
Sigtryggur segir þó líka margar
jákvæðar hliðar á tónlistarbrans-
anum í dag miðað við þann sem
var hér áður fyrr, fyrir tíma nets-
ins. „Eiginlega öll dreifing og
kynning á tónlist er komin á netið
og ef þú horfir á það þannig er að
mörgu leyti einfaldara að gera út
tónlistarverkefni frá stað eins og
Íslandi en það var fyrir tuttugu
árum.“
Veita ráðgjöf
– Hefur mikill tími farið í að
svara símtölum um þessi mál hjá
ykkur í ÚTÓN?
„Nei, ég myndi ekki segja það.
Það fer svolítill tími hjá okkur í
ráðgjöf, hreinlega. Fólk bókar við-
töl, kemur til okkar og segist vera
að fara að gefa út fyrstu plötuna
sína og spyr hvað það eigi að gera.
Þá tökum við strategískt spjall.
Ekki klára plötuna og setja hana
inn á streymisveitu án þess að spá
í hvernig þú ætlar að búa til um-
fjöllun um hana á samfélags-
miðlum o.s.frv. Þetta eru
grundvallarhugmyndir í almanna-
tengslum,“ svarar Sigtryggur.
„Svo eru líka dýpri pælingar eins
og þær að þú átt aldrei að skrifa
undir útgáfusamning án þess að
renna yfir hann með lögfræðingi,“
bætir hann við.
– Jákvæða hliðin á þessu leið-
indaástandi núna, kófinu, þar sem
lítið er um tónleikahald, er að nú
er hægt að sökkva sér í þessi mál
og kynna sér hlutina almennilega?
„Það er hægt að setjast niður og
ná sér í alls konar uppbyggilega
fræðslu. Fólk getur lesið sér til
um alls konar gagnlega hluti sem
nýtist því örugglega mjög vel í ná-
inni framtíð, sérstaklega þetta
stafræna umhverfi sem við erum
stödd í núna. Fyrir margt
tónlistarfólk er það algjör frum-
skógur en alls ekki órjúfanlegur.“
Hljóðið ekki gott
– Hvernig er hljóðið í þeim tón-
listarmönnum sem þú hefur hitt að
undanförnu, er það ekki dálítið
þungt?
„Jú, jú, það er ekki gott,“ svarar
Sigtryggur og bendir á skýrslu
sem nýverið kom út og fjallar um
ástandið í tónlistarbransanum hér
á landi. Í henni kemur m.a. fram
að tekjumöguleikar þeirra sem
hafa atvinnu af því að sinna lifandi
tónlistarflutningi þurrkuðust út á
einni nóttu í marsmánuði vegna
kófsins og að fjöldi listamanna
starfar við blandaða vinnu, er að
hluta launþegar og að hluta verk-
takar í fjölda verkefna innan þess
sem hefur verið kallað hark-
hagkerfið. Í því eru listamenn að
vinna að mörgum ólíkum verk-
efnum hverju sinni með það að
markmiði að ná fram viðunandi
heildartekjum. Innan hark-
hagkerfisins koma til fleiri þættir
sem valda því að stærstur hluti
tónlistarmanna hefur enn ekki
fengið úrlausn sinna mála hjá
Vinnumálastofnun, þrátt fyrir að
vera í fullu starfi í sínu fagi og ríf-
lega það á ársgrundvelli, eins og
segir í umfjöllun Morgunblaðsins
um skýrsluna 13. júlí.
Tónlist við myndefni vaxandi
Sigtryggur segir tónleikahald
aðaltekjulind tónlistarfólks og þá
stærstu hin síðustu ár en tekjur
frá streymisveitum séu hins vegar
farnar að skila meiru en áður og
þá sérstaklega til þeirra sem setja
tónlistina sína sjálfir á veiturnar
en ekki í gegnum einn eða fleiri
milliliði og útgáfufélög. Annar vax-
andi þáttur tekjumódels tónlist-
argeirans síðastliðin fimm ár sé
svo notkun á tónlist við myndefni
á borð við sjónvarpsþætti og kvik-
myndir. Framleiðsla á slíku efni
hafi aukist mjög á þeim tíma. „Og
ekki bara Netflix-seríum heldur
líka alls konar heimildarmyndum
og fleiru,“ bendir Sigtryggur á.
Þar hafi ÚTÓN unnið ákveðna
grunnvinnu og myndað sambönd
við svokallaða „music supervisors“
tónlistarumsjónarmenn sem sé til-
tölulega ný starfsgrein innan tón-
listarbransans. Slíkir umsjónar-
menn sjá um kaup á tónlist við
myndefni og segir Sigtryggur Ú-
TÓN hafa ræktað sambönd sín við
þá, bæði vestan hafs og austan,
allt frá því útflutningsskrifstofan
hóf starfsemi sína árið 2007.
– Ekki má svo gleyma tölvu-
leikjum, tónlistinni sem notuð er í
þeim?
„Já, það er gífurleg uppspretta
fyrir nýja músík núna,“ svarar
Sigtryggur og að tónlist við tölvu-
leiki sé líka hluti af starfi hinna
fyrrnefndu tónlistarumsjónar-
manna. Þeir sjái um að kaupa tón-
list við tölvuleiki.
Sigtryggur segir í deiglunni að
bjóða slíkum kaupmönnum á Ice-
land Airwaves-tónlistarhátíðina í
nóvember. „Henni fylgir ráðstefna
sem er mjög mikilvægt fyrir svona
vinnu, svona tengslamyndun,“ seg-
ir Sigtryggur um hátíðina.
Frumskógur en þó ekki órjúfanlegur
Fyrsta alhliða upplýsingaveita tónlistariðnaðarins á Íslandi, Tónatal, verður aðgengileg 11. ágúst
Fræðsluefni gert aðgengilegt með hlaðvörpum, myndböndum og texta Kafað bæði grunnt og djúpt
Fræðandi Logi Pedro og GDRN í einu af fræðslumyndböndunum sem finna má á tonatal.is frá 11. ágúst.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jákvætt „Við ákváðum að gera eitthvað jákvætt og uppbyggjandi í þessu
kófi öllu,“ segir framkvæmdastjóri ÚTÓN, Sigtryggur Baldursson.
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70
hitataekni.is
Sjálfvirk, raka-og hitastýring, fer sjálfkrafa í gang þegar
ljós eru kveikt eða við hreyfingu í rými.
Klimat K7 er fjölnota vifta, þróuð
og framleidd í Svíþjóð.
– sjö viftur í einni
Ein sú hljóðlátasta á markaðinum (17-25 dB)
„Nútíma-
tónlistarfólk
er líklegra
en nokkru
sinni fyrr til
að finna sig
í tvíþættu
hlutverki
listamanns
og frumkvöðuls. Tónatal fyllir
upp í þörfina fyrir aukna
þekkingu og kunnáttu í tón-
listarbransanum með því að
safna saman upplýsingum
sem eru miðaðar jafnt að
byrjendum sem hafa litla eða
enga þekkingu á greininni, til
þeirra sem eru lengra komnir
og líka reynslumikilla aðila
sem eru að leitast við að auka
þekkingu sína,“ segir í til-
kynningu um Tónatal. Það sé
gert með auðskiljanlegum
myndböndum og hlaðvörpum
ásamt ýmsu fleira efni sem
muni hjálpa þeim að öðlast
kunnáttuna sem þurfi til að
þróa feril sinn frekar.
Hlaðvarpið Bransakjaftæði
verður hægt að nálgast á
Spotify og Apple Podcasts og
er það unnið í samvinnu við
Útvarp 101. Einnig verða stutt
myndbönd birt með tónlistar-
mönnunum GDRN og Loga
Pedro Stefánssyni en í þeim
velta þau fyrir sér ólíkum
þáttum og hliðum tónlistar-
geirans.
Þeir sem hafa áhuga geta
fylgst með verkefninu á tona-
tal.is og skráð sig á póstlista
þar til að fá tilkynningar þeg-
ar nýtt fræðsluefni er birt.
Einnig má gerast félagi í face-
bookhópi og taka þátt í um-
ræðum í þeim hópi.
Tvíþætt
hlutverk
TÓNATAL TIL FRÓÐLEIKS
Merki hlaðvarpsins
Bransakjaftæði