Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 08.08.2020, Blaðsíða 47
Melissa Dream er vísindalega samsettjurtablanda, hannað til að stuðlaað djúpri slökun og værum svefni. Blanda inniheldur jurtir, amínósýrur, vítamín og steinefni sem hafa ekki sljóvgandi áhrif. Svefninn er okkur gríðarlega mikilvægur til þess að við getum tekist á við eril dagsins og staðist þá streitu sem fylgir daglega lífinu. Svefninn er að stærstum hluta eins uppbyggður og á sama formi hjá öllum sem sofa eðlilega og ótruflað. Álitið er að REM-svefn og djúpsvefn séu mikilvægustu svefnstigin en þau ætti að ná yfir u.þ.b. 45-50% af öllum nætursvefni. Fullorðinn einstaklingur þarf að meðaltali 7-8 klst. svefn og ef það gengur ekki eftir getur það haft neikvæð áhrif á almenna líðan, fjölskyldu-, félags- og atvinnulíf. Loksins góður nætursvefn Soffía Káradóttir notar Melissa Dream og ber því vel söguna: „Ég hef lengi verið með fótaóeirð sem hefur aukist með árunum og mér hefur reynst erfitt að sofa nógu vel vegna þess. Eftir að ég byrjaði að taka Melissa Dream hefur þetta algjörlega breyst. Ég tek 2 töflur fyrir svefninn og innan hálftíma er öll óeirð farin og ég fæ góðan nætursvefn. Að mínu mati eru þetta töfratöflur sem ég gæti ekki verið án og hef ég nú tekið Melissa Dream reglulega í nokkur ár“. Orsakir svefnleysis Af hverju sofnum við ekki, erum andvaka eða vöknum upp um miðjar nætur og getum ekki sofnað aftur? Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að við getum ekki sofnað eða sofið þannig að við hvílumst og vöknum endurnærð. Vaktavinna, ferðalög, kvíði og áhyggjur er algeng orsök svefnleysis en ýmsir sjúkdómar geta einnig haft mikil áhrif á svefninn. Streita er mjög algeng orsök en það er allt of algengt að fólk vinni of mikið, sé með fjárhagsáhyggjur, vanti hreyfingu og/ eða eigi í erfiðum samböndum, hvort sem er við maka, vini eða aðra. Mataræði, upptaka næringarefna og venjur geta líka átt stóran þátt í svefnleysi. Einbeitingaskortur og offita Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri getur haft mjög alvarlega heilsufarslegar afleiðingar í för með sér. Einkenni svefnleysis eru m.a. þreyta yfir daginn, skapsveiflur og jafnvel þunglyndi og kvíði. Einbeiting versnar, slysahætta eykst og ýmis andleg og líkamleg vandamál. Sum einkenni geta líka dregið þann dilk á eftir sér að þau ýti undir frekara svefnleysi sem þýðir að við erum komin í vítahring sem þarf einhvernvegin að rjúfa. Vilt þú sofa betur? Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á því að breyta einföldum hlutum í nærumhverfi okkar ef það á við. Gott getur verið að borða ekki 2-3 tímum áður en lagst er til hvílu og passa að drekka ekki of mikinn vökva, bæði til að gefa meltingarfærunum pásu og að losna við klósettferðir. Ekki taka tölvur eða síma með í rúmið og lágmarka alla notkun rafmagnstækja í svefnherberginu sem á að vera vel loftað, myrkvað og hljóðlátt. Náttúruleg bætiefni reynast mörgum vel og hefur Melissa Dream alveg slegið í gegn. Þetta bætiefni hefur m.a. fengið viðurkenningu frá National Nutrition í Kanada í flokki bestu fæðubótaefna gegn streitu. Amínósýra sem stuðlar að slökun Melissa Dream inniheldur sítrónu- melissu sem hefur verið notuð í aldaraðir m.a. til að bæta svefn. Þar er einnig að finna L-theanine, amínósýra sem finnst í svörtu og grænu tei og hafa rannsóknir* sýnt að hún hefur bein áhrif á heilann þar sem hún stuðlar að slökun án þess að hafa sljóvgandi áhrif. Melissa Dream inniheldur einnig fjölda vítamína og steinefna, þar á meðal; n B-6 vítamín sem stuðlar að því að halda reglu á hormónastarfsemi. n B-12 sem stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfisins sem og eðlilegri sálfræði- legri starfsemi ásamt B1, B2, og B3. n Magnesíum sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi sem og viðhaldi eðlilegra beina. HAM Svefnleysi getur þó verið alvarlegra vandamál en svo að einföld ráð dugi. Þá er best að ráðfæra sig við lækni. Þess ber þó einnig að geta að rannsóknir hafa sýnt að bestur árangur næst með hugrænni atferlismeðferð (HAM) sem er nokkurra vikna námskeið sem fólk getur sótt. * 2008;17 Suppl 1:167-8. Sölustaðir: Stórmarkaðir, apótek og heilsuverslanir Fótaóeirð horfin og ég fæ góðan nætursvefn „Ég tek 2 töflur fyrir svefninn og innan hálftíma er öll fótaóeirð farin og ég fæ góðan nætursvefn“ Soffía Káradóttir Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Collagen Beauty formula Minni hrukkur og frísklegri húð Inniheldur 500 mg af kollageni ásamt náttúrulegri bætiefnablöndu sem getur stutt við kollagenframleiðslu húðarinnar. Regluleg inntaka getur hægt á öldrunareinkennum og dregið úr líkum á að fínar línur og hrukkur fari að myndast of snemma. 3mánaðaskammtur Soffía Káradóttir Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri getur haft mjög alvarlega heilsufarslegar afleiðingar í för með sér. Einkenni svefnleysis eru m.a. þreyta yfir daginn, skapsveiflur og jafnvel þunglyndi og kvíði. Soffía Káradóttir hafði lengi verið með fótaóeirð og átt erfitt með að sofa vegna þess en eftir að hún fór að taka inn Melissa Dream er vandamálið úr sögunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.