Morgunblaðið - 08.08.2020, Side 47
Melissa Dream er vísindalega samsettjurtablanda, hannað til að stuðlaað djúpri slökun og værum svefni.
Blanda inniheldur jurtir, amínósýrur, vítamín
og steinefni sem hafa ekki sljóvgandi áhrif.
Svefninn er okkur gríðarlega mikilvægur til
þess að við getum tekist á við eril dagsins
og staðist þá streitu sem fylgir daglega
lífinu. Svefninn er að stærstum hluta eins
uppbyggður og á sama formi hjá öllum
sem sofa eðlilega og ótruflað. Álitið er að
REM-svefn og djúpsvefn séu mikilvægustu
svefnstigin en þau ætti að ná yfir u.þ.b.
45-50% af öllum nætursvefni. Fullorðinn
einstaklingur þarf að meðaltali 7-8 klst. svefn
og ef það gengur ekki eftir getur það haft
neikvæð áhrif á almenna líðan, fjölskyldu-,
félags- og atvinnulíf.
Loksins góður nætursvefn
Soffía Káradóttir notar Melissa Dream og ber
því vel söguna:
„Ég hef lengi verið með fótaóeirð sem hefur
aukist með árunum og mér hefur reynst
erfitt að sofa nógu vel vegna þess. Eftir að
ég byrjaði að taka Melissa Dream hefur
þetta algjörlega breyst. Ég tek 2 töflur fyrir
svefninn og innan hálftíma er öll óeirð farin
og ég fæ góðan nætursvefn. Að mínu mati
eru þetta töfratöflur sem ég gæti ekki verið án
og hef ég nú tekið Melissa Dream reglulega í
nokkur ár“.
Orsakir svefnleysis
Af hverju sofnum við ekki, erum andvaka
eða vöknum upp um miðjar nætur og
getum ekki sofnað aftur? Það eru fjölmargar
ástæður fyrir því að við getum ekki sofnað
eða sofið þannig að við hvílumst og vöknum
endurnærð. Vaktavinna, ferðalög, kvíði
og áhyggjur er algeng orsök svefnleysis en
ýmsir sjúkdómar geta einnig haft mikil áhrif
á svefninn. Streita er mjög algeng orsök en
það er allt of algengt að fólk vinni of mikið,
sé með fjárhagsáhyggjur, vanti hreyfingu og/
eða eigi í erfiðum samböndum, hvort sem er
við maka, vini eða aðra. Mataræði, upptaka
næringarefna og venjur geta líka átt stóran
þátt í svefnleysi.
Einbeitingaskortur og offita
Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri
getur haft mjög alvarlega heilsufarslegar
afleiðingar í för með sér. Einkenni svefnleysis
eru m.a. þreyta yfir daginn, skapsveiflur
og jafnvel þunglyndi og kvíði. Einbeiting
versnar, slysahætta eykst og ýmis andleg og
líkamleg vandamál. Sum einkenni geta líka
dregið þann dilk á eftir sér að þau ýti undir
frekara svefnleysi sem þýðir að við erum
komin í vítahring sem þarf einhvernvegin að
rjúfa.
Vilt þú sofa betur?
Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að
vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á því
að breyta einföldum hlutum í nærumhverfi
okkar ef það á við. Gott getur verið að borða
ekki 2-3 tímum áður en lagst er til hvílu og
passa að drekka ekki of mikinn vökva, bæði
til að gefa meltingarfærunum pásu og að
losna við klósettferðir. Ekki taka tölvur eða
síma með í rúmið og lágmarka alla notkun
rafmagnstækja í svefnherberginu sem á
að vera vel loftað, myrkvað og hljóðlátt.
Náttúruleg bætiefni reynast mörgum vel og
hefur Melissa Dream alveg slegið
í gegn. Þetta bætiefni hefur m.a.
fengið viðurkenningu frá National
Nutrition í Kanada í flokki bestu
fæðubótaefna gegn streitu.
Amínósýra sem stuðlar að
slökun
Melissa Dream inniheldur sítrónu-
melissu sem hefur verið notuð í
aldaraðir m.a. til að bæta svefn.
Þar er einnig að finna L-theanine,
amínósýra sem finnst í svörtu og
grænu tei og hafa rannsóknir* sýnt
að hún hefur bein áhrif á heilann þar
sem hún stuðlar að slökun án þess að
hafa sljóvgandi áhrif. Melissa Dream
inniheldur einnig fjölda vítamína og
steinefna, þar á meðal;
n B-6 vítamín sem stuðlar að því að halda
reglu á hormónastarfsemi.
n B-12 sem stuðlar að eðlilegri starfsemi
taugakerfisins sem og eðlilegri sálfræði-
legri starfsemi ásamt B1, B2, og B3.
n Magnesíum sem stuðlar að eðlilegri
vöðvastarfsemi sem og viðhaldi
eðlilegra beina.
HAM
Svefnleysi getur þó verið alvarlegra vandamál
en svo að einföld ráð dugi. Þá er best að
ráðfæra sig við lækni. Þess ber þó einnig
að geta að rannsóknir hafa sýnt að bestur
árangur næst með hugrænni atferlismeðferð
(HAM) sem er nokkurra vikna námskeið sem
fólk getur sótt.
* 2008;17 Suppl 1:167-8.
Sölustaðir: Stórmarkaðir, apótek og
heilsuverslanir
Fótaóeirð horfin og ég
fæ góðan nætursvefn
„Ég tek 2 töflur fyrir svefninn og
innan hálftíma er öll fótaóeirð farin
og ég fæ góðan nætursvefn“
Soffía Káradóttir
Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Collagen Beauty
formula
Minni hrukkur og frísklegri húð
Inniheldur 500 mg af kollageni ásamt náttúrulegri bætiefnablöndu
sem getur stutt við kollagenframleiðslu húðarinnar.
Regluleg inntaka getur hægt á öldrunareinkennum og dregið úr
líkum á að fínar línur og hrukkur fari að myndast of snemma.
3mánaðaskammtur
Soffía Káradóttir
Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri getur haft
mjög alvarlega heilsufarslegar afleiðingar í för með
sér. Einkenni svefnleysis eru m.a. þreyta yfir daginn,
skapsveiflur og jafnvel þunglyndi og kvíði.
Soffía Káradóttir hafði lengi verið með fótaóeirð og átt erfitt með
að sofa vegna þess en eftir að hún fór að taka inn Melissa Dream er
vandamálið úr sögunni.