Morgunblaðið - 08.08.2020, Qupperneq 27
UMRÆÐAN 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020
Boðið er upp á einkaskoðun og fólk vinsamlegast beðið um að
hafa samband í síma 898-9396 eða á hakon@valfell.is
og panta tíma til skoðunar.
Kirkjubraut 2, 300 Akranesi | Sími: 570 4824 | hakon@valfell.is | valfell.is
Þingvangur ehf byggir 10 hæða lyftuhúsnæði á góðum stað miðsvæðis
á Akranesi. Staðsett við verslunarkjarnann Dalbraut 1, Akranesi.
STILLHOLT 21 - AKRANESI
Íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar og seljast fullbúnar
án gólfefna nema forstofa, þvottahús og baðherbergi
flísalagt. Öllum íbúðum fylgir kæliskápur og uppþvottavél í
eldhúsinnréttingu. Sýningaríbúð á 1. hæð.
Innréttingar og fataskápar frá danska framleiðandnum HTH
Innhurðir og flísar frá Parka
Heimilistæki frá Ormsson
Ívikunni lauk næstsíðastamótinu í syrpumótaröð semMagnús Carlsen hefur staðiðfyrir á netinu undanfarna
mánuði með tímamörkunum 15 10,
þ.e. 15 mínútur á alla skákina og 10
sekúndur bætast við eftir hvern leik.
Þetta fjórða mót gekk undir nafninu
Legends of chess eða Goðsagnir
skákarinnar, en meðal keppenda
voru þrír sem komnir eru á sextugs-
aldurinn: Anand, Gelfand og Ivant-
sjúk. Þeir áttu allir góða spretti en
aðalniðurstaða keppninnar var samt
sú að í dag ræður enginn við norska
heimsmeistarann, Magnús Carlsen!
Og ekki virðist skipta neinu máli
hvaða tímamörk eru notuð. Á þessu
móti tefldi hann ellefu einvígi og
vann þau öll. Eitt þeirra, gegn Nepo-
mniachtci, fór í bráðabana og þar
sem Magnúsi dugði jafntefli til sig-
urs gat hann boðið jafntefli með
gjörunnið tafl. En þessi voru fórnar-
lömb í undankeppninni. Þar var
keppt um fjögur sæti í úrslitum: MC
– Giri 3:1, MC – Anand 2½:1½, MC –
Leko 2½:1½, MC – Gelfand 3:0, MC
– Ivantsjúk 3:2, MC – Ding Liren
2½:1½, MC – Svidler 2½:1½, MC –
Nepomniachtchi 2½:2½ og loks MC
– Kramnik 3:1.
Í fjögurra manna úrslitunum vann
Magnús auðveldan sigur á Peter
Svidler í 5:1 og stóð keppni þeirra í
tvo daga. Nepomniachtchi hafði
meira fyrir hlutunum, háði magnað
16 skáka einvígi við Anish Giri, átti
þar síðasta orðið og vann 8½:7½.
Í lokaeinvíginu gekk hins vegar
allt á afturfótunum hjá Nepo. Hann
kvartaði undan þreytu og þáði glað-
ur jafnteflistilboð Carlsens í níundu
skákinni sem hann vann, 6½: 2½.
Lokamótið hefst á morgun þann 9.
ágúst en þátttökurétt hafa þeir fjór-
ir keppendur sem bestum árangri
hafa náð í syrpunni allri, auk Magn-
úsar, Nakamura, Ding Liren og
Daniil Dubov. Magnús teflir við
Ding Liren og Nakamura við Dubov.
Keppnisfyrirkomulaginu svipar til
þess sem þekkist á stórmótum í
tennis. Í undanrásunum munu kepp-
endur tefla fimm fjögurra skáka ein-
vígi og í úrslitunum sjö fjögurra
skáka og það er einn vinningur í boði
fyrir sigur í hverju einvígi.
Garrí Kasparov og Judit Polgar
voru meðal gesta á Chess24.com og
það var gaman að hlusta á þau og má
búast við þeim aftur þegar lokamót-
ið fer fram. Sú spurning vaknar
hvaða þættir taflmennsku Magnúsar
skýra þennan mun á honum og
keppinautunum. Leikgleði, frábært
vald á alls kyns stöðutýpum, frábær
leiktækni í endatafli, hagsýni varð-
andi tímanotkun og traust á innsæi
varðandi ákvarðanatöku eru nokkur
atriði sem nefna má. Því má bæta við
að hann virðist hafa lært heilmikið af
forritinu fræga, Alpha Zero. Grein-
arhöfundur fylgdist með fyrstu
skákinni í úrslitakeppninni og þá
kom þessi staða upp:
Goðsagnir skákarinnar 2020; 7.
umferð:
Peter Svidler – Magnús Carlsen
Svartur er peði yfir en staðan er
þröng, biskupinn stefnir á g7. Hvað
skal nú til bragðs taka?
15. … g5!?
Það þarf mikið sjálfstraust til að
leika svona en virðist ganga upp.
16. fxg5 Dxg5 17. Hf5?
„Houdini“ mælir með 17. h4! en
eftir 17. … Dc5+ 18. Kh1 Re5 19.
Rf5 Kh8 getur svartur varist.
17. … De3+ 18. Kh1 Re5!
Skyndilega er hvítur kominn í
bullandi vandræði.
19. Be2 Bb7 20. Dc2 Rc5!
Og nú er hvíta staðan að hruni
komin.
21. Bc1 Bxe4+ 22. Rxe4 Dxe4+
23. Dxe4 Rxe4 24. Bb2 He6 25. Haf1
Hae8 26. g5 Rd2 27. H1f2 Rxc4
- og Svidler gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Chessbase.com
Tvö borð - ein viðureign. Verður þetta svona í landsliðsflokki á Skákþingi
Íslands sem á að hefjast þann 22. ágúst nk?
Enginn ræður
við norska heims-
meistarann
Við lifum nú á und-
arlegum tímum þar
sem svo margt er
breytt. Við máttum svo
sem alveg við því að
staldra við og hugsa
okkar gang þótt fórn-
arkostnaðurinn sé að
vísu ægilegur. En við
þurfum til framtíðar að
finna eitthvert jafnvægi
ef við ætlum yfir höfuð
að halda þessu jarðlífi áfram með ein-
hverjum hætti, þótt ekkert verði
mögulega eins og áður var.
Þroskumst í trú,
von og kærleika
Eitt af því sem hefur riðlast og
frestast jafnvel ítrekað eru brúkaup,
fermingar og skírnir og útfarir fara
fram við erfiðar aðstæður þar sem
takmarkaður fjöldi má koma saman
og virða verður eðlilega tveggja
metra regluna.
Það hefur meðal annars verið
óþægilegt fyrir fermingarbörn vors-
ins 2020 að hafa ekki getað fermst og
þannig staðfest trú sína með þeim
hætti sem til stóð. Fermingartímun-
um og námskeiðunum löngu lokið og
ef allt væri eðlilegt ættu nýir hópar
næsta árgangs að skila sér í sína
fermingarfræðslu með haustinu. Allt
er þetta í mikilli óvissu. Fermingar-
fötin orðin of lítil og svo framvegis
þar sem ekki hefur náðst að kalla
ungmennin og fjölskyldur þeirra
saman eins og til stóð.
Það sem er þó mest um vert að
hafa í huga er að þótt fermingin sé
hátíðleg og táknræn og ómissandi lið-
ur í okkar trúar, kærleiks og þroska-
ferli þá er spurning fermingar-
dagsins spurning dagsins alla ævi.
Fermingin er nefnilega ekki bara
einhver sýning, færibanda-afgreiðsla
eð hópyfirlýsing heldur persónuleg
vitnisburðar- og bænastund. Hún er
ekki manndómsvígsla, vottorð um að
við séum komin í fullorðinna manna
tölu eða útskrift úr kirkjunni. Öðru
nær. Heldur er hún upphaf af með-
vitaðri lífsgöngu með frelsarann Jesú
Krist sem leiðtoga lífs okkar. Jafnt á
gleðidögum og eins
þegar gefur á bátinn.
Fermingin er vitn-
isburður þess að við
viljum áfram þiggja það
að fá að vera barn.
Barn Guðs, leitt af Jesú
Kristi. Barn sem vill fá
að þroskast og dafna í
skjóli hans og leitast við
að leyfa honum að hafa
áhrif á okkur til góðs.
Þiggja leiðsögn hans og
nærveru með öllum
þeim fyrirheitum og erfðarétti sem
því fylgir.
Fermingin er vitnisburður þess að
vilja leitast við að lifa lífinu í kærleika
og sátt við Guð, sjálfan sig og alla
menn. Fermingin er að segja já við
lífinu. Að vilja læra að meta það,
njóta þess og þakka fyrir það. Hún er
að þiggja kórónu lífsins. Dýrðarsveig
sem aldrei fölnar.
Því er sannarlega ástæða til þess
að koma saman, fagna og gleðjast
saman, þegar aðstæður leyfa, til þess
að biðja og þakka.
Höldum fast í okkar lífsins kórónu,
svo enginn taki hinn himneska sig-
ursveig lífsins frá okkur.
Og minnum okkur daglega á að
spurning fermingardagsins er spurn-
ing dagsins, alla ævi.
Náð Guðs og von höfundar og full-
komnara lífsins, blessun, kærleikur
og friður fylgi okkur öllum dag
hvern, alla leið, á ævinnar skrikkjóttu
göngu.
Með samstöðu friðar- og kærleik-
skveðju.
Lifi lífið!
Spurning dagsins,
alla ævi
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Fermingin er hátíð-
leg og táknræn og
ómissandi liður í okkar
trúar, kærleiks og
þroskaferli en spurning
fermingardagsins er
spurning dagsins, alla
ævi.
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Lárus Helgason fæddist 8.
ágúst 1873 á Fossi á Síðu. For-
eldrar hans voru hjónin Helgi
Bergsson, f. 1841, d. 1900, og
Halla Lárusdóttir, f. 1843, d.
1927, bændur þar.
Lárus var kennari á Síðu
1891-1898 og bóndi í Múlakoti á
Síðu 1900-1906. Það ár flutti
hann á Kirkjubæjarklaustur og
var bóndi þar til æviloka.
Á Kirkjubæjarklaustri stóð
Lárus ásamt konu sinni og son-
um fyrir umfangsmiklum fram-
kvæmdum, rafstöð var byggð,
skógi var plantað í hlíðunum og
sandfok heft. Fyrsta þéttbýlið í
sveitunum milli sanda varð að
veruleika.
Lárus varð símstöðvarstjóri
og póstafgreiðslumaður frá
1929, oddviti hreppsins lengst-
an part, hann var formaður
stjórnar Kaupfélags Skaftfell-
inga 1914-1941 og formaður
stjórnar Skaftfellings hf. 1917-
1941. Hann var alþingismaður
Vestur-Skaftfellinga 1922-1923
og 1927-1933 fyrir
Framsóknarflokkinn.
Eiginkona Lárusar var Elín
Sigurðardóttir, f. 1871, d. 1949.
Þau eignuðust fimm syni. Þór-
arinn Helgason ritaði ævisögu
Lárusar sem heitir Lárus á
Klaustri: Ævi hans og störf og
kom út 1957.
Lárus lést 1. nóvember 1941.
Merkir Íslendingar
Lárus
Helgason
Atvinna