Morgunblaðið - 08.08.2020, Page 38

Morgunblaðið - 08.08.2020, Page 38
Fjölskyldan Páll, Guðbjörg og Hilmar árið 2018. Hún hefur sungið einsöng í stórum uppfærslum kórsins og eins og í Re- quiem eftir Fauré og af öðrum verk- efnum má nefna að hún söng hlutverk Súsönnu í óperunni Brúðkaup Fígarós eftir Mozart sem Óperufélagið Norð- uróp setti upp í Reykjanesbæ. Sumarið var viðburðaríkt hjá Guð- björgu en hún hélt tvenna tónleika á Sumartónleikum í Skálholti í byrjun júlí. „Ég fór í gönguferð á Horn- ströndum með fjölskyldu og góðum vinum þar sem gist var í Hornbjargs- vita, ég fór í fjölskylduferð á Vestfirði og síðast en ekki síst stendur upp úr þrítugsafmælisferð vinkvennanna af Nesinu í Bláa lónið.“ Tónlistin er aðaláhugamál Guð- bjargar. „Svo erum við kærastinn minn mjög dugleg að hjóla og förum á skíði.“ Fjölskylda Sambýlismaður Guðbjargar er Páll Ólaf Pálsson, f. 7.9. 1990, viðskipta- fræðingur. Foreldrar hans eru Eydís Guðrún Sigurðardóttir, f. 15.10. 1956, snyrtifræðingur, og Páll Rúnar Ing- ólfsson, f. 6.11. 1954, húsgagnasmíða- meistari. Þau eru búsett í Garðabæ. Sonur Guðbjargar og Páls Ólafs er Hilmar, f. 9.7. 2018. Systkini Guðbjargar eru Jóhannes Hilmarsson, f. 27.10. 1992, sérfræð- ingur hjá Íslandsbanka, býr í Reykja- vík, og Hildur Sif Hilmarsdóttir, f. 5.6. G uðbjörg Hilmarsdóttir fæddist 8. ágúst 1990 í Reykjavík en ólst upp á Seltjarnarnesi. Guðbjörg gekk í Grunnskóla Seltjarnarness og Menntaskólann í Reykjavík og út- skrifaðist af eðlisfræðibraut. Meðfram grunn- og menntaskóla stundaði hún líka tónlistarnám í fiðlu og söng. „Ég byrjaði að læra á fiðlu fimm ára og lauk miðstigi og fór að syngja þegar ég var unglingur.“ Guðbjörg lenti í þriðja sæti í X-Factor þegar hún var 16 ára gömul. „Það opnaði mörg tæki- færi fyrir unga stelpu og í kjölfarið á þeirri keppni fékk ég tækifæri til að vera í Þjóðleikhúsinu í söngleikjunum þar og tók þátt í þremur uppfærslum,“ en söngleikirnir voru Skilaboða- skjóðan, Kardemommubærinn og Óli- ver!. Guðbjörg fór eftir stúdentspróf til Bandaríkjanna á Rotary-styrk í söng- nám og útskrifaðist frá Columbus State University í Georgíuríki árið 2014 með BM-gráðu í söng, hún fór síðan í Listaháskóla Íslands og út- skrifaðist með M.ed.-gráðu í list- kennslu frá listkennsludeild skólans. Guðbjörg hefur starfað sem söng- kona og tónlistarkennari frá því að hún kom heim frá Bandaríkjunum. „Ég kom beint heim eftir útskrift, ég íhugaði að reyna fyrir mér erlendis en mig langaði frekar að vera bæði söng- kona og tónlistarkennari hér heima,“ en Guðbjörg kennir bæði á grunn- og framhaldsskólastigi. „Ég kenni söng og raddbeitingu á leiklistarbraut Borgarholtsskóla en þar fékk ég tæki- færi á að framkvæma útskriftar- verkefnið mitt frá Listaháskólanum. Útskriftarverkefnið varð að starfi sem er í dag draumastarf – líflegt og gef- andi. Samhliða starfinu í Borgarholts- skóla kenni ég ýmis námskeið og smiðjur á grunnskólastigi með áherslu á söng.“ Guðbjörg syngur með kammerkór og kór Dómkirkjunnar, sem tekur meðal annars að sér þingsetningar, og ýmsa stærri viðburði á vegum Dóm- kirkjunnar. „Þar hef ég átt sérlega farsælt samstarf með Kára Þormar dómorganista. Við héldum m.a. viku- lega sálmatónleika síðasta vetur.“ 1999, háskólanemi, býr á Seltjarnar- nesi. Foreldrar Guðbjargar eru hjónin Þórdís Sigurðardóttir, f. 20.11. 1965, framkvæmdastjóri hjá ISAVIA ANS, og Hilmar Steinar Sigurðsson, f. 1.4. 1963, framkvæmdastjóri. Þau eru bú- sett á Seltjarnarnesi. Guðbjörg Hilmarsdóttir, söngkona og tónlistarkennari – 30 ára Fjölskylduferð Guðbjörg ásamt foreldrum sínum og systkinum í Selva Val Gardena á Ítalíu 2017. Vildi syngja og kenna hér heima Gönguferð Guðbjörg með Hilmar á bakinu í Reykjadal. 38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 2020 Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. ágúst 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir klukkan 12 þriðjudaginn 11. ágúst. SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám. –– Meira fyrir lesendur 70 ára Jóhannes ólst upp á Grímsstöðum í Mývatnssveit, en býr á Akureyri. Hann er smiður að mennt og vann hjá Smiðli í Mý- vatnssveit og Tré- smiðju Trausta á Akur- eyri. Jóhannes er svæðisstjóri Óðins- svæðis hjá Kiwanishreyfingunni. Maki: Kristín Halldórsdóttir, f. 1951, hús- móðir. Börn: Steingrímur, f. 1979, Sigríður, f. 1981, og Jóhanna, f. 1985. Stjúpdætur eru Elín, f. 1971, Linda, f. 1972, og Harpa, f. 1981. Barnabörnin eru orðin sjö. Foreldrar: Steingrímur Jóhannesson, f. 1921, d. 1986, bóndi og vann í Kísiliðj- unni, og Þorgerður Egilsdóttir, f. 1927, húsmóðir, búsett á Húsavík. Jóhannes Steingrímsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þótt þú eigir erfitt með að hemja tilfinningar þínar geturðu haft stjórn á þeim. Bjóddu til veislu, farðu í frí eða gerðu eitthvað skemmtilegt með börn- unum. 20. apríl - 20. maí  Naut Farðu ekki í uppnám þótt ekki sé alltaf farið eftir þeim reglum sem þú setur. Fólk þar vill endilega kynnast þér. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þér kann að berast óvænt tilboð upp í hendurnar og ef þú heldur rétt á spilunum getur það orðið þér til gagns. Ekki láta rugling koma í veg fyrir að þú þorir að tjá þig í framtíðinni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þótt erfiðleikar skjóti upp kollinum hér og þar eru þeir bara til að sigrast á og þú hefur gaman af þeirri glímu. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert á góðri siglingu núna og ættir að nota hagstæðan byr til þess að koma þínum málum í höfn. Eyddu ekki orku í rifrildi, illindin líða hjá. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú finnur fyrir hugrekki, sjálfstæði og ævintýraþrá í dag. Náðu sambandi við einhvern áhugaverðan hinum megin á hnettinum í gegnum alnetið. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst aðrir vilja ráðskast um of með þín málefni. Taktu það til þín sem þú átt skilið og vertu ekki of alvarlegur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Varastu að undirrita nokkuð án þess að kynna þér gaumgæfilega efni þess og afleiðingar. Varastu að láta telja þig á eitthvað sem þú veist innst inni að er ekki rétt fyrir þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Nú er þér óhætt að setja markið hátt ef þú gætir þess aðeins að ganga ekki fram af þér. En línan er samt ansi fín. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft á aukinni hvíld og ein- veru að halda. Reyndu að láta þetta hafa sem minnst áhrif á þig því þú ert með þitt á hreinu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hafðu vakandi auga á fjármál- unum og láttu engan bilbug á þér finna þótt útlitið sé ekki alltaf jafnglæsilegt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú verður sjálfur að tryggja öryggi þitt því það gerir enginn fyrir þig. Gríptu gæsina á meðan hún gefst. 50 ára Gerða ólst upp á Seltjarnarnesi en býr í Kópavogi. Hún er viðskipta- fræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og löggiltur endur- skoðandi og er endurskoðandi hjá Landsvirkjun. Maki: Jón Jóhann Þórðarson, f. 1970, stjórnmálafræðingur og vinnur í aug- lýsingabirtingum hjá Íslensku auglýs- ingastofunni. Börn: Helga Katrín, f. 1996, Atli Þórð- ur, f. 1999, og Tómas Bjarki, f. 2003. Foreldrar: Dagnýr Marinó Marinós- son, f. 1949, vélstjóri, búsettur á Akureyri, og Helga Marteinsdóttir, f. 1945, fv. skrifstofumaður, búsett í Kópavogi. Þorgerður Marinósdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.