Morgunblaðið - 14.08.2020, Page 2

Morgunblaðið - 14.08.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Sjálfvirk pottastýring með snertiskjá og vefviðmóti POTTASTÝRING Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Tófu í Borgarfirði hefur fjölgað mikið að undanförnu og horfir nú til vandræða af þeim sökum, að sögn Snorra Jó- hannessonar, bónda og refa- skyttu á Auga- stöðum í Hálsa- sveit. Á þessu ári hefur hann unnið fjögur greni, öll fremst í Reykholts- dalnum. Þar segir hann tóf- una vera nokkuð áberandi, rétt eins og í Flókadal, á Andakíl og vestur á Mýrum og sunnanverðu Snæfellsnesi. „Það er mikilvægt halda dýrbít í skefjum, en eftir að ríkið ákvað einhliða að hætta að leggja peninga í grenjavinnslu er er ekki sami þungi lagður í mál og var af hálfu sveitarfélaganna,“ segir Snorri sem hefur fellt alls 74 dýr frá áramótum; bæði í Borg- arfjarðardölum og inn á Arn- arvatnsheiði. „Tófan er í ríkari mæli að færa sig ofan af heiðum niður í byggð, þar sem eru stór svæði sem í dag eru vegna breyttra búskapahátta. Þar gerir lágfóta sér því greni og töltir síð- an í sumarlok með yrðlingahópinn sinn. Þetta er slæm þróun og að- gerða er þörf.“ sbs@mbl.is Tófum að fjölga og Snorri hefur unnið 74 dýr á árinu Morgunblaðið/Árni Sæberg Yrðlingar Fallegir en mikið skað- ræði sem þarf að halda í skefjum.  Dýrbít verður að halda í skefjum  Þróun mála er slæm Snorri Jóhannsson Vaskir ungir menn frískuðu upp á gamla kart- öfluskemmu síðastliðinn miðvikudag þegar þeir hlóðu upp torfi utan um skemmuna sem staðsett er í Grasagarðinum í Reykjavík. Mennirnir tveir höfðu allt sem til þurfti með í för; torf, skóflur, hjólbörur, garðhanska og einn stráhatt. Að verki loknu verður kartöfluskemman orðin grasi vax- in og má því búast við því að meiri prýði verði af henni í Grasagarðinum en áður var. Kartöfluskemman verður grasi vaxin Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Nýju torfi hlaðið upp utan um gamla skemmu Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mikil fjölgun hefur verið í beiðnum um endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu í ár miðað við sama tíma í fyrra. Sem kunnugt er var eitt af úrræðum ríkisstjórnarinnar til að bregðast við efnahagssamdrætti af völdum kórónuveirunnar að hækka endurgreiðsluhlutfall virðisauka- skatts tímabundið úr 60% í 100%. Jafnframt var úrræðið útvíkkað. Í svari frá Skattinum við fyrir- spurn Morgunblaðsins kemur fram að mótteknar endurgreiðslubeiðnir frá janúar 2020 til byrjunar júlí voru samtals 12.289 en voru 6.340 fyrir sama tímabil 2019. Í maí og júní 2020 bárust samtals 7.228 endurgreiðslubeiðnir en í sömu mánuðum 2019 bárust samtals 1.663 slíkar beiðnir. „Þótt aukning hafi verið mikil að því er tekur til íbúðar- húsnæðis þá munar mest um um- sóknir vegna endurgreiðslu á kostn- aði við bifreiðaviðgerðir í þessari breytingu á milli ára en þær voru samtals 3.158 í maí, júní og fyrstu dagana í júlí. Á þessu sama tíma- marki var búið að afgreiða samtals 3.118 umsóknir,“ segir í svari Skatts- ins. Þar er jafnframt tekið fram að umsóknir á árinu 2020 geti varðað kostnað sem fallið hefur til í ár en jafnframt fyrri ár. Þannig eru mót- teknar umsóknir samtals 8.081 vegna kostnaðar á árinu 2020. Vegna þessa mikla fjölda beiðna um endurgreiðslu að undanförnu hefur Skattinum ekki tekist að upp- fylla þá skyldu að afgreiða allar um- sóknir innan 30 daga. Unnið er að því að bæta úr þessu og hefur starfsfólki verið fjölgað af þessum sökum. „Strax í vor þegar búið var að lög- festa breytingar á endurgreiðslum á virðisaukaskatti var bætt við starfs- manni á starfsstöð Skattsins á Siglu- firði en starfsmenn þar hafa þessi verkefni með höndum, auk starfs- manna í Reykjavík,“ segir Kristín Gunnarsdóttir, sérfræðingur hjá Skattinum. „Þá voru 1-2 starfsmenn á öðrum stöðum færðir í þessi verk- efni úr öðrum verkum eins og kostur var í júlí, en eins og ljóst er þá er það aðalsumarleyfismánuður lands- manna og því ekki alveg hægt um vik. Fyrr í þessari viku voru síðan fjórir starfsmenn færðir tímabundið í þessi verkefni,“ segir hún. Tvöfalt fleiri vilja endurgreiðslu  Margir nýta sér Allir vinna-úrræðið sem felur í sér endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna vinnu  Yfir tólf þúsund umsóknir á fyrri helmingi ársins  Ríflega þrjú þúsund sækja um vegna bílaviðgerða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Atvinna Mikil fjölgun umsókna um endurgreiðslu virðisaukaskatts í ár. Hæsti hitinn á Íslandi það sem af er þessu ári mældist í Neskaupstað í gær, en þar náði hitastigið 26,3 gráðum þegar mest lét. Veðurblíðan var ekki mikið síðri á Seyðisfirði, en þar var 26,1 gráðu hiti á tímabili. Óli Þór Árnason veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir hnjúka- þeyinn hafa verið þarna að verki. „Það er þegar vindurinn steypir sér ofan af hálendinu og ofan í dali og firði. Það þarf að vera ákveðinn vindstyrkur til að ná þessu og sú var raunin í dag,“ segir Óli Þór. „Það verður hlýtt á morgun og á laugardag, og fer sjálfsagt vel yfir 20 gráður austast á landinu, til dæmis á héraði.“ sh@mbl.is Hitamet sumarsins slegið í gær Sjórinn Við höfnina í Neskaupstað. Ljósmynd/Hlynur Sveinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.