Morgunblaðið - 14.08.2020, Side 10

Morgunblaðið - 14.08.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 SVIÐSLJÓS Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Margir ólíkir hópar hafa hagsmuni af umgengni í þjóðgörðum og á friðlendum landsins. Félagasamtök vélknúinna tækja telja að skortur á samráði og samtali um hlut þeirra valdi því að stór landsvæði falli ut- an þeirra skauts. Afnot og aðgengi sem eigi sér áratugahefð sé nú ým- ist bönnuð eða háð leyfisveitingu stjórnvalda. Blaðamaður fylgdi eft- ir umfjöllun blaðsins frá því í gær og ræddi við nokkra forsvarsmenn lofts og láðs Vanþekking á flugmálum Matthías Sveinbjörnsson, for- seti Flugmálafélags Íslands, segir að oft brenni við að þekkingu skorti hjá stofnunum sem setja reglur um loftför á vernduðum svæðum. Hann bendir á að í gildi séu lög um loftferðir sem heyri undir málaflokk Samgöngustofu. Tilraunir annarra til að setja regl- ur um loftrými hafi verið handa- hófskenndar, skort innsýn og til- gang og sé einfaldlega ekki á þeirra forræði. Brýnt sé að einn aðili, þ.e. Samgöngustofa, haldi um stjórnina, annars blasi við mót- sagnakennd flækja. Hann gagn- rýnir einnig að sömu reglur séu látnar gilda um allar tegundir flyg- ilda. Samkvæmt skilgeiningu geti það spannað á milli breiðþotu og dróna sem passar í buxnavasa. Ekki sé raunhæft að ætla allri þessari breidd loftfara hið sama. Hann segir það augljósa kröfu að lenda megi á auglýstum flug- brautum innan þjóðgarðsins. Undir þetta tekur Jónas Sverrisson, formaður Fisflugs- félags Reykjavíkur. Hann segir frá því að hafa sótt um lendingarleyfi fyrir fisflugvél á flugbrautunum í Nýjadal og Herðubreiðarlindum, sem báðir eru innan þjóðgarðs. Hann segir að svo virðist sem umsóknin hafi verið misskilin hjá Umhverfisstofnun og tíu dögum síðar hafi hann fengið þaðan símtal vegna málsins. Jónas segir að fis- flugvélar valdi nær engum um- hverfisáhrifum. Þær séu lágværar og geti lent á hálendisvegum án þess að valda nokkru raski, en að tilgreina stað og stund sé nær ómögulegt og útiloki því ferðir um stóran hluta landsins. Takmörkun aksturs Frá stofnun Vatnajökuls- þjóðgarðs hafa deilur staðið um akstur gegnum Vonarskarð. Svein- björn Halldórsson, formaður Ferðaklúbbsins 4x4 segir að þessi gamla akstursleið liggi yfir svartan sand sem ekki spillist við akstur. Lokunin hafi komið til vegna verndunar hverasvæða í Snapadal, en hann sé langt utan leiðar og stafi engin hætta af akandi umferð. Hann bendir á að svæðið sé afar óaðgengilegt nema á sérútbúnum bílum og þangað leggi enginn leið sína nema fámennir harðkjarna- hópar göngumanna. Hann spyr hvers vegna einn fámennur hópur sé útilokaður fyrir annan? Utanvegaakstur hefur komið óorði á jeppamenn, sem Sveinbjörn segir ósanngjarnt, þar sem allir líða fyrir fáeina skussa. Hann segir að í samtökunum fari fram mikill áróð- ur fyrir umhverfisvernd og þar á bæ hafi menn strax lýst því yfir að reglum um Vonarskarð yrði fylgt, þó að baráttan haldi áfrám. Páll Sighvatsson, forseti Land- sambands íslenskra vélsleðamanna, segir að verndarstefna á hálendinu hafi ekki torveldað þá íþrótt að neinu marki, enda nær eingöngu ekið á snjó. Líkt og Sveinbjörn seg- ir hann frá því að Umhverfis- stofnun hafi boðað víðtækar hömlur á umferð í Friðlandi að fjallabaki, sem myndi útiloka umferð um fjallaskála og þekktar vetrarleiðir. Samtal hafi þó komist á sem þeir fagna og binda vonir við. Nægt svigrúm fyrir alla Allir viðmælendur eru á því máli að svigrúm sé fyrir allar teg- undir útivistar á hinum miklu víð- ernum landsins. Til að allir geti vel við unað verði þó að koma til aukið samráð og samtöl fyrr í ferlunum, þ.e. áður en ákvarðanir eru teknar. Þeir segjast hafna því viðhorfi að umferð vélknúinna tækja teljist sjálfkrafa ógn við umhverfið og telja það byggt á miklum misskiln- ingi. Í samtökum þeirra sé að finna fjölda harðra umhverfissinna sem smitist og speglist það í áherslum hjá þeim félögum sem þeir fara fyrir. Morgunblaðið/RAX Hálendið Margir vilja nýta sér gæði hálendisins en á ólíkum forsendum. Vélknúnum tækjum eru skorður settar og margir vilja breytingu þar á. Deilt á aðgengi verndaðra svæða  Ákall um aukið samráð og samtal vegna umgengni um þjóðgarða og friðlönd  Félagasamtök hafna því að notkun farartækja og umhverfisvernd fari ekki saman  Nægt svigrúm fyrir alla aðila Um nýtingu og aðgengi á friðuðum svæðum segir Tryggvi Felixson for- maður Landverndar að það sé við- fangsefni sem ekki muni hverfa frá okkur og ætíð verði deilt um. Hann telur það eðlilegt að stýring fari fram í þjóðgörðum og á friðlendum. Fyrir því sé almennur skilningur og víðtæk sátt. Margar ástæður liggi þar að baki, s.s. til að fyrirbyggja náttúruspjöll, til að gæta að öryggi þeirra sem um svæðin fara og til að koma í veg fyrir almenna truflun bæði gagnvart dýrum og mönnum. Hann nefnir í því tilliti að þyrlur geti orsakað mikið ónæði, en segir þó að vel mætti hugsa sér eitthvert kerfi þar sem þær yrðu leyfðar á ákveðnum stöðum eða tíma dags. Um akstur bíla á umræddum svæðum segir Tryggvi að honum finnist sem „jeppamenn hafi verið mjög háværir og óþægilegir í fram- komu í þessum málum“. Bílar valdi ónæði, geti truflað fjallakyrrð og alltaf verði skemmdir af þeim fá- menna hópi sem ekki geti haldið sig innan vegar. Hann bendir á að í boði séu mörg þúsund kílómetrar af hálendisvegum sem bjóði upp á marga möguleika og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vel sé hægt að njóta náttúrunnar án þess að vera í algeru návígi við einstaka staði: „Það er ekki lífs- spurning fyrir neinn.“ Stýring verndarsvæða nauðsynlegt tæki Nýting og aðgengi Tryggvi Felixson for- maður Landverndar segir eðlilegt að stýring fari fram í þjóðgörðum og á friðlendum. Morgunblaðið/Óttar Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.