Morgunblaðið - 14.08.2020, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert
Lögn Frá vinnu í desember síðast-
liðnum þegar lögnin fór í sundur.
Vinnu við endurnýjun hitaveitu-
stofnæðar á gatnamótum Bústaða-
vegar og Hringbrautar í Reykja-
vík miðar vel. Ólöf Snæhólm
Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi
Veitna, segir í samtali við Morg-
unblaðið að verkið sé á undan
áætlun og stefnt að verklokum í
næstu viku.
Lögnin, sem nefnist
Vesturbæjaræð, flytur heitt vatn
úr tönkum í Öskjuhlíð til íbúa í
vesturhluta borgarinnar.
Ákveðið var að ráðast í endur-
nýjun eftir að bilun kom upp í
lögninni í desember með þeim af-
leiðingum að rafmagn fór af
stórum hluta Vesturbæjarins.
Kom þá í ljós skemmd á stærri
hluta en gert var ráð fyrir. Vatn
hafði lekið ofan á lögnina úr um-
hverfinu og hún tærst að hluta.
Loka þurfti rampi frá Hringbraut
inn á Bústaðaveg um þriggja vikna
skeið í júlí meðan unnið var að
endurnýjun.
Framkvæmdum miðar vel
Vesturbæjarlögn endurnýjuð Verklok í næstu viku
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það hljóta einhverjar viðvörunar-
bjöllur að hringja þegar langvinsæl-
asti skemmtistaður landsins er kom-
inn í þessa stöðu,“ segir Þórður
Ágústsson, eigandi skemmtistaðar-
ins b5 í Bankastræti.
Kórónuveirufaraldurinn hefur
leikið rekstur staðarins grátt. B5 hef-
ur að mestu verið lokaður síðan í
mars. Tilslakanir á samkomubanni
hafa gagnast lítt enda gengur rekst-
urinn út á skemmtanahald eftir mið-
nætti um helgar. Fyrir vikið hefur
innkoma verið lítil sem engin.
„Staðan núna er þannig að ég er
búinn að segja upp öllu starfsfólki og
við höfum ekki getað borgað leigu
síðustu þrjá mánuði. Fyrirtækið hef-
ur klárað sína sjóði og ég hef sjálfur
sett fjármagn inn í reksturinn. Ég
stend nú frammi fyrir þeirri fárán-
legu spurningu hvort ég eigi að halda
áfram að ausa fjármunum inn í eitt-
hvert svarthol til að geta greitt fast-
eignafélaginu Eik leigu upp á von og
óvon um það hvort ástandið lagist.
Svarið er nei,“ segir Þórður. Morg-
unblaðið hefur áður fjallað um gagn-
rýni Þórðar og félaga á óbilgirni Eik-
ar en leigan á b5 hækkaði eftir að
kórónuveirufaraldurinn skall á og
nemur nú um 3,5 milljónum á mánuði.
Þórður kveðst styðja þær ráðstaf-
anir sem grípa hefur þurft til vegna
sóttvarna, til að mynda að loka
skemmtistöðum. Hann er hins vegar
ósáttur við þau úrræði sem standa
fyrirtæki hans til boða í núverandi
ástandi enda feli þau í sér lántöku.
„Hvers vegna á ég að skuldsetja
reksturinn til þess að færa fjármagn
til leigusala þegar framtíðarsýnin er
engin?“
Hann telur að yfirvöld þurfi að
koma til móts við fyrirtæki þegar að-
gerðir þeirra verða þess valdandi að
þau geta ekki starfað. Bjarni Bene-
diktsson, fjármála- og efnahagsráð-
herra, lýsti því einmitt yfir í viðtali við
mbl.is í sumar, í framhaldi af fréttum
af rekstri b5, að þeir rekstraraðilar
sem þurfi að sæta opinberum fyrir-
mælum um að loka rekstrinum eigi
að hans áliti sanngjarna kröfu um
stuðning vegna þess. Engar aðgerðir
í þá veru hafa þó verið kynntar og
kveðst Þórður óttast að tíminn sé á
þrotum.
„Yfirvöld hafa lokað fyrirtækinu
hjá mér. Þetta var gott fyrirtæki,
með frábæra sögu og í blússandi
rekstri. Hvers vegna fær til dæmis
leigufélagið að vera með algjörlega
frítt spil? Af hverju er það ekki skyld-
að til að taka líka á sig byrðarnar?
Það er erfitt að horfa fram á að þurfa
að búast við því að fyrirtækið endi í
höndum á einhverjum vildarvinum
leigusalans ef ekkert breytist á næst-
unni.“
Aðspurður segir Þórður að þrátt
fyrir erfiðleika hafi ýmsir sýnt
rekstrinum áhuga að undanförnu.
„Ég er bara að vinna að því hörðum
höndum að komast frá þessu með
sem minnstum skaða og án þess að
taka á mig frekari byrðar.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óvissa Lokað er á b5 og öllu starfsfólki staðarins hefur verið sagt upp.
Öllu starfsfólki
á b5 sagt upp
Eigandi ósáttur við úrræði yfirvalda
Kvennaathvarf verður opnað á Ak-
ureyri 28. ágúst. Fram kemur á vef
Akureyrar, að athvarfinu verður
ætlað að þjónusta konur og börn
sem geta ekki búið heima hjá sér
vegna ofbeldis.
Þjónustan verður viðbót við starf-
semi Bjarmahlíðar, sem hefur frá í
fyrra sinnt ýmiss konar þjónustu
við þolendur ofbeldis á Norðurlandi,
einkum með ráðgjöf og viðtölum.
Það eru Samtök um kvennaat-
hvarf og Bjarmahlíð sem standa að
opnun kvennaathvarfsins í sam-
starfi við sveitarfélög á svæðinu,
Aflið, ráðherra félagsmála og dóms-
mála.
Bæjarráð Akureyrarbæjar sam-
þykkti fyrr í sumar að styrkja starf-
semina með fjárframlagi.
Tilraunaverkefni til vors
Um er að ræða tilraunaverkefni
til vors, en aðstandendur kvenna-
athvarfsins telja að allar forsendur
séu fyrir rekstri athvarfs af þessu
tagi á Norðurlandi og gera ráð fyrir
að starfsemin sé komin til að vera.
Signý Valdimarsdóttir félagsráð-
gjafi hefur hafið störf sem verkefn-
isstýra nýja athvarfsins og vinnur
nú hörðum höndum að undirbúningi
opnunar þess.
Kvennaathvarf
opnað á Akureyri
Athvarf Kvennaathvarfið er opnað í
samstarfi við Bjarmahlíð sem hefur
aðsetur í Aðalstræti 14 á Akureyri.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Vefverslun
komin í loftið!
mostc.is
Gerið verðsamanburð
2000 kr
AGAR Í MÖST C !!!
2.000 kr.
Túnikur