Morgunblaðið - 14.08.2020, Side 15

Morgunblaðið - 14.08.2020, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 Kirkja Glæsilegur hundur í litríku umhverfi varði dyr kirkjunnar á Grund í Eyjafirði þegar ljósmyndara bar að garði. Kirkjan var byggð á árunum 1904 - 1905 og var hún friðuð árið 1978. Eggert Það ber oft við að stjórn- málamenn eru spurðir einfaldra spurninga á kosningafundum. Það er algeng spurning: „Hvað ætlar þú að gera fyrir gamla fólkið?“ Önnur einföld spurning er: „Hvað ætlar þú að gera fyrir unga fólkið?“ Einfalda svarið er að stjórnmálamenn gera ekkert fyrir nokkurn mann nema á kostnað einhverra annarra. Flókna svarið við fyrri spurningunni er að stjórn- málamenn geta skattlagt „ungt fólk“ til að ráðstafa andvirðinu til að greiða „gamla fólkinu“. Almannatryggingakerfið er að nokkru fjármagnað með launa- skatti, sem heitir trygginga- gjald. Það er nú 6,35% af greiddum launum og iðgjaldi í lífeyrissjóði. Til þess að gera eitthvað fyrir alla, þá er rétt að hækka erfðafjárskatt til að gera eitt- hvað fyrir „unga fólkið“. Réttlæti og jöfnuður Íslenskt lífeyriskerfi hefur ekki náð eilífum aldri. Það var tekin grundvallarákvörðun um það á árunum milli 1970 og 1980 að lífeyris- kerfið yrði kerfi með sjóðssöfnun en ekki gegnumstreymiskerfi. Með sjóðssöfnun er gert ráð fyrir því að hver lífeyrisþegi leggi í sjóð fyrir sig til elli- áranna. Með gegnumstreymiskerfi er gert ráð fyrir því að vinnandi fólk greiði fyrir þá sem eru á eftirlaunum. Gegnumstreymiskerfi, þar sem aldurs- dreifing er fullkomlega jöfn, er sennilega án mikilla vandamála. Þá er sennilega hægt að ná fullkomnum jöfnuði ef allir fá jafnar lífeyrisgreiðslur. Það kann að vera að ein- hverjum, sem hefur greitt mikið á langri starfsævi, þyki lítið réttlæti í því að fá jafn mikið og sá sem lítið hefur greitt á stuttri starfsævi. Vandamálið er að aldurs- dreifing er ekki jöfn Tilraun til uppsöfnunar lífeyris var lítt framkvæmanleg í mikilli verðbólgu, þótt lífeyrissjóðir hafi keypt verðtryggð ríkisskuldabréf í nokkru magni. Önnur útlán brunnu í verðbólgu. Fjárfesting í ríkisskuldabréfum eingöngu er í eðli sínu gegnumstreymiskerfi, þar sem komandi kynslóðir greiða lífeyri fyrir þá sem lokið hafa starfsævi, því á gjalddaga skuldabréfanna þarf hin vinnandi kynslóð að greiða bréfin og þann- ig að standa undir lífeyri. Verðtrygging fjárskuldbind- inga varð almenn til að tryggja lífeyrisréttindi þeirra sem ekki eru á eftirlaunareglu Lífeyris- sjóðs starfsmanna ríkisins, en þann halla greiða skattgreið- endur. Þann halla má líta á sem gegnumstreymiskerfi. Með uppsöfnun fær hver lífeyri í einhverju hlutfalli við það sem greitt hefur verið í lífeyrissjóð. Einhver kallar það réttlæti. En það er alls ekki jöfnuður. Hvernig hafa iðgjöld til lífeyrissjóða þróast? Iðgjöld til lífeyrissjóða eru seinkun á launagreiðslum. Í upphafi voru iðgjöld 4% af dagvinnulaunum auk 6% mótframlags at- vinnurekanda. Nú eru iðgjöld til lífeyrisjóða 4% framlag launþega og 11,5% mótframlag atvinnurekanda. Greitt er af öllum launum. Þetta eru framlög í samtryggingarsjóð líf- eyrissjóðs. Að auki geta launþegar og atvinnurek- endur samið um greiðslur í séreignalífeyris- sjóð fyrir launþega. Iðgjöld í séreignalífeyris- sjóð geta verið 4% frá launþega upp í 22% frá atvinnurekanda, í einstaka tilfellum þar sem starfsaldur er skertur. Af þessu sést að iðgjöld til lífeyrismála hafa þróast frá almannatryggingum til lífeyris- sjóða. Og unga fólkið á ekki að þurfa að borga meira í lífeyrisgreiðslur þeirra sem eldri eru. Almannatryggingar eru ein af fjórum stoð- um lífeyriskerfis, og í upphafi grunnstoðin. Hinar eru tvíþættur lífeyrissjóður og frjáls sparnaður. Endurskoðun almannatrygginga? Hrafn Magnússon, áður framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða, segir í athuga- semd á FB: Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að barátta eldri borgara fyrir bættum kjörum nái ekki fram að ganga nema með tilstuðlan aðila vinnu- markaðarins. Eitt fyrsta skrefið er að fram fari endurskoðun á almannatryggingakerfinu. Síðast þegar lögum um almannatryggingar var breytt haustið 2016 var það gert á þeim forsendum að nauðsynlegt væri að einfalda kerfið og sameina bótaflokka. Niður- staðan varð hins vegar sú að mínu mati að kerfið var gert sérstaklega ósanngjarnt gagnvart þorra landsmanna sem eiga réttindi hjá lífeyrissjóð- unum. Þannig var enginn greinarmunur gerður á lífeyrissjóðatekjum og öðrum tekjum gagnvart skerðingum. Grunnlífeyrir almannatrygginga var felldur niður, frítekjumörk nánast afmáð og stefnt að því að gera almannatryggingakerfið að eins konar fátæktarstofnun.“ Þegar lífeyriskerfi er byggt upp af nokkr- um þáttum, þá verður kerfið flókið. Við þetta bætist hugtakið tekjutrygging. Með tekju- tryggingu koma skerðingar á greiðslum úr al- mannatryggingum. Endurskoðun almanna- trygginga verður að hafa skýr markmið og sæmileg sátt verður að vera um ágallana, sem þarf að lagfæra. Það þarf rökstuðning fyrir skerðingum bóta almannatrygginga vegna: - Atvinnutekna - Fjáreignatekna - Tekna úr lífeyrissjóðum - Tekna úr séreignalífeyrissjóðum Sumir telja skerðingar ekki réttlátar en þær kunna að auka jöfnuð. Einnig þarf að huga að því hvort rétt sé að aðgreina örorkuþáttinn frá öðrum þáttum samtryggingar lífeyrissjóða. Almannatryggingar eru ekki fátæktar- stofnun. Almannatryggingar eru til að koma til móts við þá sem hafa af einhverjum ástæð- um ekki átt kost á að greiða í lífeyrissjóði til að afla sér réttinda eða njóta lélegra lífeyris- réttinda úr sjóðum sínum. Því miður er það enn svo, að margar konur, sem fóru seint á vinnumarkað, hafa léleg lífeyrisréttindi. Endurskoðun almannatrygginga þarf að beinast að þeim sem eru í þörf fyrir lífeyri en ekki að auka greiðslur til þeirra sem nú njóta ríkulegra lífeyrisréttinda eða eignatekna og þurfa ekki á stuðningi að halda. Skerðingar á greiðslum frá almannatryggingum með lög- unum frá 2016 miðuðu að þessu marki. Með því er unnt að huga betur að þeim sem á stuðningi þurfa að halda. Öryrkjar Þeir sem lenda á milli stafs og hurðar eru öryrkjar. Margir eru öryrkjar frá fæðingu og hafa aldrei möguleika á að afla sér tekna. Líf- eyrismál öryrkja og eldri borgara eru alltaf meðhöndluð saman, þó þau séu í eðli sínu ólík. Það á að skilja á milli allrar umfjöllunar um lífeyrisþega og öryrkja. Tilgangur lífeyrissjóða Það ber ávallt að hafa í huga að lífeyris- sjóðir hafa aðeins einn tilgang og hann er að greiða lífeyri eftir að starfsævi lýkur. Lífeyrissjóðir hafa alls ekki þann tilgang að standa undir hagvexti eða tryggja fulla at- vinnu. Hvað sagði skáldið? Eitt sinn orti Jón Helgason: Senn er þess von að úr sessinum mínum ég víki, senn skal mér stefnt inn í skugganna fjölmenna ríki, spyrji þá einhver hvar athafna minna sér staði er það í fáeinum línum á gulnuðu blaði. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Þegar lífeyr- iskerfi er byggt upp af nokkrum þátt- um, þá verður kerfið flókið. Við þetta bætist hugtakið tekju- trygging. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Almannatryggingar og almennar lífeyristryggingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.