Morgunblaðið - 14.08.2020, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 14.08.2020, Qupperneq 19
Elsku Bidda frænka, nú ertu farin frá okkur. Það verður tóm- legt að koma í Beinárgerði og þú ekki sitjandi við eldhúsbekkinn eins og amma forðum. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Óskars í sveitina. Við systkinin komum á hverju sumri til ömmu og afa en eftir að þau voru farin voru það Bidda og Óskar. Gott var að gista í Bein- árgerði, þar var alltaf opið hús fyrir gesti og gangandi. Þú varst svo barngóð og fengum við systur vanalega að sofa á gólfinu hjá rúminu þínu eða að kúra uppi í hjá þér meðan þú last, þú varst svo bókahneigð. Oft voru það bækur um ævi- minningar sem þú last eða bara Vikan. Þú varst ótrúlega fróð og minnug og elskaðir ættfræði. Það var ekki sjaldan að við sáttum langt fram eftir nóttu og spjöll- uðu um ættir og skoðuðum gaml- ar myndir. Þú hafðir gaman af að fá myndir af frændsystkinum þínum enda voru það einu skiptin sem ég lét framkalla myndir þeg- ar ég kom austur á sumrin til þín. Þegar mamma dó var ég aðeins 27 ára, var þá gott að eiga þig að, oft hringdi ég í þig á kvöldin bara til að spjalla og alltaf spurðir þú að því hvernig drengirnir hefðu það. Þú varst svo barngóð enda hændust börn að þér. Eftir að drengirnir mínir urðu fullorðnir komu þeir alltaf við hjá Biddu frænku og Óskari. Þú varst mikill dýravinur, varst tilbúin að taka að þér dýr og þá sérstaklega ketti ef þá vantaði heimili. Sófus og Gulli eiga eftir að sakna þess að fá klapp frá þér. Þegar ég hitti þig í júlí á Dyngju sagðir þú mér að dagarn- ir þar væru lengi að líða. Oh hvað mig langaði að fara með þig þá inn í Beinárgerði. En ég trúi því að þú sért farin að hitta ömmu, afa og mömmu á himnum og dagarnir séu ekki langir þar. Guð blessi þig, Bidda mín. Elsku Stebba, Lárus og Lea Birna, okkar samúðarkveðjur til ykkar og Óskars sem kveður systur sína sem hann er búinn að búa með alla sína ævi. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði’ og fyrirgaf þér. Hún ætíð er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan, sem ól þig og þér helgaði sitt líf. Með landnemum sigldi’hún um svarrandi haf. Hún sefaði harma. Hún vakti’er hún svaf. Hún þerraði tárin. Hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan, sem allt á að þakka vor þjóð. Ó! Hún var ambáttin hljóð. Hún var ástkonan rjóð. Hún var amma, svo fróð. Ó! Athvarf umrenningsins, inntak hjálpræðisins, líkn frá kyni til kyns. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkraði’og stritaði gleðisnauð ár. Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan, sem gefur þér allt sem hún á. Ó, hún er brúður sem skín! Hún er barnsmóðir þín eins og björt sólarsýn! Ó! Hún er ást, hrein og tær! Hún er alvaldi kær eins og Guðsmóðir skær! Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla’á fold. Þú veist, hver var skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin, hún sígur, og sólin, hún rís, og sjá: Þér við hlið er þín hamingjudís, sem ávallt er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf: Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og þér helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Ásta Margrét og fjölskylda. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020 þegar hún sá hann detta niður um gat í bryggju við heimilið. Hún stökk hiklaust í sjóinn og náði að halda drengnum uppi þar til hjálp barst. Erna fór í lýðháskóla í Dan- mörku og naut þess mjög að kynn- ast fólki og nýjum siðum. Með Við- ari eiginmanni sínum bjó hún lengst af á Akranesi með þrjá syni, Hákon, Sigurð og Elmar. Hún verður sjómannskona eins og mamma hennar. Á Ísafirði eignað- ist hún seinna Martin og fer síðar að starfa fyrir SÁÁ. Erna er sú manneskja sem mér finnst æ síðan hafa lifað samkvæmt æðruleysis- bæninni. Breytti því sem þurfti og sætti sig við það sem var óbreyt- anlegt. Hún varð geysilega sterk og áhrifarík kona. Á vegum SÁÁ fór hún til starfa í Færeyjum með Martin lítinn og ætlaði að vera fáa mánuði en hóf sambúð og gifti sig. Hún var gæfusöm í starfi og rak m.a. ráðgjafarstofu þar í nokkur ár. Hún var stöðugt að bæta við sig þekkingu og sótti fjölmörg nám- skeið, m.a. á Betty Ford-stofnun- inni í Bandaríkjunum. Hún mætti vinsemd og miklu þakklæti enda var hún mjög næm á samfélagið og tiltekna þöggun sem viðgekkst. Þegar hún varð aftur ein vann hún bæði hér og í Færeyjum og þar kynntist hún Herbein, eftirlifandi sambýlismanni sínum og sálu- félaga. Þau ákváðu fyrir nokkrum árum að búa hluta úr ári hér og í Færeyjum. Það var þeirra gæfa að kaupa hús á Selfossi með Soffíu og Elmari. Drengirnir hennar Ernu stóðu alltaf hjarta hennar næst og í dag er hugur minn hjá þeim og Herbein sem gerðu henni lífið ljúft á erfiðum tíma. Við Sverrir og fjöl- skyldan okkar vottum þeim og fjöl- skyldunni allri innilega samúð um leið og ég þakka Ernu minni djúpa vináttu og trúnað alla okkar tíð. Blessuð sé minning yndislegrar konu. Rannveig Guðmundsdóttir. Elsku besta vinkona mín og trausti trúnaðarvinur. Nú hefur þú kvatt okkur. Bar- áttan verið ströng en þú með þitt æðruleysi tókst á við þetta ástand eins og svo oft í lífinu. Við höfum verið vinkonur alla tíð, smástelpur í Brunngötunni, við vorum meira að segja látnar sofa saman í barnavagni. Mæður okkar alla tíð vinkonur þannig að við áttum í rauninni tvö heimili. Mér fannst nú skemmtilegra heima hjá þér, þar var alltaf líf og fjör, þú með tvo yngri bræður, Hemma og Stebba, sem mér leidd- ist ekki að snúast með en ég held að þú hafir oft verið fegin að sleppa við að passa þá. Svo komu ung- lingsárin, þú að æfa sund og ég handbolta, skólaböll og kærastar. Síðan fórum við að heiman, ég í nám og þú til útlanda. Svo líða árin, við bjuggum sín í hvorum lands- hluta eða landi en aldrei slitnaði strengurinn á milli okkar. Alltaf gat ég leitað stuðnings og ráða hjá þér og þú hjá mér. Það er nú þekkt hversu mörg- um þú hefur hjálpað að ná fótfestu í lífinu aftur. Svo kynntist þú hon- um Hebba þínum, það var mikil gæfa og hamingja, þið voruð svo góð saman, hann var kletturinn í lífi þínu og í þessum erfiðu veik- indum alltaf til staðar. Svo var gaman að sjá þegar við komum við á Selfossi hvað hann var mikill afi þegar Erna Huld og Vigdís Anna voru að skjótast niður til ömmu og afa. Mikið á ég eftir að sakna þín, fá símtöl frá þér sem byrjuðu alltaf „sæl elskan“. Elsku Hebbi minn, Hákon, Siggi Elmar, Matti og ykkar fjöl- skyldur, megi æðri máttur vernda ykkur og styrkja á þessum erfiðu tímum. Guð geymi þig, Erna mín. Þín Rannveig (Ranný). ✝ Kamilla Guð-brandsdóttir fæddist 29. ágúst 1926 í Ólafsvík. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík 14. júlí 2020. Foreldrar: Guð- brandur J. Guð- mundsson, f. 3.1. 1887 í Hjallabúð á Snæfellsnesi, d. 17.8. 1949, og Guðrún Árborg Sigurgeirsdóttir, f. 16.5. 1895 á Arnarstapa, d. 9.12. 1981. Bræður hennar: Guðmundur, f. 23.5. 1916, d. 27.11. 1916; Guð- mundur Aðalsteinn, f. 21.7. 1918, d. 3.2. 2011, kvæntur Maríu Unni Sveinsdóttur, f. 8.8. 1921, d. 18.9. 2007; Karl Óttar, f. 16.10. 1919, d. 22.2. 1979, kvæntur Guðrúnu Haralds- dóttur, f. 4.7. 1923, d. 6.3. 2015; Leó, f. 21.8. 1921, d. 2.5. 2008, kvæntur Helgu Kristínu Lárus- dóttur, f. 28.9. 1927, d. 15.6. 2015, og Svavar, f. 12.10. 1935, d. 2.6. 1996, kvæntur Ragnhildi Óskarsdóttur, f. 13.11. 1937. Fyrri maður: Einar Jens Hafberg, f. 10.7. 1927, d. 27.1. 2003. Foreldrar hans: Eng- ilbert Hafberg, f. 9.9. 1890, d. Kamilla eða Milla eins og hún var kölluð ólst upp í Flat- eyjarhúsi í Ólafsvík sem var henni kær. Hún fór ung til náms í Húsmæðraskólanum í Reykjavík og bjó hjá Stennu, móðursystur sinni og Vilhelmi Steinsen. Að námi loknu starf- aði hún í Laufahúsinu uns hún kynntist Einari Jens og eign- uðust þau dótturina Olgu. Þau ráku m.a. Hótel Búðir um sum- arskeið. Þá starfaði hún á Hressingarskálanum og í Val- höll á Þingvöllum, síðan í Skó- verzlun Lárusar G. Lúðvíks- sonar. Þaðan lá leiðin til Raf- magnsveitu Reykjavíkur og starfaði hún þar út starfs- ævina. Vorið 1994 slasaðist Milla á höfði. Við tók endur- hæfing, sem aldrei varð lokið. Hún sneri aftur til vinnu um hríð en hætti störfum 1995. Hún bjó m.a. á Vegamótum á Seltjarnarnesi við Ljós- vallagötu og Lynghaga en með síðari manni sínum lengst í Kríuhólum 4 í Breiðholti. Kamilla var kirkjurækin og trúuð og átti söngur ríkan þátt í lífi hennar. Hún söng með Kirkjukór Neskirkju eins lengi og aðstæður og röddin leyfði. Í síðari hjúskap sínum deildu hjónin áhugamálum með barnabörnunum, einkum útivist og skot- og stangveiði og vöktu áhuga þeirra. Útförin fer fram frá Nes- kirkju í dag, 14. ágúst 2020, klukkan 13. 1.11. 1949, og Olga M. Hafberg, f. 17.12. 1896, d. 18.9. 1930. Barn þeirra: Olga Haf- berg, f. 28.4. 1947, fyrri maður: Sig- urður Skúlason, f. 10.12. 1946, seinni maður: Björn Rögnvaldsson, f. 28.12. 1959. Synir Olgu og Sigurðar: Einar Skúli Hafberg, f. 1.10. 1969, og Hrannar Már Haf- berg, f. 15.12. 1974, sambýlis- kona Rebekka Helga Að- alsteinsdóttir. Börn Einars og Turid Hansen: Júlíanna Ósk, f. 31.7. 1992, og Svavar Skúli, f. 4.6. 1999. Þau skildu. Síðari maður: Guðmundur K Steinbach, f. 5.7. 1929, d. 12.3. 2019. Foreldrar hans: Kjartan Steinbach, f. 4.11. 1909, og Soffía L. Steinbach, f. 16.4. 1909. Dætur Guðmundar: Ragnhildur, f. 23.2. 1952, maki Einar Baldvin Stefánsson, son- ur þeirra Baldvin; og Auð- björg, f. 14.5. 1953, maki Krist- ján Loftsson, börn þeirra Guðmundur, Loftur og María. Langafabörn Guðmundar eru fjögur. Mig langar að minnast hennar Millu í örfáum orðum. Ég kynntist Millu þegar hún og pabbi minn hófu sambúð um 1970 og gengu þau í hjónaband 1985. Milla var einstaklega hóg- vær og kunni að halda sig til hlés í samskiptum við okkur systur en sýndi okkur samt ræktarsemi. Eftir að Milla kynntist pabba öðl- aðist hún nýtt líf, t.d. fór hún með pabba bæði í silungsveiði og lax- veiði og sagði hún margoft söguna þegar hún fékk maríulaxinn sinn. Milla lenti í bílslysi 1994 og þá má segja að mikil breyting hafi átt sér stað hjá Millu. Hún var lengi á gjörgæsludeild og síðar í endur- hæfingu á Grensásdeild og varð því miður aldrei söm eftir slysið. Með þrautseigju þeirra beggja náðu þau að sætta sig við breytt ástand og héldu áfram að veiða, ferðast og njóta lífsins. Fóru þau m.a. reglulega að Garda-vatni á Ítalíu, þar sem þau nutu sín alltaf vel. Eftir að pabbi varð langafi nutu þau Milla þess að hitta Guð- rúnu Lilju og Katrínu Hörpu nær vikulega í kaffi hjá mér þegar stelpurnar voru í heimsókn. Einn- ig komu þau oft í pönnukökukaffi. Guðlaug Kristín náði ekki að kynnast þeim, en þau voru þó við skírn hennar 10.3.2019, en pabbi lést 12.3.2019. Pabbi og Milla voru viðstödd ýmsa merkisviðburði í lífi barnabarna hans, hvort sem þeir ættu sér stað á Íslandi eða í öðrum löndum, m.a. brúðkaup og útskriftir í Bandaríkjunum. Nutu þau góðra stunda í þeim ferðum sem öðrum. Eftir að pabbi lést náði Milla að búa ein í nokkra mánuði og leit nágrannakona hennar, Guðrún, til Millu nær á hverju kvöldi og hafi hún þökk fyrir það. Hvíl í friði elsku Milla og takk fyrir samfylgdina. Auðbjörg (Ditta) og fjölskylda. Amma Milla Nú þegar ég kveð þig að sinni, elsku amma Milla mín, hellast minningarnar yfir mig. Þvílík for- réttindi og gæfa sem það var að vera þér samferða hér í fimmtíu ár. Sterkasta tilfinningin sem sit- ur eftir er kærleikurinn. Þú sýnd- ir og tjáðir mér hann alla tíð og kenndir mér hann. Þú uppfrædd- ir mig líka um kristna trú og kenndir mér að biðja bænir. Þeg- ar mér leið sem verst í uppvext- inum var það ljós þitt og tilvera sem hjálpaði mér í gegnum erf- iðustu tímabilin. Ég veit að þú veist allt þetta þrátt fyrir að ég hafi aldrei talað um það. Það hafði svo sterk áhrif á mig sem barn að uppgötva þessa sterku og ein- lægu tengingu okkar og finna það að þú vissir allt án þess að ég þyrfti að segja þér frá því. Á þínu heimili var ég alltaf í hávegum hafður og fékk alla þá umhyggju sem barn þráir, enda sótti ég mik- ið þangað. Þú vildir alltaf vera að gefa, helst allt sem þú áttir. Ef ég kom til ykkar um kvöld til að fá að gista án þess að hafa gert boð á undan mér var bara farið og verslað og slegið upp lítilli „veislu“. Minnisstæð eru matar- boðin hjá þér, ekki síst jólaboðin þar sem hin alkunna asparssúpa var í aðalhlutverki, hún er enn uppáhaldsmaturinn. Ég minnist allra innanlandsferðalaganna, allrar útiverunnar, útileganna, fjallgangnanna og ekki síst allra veiðiferðanna sem við fórum í með afa og fleiri fjölskyldumeð- limum eftir því sem árin liðu. En efst í huga mér eru hinar árlegu lóu-ferðir, þegar við fórum að leita að lóunni, gá hvort hún væri komin. Ég veit ekki hvort okkar var spenntara fyrir henni. Þá sungum við oft mikið, sérstaklega lóu-vísur. Þú kenndir mér að þekkja fuglana og virða náttúr- una í öllum þessum ferðum. Því miður náðu börnin mín ekki að kynnast þessari hlið á þér, enda var Svavar ekki fæddur og Júl- íanna aðeins tveggja ára þegar þú varðst fyrir slysinu. Ég er svo glaður fyrir þetta stutta mynd- símaspjall sem við áttum vikuna áður en þú kvaddir og við náðum að segja við hvort annað í síðasta sinn og sem ég geri að lokaorðum mínum til þín: „Mér þykir svo vænt um þig.“ Einar Skúli Hafberg. Það er með miklum söknuði sem ég kveð Kamillu föðursystur mína eða Millu eins og hún var alltaf kölluð en hún andaðist 14. júlí síðastliðinn, 93 ára gömul. Milla frænka var mér mjög kær og reyndist mér alla tíð mjög vel. Það var alltaf hægt að leita til hennar. Minningar mínar um hana eru bjartar og hlýjar. Hún er síðust systkinanna að kveðja. Þau voru fimm og hún var eina systirin og næstyngst. Steini var elstur, næstur kom Karl, síð- an Leó, þá Kamilla en Svavar var yngstur. Þau ólust upp í Flateyj- arhúsi í Ólafsvík. Milla fluttist ung til Reykjavíkur og það var alltaf tilhlökkun þegar hún kom í heimsókn til Ólafsvíkur með Olgu dóttur sinni. Þá var oft einhverju góðgæti gaukað að okkur systk- inunum. Ég minnist sumarsins sem hún og Einar eiginmaður hennar ráku Hótel Búðir. Þá var haldin svokölluð Búðahátíð. Það var mikið ævintýri að fara í heim- sókn að Búðum og hitta Millu frænku. Þá vann hún um tíma í skóverslun Lárusar G. Lúðvíks- sonar og mér fannst ævintýralegt að koma í búðina og sjá alla skóna. Milla var falleg og glæsileg kona og alltaf svo fallega klædd. Þegar við fjölskyldan frá Ólafs- vík komum til Reykjavíkur var alltaf sjálfsagt að hýsa allan mannskapinn og þá var oft gist á Lynghaganum. Þá var mikið talað og sagðar sögur. Eftir að Milla kynntist Guð- mundi seinni eiginmanni sínum fóru þau að ferðast um heiminn. Hún naut þess að sjá stórborgir og nýja staði og var gaman að heyra hana segja frá því sem fyrir augu bar. Hún stundaði líka stangveiði með eiginmanninum. Hún veiddi vel og hafði ávallt gaman af. Það hefur verið stutt í sjómannsblóðið hjá henni Millu frænku enda voru forfeður henn- ar sjómenn. Guðmundur andaðist á síðasta ári og síðustu mánuðina dvaldi Milla á hjúkrunarheimilinu Eiri. Milla lifði lífinu sem hún best gat, var alltaf jákvæð og upp- byggjandi. Að leiðarlokum þakka ég samverustundirnar og allt það góða sem hún gaf mér og ég mun alltaf geyma með mér. Hvíli hún í friði. Olgu og fjölskyldu hennar votta ég mína innilegustu samúð. Þín frænka, Ásta Lára. Elsku Milla mín, það koma svo margar myndir upp í hugann þegar ég hugsa til þín þessa dag- ana. Við kynntumst fyrir meira en hálfri öld í gegnum einkadótt- ur þína, Olgu, og sú vinátta hefur varað alla tíð síðan. Þær eru margar skemmtilegar minningar sem ég minnist frá Hörðalandinu í den þegar við þrjár vorum að bralla ýmislegt. Eins og þegar við Olga máluðum eldhúsinnrétt- inguna bleika og þú komst að okkur, horfðir yfir skvísueldhúsið og sagðir hissa: „Og hvað segja drengirnir við þessum stelpulit?“ Olga setti upp Kamillusvipinn og svaraði snöggt að hún ætti nú þessa íbúð og gæti gert það sem hún vildi með hana. Þú hlóst dátt því þú þekktir vel dóttur þína. Stundum var spáð í spil eða rætt um það sem var efst á baugi þá dagana. Það var líka alveg ótrú- lega gaman þegar við Olga buð- um ykkur mömmum okkar á kaffihús svo þið gætuð hist, það var mikil gleði og gaman þann daginn. Þú varst líka svo góð í að hjálpa okkur þegar við þurftum á aðstoð að halda við saumaskap og fleira, hvort sem það var fyrir okkur sjálfar eða krakkana. Elsku vinkona, ég er svo sann- arlega ríkari að hafa átt þig að og þakka þér alla þá ástúð og hlýju sem þú hefur gefið mér og börn- um mínum. Elsku Olga mín, Bjössi, Einar Skúli, Hrannar Már, Júlíanna Ósk, Svavar Skúli og Rebekka, innileg samúð frá okkur, munum að við eigum alltaf minningarnar til að hlýja okkur og gleðja. Þórdís Pétursdóttir. Kamilla Guðbrandsdóttir Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNA STEFÁNSDÓTTIR, Stína Valda, frá Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 31. júlí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey frá Landakirkju Vestmannaeyja. Aðstandendur þakka starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir ómetanlega hlýju og umönnun. Agnar Angantýsson Stefán Sigurþór Agnarsson Esther Birgisdóttir Angantýr Agnarsson Aðalheiður Birgisdóttir Birkir Agnarsson Inga Hrönn Guðlaugsdóttir Ester Agnarsdóttir Guðni Guðnason barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR RÚNAR ÓSKARSSON, löggiltur endurskoðandi, varð bráðkvaddur þriðjudaginn 11. ágúst. Ragnheiður H. Sigurðardóttir Kristján Guðmundsson Sigrún Hallgrímsdóttir Sigurður Guðmundsson Margrét María Grétarsdóttir Guðrún Inga Guðmundsd. og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.