Morgunblaðið - 14.08.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
BÍLASTÆÐALAUSNIR
Kantsteinarnir Langhólmi og Borgarhólmi
einfalda merkingu bílastæða
og afmörkun akstursleiða
60 ára Þorsteinn ólst
upp í Reykjavík, bjó um
árabil í Svíþjóð og er nú
búsettur í Kópavogi.
Hann lauk meistara-
gráðu í hagfræði frá Há-
skólanum í Lundi og er
deildarstjóri samskipta
og miðlunar hjá Hagstofu Íslands. Þor-
steinn hefur setið við taflborðið frá unga
aldri og er FIDE-skákmeistari.
Maki: Íris Gunnarsdóttir, f. 1961, bygg-
ingatæknifræðingur.
Börn: Sara Lillý, Aron Ellert, Daníel Máni
og Lena Sól. Barnabörnin eru Emilía Sól, f.
2015, og Óliver Máni, f. 2019, börn Lenu.
Foreldrar: Þorsteinn Ólason, f. 1930, d.
2009, rafvirki og Svala Nielsen, f. 1930, d.
2019.
Þorsteinn
Þorsteinsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hvað sem þú gerir, ertu í skapi til
að gera með stæl. Taktu þeim fagnandi því
allt er breytingum háð.
20. apríl - 20. maí
Naut Aðalverkefni dagsins felst í að leiða
fólkið - beina því í rétta átt, halda því við
áætlunina þína svo það átti sig á þinni sýn.
Hlustaðu ekki á umtal um fólk sem þú
þekkir engin deili á.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Notaðu daginn til þess að leggja
fyrir til mögru áranna. Að hafa of mikinn
tíma til þess að gera áætlanir er hættu-
legra en að fara af stað án ráðagerða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Eins og langflestir þekkir þú mun-
inn á góðu og illu. Varastu að láta von-
brigði þín bitna á öðrum og reyndu heldur
að sjá björtu hliðarnar á tilverunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það má margt læra af umhverfinu, ef
menn gefa sér til þess tíma og hafa augun
hjá sér. Breytt hugarfar kemur sér líka vel.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Gerðu ekki meiri kröfur til sjálfs þín
en þú ert fær um að standast. Ekki láta líf
annarra koma þér úr jafnvægi, þó að það
virðist fullkomið á yfirborðinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hunsaðu ekki reynslu þeirra sem hafa
gengið veginn á undan þér. Taktu til í
kringum þig svo að þér líði betur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vertu þolinmóður við ein-
hvern sem kann að fara í taugarnar á þér.
Eftir hressandi kaffibolla og morgun á
réttum vinnuhraða gæti verið að þú sjáir
vinnuna sem blessun en ekki byrði.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hvort sem þér líkar það betur
eða verr ertu öðrum fyrirmynd. Vertu eins
kurteis og þú getur við ástvinina.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er hætt við því að hug-
mynd þín um breytingar á heimilinu reyn-
ist kostnaðarsöm. Fólk af gagnstæðu kyni,
sýnir þér sérstakan áhuga.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér ætti að ganga flest í haginn
í dag. Láttu því draumana fara að rætast
því þú átt það svo skilið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fréttir af börnum í öðrum löndum
gætu haft áhrif á þig í dag. Betra er að
vera samkvæmur sjálfum sér þótt það
kosti sitt. Vertu svo trúr þinni sannfær-
ingu.
ég var dag og nótt í fjögur ár í frá-
bærum félagsskap og lærði helling.
Eftir útskrift fer ég svo að vinna á
Sjávarkjallaranum þar sem ég vinn
mig upp í að verða yfirkokkur og
kynnist þar meðeiganda mínum í
dag, honum Ágústi Reynissyni.“ Þau
opnuðu síðan saman Fiskmarkaðinn
í ágúst 2007 og Grillmarkaðinn í júlí
2011 ásamt Guðlaugi P. Frímanns-
syni. „Við erum líka með bar sem
heitir Skúli Craft bar og erum að
bralla alls konar saman en þetta er
svona okkar aðal, Fiskmarkaðurinn,
Grillmarkaðurinn og Skúli.“
staðaspítala. Ég byrjaði að skúra
skrifstofur læknanna því ég var of
ung til að vinna á deildunum þar sem
sjúklingarnir voru en um leið og mér
bauðst þá fór ég að vinna í bítibúrinu
þar sem var frábær vinna. Ég færði
mig svo nær bænum þegar það
bauðst og fór að vinna í bítibúri á
Landspítalanum við Hringbraut.
Þar vann ég á sumrin og svo með
skóla á veturna.
Vann bæði á gjörgæslunni og svo
hjartadeildinni ásamt fleiri deildum.
Svo fór ég á námssamning á gamla
Apótekinu hjá honum Guffa þar sem
H
refna Rósa Jóhanns-
dóttir Sætran er fædd
14. ágúst 1980 á
Landspítalanum kl.
8.03 í keisarafæðingu.
„Á þeim tíma bjuggum við í Gnoð-
arvoginum þar sem foreldrar pabba
míns og systkini bjuggu í kjallaran-
um og foreldrar mömmu minnar á
efri hæðinni þar sem við mamma og
pabbi vorum líka. Foreldrar mínir
kynnast sem sagt í þessu húsi þegar
þau voru 15 ára og eignast mig svo
þegar þau eru 25 ára.
Svo flytjum við í Breiðholtið og ég
er þar til tólf ára aldurs. Þaðan flytj-
um við í Grafarvoginn þar sem við
stoppum stutt áður en við flytjum í
miðbæinn þar sem ég hef búið allar
götur síðan. Barónsstígur, Njálsgata,
Grundarstígur, Brattagata, Sólvalla-
gata o.fl. og við fjölskyldan búum í
dag í Litla-Skerjafirði. Ég er mikil
Reykjavíkurmær og vil hvergi ann-
ars staðar búa þótt mér finnist mjög
gaman að ferðast innanlands og
erlendis.“
Hrefna var mikið í íþróttum og þá
aðallega dansi. Samkvæmisdansinn
var aðalmálið en hún æfði líka ballett,
jazzballett, steppdans, gömlu dans-
ana, hip hop dansa o.fl. „Ég byrjaði
fjögurra ára í dansi og í fyrstu keppn-
inni enduðum við í 2. sæti svo markið
var sett strax þar. Við urðum nokkr-
um sinnum Íslandsmeistarar og við
vorum alltaf á palli þar til ég hætti í
dansi. Við vorum líka með þeim
fyrstu til að keppa erlendis. Kepptum
í Black Pool og í Copenhagen open
þar sem gekk ágætlega.
Hrefna gekk í Seljaskóla, var síðan
í 8. og 9. bekk í Foldaskóla og svo 10.
bekk í Austurbæjarskóla. Hún kíkti
aðeins í Kvennaskólann en fór síðan í
grunnnám í hönnun í Iðnskólanum
og kláraði það en ákvað að fara í mat-
reiðslunám og útskrifaðist úr því frá
Hótel- og veitingaskólanum 2003.
Síðar tók hún meistaragráðu í mat-
reiðslu og lauk því námi 2013.
„Ég byrjaði að bera út blöð ung að
aldri. Svo fór ég í unglingavinnuna og
vann aðeins í fataverslun sem pabbi
minn var með en fékk bara borgað í
fötum sem ég fékk hvort sem er þótt
ég væri ekki að vinna hjá honum svo
ég hætti því og fór að vinna á Vífils-
Kokkalandsliðið og fleira
Þegar Hrefna var enn þá nemi
bauðst henni að vera aðstoðarmaður í
landsliði matreiðslumanna betur
þekkt sem kokkalandsliðið. „Ég hugs-
aði mig ekki tvisvar um og var með
þar líka dag og nótt á æfingum. Þegar
ég útskrifaðist bauðst mér svo að vera
fullgildur meðlimur sem ég er mjög
ánægð með. Á þeim tíma fór ég á Ól-
ympíuleikana 2004 og 2008 og heims-
meistaramótið 2006 og 2010 og feng-
um við nokkur gull og silfur í þeim
ferðum. Besti árangurinn þegar ég
var í liðinu var 7. sætið í heimsmeist-
arakeppninni en þegar ég byrjaði var
besti árangurinn 13. sæti. Í dag erum
við komin enn þá ofar.“
Hrefna hefur skrifað nokkrar mat-
reiðslubækur og sú nýjasta er Grill-
markaðurinn. Hún hefur líka gert
sjónvarpsþætti, gerði sjö þáttaraðir á
Skjá einum og grillþætti á Rúv. „Eitt
skemmtilegasta verkefnið sem ég hef
gert var Smakk Japan þar sem ég fór
með Hrafnhildi Gunnarsdóttur kvik-
myndagerðarkonu til Japans í þrjár
vikur þar sem við gerðum seríu um
líkindi Íslands og Japans. Það var al-
veg frábært. Svo hef ég verið í ís-
skápastríðinu með Evu Laufeyju,
Gumma Ben og Sigga Hall á Stöð 2 og
það var mikil skemmtun.“
Áhugamál Hrefnu eru margvísleg.
„Ég er þannig að ég tek eitthvað eitt
alveg fyrir og geri það endalaust þar
til ég legg það til hliðar og byrja á
nýju svo ég hef átt mörg áhugamál.
En það sem mér finnst alltaf
skemmtilegt er að hreyfa mig eitt-
hvað og núna er ég að ganga á fjöll,
lyfta og hjóla. Svo er ég í laxveiði sem
er skemmtilegt.
Mér finnst líka mjög gaman að
pæla í veitingastöðum og mat og nær-
ingu, hvað matur gerir fyrir líkamann
okkar og mig langar að stúdera það
frekar. Jafnvel læra meiri næring-
arfræði. Svo hef ég áhuga á ayurveda-
fræðunum og langar líka að stúdera
það frekar. Ég fór í jógakennaranám
líka og er kundalini-jógakennari sem
ég gríp dálítið í líka og nota dags dag-
lega. Ég hef kennt líka aðeins, bara
mér til gamans. Ég er sem sagt mikið
að læra og gera alls konar skemmti-
legt með því sem ég geri að atvinnu.“
Hrefna Sætran, veitingahúsaeigandi og kokkur – 40 ára
Heima í Litla-Skerjafirði Hrefna, Bertram Skuggi og Björn en dóttirin
Hrafnhildur Skugga gaf ekki kost á myndatöku.
Brallar alls konar með vinnunni
Kokkalandsliðið Hrefna ásamt félögum sínum að fagna gullverðlaununum
í flokknum Heitur matur á Ólympíuleikunum árið 2008.
50 ára Árni ólst upp á
Hvolsvelli, var í námi í
Danmörku í fjögur ár
en býr í Reykjavík.
Hann er með meist-
aragráðu í rafmagns-
verkfræði frá Háskól-
anum í Álaborg og er
verkefnastjori nýframkvæmda hjá Lands-
neti. Árni spilar golf og fótbolta, var í
stjórn Golfklúbbs Hellu en er núna í Golf-
klúbbi Reykjavíkur.
Maki: Guðlaug Sigurðardóttir, f. 1973,
grunnskólakennari.
Börn: Elínborg, Sæmundur, Arnór Veigar
og Klemenz.
Foreldrar: Sæmundur Árnason, f. 1946,
og Anna Sigurveig Sæmundsdóttir, f.
1938, búsett á Hvolsvelli.
Árni
Sæmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is