Morgunblaðið - 14.08.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 2020
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit:
RB Leipzig – Atlético Madríd..................2:1
Leipzig áfram í undanúrslit og mætir
París Saint-Germain.
Pólland
Bikarkeppni, 32-liða úrslit:
Górnik Zabrze – Jagiellonia .................. 3:1
Böðvar Böðvarsson var allan tímann á
varamannabekk Jagiellonia.
Katar
Al Sailiya – Al-Arabi ............................... 1:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar
liðið.
Svíþjóð
AIK – Östersund ...................................... 0:1
Kolbeinn Sigþórsson lék seinni hálfleik-
inn með AIK.
Norrköping – Hammarby....................... 1:2
Ísak B. Jóhannesson kom inn á sem
varamaður á 66. mínútu hjá Norrköping.
Aron Jóhannsson lék fyrstu 58 mínút-
urnar hjá Hammarby.
Varberg – Häcken ................................... 1:3
Oskar Tor Sverrisson var ekki í leik-
mannahópi Häcken.
Staðan:
Malmö 15 10 4 1 31:13 34
Elfsborg 15 8 6 1 27:20 30
Djurgården 15 8 2 5 22:15 26
Norrköping 15 7 4 4 32:22 25
Häcken 15 6 6 3 27:16 24
Hammarby 15 6 5 4 18:18 23
Sirius 15 5 7 3 27:25 22
Mjällby 15 5 4 6 18:23 19
Varberg 15 4 5 6 22:23 17
Örebro 15 4 5 6 15:18 17
Gautaborg 15 2 9 4 17:22 15
Östersund 15 3 6 6 12:18 15
Kalmar 15 3 4 8 17:23 13
AIK 15 3 4 8 13:23 13
Helsingborg 15 2 7 6 14:25 13
Falkenberg 15 2 6 7 17:25 12
Houston – Indiana.............................104:108
Philadelphia – Toronto .....................121:125
Oklahoma – Miami ...........................116:115
Denver – LA Clippers ......................111:124
Boston – Washington ........................... 90:96
LA Lakers – Sacramento ................ 122:136
Knattspyrnu-
deild HK hefur
gengið frá láns-
samningi við
danska miðvörð-
inn Martin
Rauschenberg
frá Stjörnunni og
verður hann hjá
Kópavogsliðinu
út tímabilið.
Rauschenberg,
sem er 28 ára, varð Íslandsmeistari
með Stjörnunni 2014. Hjá HK hittir
hann fyrir samherja úr því liði,
Hörð Árnason. Þá hefur Daninn
einnig leikið í Danmörku og Sví-
þjóð en hann lék með sænsku lið-
unum Brommapojkarna og Gefle
eftir fyrri dvölina hjá Stjörnunni.
Daninn hefur hins vegar ekkert
spilað með Stjörnunni í Pepsi Max-
deildinni í leiktíðinni og aðeins
komið við sögu í einum bikarleik. Á
síðasta tímabili lék hann aftur á
móti 19 leiki með Garðabæjarliðinu
í deildinni. Hefur Rauschenberg
alls leikið 61 leik í efstu deild hér á
landi og skorað í þeim tvö mörk.
HK er í níunda sæti Pepsi Max-
deildarinnar, þremur stigum fyrir
ofan fallsætin. Hefur sumarið verið
nokkuð sveiflukennt hjá liðinu því
HK hefur lagt bæði KR og Breiða-
blik að velli. HK mætir Fjölni á
heimavelli á sunnudaginn kemur.
Úr Garðabæ
í Kópavoginn
Martin
Rauschenberg
KNATTSPYRNA
Pepsí Max deild karla:
Meistaravellir: KR – FH ...........................18
Samsungvöllurinn: Stjarnan – Grótta.19:15
Lengjudeild karla:
Framvöllur: Fram – ÍBV...........................18
2. deild karla:
Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – KF ...............18
Vogaídýfuvöllur: Þróttur V. – Víðir..........19
Ásvellir: Haukar – Njarðvík.................19:15
2. deild kvenna:
Sindravellir: Sindri – ÍR ............................19
Í KVÖLD!
var en týndi eiginlega síðasta árið.
Það heillaði mig hvað mest en auk
þess er þetta stórt félag sem ætti að
vera í efstu deild í Danmörku. Ég tel
að þetta sé góður tímapunktur til að
koma til Esbjerg og taka þátt í upp-
byggingunni,“ sagði Andri og þegar
hann vissi af áhuga Ólafs þá skoðaði
hann lítið aðra möguleika.
„Ég fór ekki í aðrar viðræður vegna
þess að mér leist vel á Esbjerg. Það
getur verið að mér hefði boðist eitt-
hvað annars staðar á Norðurlönd-
unum en það náði alla vega ekki til
mín. Eftir að ég hitti Óla þá fannst
mér þetta spennandi og ákvað þá að
koma hingað,“ sagði Andri en hann
hafði lokið fyrstu æfingu sinni með
danska liðinu þegar Morgunblaðið
spjallaði við hann.
Fær tíma til undirbúnings
Andra gefst ágætur tími til að
undirbúa sig fyrir tímabilið og læra
inn á liðsfélagana.
„Já tímabilið hefst 13. september
og ég er byrjaður að vinna í því að
snúa aftur á völlinn. Ég er ánægður
með að hafa mánuð til að koma mér
inn í hlutina innan vallar og koma mér
fyrir utan vallar. Ég er alveg heill og
hef verið allt þetta ár,“ sagði Andri
sem sló í gegn fyrir alvöru sumarið
2017 þegar hann skoraði 19 mörk fyrir
Grindavík á Íslandsmótinu og jafnaði
markamet Péturs Péturssonar í efstu
deild á Íslandi eins og þeir Guðmund-
ur Torfason, Þórður Guðjónsson og
Tryggvi Guðmundsson höfðu áður
gert. Þá lá leiðin til Helsingborgar þar
sem Andri hélt áfram að skora fyrir
sænska liðið í b-deildinni þar í landi. Í
Þýskalandi komst hann hins vegar
aldrei í stuð og eftir þjálfaraskipti hjá
þýska félaginu fækkaði tækifærum
hans þar.
Fór á æfingar hjá Breiðabliki
Andri hefur ekki leikið áður undir
stjórn Ólafs Kristjánssonar og segist
lítið hafa þekkt hann persónulega.
Fyrir áratug síðan fór Andri þó á æf-
ingu hjá Breiðabliki.
„Ég þekkti Óla nefnilega voðalega
lítið. Ég fór á nokkrar æfingar hjá
Breiðabliki þegar tímabilinu var að
ljúka árið 2010 og Óli var þá nýbúinn
að gera þá að Íslandsmeisturum. Ég
hafði varla hitt hann síðan þá,“ sagði
Andri Rúnar Bjarnason í samtali við
Morgunblaðið en þá hafði hann farið
upp úr c-deild í b-deild með BÍ/
Bolungarvík og var farinn að vekja
athygli annarra íslenskra liða.
Sýn Ólafs hafði
áhrif á ákvörðun
Andra Rúnars
Andri segist síðasta árið hafa týnt
leikmanninum sem hann var orðinn
Morgunblaðið/Stella Andrea
Markheppinn Andri Rúnar Bjarnason með gullskóinn haustið 2017. Hann
ætlar nú að finna sitt fyrra form fyrir framan markið í Danmörku.
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Bolvíkingurinn Andri Rúnar Bjarna-
son færði sig á dögunum frá Þýska-
landi til Danmerkur. Gerði hann
tveggja ára samning við Esbjerg sem
leikur í dönsku b-deildinni í knatt-
spyrnu. Andri mun leika undir stjórn
landa síns, Ólafs Kristjánssonar, sem
nýlega sagði upp störfum hjá FH til
að taka við Esbjerg.
Andri verður þrítugur í nóvember
og þarf að komast í leikæfingu á ný
eftir að hafa kynnst mótlæti í atvinnu-
mennskunni í Þýskalandi. Hann fékk
ekki stórt hlutverk hjá Kaiserslautern
í þýsku c-deildinni og félagið var tilbú-
ið að leyfa honum að róa á önnur mið.
„Það var í raun vilji beggja aðila að
ég færi annað. Kaiserslautern og
Esbjerg gerðu svo samkomulag sín á
milli,“ sagði Andri þegar Morgun-
blaðið hafði samband við hann en
Andri átti ár eftir af samningi sínum
við Kaiserslautern.
„Það sem heillaði mig mest við
Esbjerg var sýn Óla [Ólafs Kristjáns-
sonar knattspyrnustjóra] og hvernig
hann sér fyrir sér að ég komi inn í þær
áætlanir. Hann lýsti því hvaða hug-
myndir hann hefur fyrir liðið. Við er-
um sammála um að ég þurfi að vinna í
að finna aftur þann leikmann sem ég
Fyrsta tímabil þýska liðsins Leipzig
í Meistaradeild Evrópu í fótbolta
verður eftirminnilegt en liðið
tryggði sér sæti í undanúrslitum
með 2:1-sigri á Atlético Madrid frá
Spáni í gærkvöld.
Bandaríski varamaðurinn Tyler
Adams skoraði sigurmarkið á 88.
mínútu, stundarfjórðungi eftir að
hann kom inn á. Hinn 33 ára gamli
Julian Nagelsmann er yngsti stjór-
inn í sögu keppninnar til að komast
í undanúrslit. Leipzig mætir Frakk-
landsmeisturum PSG í undan-
úrslitum á þriðjudaginn kemur.
Leipzig í undan-
úrslit í fyrsta sinn
AFP
Undanúrslit Tyler Adams skorar
sigurmarkið í gærkvöldi.
Kolbeinn Sigþórsson sneri aftur á
fótboltavöllinn er AIK mætti Öster-
sund í sænsku úrvalsdeildinni í fót-
bolta í gær. Kolbeinn kom inn á sem
varamaður í hálfleik en tókst ekki
að koma í veg fyrir 0:1-tap á heima-
velli. Kolbeinn lék síðast með liðinu
2. júlí. Kolbeinn hefur mikið glímt
við meiðsli síðustu ár og ekki kom-
ist almennilega af stað með AIK á
leiktíðinni. Liðið er í 14. sæti af 16
liðum með 13 stig, sem eru gríð-
arleg vonbrigði þar á bæ, enda liðið
þekktara fyrir að blanda sér í topp-
baráttu. johanningi@mbl.is
Kolbeinn sneri
aftur á völlinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leikfær Kolbeinn Sigþórsson lék
með AIK í Svíþjóð í gær.
Íslandsmót karla og kvenna í knatt-
spyrnu hefur loks göngu sína á ný í
kvöld eftir rúmlega tveggja vikna
hlé. Stöðva þurfti mótið í lok júlí í
kjölfar hertra aðgerða stjórnvalda
til að sporna við kórónuveirunni sem
aftur var farin að dreifa sér um land-
ið en yfirvöld hafa nú aflétt megin-
reglunni um nálægðartakmörkun
milli íþróttafólks.
Engir áhorfendur verða þó leyfðir
fyrst um sinn. Allir leikir verða fyrir
luktum dyrum um helgina og þurfa
félögin, leikmenn og starfsmenn að
fylgja ströngum reglum um sótt-
varnir. Knattspyrnusamband Ís-
lands hefur unnið ítarlegar reglur
um framkvæmd æfinga og leikja
með tilliti til sóttvarnaaðgerða. Nú
reynir á hreyfinguna og þurfa allir
innan hennar að snúa saman bökum
og sýna að knattspyrnufólk sé
traustsins vert. Íslandsmótið má
ekki við frekari frestunum.
Tvær umferðir um helgina
Alls eru ellefu leikir á dagskrá um
helgina í efstu deildum, heil umferð
hjá bæði körlum og konum. Mótið
hefst aftur á stórleik KR og FH í
Pepsi Max-deild karla í Frostaskjóli
klukkan 18 í kvöld. Íslandsmeistarar
KR hafa ekki spilað síðan þeir unnu
Fjölni í bikarkeppni KSÍ 30. júlí,
eins og FH sem sló Þór út úr keppni.
Þá er heppilegt að leikurinn fari
fram, sér í lagi fyrir KR-inga, sem
eiga að mæta skosku meisturunum í
Celtic í fyrstu umferð Meist-
aradeildar Evrópu í næstu umferð.
Slíkt verkefni er nógu erfitt fyrir og
því ágætt að Vesturbæingar verði í
einhverju leikformi. Stjarnan og
Grótta mætast sömuleiðis í kvöld og
svo fara tveir leikir fram á morgun,
ÍA - Fylkir og Valur - KA. Karla-
deildinni lýkur svo á sunnudag með
viðureignum HK og Fjölnis og Vík-
inga úr Reykjavík sem taka á móti
Breiðabliki.
Á sunnudaginn fer svo fram heil
umferð í Pepsi Max-deild kvenna en
ekkert hefur verið leikið síðan í lok
júlí. Íslandsmeistarar Vals heim-
sækja KR í Reykjavíkurslag og
ósigrað topplið Breiðabliks sækir
FH heim í Hafnarfjörðinn. Nýliðar
Þróttar úr Reykjavík taka á móti
ÍBV, Selfoss og Fylkir mætast í slag
um þriðja sætið og Stjarnan fær
Þór/KA í heimsókn.
kristoferk@mbl.is
Íslandsmótið fyrir luktum dyrum
KR og FH mætast í Vesturbænum í kvöld Konurnar leika á sunnudaginn
Morgunblaðið/Golli
Áhorfendur Rólegra verður yfir stúkunni á KR-vellinum í kvöld en hér sést.