Morgunblaðið - 14.08.2020, Page 32

Morgunblaðið - 14.08.2020, Page 32
Lokatónleikar sumardagskrár Jazzklúbbsins Múlans fara fram í kvöld kl. 20 í Flóa á jarðhæð Hörpu. Á þeim leikur Karl orgeltríó ásamt söngkonunni Rakel Sigurðardóttur. Karl orgeltríó er skipað Karli Olgeirs- syni organista, Ásgeiri Ásgeirssyni gítarleikara og Ólafi Hólm trommuleikara. Hefur tríóið allt frá stofnun 2013 leikið eins konar blöndu djass- og popptónlistar og blandað saman nýju og gömlu. Karl orgeltríó leikur á lokatón- leikum sumardagskrár Múlans FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 227. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Þetta er búið að vera á borðinu síðan í janúar, þá hafði St. Mirren fyrst áhuga á mér, en þá endaði ég á því að fara til Fleetwood. Þeir sýndu mér svo aftur áhuga fyrir þetta tímabil og ég ákvað að slá til. Ég vissi í rauninni ekki mikið um liðið og skosku úrvalsdeildina en það var einn leikmaður úr Norwich hjá St. Mirren á síðustu leik- tíð og hann talaði vel um klúbbinn, fékk mikinn spila- tíma og gaf þessu góð meðmæli,“ segir hinn 19 ára gamli Ísak Snær Þorvaldsson m.a. í samtali við Morg- unblaðið í dag en hann er á láni hjá St. Mirren. »27 Líst vel á sig í Skotlandi eftir að hafa verið lánaður frá Norwich ÍÞRÓTTIR MENNING Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég er farinn að kunna betur og bet- ur við mig í þessu hlutverki. Ég viðurkenni að fyrst um sinn var ég á báðum áttum en síðasta hálfa árið hefur mér líkað þetta sífellt betur,“ segir Hrafnkell Freyr Ágústsson knattspyrnusérfræðingur. Hrafnkell hefur getið sér gott orð í hlaðvarpsþætti Hjörvars Hafliða- sonar, Dr. Football. Hlaðvarpið nýt- ur mikilla vinsælda og víðtæk þekk- ing Hrafnkels hefur komið mörgum á óvart. Virðist hann þekkja hvert skref á ferli jafnvel minnstu spá- manna og fátt fer fram hjá honum. Hrafnkell hefur verið viðloðandi Dr. Football frá upphafi hlaðvarps- ins fyrir tveimur árum en kom inn af fullum krafti síðasta vor. „Ég hef þekkt Hjörvar lengi og hann veit hversu vel ég fylgist með,“ segir Hrafnkell sem starfar sem málari á daginn. Þegar hann er spurður um það hversu vel hann fylgist með fót- bolta hefst löng upptalning. „Ég myndi segja að ég fylgist með öllum deildum á Íslandi af einhverju viti; Pepsi Max, Lengjudeildinni og ann- arri og þriðju. Svo er ég sjálfur að leika mér í fjórðu deildinni. Ég fylg- ist auðvitað líka með kvennadeild- unum, Pepsi Max og Lengjudeild.“ Þetta hljómar eins og ærinn starfi en Hrafnkell er einnig vel með á nót- unum í Evrópuboltanum. „Já, eins og flestir Íslendingar fylgist ég með enska boltanum. Ég er líka alveg inni í ítalska og spænska og svo fylg- ist ég með hollenska boltanum. Ég datt inn í hann þegar Jóhann Berg vinur minn spilaði með AZ Alkma- ar.“ Hrafnkell segir að fótboltaáhug- inn hafi komið snemma og hann fór strax að grúska. „Amma mín gaf okkur bræðrunum alltaf Íslenska knattspyrnu eftir Víði Sigurðsson í jólagjöf. Við lágum yfir bókunum yf- ir jólin og urðum fótboltanördar.“ Auk þess að fara mikið á leiki seg- ist Hrafnkell horfa á fótbolta í sjón- varpinu og á Youtube-rásum félaga. „Áhuginn er stundum aðeins of mik- ill, ég sökkvi mér stundum fullmikið ofan í þetta. Það sést til dæmis á því þegar maður er farinn að horfa á suma leikina tvisvar.“ Hrafnkell er 29 ára og lék með öll- um yngri flokkum Breiðabliks auk þess að spila með yngri landsliðum. Hann á að baki leiki í meistaraflokki með Hamri/Hveragerði og Augna- bliki en spilar núna með Smára í fjórðu deild. „Ég var alveg ágætur í fótbolta en ég held að ég hafi ekki haft drif- kraftinn til að verða fótboltamaður. Mér fannst ekkert geggjað að æfa og hafði meiri áhuga á að spila eða fylgjast með,“ segir Hrafnkell sem fór snemma út í þjálfun hjá yngri flokkum Breiðabliks. „Ég mun þjálfa aftur einhvern daginn, hvort sem það verður í yngri flokkum eða meistaraflokki.“ Morgunblaðið/Eggert Einbeittur Hrafnkell Freyr Ágústsson er málari á daginn en kafar ofan í fótboltafræðin á kvöldin. Sökkvi mér stundum fullmikið ofan í þetta  Hrafnkell Freyr slær í gegn í hlaðvarpi Dr. Football

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.