Morgunblaðið - 19.08.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.08.2020, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 9. Á G Ú S T 2 0 2 0 Stofnað 1913  194. tölublað  108. árgangur  SAMBAND TÖLVULEIKJA OG TÓNLISTAR 17 ÁRA OG SLÆR Í GEGN MIKIL AUKNING Í NETVERSLUN MILLI ÁRA CECILÍA RÁN 22 VIÐSKIPTAMOGGINNSECRETS OF TONALITY 24 Farþegum sem koma til Íslands býðst áfram að velja 14 daga sóttkví í stað skimunar, þvert á til- lögu sóttvarnalæknis. Sóttvarna- læknir mat það svo að ekki ætti að gefa einstak- lingum kost á 14 daga sóttkví við komuna til lands- ins. Þess í stað ætti að skylda alla í sýnatöku. Þetta kemur fram í minnis- blaði sem sótt- varnalæknir sendi heilbrigðisráð- herra. Í minnisblaðinu segir að um 2.000 einstaklingar, eða um 1% allra ferðamanna frá 15. júní, hafi valið að fara í sóttkví umfram sýna- töku. Nokkrum sinnum hafi komið upp sú staða að einstaklingar hafi valið að fara í sóttkví sem þeir hafi síðan ekki haldið. Í nokkrum til- fellum hafi komið í ljós að einstak- lingar hafi verið smitaðir af CO- VID-19 og jafnvel dreift smiti til annarra á þeim tíma sem þeir áttu að vera í sóttkví. Skoða hækkun sektarfjárhæða Í tilkynningu Stjórnarráðsins vegna þeirra reglna sem tóku gildi á miðnætti segir hins vegar að ákveðið hafi verið að halda áfram að bjóða fólki val um 14 daga sóttkví í stað skimunar en bregðast við tillögu sóttvarnalæknis hvað það varðar með auknu eftirliti til að tryggja að þeir sem velji þennan kost fari að reglum. Enn fremur sé til skoðunar að hækka sektarfjár- hæðir við brotum á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim. Mælti gegn 14 daga sóttkví  Stjórnvöld hyggjast herða eftirlit Þórólfur Guðnason Aron Þórður Albertsson Baldur Arnarson Hertar sóttvarnir vegna kórónuveir- unnar hafa þegar haft áhrif á tekjur og væntingar í ferðaþjónustu. Þráinn Lárusson, eigandi Hótels Hallormsstaðar og Hótels Vala- skjálfar, segir afbókanir hafa hrannast inn síðustu daga. „Við höfum fengið mörg hundruð afbókanir. Við þurfum bara að skella í lás,“ segir Þráinn sem ráðgerir að á sjötta tug starfsfólks verði sagt upp vegna samdráttar. Skoða að fella niður flug Hjá ferðaskrifstofunni Úrvali-Útsýn er til skoðunar hvort fella eigi niður flug á vegum fyrirtækisins. Að sögn Þórunnar Reynisdóttur, forstjóra ferðaskrifstofunnar, munu hertar að- gerðir á landamærunum hafa talsverð áhrif á reksturinn. Bjarni Jónsson, eigandi Nordic Store-keðjunnar ásamt Hafsteini Guð- bjartssyni, reiknar með að þurfa að loka verslunum keðjunnar um mán- aðamótin og segja öllum upp. Nordic Store-keðjan er með nokkrar verslanir í miðborginni. Þá má nefna að bakaríi Jóa Fel í Borgartúni verði lokað vegna minnkandi eftirspurnar í hagkerfinu. Lilja Björk Einarsdóttir, banka- stjóri Landsbankans, segir þá fyrstu sem sóttu um greiðslufrest, einstak- linga og fyrirtæki, munu ljúka honum í september. Þá þurfi bankinn að fara að vinna með þeim aðilum. Viðkvæm fyrir áfalli Margir þeirra eru í ferðaþjónustu. „Mörg fyrirtækin voru að skila góð- um rekstri og sum hver voru mjög sterk en þetta er grein í uppbyggingu og þannig eiga þau erfiðara með að taka við áfalli sem þessu,“ segir Lilja Björk um stöðu fyrirtækjanna. Ragnar Árnason, prófessor í hag- fræði við Háskóla Íslands, segir brýnt að bera saman kosti þess að endurreisa ferðaþjónustuna við aðra kosti við end- urreisn efnahagslífsins. Meta þurfi áhættuna og hagsmunirnir séu miklir. Spár um fækkun ferða- manna þegar haft áhrif  Ferðir afbókaðar  Verslunum lokað  Fresti að ljúka Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Í Austurstræti Áformað er að loka öllum verslunum Nordic Store. M »ViðskiptaMogginn Ævinlega er hægt að treysta á að Íslendingar nýti sér veður- blíðuna þegar hennar nýtur við og var það raunin á sólríkum degi á höfuðborgarsvæðinu í gær. Fjöldi fólks flykktist í Nauthólsvík, en ekki er annað að sjá af ljósmynd ljósmyndara Morgunblaðsins en að fjarlægðartakmörk hafi verið í háveg- um höfð meðal gesta baðstrandarinnar. Hiti fór í 18 stig í Reykjavík í gær, en útlitið er ekki eins gott í dag og næstu daga. Í dag er von á rigningu eða súld suð- vestanlands, en styttir upp í kvöld. Hiti verður 8 til 16 stig. Morgunblaðið/Eggert Fjölmenni á baðströnd í veðurblíðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.