Morgunblaðið - 19.08.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.08.2020, Blaðsíða 11
AFP Landsfundur Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú, flutti ræðu á lands- fundinum, sem nú fer fram á netinu og réðst þar að forsetatíð Trumps. Donald Trump Bandaríkjaforseti beindi í gær spjótum reiði sinnar að Michelle Obama, fyrrverandi for- setafrú, en hún var aðalræðumaður kvöldsins á landsfundi Demókrata- flokksins í fyrrinótt. Einkenndist fyrsta kvöld fundarins einkum af hörðum árásum demókrata á feril Trumps sem forseta, auk þess sem repúblikaninn John Kasich nýtti tækifærið til þess að lýsa yfir stuðn- ingi sínum við Joe Biden, forsetaefni demókrata. Trump sagði hins vegar við frétta- menn í Hvíta húsinu að ræða Obama hefði verið til þess fallin að auka á misklíð milli Bandaríkjamanna. Sagði hann jafnframt að eiginmaður hennar hefði staðið sig illa sem forseti. „Í sannleika sagt, þá væri ég ekki hér, ef ekki væri fyrir Barack Obama,“ sagði Trump. „Ég væri að reisa byggingar og skemmta mér.“ Trump lét einnig í sér heyra á sam- skiptamiðlinum Twitter og gagn- rýndi þar meðal annars Kasich fyrir slælegan feril sem ríkisstjóri í Ohio. Þá ítrekaði Trump andstöðu sína við að forsetakosningarnar færu fram í auknum mæli utan kjörfundar. Vísaði í orð forsetans Obama hvatti Bandaríkjamenn í ræðu sinni til þess að fylkja sér á bak við Joe Biden, fyrrverandi varafor- seta í tíð eiginmanns hennar, þar sem Biden yrði treystandi til þess að segja sannleikann og treysta vísindamönn- um í baráttunni gegn kórónuveirunni. Sjaldgæft er að fyrrverandi for- setafrúr láti að sér kveða með viðlíka hætti í kosningabaráttu, og sagði Obama að Bandaríkjamenn vissu að hún hefði ímugust á stjórnmálum. Hins vegar væri ljóst að Trump væri ekki vandanum vaxinn. „Hann getur einfaldlega ekki verið sá forseti sem við þurfum á að halda. Þannig er það nú bara,“ sagði Obama, en síðustu fimm orðin voru bein vísun í orð Trumps í nýlegu viðtali, þar sem hann þótti ekki sýna nægilega nær- gætni gagnvart þeim, sem hafa látist af völdum kórónuveirunnar í Banda- ríkjunum. Tefldi Bandaríkjunum í hættu Njósnanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings sendi í gær frá sér skýrslu, þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að Paul Manafort, kosn- ingastjóri forsetaframboðs Trumps árið 2016 hefði í „fjölmörg skipti“ deilt upplýsingum um kosningabar- áttuna með Konstantín Kilimník, liðs- foringja í leyniþjónustu rússneska hersins, og um leið teflt öryggishags- munum Bandaríkjanna í brýna hættu. Sagði í niðurstöðu nefndarinnar að tilgangur funda Manaforts með Ki- limník væri ekki ljós, en að þeir hefðu átt sér stað á sama tíma og aðilar tengdir rússnesku leyniþjónustum hefðu hafið herferð á samfélagsmiðl- um til stuðnings Trump í kosninga- baráttunni. Skýrsla nefndarinnar er enda- punktur þriggja ára rannsóknar og skrifuðu fulltrúar beggja flokka undir niðurstöður hennar. Skýrslan þykir vera að miklu leyti samhljóma þeim niðurstöðum sem Robert Mueller, sérstakur saksóknari, komst að, en hann rannsakaði sérstaklega sam- skipti framboðsins og Rússa, án þess þó að finna saknæm tengsl. Manafort var rekinn frá framboð- inu um þremur mánuðum fyrir kosn- ingarnar, og hann var dæmdur í sjö og hálfs árs fangelsi fyrir skattalaga- brot sem komu í ljós við rannsókn Muellers, en brotin tengdust ekki störfum hans fyrir Trump. sgs@mbl.is Deildu hart á forseta- tíð Donalds Trump  Manafort sagður hafa deilt upplýsingum með Rússum FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020 Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 Við kynnum • Spennandi nýjungar í Les Beiges línunni - Fljótandi highlighter og augnskugga • Hydra Beauty Camellian Repair Mask - Andlitsmaska í Hydra Beauty rakalínunni sem nærir, verndar, þéttir og róar húðina. CHANEL KYNNING í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ 19. til 21. ágúst Gréta Boða verður á staðnum og veitir faglega ráðgjöf 20% afsláttur af CHANEL vörum kynningardagana Verið velkomin Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Forsvarsmenn Evrópusambandsins hvöttu í gær Vladimír Pútín Rúss- landsforseta, sem er nánasti banda- maður Alexanders Lúkasjenkós, forseta Hvíta-Rússlands, til þess að beita sér fyrir viðræðum milli Lúk- asjenkós og stjórnarandstöðunnar. Fjölmenn mótmæli voru á götum Minsk og annarra borga Hvíta- Rússlands í gær, tíunda daginn í röð eftir að niðurstöður forseta- kosninganna þar í landi lágu fyrir. Mótmælendur komu meðal ann- ars saman fyrir utan fangelsi í Minsk þar sem stjórnarandstæðing- urinn Sergei Tikhanovsky er í haldi, en hann var handtekinn í að- draganda forsetakosninganna ásamt öðrum mögulegum mótfram- bjóðendum Lúkasjenkós. Tikha- novsky hélt í gær upp á 42 ára af- mæli sitt, og sungu mótmælendur afmælissönginn honum til heiðurs og kröfðust þess að öllum stjórn- arandstæðingum yrði sleppt úr haldi sem fyrst. Sergei er eiginmaður Svetlönu Tikhanovskaya, sem fékk að bjóða sig fram gegn Lúkasjenkó, en hún er nú í útlegð í Litháen vegna ástandsins í landinu. Hún sendi frá sér afmæliskveðju í gær og sagði eiginmann sinn sitja inni fyrir glæpi sem hann framdi ekki. „Þessi augljósa lögleysa og órétt- læti sýnir hvernig þetta rotna kerfi virkar, þar sem ein manneskja ræð- ur öllu, manneskjan sem hefur haldið landinu í ótta í 26 ár, ein manneskja sem hefur svipt Hvít- Rússa vali sínu,“ sagði Tikha- novskaya í afmæliskveðjunni. Lúkasjenkó sakaði í gær stjórnarandstöðuna um að reyna valdarán eftir að helstu leiðtogar hennar mynduðu með sér sérstakt samhæfingarráð vegna mótmæl- anna. Sagði Lúkasjenkó að hvít- rússnesk stjórnvöld myndu grípa til allra viðeigandi aðgerða gegn þeim sem tækju sæti í ráðinu. Þá sakaði Lúkasjenkó stjórnar- andstöðuna um að vilja slíta öll tengsl við Rússland, helsta banda- mann Hvíta-Rússlands, og um leið slíta sambandi ríkjanna. Þá sagði Lúkasjenkó stjórnarandstöðuna vilja takmarka réttindi rússnesku- mælandi fólks innan Hvíta-Rúss- lands. Inngrip talin „óásættanleg“ Charles Michel, forseti leiðtoga- ráðs Evrópusambandsins, ræddi við Pútín Rússlandsforseta símleiðis í gær og sagði að eina lausnin á þeim vanda sem nú væri kominn upp væri í gegnum viðræður stjórnar og stjórnarandstöðu. Angela Merkel Þýskalandskanslari og Emmanuel Macron Frakklandsforseti ræddu einnig við Pútín í gær og báru hon- um sömu skilaboð. Í yfirlýsingu rússneskra stjórn- valda um samtölin kom fram að Pútín lagði áherslu á að hann teldi að inngrip annarra ríkja í ástandið yrðu „óásættanleg,“ en Rússar hafa gefið til kynna að þeir séu reiðu- búnir til þess að grípa inn í ef þörf krefur, en Rússar og Hvít-Rússar eru saman í hernaðarbandalagi ásamt fjórum öðrum fyrrverandi Sovétlýðveldum. Ekki er hins vegar talið ljóst hversu mikinn stuðning Lúkasjenkó sjálfur á meðal stjórn- valda í Rússlandi. Vilja að Pútín ýti á um lausn  Mótmælt tíunda daginn í röð í Hvíta-Rússlandi  Lúkasjenkó sakar stjórnar- andstöðuna um valdaránstilraun  Pútín varar við inngripum annarra ríkja AFP Mótmæli Stjórnarandstæðingar komu saman við fangelsið þar sem Sergei Tikhanovsky er í haldi og kröfðust þess að honum yrði sleppt tafarlaust. Ibrahim Boubac- ar Keita, forseti Malí, og Boubou Cisse forsætis- ráðherra voru í gær teknir hönd- um af hópi her- manna, sem gert hafði uppreisn gegn yfirboð- urum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá valdaræningjunum voru forsetinn og ráðherrann hand- teknir í embættisbústað forsetans í höfuðborginni Bamako. Valdaránið hófst í herstöð í borg- inni Kati, sem er í nágrenni Bamako, og ræddi Emmanuel Macron Frakk- landsforseti fyrr um daginn við Keita og leiðtoga annarra ríkja í vesturhluta Afríku. Lýsti Macron yf- ir stuðningi sínum við tilraunir ríkja- sambandsins ECOWAS til að lægja öldurnar með viðræðum, en sam- bandið hvatti hermennina til að snúa aftur til herstöðva sinna. Mikið óvissuástand hefur ríkt að undanförnu í landinu og hafa fjöl- menn mótmæli verið haldin gegn ríkisstjórn Keita. Hermenn gerðu uppreisn  Forseti Malí í haldi valdaræningjanna Ibrahim Boubacar Keita

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.