Morgunblaðið - 19.08.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Raðauglýsingar
Árskógar Hádegismatur kl. 11.30–13. Stiklur kl. 13. Kaffisala kl. 14.45–
15.30. Allir velkomnir í Félagsstarfið, s. 411-2600.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffi og spjall kl. 8.50. Frjálst í
Listasmiðju kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Hlátur og húmor kl.
13. Síðdegiskaffi kl. 14.30. Við vinnum áfram eftir samfélagssáttmál-
anum, þvo og spritta hendur, virða 2 metra regluna. Allir velkomnir
óháð aldri og búsetu. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Garðabær Jónshús, félags- og íþróttastarf, s. 512-1501. Opið í Jóns-
húsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að
panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu
er selt frá kl. 13.45-15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Göngu-
hópur fer frá Smiðju kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur 13-16.
Korpúlfar Gönguhópur kl. 10, gengið frá Borgum, ganga við allra
hæfi og gleðileg samvera. Morgunleikfimi útvarpsins er á hverjum
degi kl. 9.45 í Borgum. Heitt kaffi á könnunni alla daga og gaman að
sjá sem flesta.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag verður bókband í smiðju 1. hæðar
fyrir og eftir hádegi. Kl. 9 verður postulínsmálun í handavinnustofu.
Hreyfiteymi okkar verður svo með jafnvægisþjálfun kl. 10.30-11.30.
Verið öll velkomin til okkar á Lindargötu 59.
Seltjarnarnes Botsía á Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum kl.
10.30. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Ath. nk. mánudag, 24.
ágúst, hefjast námskeiðin í leir og gleri og og einnig hefjast jóga-
tímarnir og handavinnan í salnum á Skólabraut nk. mánudag.
Viðhöldum 2ja metra regluna, handþvott og sprittun.
Félagsstarf eldri borgara
Smáauglýsingar
Bækur
Bækur til sölu
Ódáðahraun 1-3, Skotveiðar í
Íslenskri náttúru, Skaftfellskar
þjóðsögur og sagnir, Íslensk
bygging, Stjórnartíðindi 1885-
2000, ib., 130 bindi, Súgfirðinga-
bók, Bergsætt 1-3, Íslandsár-
bækur Espolins, 1. útg., Old
nordisk ordbog, Erik Jonson,
1863, Kollsvíkurætt, Gestur vest-
firðingur 1-5, Ættarskrá Bjarna
Hermannssonar, Manntalið
1703, gott band m. kápu
Uppl. í síma 898 9475
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílar
Nýr 2020 Renault Master L2H2.
Sjálfskiptur. 150 hestöfl. 2 x
hliðarhurð.
Kæddur innan. Dráttarkrókur.
923.000 undir listaverði.
Okkar verð: 4.990.000,- án vsk.
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur, laga
ryðbletti á þökum
og tek að mér
ýmis smærri verk.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Vantar þig
smið?
FINNA.is
✝ Ólöf Stein-arsdóttir fædd-
ist á Ísafirði 5. júní
1932, lést í Reykja-
vík 30. júlí 2020.
Foreldrar hennar
voru Steinar Steins-
son skipasmiður, f.
4.10. 1905, d. 22.8.
1967 og Katrín El-
ísabet Halldórs-
dóttir, húsmóðir og
saumakona, f. 10.12.
1900, d. 11.10. 1986. Systkini
Ólafar voru: María Jóhanna, f.
26.6. 1926, d. 10.11. 2001, Helga,
Már, f. 14. 6. 1955, kona hans
Sigríður Ólafsdóttir, f. 17.3.
1955, börn þeirra: Pétur Bjarki,
f. 1979, Agnes Ólöf, f. 1987.
Voru langömmubörn orðin 7.
Ólöf starfaði lengstum við
umönnun barna, fyrst á Vöggu-
stofu Thorvaldsen við Dalbraut
og síðar á Vistheimili barna
Hraunbergi 15 allt til starfsloka.
Ólöf vann að félagsmálum, með-
al annars í Verkakvennafélag-
inu Sókn, hún var trún-
aðarmaður á sínum vinnustað
og starfaði í Menningar- og
friðarsamtökum íslenskra
kvenna, MFÍK, og fór á ráð-
stefnur erlendis á þeirra vegum.
Útför hennar hefur farið
fram.
f. 20.5. 1934, Hall-
dór Trausti, f. 9.3.
1936, d. 1.12. 1979,
Steinunn Lilja, f.
23.6. 1940, d. 29.8.
2014. Ólöf var gift
Pétri Pálssyni, f.
28.11. 1931, d.
28.6. 1979. Börn
þeirra: Steinar, f.
29.9. 1952, d. 1.3.
2013, kona hans
Sylviane Pét-
ursson Lecoultre, f. 20.1 1953,
börn þeirra: Axel, f. 1981, Elín,
f. 1983, Matthías, f. 1987. Pétur
Móður minning
Undir iljum
ögn moldar
þú sem yljuð
varst lífi
líkn sólar
og handa.
Úr und
hefur dreifst
út um moldina:
blómum ....
(Pétur Pálsson)
Mamma mín!
ég þekki ekki lífið án þín
þú hefur alltaf verið í því
umvefjandi, elskuleg, hjálpsöm,
ráðleggjandi, styrkjandi, ýtin,
glettin, hláturmild, jafnlynd
og alltaf, alltaf til staðar.
Nú verð ég að vera til án þín
ég er þakklát og auðmjúk
söknuðurinn er sannur
þegar ég hugsa um atgervi
þitt, nærveru, hlýju,
veikleika og styrkleika,
það er engin eins og þú
Það er bara til ein mamma.
(Elísabet Pétursdóttir)
Kom, huggari, mig hugga þú,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin,
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árin.
(Valdimar Briem)
Elísabet Pétursdóttir
Elsku amma.
Það er erfiðara en orð fá lýst
að horfast í augu við það að við
höfum kvaðst í seinasta sinn.
Nú eru minningarnar það sem
við eigum eftir og þú sást til
þess að nóg er til af skemmti-
legum og góðum minningum.
Minningum af ömmu sem alltaf
var til staðar, tilbúin til að
hlusta og veita ráð. Ömmu sem
hafði góðan húmor og átti það
jafnvel til að verða stríðin ef
þannig var lundin. Ömmu sem
var umhugað um okkar ham-
ingju og spurði því reglulega
hvort maður væri ekki ánægð-
ur með lífið og hvort makar
okkar hugsuðu ekki vel um
okkur – því við ættum allt það
besta skilið.
Við þökkum fyrir öll árin
sem við fengum að eiga saman.
Takk fyrir allt, amma mín.
Djúp og varanleg vinátta
er dýrmætari
en veraldlegar viðurkenningar,
og allt heimsins gull og silfur.
Henni þarf ekki endilega alltaf
að fylgja svo mörg orð
heldur gagnkvæmt traust
og raunveruleg umhyggja.
Kærleikur,
sem ekki yfirgefur.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Elín og Matthías.
Elsku amma.
Ég á óteljandi minningar um
þig og hef ég dvalið við þær
eftir að ég fékk að vita að þú
hefðir kvatt þennan heim. Ein
var mér ofarlega í huga og
ákvað ég því að skrifa hana nið-
ur.
Mér líður eins og sé á sólar-
strönd, allur sveittur. Ég hendi
af mér sænginni og segi upp-
hátt: „svakalega er heitt í þess-
ari íbúð!“ Pendúllinn í stofu-
klukkunni slær taktfast eins og
taktmælir… og svo slær hún –
þvílík læti.
Það er ekkert annað í stöð-
unni en að vakna og fara á fæt-
ur 1-2 og 4. Svo rúlla ég upp
einhverju rúllugluggatjaldi og
stari út í grátt veður og smá
súld. Að því búnu fer ég út úr
herberginu og þar strax á
ganginum blasir við mér bros-
mildasta og ljúfasta manneskja
sem ég þekki, oftast með vara-
lit og smá farða en ekki í þetta
skiptið.
Bara gráblár náttsloppur,
permanent og inniskór. „Góðan
daginn,“ segir amma brosandi
og segir mér að setjast við eld-
húsborðið. Útvarpið er í gangi
og heyri ég í ljúfri tónlist.
Amma kemur með hafragraut
með rúsínum, ristað brauð með
banana og ekki má gleyma
þorskalýsinu. „Verði þér að
góðu,“ segir hún. Og ég svara:
„Takk amma mín.“ Takk fyr-
ir allt!
Mér tregt er um orð til að þakka
þér,
hvað þú hefur alla tíð verið mér.
Í munann fram myndir streyma.
Hver einasta minning er björt og
blíð,
og bros þitt mun fylgja mér alla
tíð,
unz hittumst við aftur heima.
(Hugrún)
Axel.
Elskuleg móðursystir mín
Ólöf Steinarsdóttir, Lóló, hefur
kvatt þetta jarðlíf, en hún lést
þann 30. júlí sl.
Lóló var samofin mínu lífi
því hún og mamma voru sam-
rýmdar systur, töluðu saman í
síma nærri daglega og hittust
oft, enda var það henni þung-
bært þegar litla systir hennar
dó fyrir 6 árum. Ég á margar
góðar minningar tengdar Lóló
frænku bæði frá barnæskunni
og hin seinni ár en kannski
standa upp úr minningar um
þessar góðu samverustundir í
eldhúsinu heima í Hraunbæn-
um þar sem ég fékk oft tæki-
færi til að sitja með þeim systr-
um yfir kaffibolla og
kræsingum og þá var spjallað
um ýmis málefni og rifjaðar
upp æskuminningar frá Ísa-
firði.
Lóló var dugmikil kjarna-
kona sem vann alla tíð fyrir sér
og fjölskyldunni og það varð
hennar ævistarf að hugsa um
og hlúa að börnum, fyrst á
vöggustofu Thorvaldsens og
síðar á Hraunberginu. Hún fór
allra sinna ferða með almenn-
ingssamgöngum eða gangandi
og hreyfði sig mikið og það hef-
ur örugglega haft sitt að segja
því hún var alla tíð heilsuhraust
þar til núna allra síðustu miss-
eri þegar halla tók undan fæti.
Hún hafði listræna hæfileika,
málaði myndir, lærði m.a. list-
málun í Myndlistaskóla Reykja-
víkur og fór á mörg námskeið
því tengd, gerði fallega hluti úr
leir og tré og stundaði gler-
útskurð hin seinni ár. Eftir
hana liggja mörg falleg lista-
verk sem prýða heimilið. Einn-
ig hafði hún gaman af að
syngja og spilaði þá stundum
undir á gítarinn. Hún var alltaf
vel tilhöfð og fínt klædd, með
varalitinn sinn og stóru fallegu
eyrnalokkana, sem hún átti nóg
af til skiptanna. Lóló var alltaf
jákvæð og létt í skapi og tilbúin
í grín og glens og þau eru ófá
skiptin þar sem mikið var hleg-
ið þegar komið var saman.
Það var alltaf gott að hringja
í elsku Lóló eða hitta hana og
spjalla.
Hún sýndi mér og mínum
umhyggju, vildi vita hvað væri
að gerast í mínu lífi og fylgdist
vel með barnabörnunum mínum
og var mér mikill stuðningur
eftir að mamma dó. Ég á eftir
að sakna kærleiksríkrar
frænku og alls þessa tíma sem
var, en allar góðu minningarnar
eru ómetanlegar.
Að leiðarlokum vil ég þakka
elsku frænku minni fyrir sam-
fylgdina í gegnum lífið og allt
það sem hún hefur gefið mér
og óska henni góðrar ferðar inn
í sumarlandið þar sem ég veit
að vel verður tekið á móti henni
af ástvinum sem á undan eru
farnir.
Elsku Ellý, sem hefur verið
mömmu sinni stoð og stytta og
hugsað um hana nótt og dag í
veikindunum, Pétri Má, Sirrý,
Sylviane, barnabörnunum
hennar og barnabarnabörnum
og fjölskyldunni allri sendi ég
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Sigrún.
Nú er elsku Lóló frænka far-
in frá okkur. Elskuleg móður-
systir mín sem sannarlega hef-
ur verið ein af fyrirmyndunum
í mínu lífi.
Lóló var sönn kjarnakona
sem lét sér fátt fyrir brjósti
brenna. Hún var þrautseig,
ráðagóð, jákvæð og lífsglöð
kona.
Afar réttsýn og lét sig menn
og málefni varða, að allir sætu
við sama borð. Kvenréttindi
voru henni ofarlega í huga, sem
og jöfn kjör allra stétta.
Lóló var líka svo skemmtileg
frænka, með henni fylgdi alltaf
ferskur andblær og drifkraftur,
það var alltaf fjör í kringum
hana.
Það hentaði henni svo sann-
arlega ekki að sitja kyrr og láta
sér leiðast.
Mér eru minnisstæðar ótal
samverustundir í bernsku og
fram á fullorðinsár, meðal ann-
ars eftirminnilegt ferðalag
kringum landið þar sem ung-
lingnum mér fannst það heldur
betur lífga upp á ferðina þegar
Lóló frænka slóst í för með
okkur fjölskyldunni.
Lóló hefur alltaf verið tákn-
mynd hinnar sjálfstæðu sterku
konu sem var umhugað um að
njóta þess sem lífið hafði upp á
að bjóða. En hún hafði líka
unnið fyrir því, skilað sínu til
samfélagsins með störfum sín-
um í þágu barna og fjölskyldna.
Hún sinnti sínum störfum af
mikilli samviskusemi, alúð og
áhuga.
Lóló hugsaði líka um sína.
Hún hlúði vel að börnum og
barnabörnum og alltaf mundi
hún eftir að hringja í frænku á
afmælisdaginn.
Það var alltaf notalegt að fá
símtal frá Lóló frænku, en nú
verða þau víst ekki fleiri.
Elsku Lóló takk fyrir allt,
þín verður saknað. Innilegar
samúðarkveðjur til ykkar elsku
Ellý, Pétur Már, Sirrý, Syl-
viane og fjölskyldur.
Sólrún Helga
Ingibergsdóttir.
Ólöf Steinarsdóttir
Minningarvefur á mbl.is
Minningar
og andlát
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr
að andlátum og útförum. Þar eru birtar
andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar
sem eru aðgengilegar öllum en auk þess
geta áskrifendur lesið minningargreinar
á vefnum.
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát
ber að höndum og aðrar gagnlegar
við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát