Morgunblaðið - 19.08.2020, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2020
Bíldshöfða 16 - 110 Reykjavík - 414-8400 - www.batik.is - www.martex.is
VINNUFATNAÐUR
MERKINGAR
Vöruhönnuðurinn Valdís Stein-
arsdóttir hlýtur sænsku hönnunar-
verðlaunin Formex Nova í ár fyrir
verkefni sín Bioplastic Skin og Just
Bones. Greint var frá þessu í gær-
morgun og segir í tilkynningu að
dómnefndin hrósi Valdísi sérstak-
lega fyrir metnað sinn þegar kemur
að því að hanna einstakar lausnir á
samfélags- og umhverfislegum
vandamálum í opnu samtali við
áhorfendur.
Formex Nova-verðlaunin voru af-
hent fyrst fyrir fimm árum í tengsl-
um við Formex-hönnunarsýninguna
í Stokkhólmi sem hefur það að
markmiði að kynna og efla norræna
hönnun. Verðlaunin beina sjónum
sínum að ungum hönnuðum sem
vinna á Norðurlöndunum, segir í til-
kynningu og meðal þeirra sem hafa
hlotið tilnefningu eru Ragna Ragn-
arsdóttir sem einnig vann verðlaun-
in árið 2018 og í fyrra var vöru-
hönnuðurinn Theodóra
Alfreðsdóttir tilnefnd.
Framleiðsluferlið fallegt
„Fyrir mig verður hlutur fallegur
um leið og ég veit söguna á bak við
og skil dýpri meiningu hans. Fram-
leiðsluferlið finnst mér fallegt. Það
er ekkert að því að búa til hluti ein-
ungis út frá fagurfræðilegum for-
sendum en sjálf vil ég nýta mér það
að við sem hönnuðir höfum mikil
áhrif á samfélagið og það má segja
að við séum sögumenn okkar tíma,
sem getum með áþreifanlegum
hætti beint sjónum að samfélags-
legum vandamálum,“ segir Valdís í
viðtali í tengslum við Formex sem
finna má á mynewsdesk.com/se/
stockholmsmassan.
Valdís hefur vakið mikla athygli
sem hönnuður og sýndi Just Bones í
Hafnarhúsinu á HönnunarMars nú í
júní auk þess sem hún hannaði
verkið Torg í speglun með Arnari
Inga Viðarssyni, sem opnað var á
hátíðinni og stendur nú á Lækj-
artorgi.
Verðlaunuð Valdís Steinarsdóttir
vöruhönnuður hlýtur Formex Nova.
Valdís hlýtur
Formex Nova
Virt, sænsk hönnunarverðlaun
Sýning Sólveigar
Hólmarsdóttur,
Upprisa, var
opnuð í Galleríi
Fold um helgina.
Um sýninguna
segir í tilkynn-
ingu að hún
myndgeri hin
ýmsu uppgjör og
leiðir sem Sól-
veig hefur þurft
að feta í lífinu. „Dauðsföll, sorg og
gleði eru partur af þrautum lífsins
og óhjákvæmilegur hluti af því. Til-
finningar sem minna á martröð
geta stundum falið í sér töfra ef
þeim er gefinn gaumur og rými.
Þegar lífið heldur áfram leynast oft
meiri töfrar og fallegri tilfinningar
undir þeim erfiðu og sáru en nokk-
urn óraði fyrir,“ segir um sýn-
inguna og að Sólveig hafi unnið
mikið með keramik undanfarin ár
og skapað undraheim sem verurnar
hennar tilheyri. Nýlega fór hún aft-
ur að mála og hafa verur hennar
fengið aðra birtingarmynd.
Myndgerir hin
ýmsu uppgjör
Hluti verks á sýn-
ingu Sólveigar
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Óvenjuleg tónlistarupplifun verður í
boði annað kvöld, fimmtudaginn 20.
ágúst, þegar verkið Chamber Music
III: Secrets of Tonality eftir tón-
skáldið Pétur Eggertsson verður
flutt. Milli kl. 18 og 21 fá áhugasamir
aðgang að tónleikum í stafrænni ver-
öld þar sem finna má lifandi hljóð-
færaleikara í gegnum fjarfunda-
búnað. Verkið er hluti af vefdagskrá
Íslandsdeildar Ung Nordisk Musik, í
tengslum við sumarviðburðinn Ögn-
un.
Verkið fellur vel að ástandinu sem
hefur skapast í kófinu, þar sem lista-
menn hafa þurft að finna ýmsar raf-
rænar lausnir. Vinnan að því var þó
hafin áður en faraldurinn varð mikið
áhyggjuefni hér á landi. Þegar Pétur
hóf að semja verkið í janúar var kom-
in upp hugmynd um að búa til verk
þar sem „áhorfendur gætu í auknum
mæli fengið útrás fyrir eigin hegðun
innan tónleikarýmisins,“ eins og
hann orðar það. Það átti að byggja á
hugmyndinni um tölvuleik án þess þó
að um eiginlegan tölvuleik væri að
ræða. „Mér fannst tölvuleikjavett-
vangurinn spennandi fyrir tónverk,“
segir Pétur og nefnir að hann henti
vel fyrir félagslega tilraun á borð við
þá sem hann vildi ná fram.
„Mjög skemmtileg lausn“
Frumflytja átti verkið á tónleik-
unum Ögnun í Tjarnarbíói í júlí á
þessu ári. Það hefði getað komið til
þess að tónleikunum yrði streymt en
verk Péturs er ekki til þess fallið svo
hann varð að finna aðra leið til þess
að flytja verkið rafrænt. „Það var
bara best að breyta þessu í tölvuleik,
eins og fyrirmyndin var. Það var
mjög skemmtileg lausn,“ segir tón-
skáldið.
Pétur fékk Donnu Hermannsdótt-
ur til liðs við sig. Hún hannaði og for-
ritaði tölvuleikinn sem hýsir tón-
verkið sem verður fyrir bragðið
gagnvirkt. „Það er leið fyrir áhorf-
endurna að stýra framvindunni hjá
sér og leið til þess að hver áhorfandi
fái sína einstöku upplifun af verk-
inu,“ segir Pétur.
Flytjendur verksins, sem eru níu,
verða á bak við vefmyndavélar og
áhorfendur fá einkatónleika í 90 sek-
úndur í senn. Hljóðfæraleikararnir
lesa síðan í áhorfendurna í gegnum
vefmyndavél; hvernig manneskjan
lítur út, hagar sér og klæðir sig, og
spila eftir því. „Ég er búin að skrifa
út nótur fyrir flytjendurna. Þau
þurfa að vera vakandi fyrir mann-
eskjunni og hvað hún er að bauka og
eru hver með sinn lykilinn yfir það
hvaða nótur þau eiga að spila hverju
sinni.“
Áhorfendurnir geta þannig haft
áhrif á tónlistina en það er undir því
komið að þeir átti sig á því hvernig
þeir gera það. „Fólk getur freistað
þess að fá verðlaunapening fyrir
hegðun sína meðan það horfir á verk-
ið,“ skýrir Pétur. Í hefðbundnum
tölvuleikjum þarf maður oftar en
ekki að leysa einhver verkefni, sem
gefur aðgang að næsta rými. Pétur
segir það vera fyrirmyndina. „Áhorf-
endur geta leikið sér fyrir framan
myndavélina og flytjendurnir fylgst
með því.“
Snýr á hefðbundna tónleika
Pétur leikur sér að því að snúa við
hinum hefðbundnu tónleikum þar
sem áhorfandinn býst við að horfa á
flytjendurna en ekki öfugt. „Í raun-
inni eru áhorfendur hvattir til að
spinna sína eigin hegðun. Maður
heldur að áhorfendur séu að koma að
horfa á tónlistarmenn spinna eitt-
hvað, en í rauninni eru áhorfendurnir
að spinna það að vera áhorfendur.“
Tónlistin sjálf er, að sögn Péturs,
mjög hefðbundin og er það með ráð-
um gert. „Verkið heitir Secrets of
Tonality. Ég er að reyna að fara inn í
tóntegundakerfið og búa til einhvern
ímyndaðan kontrapunkt.“ Áheyr-
endur heyri í einu hljóðfæri í einu en
séu um leið meðvitaðir um að önnur
hljóðfæri séu að spila á sama tíma.
„Mig langar að gá hvort það komi af
stað einhverjum ímynduðum sam-
hljómi.“
Stendur og fellur með þátttöku
Áhorfendur geta greint sömu stef
hjá ólíkum hljóðfæraleikurum.
„Stundum er búið að snúa þeim við,
tónfæra þau, flytja um áttund eða
eitthvað svoleiðis. Mig langaði að
hafa tónefnið hefðbundið til þess að
áhorfendur gætu léttilega heyrt fyrir
sér.“ Ef áhorfendum tekst að safna
öllum þeim peningum sem í boði eru
fá þeir aðgang að lokuðu rými þar
sem heyrist í öllum hljóðfærunum
samtímis og þá fá þeir að heyra sam-
hljóminn sem skapast.
Pétur játar því að vera svolítið
stressaður um að tæknin fari að
stríða þeim. „Donna er búin að vera á
fullu síðustu vikur að láta þetta
ganga upp. Hún þurfti eiginlega að
byrja frá grunni fyrir tveimur vikum.
Svo þetta er búið að vera mikið
stress en alveg ótrúlega skemmtilegt
verkefni. Ég vona að sem flestir taki
þátt því þetta stendur og fellur með
þátttöku áhorfenda. Það verður eng-
in músík nema einhver mæti.“
Pétur segist ekki vita hvort hann
haldi áfram að prófa sig áfram með
samband tölvuleikja og tónlistar.
„Það eru aðallega leiðir til þess að
virkja og endurskilgreina samfélagið
sem verður til innan um tónlistar-
flutning sem er mitt áhugasvið.“
Verkið má nálgast á slóðinni ung-
nordiskmusik.is/petur-eggerts-cm3.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Samstarfsfélagar Pétur og Donna hafa unnið hörðum höndum að tölvu-
leikjatónverkinu Chamber Music III: Secrets of Tonality undanfarið.
Tölvuleikjatónverk
Verk Péturs Eggertssonar flutt í stafrænni veröld
Áheyrendur og flytjendur mætast á fjarfundum
Leikhúsin sem framleiðandinn
Cameron Mackintosh á og rekur á
West End í London sögðu um
helgina upp um 850 starfsmönnum.
Frá þessu greinir The Guardian.
Mackintosh, sem á og rekur átta leik-
hús á West End, hefur á umliðnum
árum m.a. framleitt vinsæla söngleiki
á borð við Vesalingana og Hamilton.
Samkvæmt upplýsingum frá Phil-
ippa Childs hjá verkalýðsfélaginu
Bectu hafa um 5.000 manns misst
vinnuna innan breska leikhúsgeirans
í kjölfar kórónuveirufaraldurs og
viðbúið er að a.m.k. 2.000 manns til
viðbótar missi vinnuna, þeirra á með-
al 400 hjá Breska þjóðleikhúsinu.
Childs segir stöðuna grafalvarlega
og afleiðingu bæði faraldursins og
þess að „stjórnvöld virðist ekki skilja
hversu hrikalegar afleiðingar kröfur
um strangar fjarlægðartakmarkanir
hafi á rekstur leikhúsanna“. Frá 15.
ágúst, þegar mátti opna leikhúsin
aftur, hefur aðeins mátt vera með 30-
40% sætanýtingu. Childs tekur fram
að leikhúsbransinn sé jafnframt sleg-
inn yfir því að Mackintosh sé ekki
viljugur til að nýta sér þau úrræði
stjórnvalda sem standi til boða með
það að markmiði að viðhalda
ráðningarsambandinu.
„Aðrir leikhússtjórnendur hafa
reynt sitt ýtrasta til að finna skap-
andi lausnir til að standa vörð um
lífsviðurværi starfsfólks og þá hæfi-
leika sem í leikhúsunum felast. Í nú-
verandi árferði er erfitt fyrir leikhús-
fólk að fá vinnu og við hvetjum
vinnuveitendur til að horfa heild-
stætt á myndina til að glata ekki
hæfileikum.“ Leikhúsin í Bretlandi
hafa, líkt og á Íslandi, verið lokuð síð-
an um miðjan mars. Leikhús-
stjórnendur í Bretlandi reikna
almennt ekki með að leikhúsin verði
opnuð aftur fyrr en árið 2021.
Fjöldauppsagnir í breskum leikhúsum
AFP
Biðstaða Leikhúsin í Bretlandi
hafa verið lokuð síðan í mars.