Bæjarins besta - 18.05.1988, Qupperneq 2
2
BÆJARINS BESTA
Knattspyrna:
ísfirðingar leika í 4. deild
undir nafni BS
- gjaldþrot framundan hjá Knattspyrnuráði ísafjarðar
Lið ísfirðinga sem féll
niður í 3.deild í fyrra mun
leika í 4.deild í sumar undir
nafni BÍ (Badmintonfélag
ísafjarðar). Leikmenn ÍBI
hafa allir gengið frá félaga-
Bæjarstjórn ísafjarðar
ákvað á síðasta fundi sínum
að segja upp öllum bakvökt-
um vegna sjúkraflutninga í
ísafjarðarkaupstað. Upp-
sögnin tekur gildi frá og með
11. ágúst að telja. Einnig
hefur allri þjónustu við nær-
liggjandi sveitarfélög verið
sagt upp frá og með 11. júní.
,,Þetta þýðir einfaldlega
það að eftir þennan tíma er
ekki tryggt að hægt sé að ná í
okkur eftir kl. 17 á virkum
dögum til þess að sinna
sjúkraflutningum. Hér er því
um mjög alvarlegt mál að
ræða“ sagði Þorbjörn Sveins-
son, slökkviliðsstjóri í samtali
við BB.
Blaðið leitaði álits Har-
aldar L. Haraldssonar á
þessum uppsögnum. Hann
sagði að allt frá árinu 1982
hefði bæjarsjóður séð alfarið
um sjúkraflutninga. Hlutirnir
hafa gengið þannig fyrir sig
að þrír fastir ■ tarfsmenn í
slökkviliðinu hafa setið tveir
og tveir til skiptis á bakvökt-
um frá kl. 17 á daginn til kl. 8
á morgnana á virkum dögum
og frá kl. 17 á föstudögum til
kl. 8 á mánudagsmorgnum.
,,Nú hins vegar hefur
bæjarstjórn ákveðið vegna
mikils kostnaðar að segja upp
skiptum yfir í BÍ. Eins og
flestir vita sem fylgst hafa
með knattspyrnumálum hér á
ísafirði hefur Knattspyrnuráð
ísafjarðar átt við mikla fjár-
hagsörðugleika að stríða und-
þessum bakvöktum. ítrek-
aðar viðræður hafa farið fram
við björgunarsveitir,
lögreglu, skáta og fleiri aðila
en þessir aðilar hafa ekki
verið tilbúnir að taka að sér
þessar bakvaktir því ákvað
bæjarstjórn að segja þessum
bakvöktum upp“ sagði Har-
aldur.
Hvað er um mikinn kostnað
að ræða ?
„Á síðasta ári nam hann
1.543.000 krónum vegna bak-
vakta.“
Verður ekki reynt að finna
einhverja aðra lausn á hessu
máli?
anfarin ár og nema skuldir
ráðsins nú 4,5 milljónum
króna. Gjaldþrot er því
óumflýjanlegt hjá Knatt-
spyrnuráði og verður það gert
upp 27. maf n.k.
„Við höfum ekki getað
fundið aðra lausn. Þetta fyr-
irkomulag tíðkast víðast hvar
annars staðar þar sem lög-
regla, brunaverðir eða Rauði
krossinn sinna þessu ekki. í
nokkrum sveitarfélögum sér
lögreglan alfarið um þetta en
í þessum stærri sveitarfélög-
um eins og t.d. Akureyri,
Reyk javík og á Suðurnesjum,
að undanskilinni Grindavík
þar sem sérstakir sjúkra-
flutningamenn sjá um þetta,
er þetta fyrirkomulag sem við
erum að fara að taka upp“
sagði Haraldur að lokum.
Tryggvi Sigtryggsson for-
maður Knattspyrnuráðs ísa-
fjarðar sagði í samtali við BB
að ákveðið hefði verið að
senda alla flokka í íslands-
mótið undir nafni BÍ, sem
með tímanum kæmi jafnvel
til með að heita Boltafélag
ísafjarðar. Einnig hefði verið
ákveðið að leggja Knatt-
spyrnuráð ísafjarðar niður.
En hvað kom til að þessi
ákvörðun var tekin nú rétt
fyrir upphaf íslandsmótsins?
„Þetta er búið að standa til
í allan vetur, en þetta
stoppaði á Harðverjunum.
Þeir voru ekki tilbúnir að
breyta þessu í febrúar s.l.
þegar þetta kom til umræðu
en þá stóð til að stofna nýtt
félag. Síðan þá hefur starfið
verið í molum, þjálfarar
hættir og ýmislegt fleira.
Menn sáu fram á það að
annað hvort var að hætta
þessu eða gera eitthvað
róttækt“ sagði Tryggvi.
„Eins og staðan er í dag er
þetta besta lausnin fyrir knatt-
spyrnuna hér á ísafirði.
Leikmenn voru mjög sáttir
við að byrja í 4. deild og
byggja upp frá grunni“ sagði
Tryggvi.
Eins og áður var getið á
Knattspyrnuráðið í miklum
fjárhagsörðugleikum og
skuldar nú um 4,5 milljónir
króna. Þrjár milljónir eru
langtímalán en 1,5 milljónir
eru komnar í innheimtu lög-
fræðings. Tekst ráðinu að
greiða niður þessar skuldir?
,,Þetta er svolítið erfitt
mál. Við vonumst þó til
að íþróttabandalag ísfirðinga
hlaupi undir bagga og hjálpi
til við greiðslu á þessum
skuldum. KRÍ á engar eignir
og telst því gjaldþrota. Mikið
af þessum skuldum upp á 1,5
milljón eru smáskuldir frá
ýmsum aðilum sem hafa
ekkert rukkað okkur í tvö ár
og við erum að vona að þær
detti út með tímanum. Ég hef
trú á því að peningamálin
verði leyst,” sagði Tryggvi.
Kvennalið ÍBÍ, sem leikur í
1. deild, mun halda sæti sínu
þar, en leikur undir nafni BÍ.
Jóhann Torfason mun þjálfa
meistaraflokk karla og Orn-
ólfur Oddsson kvennaliðið.
í stjórn BÍ núna eiga sæti
þeir Konráð Einarsson,
Arnór Jónatansson, Sveinn
Ingi Guðbjörnsson og Jakob
Ólason. Ekki er frágengið
með fimmta manninn í stjórn
ennþá en það mun skýrast á
næstu dögum, ásamt fleiri
atriðum, á stjórnarfundi sem
haldinn verður innan
skamms.
ísafjörður:
Bæjarstjórn segir upp bak-
vöktum vegna sjúkraflutninga
„Mjög alvarlegt mál“, segir slökkviliðsstjóri
1 1 1
« mmmmmrn g SLÖKKVISTÖÐ FIRE-DEPT. ■
1 Pf ™ ... .
Bakvöktum vegna sjúkraflutninga hefur verið sagt upp frá og
með 11. ágúst.