Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 16
16
BÆJARINS BESTA
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á ÍSAFIRÐI
ATVINNA
Óskum að ráða til sumarafleysinga:
★ Starfsfólk í þvottahús og strau-
stofu.
★ Ráðsmann.
Upplýsingar um störf í þvottahúsi og
straustofu gefur hjúkrunarforstjóri í
síma 3014 eða 3020.
Upplýsingar um starf ráðsmanns
gefur framkvæmdastjóri í síma 3811.
F.S.Í.
DANSLEIKUR
Dansleikur verður í Félags-
heimilinu Súðavík,
hvítasunnudagskvöld kl. 0.15-4.00.
Hljómsveitin Sígild sér um fjörið.
Aldurstakmark 16 ár.
HLJÓMSVEITIN SÍGILD
BÆJARINS BESTA
Aðalfundur
Aðalfundur Stangaveiðifélags ísafjarðar
verður haldinn á Hótel ísafirði 29. maí
kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Smíði á 150 tonna báti fyrir Sandgerðinga stendur fyrir dyrum
hjá Skipasmíðastöð Marsellíusar h.f. í dag er þar unnið að viðgerð-
um á Sædísi IS og Guðrúnu Jónsdóttur ÍS.
Skipasmíðastöð Marsellíusar hf:
Smíðar 150 tonna
bát fyrir
Sandgerðinga
Senn hefst smíði á 150
tonna, 26 metra báti fyrir út-
gerðarfyrirtækið Njörð h.f. í
Sandgerði hjá Skipasmíða-
stöð Marsellíusar h.f.
Að sögn Sævars Birgissonar
framkvæmdastjóra stöðvar-
innar er samþykki fyrir smíð-
inni löngu komið en nú stæði
aðeins á svari frá Fiskveiða-
sjóði. Fiskveiðasjóður hefur
ekki afgreitt neinar beiðnir frá
áramótum nema fyrir hin
svokölluðu portúgölsku skip.
Því eru nokkuð margir sem
bíða eftir svari, t.d. Gunnvör
h.f. á ísafirði og Álftfirðingur
h.f. í Súðavík.
„Við byrjum smíðina um
leið og leyfið berst okkur og
við áætlum að smíðin taki um
þrettán mánuði“ sagði Sævar.
í dag er unnið í tveimur
skipum hjá Skipasmíðastöð
Marsellíusar h.f. I öðru þeirra
er verið að skipta um vél og
hitt er verið að breikka.
ATVINNA
Okkur vantar starfskraft
til sumarafleysinga
í u.þ.b. þrjá mánuði
frá 1. júní.
Um er að ræða
hálfs dags vinnu.
Einar og Kristján