Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 10

Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 10
10 BÆJARINS BESTA Eins og greint var frá í síð- ustu tilskrifum hreins- unarnefndar var ákveðið að heimsækja ýmis fyrirtæki og stofnanir í þessum bæ, og benda forráðamönnum þeirra á hvað betur mætti fara í um- gengni og snyrtimennsku. Þetta gerðum við. Heimsóknir Fyrst lá leiðin til bæjar- stjóra, en hann var því miður ekki viðlátinn, þar sem hann var við skyldustörf, en þing bæjarstjóra mun hafa staðið yfir. Svohljóðandi bréf til bæjar- stjórnar var því boðsent til bæjarstjórnar: Isafirði 13. maí 1988. Hreinsunarnefnd hefur kannað athafnasvæði ýmissa fyrirtækja og einstaklinga hér í bæ. Eins og vænta mátti kom í ljós, að umgengni og snyrtimennsku er víða ábóta- vant. Þá kom í Ijós við þessar athuganir að hjá stofnunum bæjarins er sömu sögu að segja. Umgengni og srtyrti- mennska er því miður ekki til fyrirmyndar. Það eru því vinsamfeg til- mæli hreinsunarnefndar að þér látið nú þegar gera við- eigandi ráðstafanir, þannig að stofnanir bæjarins geti tal- ist til fyrirmyndar hvað þetta varðar. Einnig er þess óskað, að bæjarstjórn láti girða sem fyrst það svæði sem úthliitað verður sem geymslusvæði fyrir bæjarbúa. Þá þykir hreinsunarnefnd éðlilegt að krefjast þess að sorphaugum bæjarins verði komið í það ástand að ekki stafi frá þeim mengunarhætta. Virðingarfylls t. Jónas H. Eyjólfsson. Þorbjörn Sveinsson, Jósef Vernharðsson. ísafjarðarhöfn Þá fékk yfirhafnarvörður svohljóðandi ábendingar: „Umgengni og snyrti- mennsku á athafnarsvæði ísafjarðarhafnar er ábóta- vant. Má í þessu sambandi sérstaklega tilgreina, eftir- talin svæði: 1. Fyrirneðan O.N.Olsen. 2. Við afgreiðslu Djúpbátsins. 3. Við Harðviðarbryggju. Það eru vinsamleg tilmæli hreinsunarnefndar, að þér látið nú þegar gera viðeigandi ráðstafanir til hreinsunar. ” Þegar fulltrúar hreins- unarnefndar ræddu við yf- irhafnarvörð kom í ljós að þegar hafði verið hafist handa við lagfæringar á og við Harð- viðarbryggju. Móttökur voru góðar. Fimmtán (já, fimmtán) fyr- irtækjum og einstaklingum voru birt svohljóðandi bréf: ,,Hreinsunarnefnd hefur kannað athafnarsvæði fyr- irtækis yðar og komist að þeirri niðurstöðu, að um- gengni og snyrtimennsku sé ábótavant. Það eru vinsamleg tilmæli nefndarinnar, að þér látið nú þegar gera viðeigandi ráð- stafanir til hreinsunar.” Við höfum ákveðið að birta ekki nöfn þessara fyr- irtækja að sinni, heldur verð- ur fylgst með því hvort þau verði við einlægum tilmælum um úrbætur. Það hlýtur að vera stolt hvers atvinnurekanda, hvort sem hann er í matvæla- framleiðslu, eða öðrum starfsgreinum, að fyrirtæki hans teljist til fyrirmyndar hvað varðar hreinlæti og snyrtimennsku. Viðurkenningar- vottur Eins og upphaflega var skýrt frá ákvað hreinsunarnefndin að kanna jöfnum höndum það sem miður er, og það sem vel er gert. Tólf (já, tólf) fyrirtæki og verslanir fengu svohljóðandi bréf er fulltrúar hreinsunarnefndar heimsóttu þau: ,,Hreinsunarnefnd hefur kannað athafnarsvæði fyr- irtækis yðar og komist að þeirri niðurstöðu að um- gengni og snyrtimennska er til fyrirmyndar. Þykir okkur ástæða til að vekja athygli á þessu jafn- hliða öðrum störfum nenfdar- innar.” Eftirtalin fyrirtæki, fengu framanskráð bréf: íshúsfélag ísfirðinga Vegagerð ríkisins Vélsmiðjan Þór Ljónið Skeiði Mjölvinnslan Hnífsdal G.E. Sæmundsson Olíufélag Útvegsmanna Olíufélagið Straumur Sporthlaðan Bókaverslun J. Tómassonar Verslunin Selið Hreinsunarnefnd þykir ljóst, að starfsmenn þessara fyrirtækja leggja sig fram um að halda nánasta starfs- umhverfi sínu snyrtilegu, þótt stundum sé það erfitt. Hreinsunarátak á ísafírði Tólf félagasamtökum sem starfandi eru í bænum, voru send svohljóðandi bréf: ,,Ákveðið hefur verið að dagana 28. og 29. maí nk. fari fram allsherjar hreinsun í bænum. Hreinsunarnefnd leitar liðsinnis allra félaga- samtaka sem sjá sér fært að taka þátt í hreinsunar- herferðinni. Einnig er leitað liðsinnis annarra einstaklinga og fyrirtækja. Við hvetjum þá sem leggja vilja þessu lið, að mæta kl. 10 við áhaldahús bæjarsins, Iaugardaginn 28. maí. Þaðan verður liðinu skipt út í hverfin.” Tilgangurinn með þessu bréfi, er að reyna að virkja sem flesta í hreinsunarátak- inu. Markmiðið er að ráðast á opin svæði í bænum og fjar- lægja þaðan allt rusl. Sameinumst um átakið Verkamenn ísa- fj arðarkaupstaðar Það hefur vart : farið framhjá neinum bæjarbúa, Við afgreiðslu Djúpbátsins er umgengni og snyrtimennsku ábóta- vant. Af stríðsvettvangi

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.