Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 4

Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 4
4 Slysavarnarmenn: BÆJARINS BESTA BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest- fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, S4560. Ritstjórarog ábyrgð- armenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamaður: Jakob Falur Garðarsson. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Rit- stjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, & 4570 og er svarað allan sólar- hringinn. Setning, umbrotog prentun: H-prentsf, Suður- tanga 2, 400 ísafjörður. RITSTJÓRN Skattleggjum eyðsluna Ríkisstjórnin sá ekki ástæðu til að sinna jagi stjórnarandstöðunnar um frekara málþóf og sendi þingmenn heim. Væntanlega til að sinna þarfari verkefnum, eða hvað? Þingið setti fleiri lög en nokkru sinni fyrr. Sem betur fer felldi það enn fleiri úr gildi. Nógur var frumskóg- urinn fyrir. Bjórsinnar glöddust áður en nótt var úti. Hvort gleðin verður skammvinn eður ei leiðir tíminn í ljós. Viðbrögðin við samþykkt bjórfrumvarpsins sýna hins vegar betur en margt annað hvers konar fíflaþjóðfélag víð byggjum. Ekki færri en þrjár hundruðir manna ku hafa beðið forstjóra Afengisverslunar ríkisins að muna nú eftir sér þegar hann hæfi innflutning bjórs! Þrjúhundruð manna sjávarþorp er ein af undirstöðum þjóðfélagsins, en þrjúhundruð bjórinnflytjend- ur eru örgustu ómagar þess og að auki hrein móðgun við það fólk, sem vinnur framleiðslustörfin tl sjávar og sveita og nær ekki skatt- leysismörkum í daglaunum. Mikil er sú forsmán, sem þingmenn sýna umbjóðendum sínum með því að þora ekki að taka afstöðu á þingi, eða samþykkja með ólund og hangandi hendi og ótal fyrirvarayfirlýsingum mál, sem þeir þora ekki að vera á möti af ótta við kjósendur. Við slíkar aðstæður fór kaupleigufrumvarpið í gegn. Svo var einnig um virðisauka- skattinn. Viðbrögðin við virðisaukaskattinum koma ekki á óvart. Hags- munahóparnir reka upp ramakvein. Ekki við, segja þeir, bara hinir. Sama hræsnin og með matarskattinn. Og allir þykjast þeir upphefja sönginn af elsku sinni til láglaunahópanna í þjóðfélaginu. Nýjasti grátkórinn syngur nú um endalok menningar í landinu af því af því gamla góða undanþágukerfið frá söluskattinum fæst ekki yf- irfært á virðisaukann. En stöldrum við. Hvaða hópar þjóðfélagsins skyldu það vera, sem stunda og halda uppi öllu því framboði af menningu, sem ómenn- ingu, sem í boði er? Ætli það séu hóparnir, sem ná ekki skattleys- ismörkunum í launum? Ótrúlegt að svo sé. Mergurinn málsins er sá, að hvort sem skatturinn heitir sölu- eða virðisaukaskattur þá ber að forðast allar undantekningar eins og heitann eldinn og hafa þær í algjöru lágmarki. Krafan um þær er öllu jöfnu krafa um óréttlæti og forréttindi til handa þeim sem efnin hafa. Skattlagning eyðslu er eina réttláta skattlagningin. Þá borga þeir, sem vilja eyða fjármunum og hafa ráð á því. Með þeim hætti er sparsemi og ráðdeild verðlaunuð og mönnum ekki refsað fyrir dugnað og mikla vinnu. En þessar dyggðir eru kannske úreltar eins og svo margt annað í þjóðféíagi nútímans á íslandi. s.h. Happdrætti til styrktar bátakaupum Nú er töluvert langt síðan frést hefur eitthvað af björg- unarbátakaupum hingað til ísafjarðar. Ekki er það af því að ekki sé unnið að málinu af fullum krafti. Bátnum hefur verið breytt lítilsháttar, meðal annars lengdur og er hann orðin tæp 46 fet. Einnig hefur smíðatíminn reynst lengri en gert var ráð fyrir í byrjun, svo að báturinn verð- ur ekki tilbúinn fyrr en í júní. Fjáröflun er í fullum gangi og hefur hún gengið all vel. Nú er bátakaupanefnd að fara af stað með happdrætti. Þar eru veglegir vinningar í boði, m.a. bifreið, utan- landsferð fyrir tvo og helgar- ferðir til Reykjavíkur. Slysavarnamenn munu ganga í hús um næstu helgi og bjóða miða til sölu, og er það von okkar að fólk taki þeim vel. Þess má svo að lokum geta að upplag miða er aðeins tvö þúsund og dregið verður 17. júní n.k. Allur ágóði af happdrættinu rennur óskiptur til björgunarbátakaupanna. Fréttatilkynning. Stöð 2 Aukin clrcifing á Vestfjörðum með haustinu Uppi eru áform hjá stjórn- endum Stöðvar 2 að efla dreifikerfi sitt á Vestfjörðum. Um þessar mundir er unnið að mælingum og könnun á því hversu marga senda þarf til að koma þessu í kring. Það verk er unnið af Pósti & síma. íris Erlingsdóttir, þjón- ustustjóri Stöðvar 2 sagði í samtali við BB að ákveðin hefði verið framkvæmdaröð í þessu átaki og væri Bolungar- vík þar efst á blaði. Þar á eftir koma Patreksfjörður, Fiateyri og Þingeyri. íris kvaðst ekki geta sagt nákvæmlega hvenær send- ingar hæfust á þessum stöð- um en vonast er til að að geti orðið með haustinu. Nú væri beðið eftir niðurstöðum frá Pósti & síma og síðan yrðu ákvarðanir teknar. Og þá er bara að bíða og vona. ísafjörður: Menntaskólanum slitið á laugardaginn Menntaskólanum á ísafirði og Iðnskólanum verður slitið n.k. laugardag kl. 14 í sal Menntaskólans. Þar fer fram brautskráning stúdenta auk nemenda á 2 ára verslunar- braut. Einnig fer fram braut- skráning skipstjórnarmanna.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.