Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 18

Bæjarins besta - 18.05.1988, Blaðsíða 18
18 Samskipti sveitarfélaga: BÆJARINS BESTA SMÁAUGLÝSINGAR íbúð til lcigu Til leigu er tveggja herbergja íbúð að Austurvegi 14. Leigist frá 15. maí. Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar í síma 4412. Tækifæriskaup Til sölu er 65 m2 hús á góðum stað á ísafirði. Verð undir 500 þús. kr. Upplýsingar í síma 91-689677 kl. 13-16. Barnfóstra Þrettán ára gömul stúlka óskar eftir að passa barn í sumar frá kl. 13.30. Upplýsingar í síma 3068. Sófaborð o.fl. Til sölu er sófaborð og horn- borð með eirplötu. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 3068. Volvo 360 Til sölu er bifreiðin í-813 sem er Volvo 360 árgerð 1984. Ekin aðeins 45 þús. km. Sami eig- andi frá upphafi. Sumar og vetrardekk. Útvarp og segul- band. Bíll í sérflokki. Uppl. hjá Kristjáni ísíma3769. Karlmannsreiðhjól Til sölu er DBS karlmanns reið- hjól, 60 cm, 10 gíra. Upplýsingar veitir Logi Jónsson í síma 4094. Bílar Til sölu er Playmouth Volier ár- gerð 1980 og Mazda 626 Hard- top árgerð 1980. Mjög vel farnir. Upp. í síma 8316 eftir kl. 19. Mazda 626 Til sölu er Mazda 626 2,0 árgerð 1986. Ekin 28 þús. km, 5 dyra. Sjálfskipt, rafmagn í rúðum. Upplýsingar í síma 3856. Sumarbústaður Til sölu er sumarbústaður í Tunguskógi. Upplýsingar í síma 3670 á dag- innog4270eftirkl. 7ákvöldin. Sumarblóm ísfirðingar, nágrannar. Sumar- blómin koma um næstu mán- aðamót. Verða seld á Selja- landsvegi 70. Upplýsingar hjá Astu Dóru í síma 3380. Sjáumst. Gróðrastöðin Laugaland, ísafjarðardjúpi. Bátur Til sölu er 5 tonna dekkaður, frambyggður bátur. Einnig fjór- ar handfærarúllur. Upplýsingar hjá Arnari G. Hinrikssyni hdl. í síma 4414. Nítján bæjarstjórar funduðu á ísaflrði Bæjarstjórarnir sem fóru í útsýnisflugið rétt fyrir brottför ásamt mökum og flugmönnum. Nítján bæjarstjórar víðs vegar af landinu héldu sinn árlega fund hér á ísafirði fyrir helgina. Hópurinn kom til bæjarins s.l. fimmtudag og fór aftur til síns heima á laug- ardagsmorgun. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri sagði í samtali við BB að fyrir utan það að kynna hvað væri að gerast í hverju sveitarfélagi fyrir sig þá hefði aðalmálið á fundin- um verið „Innheimta samkvæmt staðgreiðslukerfi skatta” og hvernig því yrði komið fyrir í framtíðinni. Á fundinum var einnig rætt um samning sem Samband ís- lenskra sveitarfélaga gerði við fjármálaráðuneytið um skil á staðgreiðslunni nú fyrstu mánuði ársins en mikil óánægja hefur verið hjá sumum sveitarfélögum með það að þessi skil hafi verið mun lægri heldur en raun- veruleg innheimta hefur verið. Á fundinum var einnig rætt um samskipti sveitarfélaganna við Samband íslenskra sveitar- félaga og í því sambandi var m.a. ákveðið að á næst fundi, sem haldinn verður á Suður- nesjum, verður óskað eftir fulltrúum úr stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga til við- ræðna um ýmis mál. Farið var með bæjarstjór- ana í skoðunarferð um bæinn. Meðal annars voru Póls- tækni, Niðursuðuverksmiðj- an, Orkubú Vestfjarða og Hlíf, íbúðir aldraðra, heim- sótt. Pá var farið í skoðunar- ferð til Bolungarvíkur, í- þróttahúsið var skoðað og mannvirkin á Bolafjalli. Á laugardagmorgninum bauð svo Flugfélagið Ernir hópn- um í útsýnisflug. Flogið var yfir Ritinn, Straumnesið, Hornbjargið var skoðað, Drangjökull og Kaldalón. BB fór með í útsýnisflugið og var meðfylgjandi mynd tekin áður en haldið var í loftið. Bílasala: Mikill kippur í bflasölu í síöustu viku Mikill kippur kom í bíla- söluna í síðustu viku. Margir ætluðu að ná sér í bíla fyrir hækkun sem verður vegna 10% gengisfellingar sem boðuð var á mánudag. Að sögn Bergmanns Ólafs- sonar sölustjóra hjá Vél- smiðjunni Þór hf var allt vitlaust í síðustu viku en því miður hefðu margir þurft að bíta í það súra epli að geta ekki fest kaup á bíl fyrir geng- isfellingu vegna þess að þeir voru að bíða eftir lánsloforði frá Féfangi í Reykjavík. ,,Það tók allt að fjórum dögum að fá lán hjá þeim og því voru það margir sem frusu úti“ sagði Bergmann. Var mikið um það að fólk borgaði inná bílana til að festa verð þeirra? „Síðan 1982 hefur ekki verið hægt að festa endanlegt verð bílanna með innáborg- un. Til þess að festa verð bíls- ins verður að borga hann upp, en það voru margir sem bankaborguðu bílana og festu þar með um 70% af verði þeirra“ sagði Bergmann. Hjá Vélsmiðjunni Þór hf seldust 10 bílar í síðustu viku og átti Bergmann sölustjóri von á eitthvað minnkandi sölu eftir gengisfellinguna. Reikna má með að almennt hækki bílar um 10%.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.