Bæjarins besta - 18.05.1988, Side 11
BÆJARINS BESTA
11
Sturla Halldórsson yfirhafnarvörður lítur á Ijósmyndir af hafnar-
svæðinu.
hversu mikið starf (en
vanþakkað), verkamenn
bæjarins vinna. Hreins-
unarnefndin telur rétt að það
komi hér fram að starfsmenn
bæjarins hafa allt að því lagt
nótt við dag í glímunni við
ruslið að undanförnu.
Þeir sem vilja sja umgengn-
ina í bænum, eftir að borgar-
arnir hafa verið að skemmta
sér um helgar, ættu að ieggja
leið sína (svona um. fjög-
urleytið, eftir ball) í miðbæ-
inn. Umgengninni verður
vart lýst. Sóðaskapurinn og
tillitsleysið nær þá hámarki.
En sjaldnast verða góð-
borgararnir sjálfir varir við
þennan andskotans sóða-
skap, því verkamenn bæjarins
fara á stúfana um kl. 5 og þrífa
skítinn.
Ö1 er innri maður segir
einhvers staðar, en þarf um-
gengnin endilega að vera
svona? HÉR ÞARF AÐ
VERÐA BREYTING Á.
ENGINN GETUR ÞESSU
BREYTT NEMA VIÐ
SJÁLF, og það verðum við
að gera.
Nýtt áhaldahús
Nýlega var tekið í notkun
nýbyggt og veglegt áhaldahús
bæjarins. Umhverfi þess
býður uppá sóðaskap. Á
svæði, sem segja má að sé
andlit bæjarins, verður snyrti-
mennska að vera í fyrirrúmi.
Hreinsunarnefnd skorar
því á bæjarstjórn að láta nú
þegar framkvæma nauðsyn-
legar aðgerðir í frágangi lóðar
og ports við áhaldahúsið.
Sundahafnar-
svæði
Hér meðfylgjandi er upp-
dráttur af bráðábirgða-
skipulagi á Sundahafn-
arsvæði. Eins og sjá má á
kortinu verður útgerðar-
mönnum og öðrum þeim er
geyma þurfa stóra hluti,
úthlutað geymslusvæði. Þeir
sem telja sig þurfa slíkt svæði,
skulu sem fyrst snúa sér til
tæknideildar, eða hafnar-
nefndar. Markmiðið er að
geymslusvæðið verði á einum
stað.
Spurningakeppnin
Okkur hafa borist nokkur
bréf varðandi spurningarleik-
inn sem við birtum í upphafi
þessa átaks. Enn viljum við
hvetja fólk íil að senda inn
svör. Þeim sem þegar hafa
sent inn svör þökkum við, en
viðurkenningar verða birtar í
lok þessa átaks.
Móttökur við
heimsóknir
Þarna koma stríðsmennirn-
ir, var viðkvæðið, eða þarna
koma Rambóarnir. Við erum
greinilega kallaðir ýmsum
nöfnum nú á síðustu og bestu
tímum.
Hins vegar verðum við að
segja það, að þegar við
komum í heimsókn til fyr-
irtækjanna og lögðum fram
kvartanir við ráðamenn
þeirra, þá var okkur und-
antekningalaust vel tekið.
Alls staðar var okkur boðið í
kaffi og með’ðí. Hjá einu fyrir-
tækinu var okkur m.a. boðið í
afmæliskaffi, því fram-
kvæmdastjórinn, (sem við vor-
um að skamma) átti afmæli.
Viðbrögð fólks eru því vægast
sagt jákvæð, og þess vegna
vonumst við eftir árangri af
þessu starfi.
Og svona í lokin
Litla nefndin lagði í stríð
og langaði til að sigra,
í þetta vantar botninn.
Vinsamlega skilið honum
sem fyrst.
Og frá iesanda
ruslapistla
Ef rekst þú á Jonna cða Tobba
að ekki sé minnst á hann Jobba
þitt rusl skaltu taka
og á haugana aka
því annars þú lendir í bobba.
F.h. hreinunarnefndnr.
Jónas H. Eyjólfsson,
Porbjörn Sveinsson,
Jósef Vernharðsson.
(jr
UPPSAIIR
SKEMMTISTAÐUR í HJARTA BÆJARINS
F östudagskvöld:
Diskótek kl. 23-3
Sunnudagskvöld:
Opið kl 12-4
BG-flokkurinn skemmtir
MUNIÐ NAFNSKÍRTEININ
SNYRTILE GUR KLÆÐNAÐUR
> - =