Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.05.1988, Síða 4

Bæjarins besta - 25.05.1988, Síða 4
4 ísafjörður, götulíf: BÆJARINS BESTA BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vest- fjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtanga 2, 400 ísafjörður, ® 4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Sveinbjörnsson. Blaðamenn: Jakob Falur Garðarsson og Vigdís Jakobsdóttir. Út- gafudagur: Miðvikudagur. Ritstjórnarskrif- stofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, ® 4570 og er svarað allan sólarhringinn. Setning, umbrot og prentun: H-prent sf, Suður- tanga 2, 400 ísafjörður. RITSTJÓRN Öflugir byggðakjarnar Jafnvægi í byggð landsins er ofarlega á vinsældalista hugsandi manna í þjóðfélaginu þessa dagana. Meira að segja eitt af hálm- stráunum, sem ríkisstjórnin greip í til að forða sér frá falli. Viðtal Alþýðublaðsins við Guðmund Malmquist, forstjóra Byggðastofnunar, olli úlfaþyt. Nú skyldi því ráðið frá Rauðarár- stígnum hvort byggð viðhéldist á þessum eða hinum staðnum eður ei. III tíðindi ef rétt væru. Byggðaröskunin í Jandinu hlýtur að vera alvarleg þegar forstjóri Byggðastofnunar sér sig knúinn til að vekja athygli stjórnvalda á ástandinu. Fólksflótti til Reykjavíkursvæðisins er slíkur, fjár- magnsstreymið þangað þvílíkt, að ekki vekur aðeins ugg heldur beinan ótta. Bragð er að þá barnið finnur. Tilgangurinn með Byggðasjóði er góður. Allt frá stofnun hans hafa þó pólitískir oddvitar látið sjóðinn spreða peningum hist og her í gæluverkefni skjólstæðinga sinna. Með þessu er ekki verið að segja að sjóðurinn hafi ekki ljáð góðum málum lið, enda mætti fyrr vera, ef svo hefði aldrei slysast til. íslendingar eru fámenn þjóð í stóru landi. Og þótt það hafi blessast allt fram á þessa öld, að menn hokruðu með fáeinar rollu- skjátur, þar sem Guð og lukkan hafði plantað þeim á skerinu, eða reru fram á fjörðinn sinn á bátskænu til að halda lífi í ómögunum, þá er það liðin tíð. Menn geta einfaldlega ekki búið hvar sem er á landinu og notið sömu gæða. En þetta þýðir ekki, að allir eigi að flytjast til Reykjavíkur. Það voru ekki allir á einu máli um sameiningu ísafjarðar og Eyrarhrepps á sínum tíma. Sameiningin var viðkvæmt mál. Menn báru þó gæfu til að stfga skrefið. Eina raunhæfa leiðin til að sporna við frekari ofvexti Reykjavík- ursvæðisins eru öflugir byggðakjarnar á landsbyggðinni. Við hvorki getum né höfum efni á að viðhalda byggð í hvaða afdal eða á hvaða krummavík sem er. Fólkinu, sem býr á þessum stöðum verðum við að hjálpa svo það þurfi ekki að fara slyppt og snautt frá heimahögunum vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. Til að taka á þessum málum þarf kjark. Til þess þarf forustu landsbyggða- manna sjálfra, en ekki pólitíkusa og þeirra embættismanna, sem halda að endimörk alheimsins séu við Esjuna. Ef landsbyggðar- menn sjálfir horfast ekki í augu við staðreyndir getur ekkert bjargað þeim. Það er nauðsyn að viðhalda jafnvægi í byggð, en að við getum setið landið á sama hátt og forfeðurnir, og jafnframt krafist allra gæða og gagna nútímans, er útilokað. Gréta Jónsdóttir eigandi Litlu kaffístofunnar. Litla kaffistofan opnuð aftur Kaffíhús og sýningarsalur Litla kaffistofan sem starf- rækt var í Flafnarstræti s.l. sumar hefur verið opnað að nýju. Kaffihús er að margra mati merkisberi góðrar götu- menningar og tekur ritstjórn BB undir það. ísfirðingar og þeir sem sóttu ísafjörð heim á síðasta sumri notfærðu sér það óspart að fá sér kaffi í Litlu kaffistofunni og fagna því eflaust að hún hafi nú opnað að nýju. Það er Gréta Jónsdóttir sem sér um rekstur Litlu kaffistofunnar. Sagði hún í samtali við blaðamann BB að fjöldi fólks hefði komið og hvatt sig til að opna kaffi- húsið að nýju eftir veturinn. Gréta stefnir að því að hafa í sumar myndlistarsýningar á veggjum kaffihússins. Hún opnaði nú með sýningu á verkum Guðbjargar Lindar Jónsdóttur og Jóns Her- mannssonar sem bæði eru ísfirðingar. Er þarna um sölusýningu að ræða. Næsta sýning sem fyrir- huguð er í Litlu kaffistofunni er á verkum Guðrúnar Þorkelsdóttur. Guðrún, betur þekkt sem Rúna, fæst aðallega við gerð grafík- mynda. Nýverið sýndi hún á sýningunni Scandinavia Today og fékk þar góða dóma. Litla kaffistofan er eins og fyrr segir við Hafnarstræti, n.t.t. í húsnæði Framsóknar- flokksins, og er hún opið frá 13 til 18 alla virka daga nema laugardaga. Þó getur farið svo að opnað verði á laugar- dögum en það fer alveg eftir aðsókn. % ísafjaröarkaupstaður % Auglýsing frá hreinsunarnefnd ísfirðingar. Við minnum á hreinsunarátakið helgina 28. og 29. maí n.k. Mæting við áhaldahús bæjarins kl. 10.00 þann 28. maí. Áformað er að hreinsa opin svæði í kaup- staðnum. Hreinsunarnefnd.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.