Bæjarins besta


Bæjarins besta - 25.05.1988, Page 6

Bæjarins besta - 25.05.1988, Page 6
6 BÆJARINS BESTA BB SPYR Hvað finnst þér um úrslitin í Fegurðarsamkeppni íslands? Þuríður Ebenezersdóttir: Mér fannst sú sem vann bara góð. Sigríður Lára Gunnlaugsdóttir: Ég er bara mjög ánægð með þau. Ásgeir Sigurðsson: Mér finnst að Martha hefði mátt vera framar. En sú sem vann var mjög góð. Jóhann Birkir Helgason: Pau voru bara ágæt. Ríkisstjórn í stuði (Erfíðleikar ástarþríhyrnings?) HÁKUR ... Þorsteinn Pálsson forsætis- ráðherra komst ekki í heim- sóknina til Ronalds Regans Bandaríkjaaforseta. Alþingi hafði tæpast lokið störfum þegar erlendur gjaldeyrir tók að streyma úr Seðlabankanum, líkt og þegar stíflan brast við Þingvallavatn fyrir tæpum 3 áratugum. Þá brast stíflan hjá Sogsvirkjun en nú var það ekki Landsvirkjun, sem er arftaki þeirrar fyrrnefndu. Pó voru eiuhverjir óprúttnir fjöl- miðlamenn að leiða getum að því, að Landsvirkjun hefði keypt mikinn gjaldeyri. En formaður bankastjórnar Seðla- bankans sem heitir Jóhannes Norðdal neitaði því að svo hefði verið með yfirlýsingu frá Landsvirkjun, en þar er hann stjórnarformaður. Pað fylgdi með að Jóhannes misnotaði sér aldrei aðstöðu sína. Helgin 14.-15. maí fór öll í fundarhöld hjá ríkisstjórninni. Eins og oft á stórum heimilum sýndist sitt hverjum. Fram- sóknarflokkur var sagður vilja fella gengi um allt að 25%, Sjálfstæðisflokkur um 10-15% en Alþýðuflokkur um allt að 10% og ekki prósentustig framyfir. Fréttaflutningurinn var alveg dásamlegur, minnti helst á rifrildi hjóna í sjón- varpssápuóperu. Nema hér var þriðji aðilinn kominn i spilið. Datt sumum þá í hug „ménage á trois” ástarþríhyrningurinn, án þess að ljóst væri hver léki hlutverk viðhaldsins. Helgin leið og gengið féll um 10%. Auk þess fékk Seðla- bankinn heimild til eins konar vara- eða viðbótarfellingar, þannig að mest getur hún orðið 13%. Efnahagsráðstafanir stjórnarinnar En þríbýlishúshaldið réð ekki við að ganga frá svoköll- uðum hliðarráðstöfunum ofan í gengisfellinguna. Ekki var það til að minnka vandann að starfsmenn Álversins í Straumsvík voru á leið í verk- fall það hefði haft í för með sér stöðvun álverksmiðjunnar með miklu fjárhagstjóni og allt að 40% tekjutap fyrir Landsvirk- jun. Þegar vikan var liðin var „húshaldið” búið að koma sér saman. Pá voru að vísu eins- takir meðlimir þríhyrningsins búnir að lýsa því, hvernig komið hefði verið að þeim í rúminu. Og einn gekk svo langt að lýsa því yfir að þeir væru með allt niðrum sig. Lýsingarorðin skorti ekki. Kannski ættu þeir að ganga í lið með Ómari Ragnarssyni og öðrum skemmtikröftum. En forsetisráðherra hélt al- vörusvipnum. Það örlaði ekki einu sinni á glottinu marg- umtalaða, meðan félagarnir lýstu húshaldinu á ríkisstjórn- arheimilinu og því hversu ber- skjaldaðir þeir voru þegar flóðið byrjaði. Nú skal tekið til hendi. Með bráðabirgðalögum var ákveðið að næstu 11 mánuði hækki laun aðeins um 10%. Álverið stöð- vast ekki. Skattleysismörkin hækka úr 42 þúsund í 46 þús- und krónur á mánuði fyrr en annars. Þannig lækka skattar þeirra sem fara yfir 46 þúsunda markið um 4.000 krónur strax í júní. Sömuleiðis hækkar elli- og örorkulífeyrir samsvarandi launum 1. júní n.k. Bindi- skylda er sett á fjárfesting- arlánasjóði í því formi að þeim er skylt að kaupa ríkisskulda- bréf. Aðhaldi skal beita í útgjöld- um ríkissjóðs, eingöngu er leyfð hækkun á launaliðum ráðuneyta. Byggðastofnun fær að taka 200 milljón króna er- lent lán til aðstoðar fyrirtæk- jum á landsbyggðinni. Sömu- leiðis fær jöfnunarsjóður sveitarfélaga 40 milljónir í við- bótarráðstöfunarfé til sveitar- félaga á landsbyggðinni. í stjórnar- andstöðu Sumir segja þetta ekki nóg. Óiafur P. Þórðarson þingmað- ur Framsóknarflokks er einn þeirra. Hann segir að fella verði gengið eftir nokkra mánuði aftur. Nú er hann kominn i lið stjórnarand- stæðinga. Um það segir form- aður flokksins Steingrímur Hermannsson fyrrverandi Vestfjarðaþingmaður þetta: „Þingmaðurinn er ýmist með eða á móti ríkisstjórninni. Pað er ágætt að hafa hann í þing- flokknum, oft má hafa gaman af honum”. Svo mörg voru þau orð og Þorsteinn hættur að brosa. Sumir bíða óþreyjufullir eftir lýsingunum á stjórn- arheimilislífinu þegar næsti þáttur byrjar.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.