Bæjarins besta - 25.05.1988, Síða 8
8
BÆJARINS BESTA
Af orrustuvellinum
Hreinsunarnefndin starfar á fullu og
við raunum ekki láta ísfirðinga í
friði, fyrr en við og þið verðum orð-
in ánægð með árangurinn af hreins-
unarátakinu. Enn vantar nokkuð á,
þrátt fyrirj að nokkuð hafi áunnist.
Bílhræ
Ákveðið hefur verið að öll bílhræ
sem standa á opnum svæðum og eru
eigendum til vansa, verði fjarlægð
á kostnað eigenda eftir 1. júní n.k.
Það eru því vinsamleg tilmæli að
þeir sem eiga slík hræ láti fjarlægja
þau sem fyrst, þannig að ekki þurfi
að koma til frekari aðgerða af hálfu
bæjarins.
Hreinsunarhelgin
Eins og við greindum frá í síðustu
tilskrifum nefndarinnar er ákveðið
að dagana 28. og 29.. maí n.k.
(næsta helgi) fari fram allsherjar
hreinsun í bænum. Við viljum
hvetja alla bæjarbúa til að leggja
sitt af mörkum í hreinsunarátak-
inu. Margar hendur vinna létt verk.
Þeir sem vilja leggja þessu lið eru
vinsamlega beðnir að mæta við
áhaldahús bæjarins kl. 10.00 þann
28. maí.
Gestir á ísafírði
Haft hefur verið samband við
fulltrúa hreinsunarnefndar vegna
gestakomu þessa helgi, sem hreins-
unarátakið er fyrirhugað.
Bent hefur verið á að ómögulegt
væri að bæjarbúar væru að taka til
í kringum sig á meðan gestirnir væru
í bænum, en áformað mun vera að
um 400 konur (fyrrverandi nemar í
Húsmæðraskólanum) komi í bæinn,
ásamt fleiri gestum.
Vegna þessa, vill hreinsunar-
nefnd sérstaklega beina þeim til-
mælum til karlpeningsins í bænum,
að mæta nú stundvíslega í hreinsun-
arátak laugardaginn 28. maí kl. 10.
Unnið verður til kl. 17 og eftir það
geta menn sinnt gestum.
f lokin vísum við í slagorð úr að-
sendu bréfi: Hreinn bær, gódurbær.
F.h. hreinsunarnefndar,
Jónas H. Eyjólfsson,
Þorbjörn Sveinsson,
Jósef Vernharðsson.
ísafjarðarkaupstaður
Atvinna
Auglýst er laust til umsóknar starf forstöðu-
manns öldrunarmála hjá ísafjarðarkaupstað.
Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu
í öldrunarmálum.
Umsóknarfrestur er til 15. júní n.k.
Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri á bæjar-
skrifstofunum eða í síma 3722, eða formaður
öldrunarráðs Snorri Hermannsson í s. 3526.
Bæjarstjórínn á ísafirði.
UPPSAtlR
SKEMMTISTAÐUR í HJARTA BÆJARINS
Föstudagskvöld:
Opið kl. 23-3
BG-flokkurinn skemmtir
Laugardagskvöld:
Opið kl. 23-3
BG-flokkurinn skemmtir
Gunnar Hólm mætir á svæðið
og sýnir gamla takta
^ -----------------------