Bæjarins besta - 25.05.1988, Blaðsíða 10
10
BÆJARINS BESTA
Eg kem
kannski aftur
ísfirðingar eru ekki svo leiðinlegir
Brottflutningur fólks frá Vestfjörðum er mikið ræddur um
þessar mundir. Reyndar hefur það verið gert í fjölda ára en líklega
aldrei eins mikið og nú. Engum virðist detta í hug að tala um
flutning fólks til Vestfjarða þó vissulega sé það ánægjulegar um
ræðuefni. Kannski er ekkert gaman að tala um það sem er
jákvætt.
Ein er sú manneskja sem nokkuð hefur borið á ísafírði undan-
farið sem nú er flutt úr bænum. Dagný Björk Pjetursdóttir. Hún
hefur verið með dansskóla fyrir alla aldurshópa, stjórnað félags-
miðstöðinni Sponsinu, og séð um vinnuskóla kaupstaðarins á
sumrin. BB spurði Dagnýju hvað það ætti eiginlega að þýða að
vera að flytja héðan; eru Isfírðingar svona leiðinlegir Dagný?
Nei nei, Isfirðingar eru ekki leiðinlegir en ég tel mig vera búna
að gera það sem ég ætlaði mér að gera hérna á ísafirði, þ.e. að
koma á fót æskulýðsmiðstöð. Nú svo spilar það líka inn í að mig
langar til að vera hjá mínu fólki.
En hvað með dansskólann, kemur þú í haust að kenna dans
eins og þú hefur gert?
Ég ætla að reyna að koma eftir áramótin og vera með skólann.
Ef ég kem ekki að þá sé ég allavega til þess að hér verði dans-
skóli, þannig að ég skil þetta ekki eftir í reiðileysi. Ég er í því
sambandi búin að tala við skólanefnd Grunnskólans til að falast
eftir húsnæði fyrir danskennsluna, hvort sem hún verður á mínum
vcgum eða annarra. Mig dreymir um að komast yfir rúmgott
tveggja hæða hús sem ég gæti innréttað sem dansskóla og jafnvel
líkamsræktarstöð á neðri hæðinni, og síðan íbúð á efri hæðinni.
Það er draumurinn, að vera kenna hér hálft árið og að vera á
Malljorka hinn helminginn. ísafjörður er ekki svo leiðinlegur.
Nú hefur þú séð alfarið um keppnina Ungfrú Vestfírðir. Ætlar
þú að koma til þess að sjá um hana eftir sem áður eða hvað?
Sko, (og hugsar sig um). í fyrsta lagi verður að breyta nafninu
Ungfrú Vestfirðir í Fegurðardrottning Vestfjarða. Ástæðan er sú
að ungfrúar nafnið er eign Guðna í Sunnu og hann gæti gert til-
kall til þess. í sambandi við keppnina er ég búin að gera þær ráð-
stafanir að ef ég verð hérna ekki sjálf, þá mun ég stjórna
keppninni úr fjarlægð. Karl Geirmundsson er búinn að bjóða mér
hingað töluvert fyrir keppnina til þess að sjá um lokaundirbún-
inginn fyrir keppnina en Martha Jörundsdóttir mun mjög líklega
sjá um undirbúninginn hér ásamt Bergrósu Kjartansdóttur
Keppnin er ekki dottin niður og hún verður í Sjallanum næsta vor
eins og verið hefur.
Sundnámskeið
Tveggja vikna Sundnám-
skeið verður h.ald.ið í Sund-
h.öll ísafjarðar og hefst
mánudaginn 30. maí.
Fyrir börn fædLd. 1979, 1980,
1981, og 1982.
Kennarar verða Gnðríður og
Ranný.
Innritun í Sundhöllinni í
síma 3200.
Sunddeild Vestra.
Yinabæjarmót:
Færeyingar
og Grænlendingar
koma
Vinabæjarmót er skemmti-
legt fyrirbæri sem stöðugt ber
meira á. Þetta er sérstaklega
áberandi meðal norður-
landaþjóðanna. Á ísafirði
verður eitt slíkt haldið nú í
lok júní. Bæjarfulltrúar vina-
bæja ísafjarðar í Grænlandi
og í Færeyjum koma þann 25.
Eins og gestrisnu fólki sæmir
munu ísfirðingar reyna að
/ • / >/
i jum
hafa ofan af fyrir hinum góðu
gestum með skoðanaferðum,
heimsóknum á hinar ýmsu
stofnanir og fyrirtæki og þ.h.
Fulltrúarnir hitta bæjar-
stjórnina og ræða hugsanlega
samvinnu bæjanna. Við á BB
vonum að bæjarbúar sýni nú
á sér betri hliðina á meðan á
heimsókninni stendur.
Þannig að þú bara ferð héðan með bros á vör?
Nei ég segi það ekki. Ég á eftir að sakna Sponsaranna minna,
það er engin lýgi. Nú og svo er ég búin að vera að útskrifa folk
með heimsmerki í dansi, og ég hefði gjarnan viljað halda áfram
með þau; að koma ísfirðingum á íslandsmótið í samkvæmisdöns-
um. Ég hefði vel getað gert það því hér er mikið af góðum döns-
urum og þróunin hjá þeim hefur verið mikil og góð.
Að lokum?
Bið að heilsa öllum.